Morgunblaðið - 20.11.1991, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 20.11.1991, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 1991 Flugleiðir og SAS: Reykingabanni á norræn- um flugleiðum vel tekið FLUGLEIÐIR og SAS hafa tekið upp reykingabann á flugleiðinni milli íslands og Norðurlanda frá og með 15. nóvember. Samkvæmt upplýsingum félaganna var banninu vel tekið þessa fyrstu daga og nánast enginn óánægja meðal farþega. Flug milli íslands og Norðurlanda tekur um og innan við þrjár klukkustundir. Að sögn Hólmfríðar Árnadótt- ur, forstöðumanns þjónustudeildar Flugleiða, voru viðbrögð farþega jákvæð. Nokkrir farþegar frá Bandaríkjunum sem komu um borð í Keflavík vissu ekki af bann- inu en tóku því vel þegar þeir voru beðnir um að láta það vera að reykja um borð. „Það er bann- að að reykja á öllum flugleiðum innan Bandaríkjanna, sem eru skemmr en sex tímar og á öllum leiðum innan Norðurlanda eru reykingar bannaðar. Við vorum búin að dreifa upplýsingum til þeirra farþega, sem voru að fara til Norðurlanda og kynna þeim hvað til stæði,” sagði Hólmfríður. Á undanfömum árum hefur mjög dregið úr reykingum farþega og fór þeim sætaröðum stöðugt fækkandi, sem ætlaðar voru reyk- ingamönnum hjá báðum flugfélög- unum. „Þeim hefur fækkað veru- lega sem reykja um borð í flugvél- um og jafnvel reykingafólk kærði sig ekki um að reykja um borð í flugvélum bæði sjálfra sín vegna og annarra farþega. Það var því búið að vinna þetta meira en hálfa leið fyrir okkur,” sagði Hólmfríð- úr. „Frá og með föstudegi var bannað að reykja um borð í flug- vélum SAS á flugleiðinni til Kaup- mannahafnar,” sagði Bryndís Þór- arinsdóttir, deildarstjóri ferða- skrifstofudeildar SAS. Engar at- hugasemdir komu frá fraþegum í fyrstu ferðunum tveimur en einn kvartaði í þeirri þriðju. „Bannið er kynnt um borð og farþegum sagt að um nýja tilraun sé að ræða að fella niður reykingar á þessari flugleið,” sagði Bryndis, en SAS leyfir ekki reykingar á öðrum leiðum félagsins innan Norðurlanda. „Það hefur verulega dregið úr reykingum á flugleiðum félagsins og var ekki nema lítill hluti farþegarýmis ætlaður fyrir reykingamenn. Þetta voru nokkrar sætaraðir aftast í vélinni og oftast reykti enginn á fyrsta farrými.” VEÐURHORFUR íDAG, 20. NÓVEMBER YFIRLIT: Fyrir sunnan land er 1.030 mb hæðarhryggur sem hreyf- ist suðaustur, en víðáttumikil 983 mb lægð milli Nýfundnalands og Suður-Grænlands hreyfist norðaustur. SPÁ: Suðvestan 4-6 vindstig og slydduél á Vestur- og Suðurlandi en suðaustan 5-7 vindstig og rigning á Norður- og Austurlandi. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á FIMMTUDAG: Suðlæg átt, víða allhvasst og rigning um sunnanvert landið en heldur hægari og þurrt nyrðra. Hiti 1 -7 stig. HORFUR Á FÖSTUDAG: Sunnan og suðvestan átt, víða stinnings- kaldi eða allhvasst og slydduél sunnanlands og vestan, en hægari og þurrt á Norður- og Norðausturlandi. Kóinandi veður. Svarsfmi Veðurstofu íslands - Veðurfregnir: 990600. VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri 2 hálfskýjað Reykjavik-8-1 skýjað Bergen 1 léttskýjað Helsinki 0 frostrigning Kaupmannahöfn 3 rigning á s. klst. Narssarssuaq 8 rigning Nuuk skýjað Ósló 0 léttskýjað Stokkhólmur 1 alskýjað Þórshöfn 5 haglélás. klst. Algarve 18 háifskýjað Amsterdam 5 þokumóða Barcelona 16 skýjað Berlín 5 þokumóða Chicago vantar Feneyjar 9 rigning Frankfurt 10 rigning Glasgow 7 léttskýjað Hamborg S skýjað London 7 rigning Los Angeles 11 heiðskirt Lúxemborg skýjað Madrfd 12 skýjað Malaga 18 skýjað Mallorca 18 skýjað Montreal S alskýjað NewYork 8 léttskýjað Orlando 20 alskýjað París 5 rignlng Madeira 19 skúrás.klst. Róm 17 rigníng Vín 2 þokumóða Washington vantar Winnipeg 1 léttskýjað Flugskýlið I Vatnagörðum var ein af stærstu byggingum landsins þegar það var byggt um 1930. Það á