Morgunblaðið - 20.11.1991, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 20.11.1991, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBÉR 1991 Hrauneyjafosslína á Haukadalsheiði. Myndin er tekin við línuveginn og gæti þótt dæmi um sjónmengun. Skyldi það þó ekki fremur vera sjónarhorn myndavélarinnar en myndefnið sjálft sem þar ræður úrslitum? Þessi mynd er tekin á sömu slóðum og sú fyrri. í baksýn eru Jarlhettur, Tröllhetta fyrir miðju. Þarna hefur ljósmyndarinn gengið spölkorn út fyrir veginn. 20 m möst- ur eru ekki stór I víðáttu íslands. Hvað er sjónmengnn? eftir Þorstein Hilmarsson Þegar talað er um sjónmengun er átt við mengun í öðrum skilningi en þegar talað er um aðrar tegund- ir mengunar. Önnur mengun hefur skaðleg áhrif á náttúruna, kemur þar á ójafnvægi, en sjónmengun skaðar ekki náttúruna, heldur sýn mannsins á hana. Það eitt sem brýt- ur í bága við fegurðarskyn áhorf- andans veldur slíkum skaða. Hver og einn mótar eigin fegurð- arskyn og aðlagar það þeim kröfum sem hann gerir til umhverfisins. Þegar sjónmengun er annars vegar þarf fólk því að hafa til hliðsjónar yfirvegað mat á til hvers það ætl- ast af umhverfinu, því þangað sækj- um við möguleika okkar til lífsaf- komu og getum því ekki haft þá afstöðu að umhverfið sé eitthvað sem láta verði afskiptalaust. Flestir gera sér grein fyrir þessu þó svo að stundum þyki okkur sitthvað mega betur fara þegar við lokum augunum fyrir kröfunum sem við gerum til lífsins..Dæmi um slíkt er þegar lagning raflína er talin dæmi- gerð sjónmengun. Náttúruvernd snýst ekki um að láta náttúruna ósnerta því hún býr yfir niðurrifsöflum sem raunar eru mun öflugri hér en þau náttúruöfl sem virka til uppbyggingar. Stað- reynd er að oft fegrum við landið með því að grípa inn í gang náttúr- unnar til þess að veija hana fyrir sjálfri sér og beinum henni í annan farveg en hún leitar í sjálf. Af- skiptasemi mannsins er þess vegna ekki einskorðuð við nýtingu náttúr- unnar. Þessu þurfa allir náttúru- vemdarsinnar að feera. sér grein fyrir. Náttúruvernd er fólgin í beisl- un náttúrunnar, rétt eins og nýting hennar. Fólk verður að taka ábyrga afstöðu til náttúrunnar þannig að bæði sé tekið tillit til ánægjunnar og gagnsins sem hafa má áf henni. Er uppbygging rafveitukerfisins vafasamar framfarir sem spilla náttúrunni? Sé vel að uppbyggingu raforkukerfisins staðið hér á Islandi þá spillir það ekki náttúmnni, mengar ekki andrúmsloftið og gengur ekki á takmarkaðar auð- lindir, heldur býr það í haginn fyrir komandi kynslóðir. En hún veldur sjónmengun hjá þeim sem gera sér aðrar hugmyndir um til hvers nýta skuli umhverfið eða leiða ekki hug- ann að því með hvaða móti lífs- gæði sem þeir telja sjálfsögð eru fengin. Gunnar á Hlíðarenda taldi bleika akra fagra og löngum hafa íslendingar hrifíst af búsældarleg- um sveitum og ekki talið þar engin náttúruspjöll eða sjónmengun á ferð þótt náttúrunni hafí verið umturnað til þess að hún nýttist þjóðinni til framdráttar. Spurningin er hvort sú hagsýni sem þar skipti sköpum ætti ekki líka að segja okkur að lagning háspennulína að vel athuguðu máli geti ekki talist annað en framfaraskref sem ekki sker í augu. Raflínur hafa einungis bein skað- leg áhrif á náttúruna ef illa er stað- ið að byggingu þeirra og slóðahátt- ur viðgengst við frágang á þeim. Landsvirkjun kappkostar að láta slíkt ekki gerast og leggur metnað sinn í að öll mannvirki á hennar vegum beri vitni um snyrtimennsku og virðingu fyrir umhverfínu. Má þar nefna að á undanförnum árum hefur Landsvirkjun staðið fyrir umfangsmikilli uppgræðslu lands á virkjunarsvæðum, fiskirækt í vötn- um og ám og margvíslegum rann- sóknum á vistkerfinu . Allt er þetta gert í því augnamiði að skila náttúr- unni í sem bestu jafnvægi eftir það rask sem framkvæmdirnar hafa í för með sér, fegra hana og auðga. Landsvirkjun telur sig þurfa að leggja raflínur yfir hálendið, nánar tiitekið um Ódáðahraun og Sprengi- sand. Sprengisandsleiðin verður eina tengingin milli Suður- og Norð- urlands yfir hálendið í framtíðinni. Það eru því engin áform uppi um línur á svæðum eins og um Kjöl eða Arnarvatnsheiði. Með því að láta virkjanir landsins mynda eitt samtengt kerfi eru þær öflugri en einstakar virkjanir sem þjóna af- mörkuðum svæðum. Með samteng- ingu bætir ein virkjun upp lægðir í framleiðslu annarrar og öryggi í afhendingu rafmagns til neytenda eykst. Með tilkomu Fljótsdalsvirkj- unar verður nauðsynlegt að tengja hana við aðrar virkjanir með öflug- um línum sem tryggir að hún nýt- ist landskerfinu og hagkvæmasta leiðin til þess að gera það er að leggja línu um hálendið. Benda má á að um þriðjungur virkjanlegrar vatnsorku landsins með tilliti til umhverfisvemdar er á Norðaustur- Iandi. Vandséð er að sú orka verði ekki virkjuð í framtíðinni og því ljóst að háspennulínur verða lagðar þar. Hugmyndir um að leggja háspennu- línurnar í jörð eru óraunsæjar vegna þess að það fimmfaldar kostnað, auk þess sem slíkar framkvæmdir valda miklu jarðraski. Tillögur um að leggja nýjar línur samhliða byggðalínu eru einnig vafasamar, þar sem öryggi verður mun minna þegar allar línur geta rofnað sam- tímis vegna staðbundinna áfalla. Vissulega er náttúra íslands við- kvæm og verðmæt og þess vegna má ekki framkvæma fyrirhyggju- laust. Menn ættu því að hugsa til þess hvernig við eigum að umgang- ast hana, með virðingu og af var- færni, á skipulegan hátt sem fyrir- byggir að við missum einstök verð- mæti út úr höndunum. Við þurfum augljóslega að ákveða skynsamlega nýtingu há- lendisins. En hvar liggja mörkin? Eigum við e.t.v. að stöðva alla upp- græðslu, því erlendir náttúmunn- endur hrífast af örfoka auðnunum hér á landi? Að sjálfsögðu ekki. Sé ósnortin náttúra auðlind sem á að nýta en ekki fela eða gera sem óaðgengilegasta þá þarf að af- marka hvar leyfa_ skal umferð og mannvirkjagerð. í þessum efnum þarf að marka skýrari stefnu en gert hefur verið. Landsvirkjun hefur ætíð undirbúið sínar framkvæmdir í samvinnu við hlutaðeigandi yfir- völd, landeigendur og ábúendur og leitað eftir samþykki viðeigandi aðila. Gagnrýni á framkvæmdagleði og fyrirhyggjuleysi Landsvirkjunar sem komið hefur fram að undan- förnu á því tæpast við rök að styðj- ast. Höfundur er upplýsingafulltrúi Lundsvirkjunar. Maður, líttu þér nær! eftir Ragnheiði Davíðsdóttur Varla þarf að fara mörgum orð- um um hinar stórfelldu niðurskurð- araðgerðir ríkisstjómarinnar þessa dagana; aðgerðir sem vissulega hafa verið gagnrýndar og það með réttu. Alþjóð er enn í fersku minni ummæli ráðherra heilbrigðis-, utan- ríkis- og fjármála, sem lýstu því yfir á Alþingi að velferðarkerfíð fengist ekki ókeypis og menn yrðu að gjöra svo vel að skilja að ein- hvers staðar yrði að taka peningana til þess að standa undir þeim kostn- aði. Og