í framtíðinni að hýsa flugminja- safn á Hnjóti í Orlygshöfn. Balbo-flugskýlið úr Vatnagörðum hýsir flugrninjasafn á Hnjóti FLUGMÁLASTJÓRN hefur ákveðið að reisa gamla flugskýlið úr Vatnagörðum I Reykjavík á Hnjóti í Örlygshöfn, þar sem það mun ásamt nokkrum öðrum sögufrægum húsum, sem tengjast sögu flugs- ins, hýsa flugminjasafn sem Egill Ólafsson minjavörður hefur komið upp og gaf Flugmálastjórn fyrr á þessu ári. Flugskýlið var byggt í Vatna- görðum veturinn 1930-31 til að hýsa_ Junkers-sjóflugvélar Flugfé- lags Islands og var þá ein af stærstu byggingum landsins. Eftir 1933 var skýlið oft kennt við ítalska flug- kappann Balbo, en fiugvélunum í leiðangri hans var lagt fyrir framan skýiið. Reykjavíkurhöfn eignaðist flugskýlið og var það haft til ýmissa nota. Meðal annars hófu Loftleiðir starfsemi sína í því árið 1944. Það var tekið niður á sjöunda áratugn- um. Nú hefur Flugmálastjórn sent grind flugskýlisins vestur að Hnjóti og þar verður skýlið endurbyggt. Egill Ólafsson segir að það verði byggt úpp sem næst upprunalegri mynd enda sé það merkilegt hús í sögu flugsins. Egill hefur verið að byggja upp flugminjasafn á Hnjóti undanfarin ár. Hefur hann komið hlutunum fyrir í þremur litlum byggingum, gömlu flugstöðvunum frá Patreksfirði og Þingeyri, síðar- nefnda flugstöðin var reyndar upp- haflega stýrishús af seglskútu, og einu af elstu radíóvitahúsum lands- ins. Egili gaf Flugmáiastjórn flug- minjasafnið fyrr á þessu ári til minningar um son sinn, Egil Stein- ar. Egill Ólafsson segir að safnið verði formlega opnað í júní á næsta ári. í Balbo-flugskýlinu verður kom- ið fyrir ýmsum munum úr flugsög- unni sem Egill hefur viðað að sér. Starfshópur um endurskoðun nor- ræns samstarfs: Matthías Á. Mathiesen fulltrúi forsætísráðherra DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra hefur útnefnt Matthías Á. Mathi- esen, fyrrverandi utanríkisráðherra, sem persónulegan fulltrúa sinn í starfshópi á vegum forsætisráðherra Norðurlandanna, sem ber að endurmeta norrænt samstarf. Starfshópurinn á að skila tillögum um breytingar á Norðurlandasamstarfinu fyrir 40. þing Norðurlandaráðs, sem haldið verður í Helsinki í byijun marz á næsta ári. „Matthías hefur gríðarlega þekkingu á þessum efnum,” sagði Davíð Oddsson í samtali við Morg- unblaðið. „Það var talað um að í starfshópnum yrðu menn, sem verið hafa í háum ábyrgðarstöð- um. Finnar útnefna til dæmis fyrr- Þjóðviljinn: Greiðslustöðv- un framlengd til 19. janúar ÚTGÁFUFÉLAG Þjóðviljans fékk framlengingu á greiðslu- stöðvun blaðsins í gær til tveggja mánaða og rennur hún því út 19. janúar 1992. Þjóðviijanum var fyrst veitt greiðslustöðvun 19. ágúst til tveggja mánaða, hún fékkst svo framlengd um einn mánuð í október og nú hefur blaðið fengið heimild fógeta til að fullnýta lögbundinn greiðslustöðvunarfrest, sém ■ er fimm mánuðir. ■> *»•> verandi utanríkisráðherra sinn. Matthías er fyrrverandi utanríkis- I ráðherra og hefur einnig verið við- skipta-, samgöngu- og fjarmála- ráðherra. Hann nýtur virðingar og trúnaðar.” Á fundi forsætisráðherra Norð- urlanda á Álandseyjum í síðustu viku var samþykkt að setja starfs- hópinn á stofn. Hann á að gera tillögur um breytingar í því skyni að beipa kröftum norræns sam- starfs meira út á við en verið hef- ur og efla Norðurlöndin sem áhrifaafl í Evrópusamstarfi. Ók á ljósastaur < UNGUR maður var fluttur á sjúkrahús í fyrrakvöld eftir að i hann hafði misst vald á bíl sínum í hálku á Álftanessvegi. Meiðsli hans voru ekki talin alvarleg, að j sögn lögregiu. " Maðurinn var á ferð um klukkan 18.30 og í beygju á hálum veginum j missti hann vald á bíl sínuin með þeim afleiðingum áð hann rakst á ljósastaur í vegkantinum. Árekstur- inn yarð harður. Bæði stáurinn og bíllihn eru tóidir ónýtir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.