víst er það satt og rétt að velferðarmálin kosta peninga. Um það blandast engum hugur. Þeim Jóni Baldvin Hannibalssyni, Sig- hvati Björgvinssyni og Friðrik Sop- hussyni láðist hins vegar að taka fram að það er ýmislegt fleira í þessu þjóðfélagi sem kostar bein- harða peninga. Þeir „gleymdu” til dæmis að nefna að e.t.v. mætti skera niður aðra kostnaðarliði í rík- isútgjöldum en þá sem snerta vel- ferðarmálin. í þeirri umræðu sem nú á sér stað um niðurskurð og aftur niðurskurð er rétt eins og hvergi annars staðar sé hægt að spara en í heilbrigðis- og félagsmál- um. Hvað kostar t.d. allt áfengið — brennivínið, sem hið opinbera veitir „Mér, sem fleirum, býð- ur nefnilega í grun að þær upphæðir sem hið opinbera bruðlar með í ýmiss konar munað og óþarfa slagi hátt í að rétta af þann ríkishalla sem niðurskurður í vel- ferðarmálum á einn að rétta af ef marka má orð forystumanna þess- arar ríkisstjórnar.” Ragnheiður Davíðsdóttir Fólkið í landinu; fólkið sem borg- ar þennan reikning, á kröfu á svari. Fyrir hönd skattgreiðenda skora ég hér með á rétta aðila að svara þess- um spurningum afdráttarlaust. Mér, sem fleirum, býður nefnilega í grun að þær upphæðir sem hið opinbera bruðlar með í ýmiss konar munað og óþarfa slagi hátt í að rétta af þann ríkishalla sem niður- skurður í velferðarmálum á einn að rétta af ef marka má orð forystu- manna þessarar ríkisstjórnar. Að lokum skora ég á almenning í þessu landi að láta til sín heyra í ræðu og riti um þessi mál. Við skul- um alltaf vera minnug þess að hin- ir sextíu og þrír einstaklingar, sem sitja í hinu virðulega húsi við Aust- urvöll, væru þar alls ekki ef við hefðum ekki fengið þar einhveiju um ráðið. Þeir sitja þar í okkar þágu og ber skylda til þess að vinna fyrst og fremst að velferðar- og hagsmunamálum fólksins í Iandinu. Þeir sitja þar ekki til þess að skara eld að sinni eigin köku. Þeim ber því siðferðileg skylda (ef þeir á annað borð vita hvað það orðasam- band merkir) til þess að byija fyrst á því að reyta arfann í eigin garði áður en þeir taka til við að slíta upp rósirnar í annarra manna görð- um. Að öðrum kosti er nokkuð ljóst að ekki verður sáð fyrir nýjum rós- um að fjórum árum liðnum. llöfundur er báskólanemi og varaþingmaðíi'r Alþýðuflokksins. Spádómarnir rætast í veislum sínum? Mætti e.t.v. spara þar? Hvað kostuðu utanlandsferðir nokkurra þingmanna sem nýlega lögðust í ferðalög til Thailands og Suður-Ameríku á kostnað ríkisins? Mætti e.t.v. spara þar? Hvað kosta allir ráðherrabílarnir og rekstur þeirra? hvað kostaði t.d. volvo-bif- reið heilbrigðisráðherra og hvað hefði mátt niðurgreiða marga lyfja- skammta fyrir öryrkja og ellilífeyr- isþega fyrir þær milljónir? Hversu miklum fjármunum er varið í dag- peninga fyrir þingmenn og aðra opinbera aðila á ferðum þeirra um heiminn í mismikilvægum eríndnm? Mætti e.t.v. spara þar? Kann að vera að í flestum tilfellum fái þess- ir aðilar engu að síður fæði og gist- ingu sér að kostnaðarlausu? Það skyldi þó aldrei vera! Undirrituð gerði ítrekaðar til- raunir til þess að fá upplýsingar um þessa útjgaldaliði hjá hinu opin- bera en án árangurs. Svörin voru bæði loðin og óljós og því oftast borið við að ekki væri hægt að „sundurgreina einstaka liði”. Eða þá að viðkomandi ráðuneyti yrði að „gefa leyfi” áður en upplýs- ingarnar yrðu.veittar____

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.