Morgunblaðið - 20.11.1991, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 20.11.1991, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 1991 ©1986 Univers*! Pfaas Synd»c«le /f lékfctu f/ór&r OSpirmtöfLur OQ hr 'mgdu i mig i fyrramcilio-" Nú veitir þér ekkert af þurr- um martini. Þessir hringdu . . Nýju íþróttaskónum stolið Sunnudaginn 17. nóv. sl., á tímabilinu 14-16.20, gerðist ein- hver sekur um þjófnað á nýjum íþróttaskóm sem voru í hillu í íþróttahúsi Vals, Valsheimilinu. Um er að ræða Nike-air skó sem eru hvítir með grænni láréttri rák á báðum hliðum. Skórnir eru núm- er 41 og með s.k. loftpúðum. Ljóst er að skórnir voru ekki teknir í misgripum. í umrætt sinn fóru fram æfingaleikir í húsinu milli 5. flokks Vals og ÍK úr Kópa- vogi. Hér með er skorað á hinn seka að skila skónum í Valsheimil- ið því rétt er að láta að vita að skór þessir fást ekki hérlendis í þessum litum og þekkjast því greinilega. Jafnframt er skorað á foreldra að aðgæta þetta ef barn þeirra hefur óþekkta skó í fórum sínum. Þess er óskað að skónum verði skilað í Valsheimilið þar sem upplýsingar liggja fyrir um eig- endur þeirra. Mjög gömul heillaóskaskeyti Hjá óskiladeild lögi’eglunnar í Reykjavík er pakka að finna sem geymir mjög gömul heillaóska- skeyti, sendibréf, gamlar ljós- myndir og fógetabréf. Pakkinn hafði gleymst í strætisvagni. Ef einhver kannast við hlutina getur hann haft samband við lögregl- una. Raleigh-kvenhjól Rautt' Raleigh-kvenhjól hvarf frá Grenimel 43 helgina 9.-10. nóv. Eigandinn getur illa án þess verið svo sá sem veit hvar hjólið er niðurkomið vinsamlegast skili því til lögreglunnar eða hringi í síma 15398. Barnagleraugu Barnagleraugu með blárri um- gjörð töpuðust föstudaginn 15. nóv. Líklega hafa þau týnst á leið- inni frá Kjarrhólma að Starr- hólma. Finnandi vinsamlegast hringi í síma 642554. Svört ullarkápa Sá eða sú sem tók í misgripum svarta ullarkápu í félagsheimilinu í Garðinum föstudaginn 8. þessa mánaðar vinsamlega skilið henni á sama stað eða látið vita í síma 92-27018. Ánægð með grein Mæja vildi koma eftirfarandi á framfæri: „Okkur íslendinga skortir svo tilfinnanlega aga, umburðarlyndi gagnvart náung- anum og yfirleitt almenna sið- fágun. Þess vegna langar mig til að beina athygli fólks að grein Jónínu Michaelsdóttur „Þjóðarsál- in” í Lesbókinni sl. laugardag. Hana hefðu allir gott af að lesa, ég held að þar sé hver setning sönn.” Bjarna Fel. aftur í enska boltann Knattspyrnukona hringdi og vildi fá Bjarna Fel. aftur til þess að lýsa ensku knattspyrnunni á laugardögum. Hún sagði núver- andi umsjónarmann alltaf hafa gest með sér og þeir væru ætíð að tuða eitthvað og það drægi athyglina frá leiknum. Kápa afhent í misgripum Svört Kerner-kápa var afhent í misgripum úr fatahengi á Hótel íslandi á árshátíð MR fimmtu- dagskvöldið 14. nóv. Kápan er hneppt með einni tölu og hankinn er gyllt keðja. Foreldrar eru beðn- ir að kíkja inn í fataskáp barna sinna og athuga hvort þar sé kápa sem ekki eigi þar heima. Sá sem fékk ranga kápu heim með sér er beðinn að skila henni á Hótel ísland eða hafa samband við Önnu í síma 617531. Útbreiðsla trúarinnar Heimurinn eins og við þekkjum hann er heimurinn eftir syndafallið, las ég eitt sinn í kristilegu blaði. Veröld þar sem alla skortir Guðs dýrð og ekki eitt mannanna barna er réttlátt, nema með vissu skil- yrði. Heilög ritning segir heiminn allan liggja í hinu vonda, og sjá, undur og stórmerki henda. Sonur Guðs tekur á sig þjóns mynd og kemur til jarðar holdi klæddur, vegna þess að Guð elskar mennina svo mikið og vill ekki að neinn glat- ist. Kristur Jesús er hinn nýji sátt- máli frá Guði kominn, eini vegur- inn, sannleikurinn og lífíð. Hver sem á hann trúir glatast ekki held- ur er hann stiginn yfír frá dauðan- um til lífsins og fær að lifa að eilífu í ríki Guðs þar sem réttlæti býr og hvorki harmur né vein eru til, lof sé Guði og dýrð í upphæðum. Fyrir- heitið er stórt, því Guð er sá sem ekki lýgur, þó allir menn séu falln- ir af leið. En í dag er hjálpræðisdag- ur og lausn úr ánauð syndarinnar fyrir hendi. Hver þráir ekki að búa í réttlátum heimi, þar sem allt böl er horfíð og dauðinn ekki framar til? Okkar er valið, og sérhver er hólpinn er játar Jesúm Krist. ó, hve himneskt verður þá að lifa og vera til. Sjá, Jesús kemur aftur. Þenhan gleðiboðskap verður að færa öllum mönnum um alla jörð, og því ættu kristnir menn að hafa hugföst orð Jesú Krists í Matteusarguðspjalli, að fara út um allan heim og gjöra menn að Iærisveinum. Fyrr getur ríki Guðs ekki komið, og þetta starf geta titlaðir prestar ekki unnið ein- ir, þar sem kirkjulög og hefðir og embættisverk hefta þá. Kirkjan sem stofnun er þeim sem tugthús og heldur þeim í fjötrum, sem hverjum öðrum tugthúslimum svo þeir kom- ast ekki út á akurinn til að vinna menn til guðsríkis. Mikil ábyrgð hvílir því á sérhverj- um kristnum manni. Að hann geri sér grein fyrir sínum almenna prest- dómi og útbreiði fagnaðarboðskap- inn um frelsarann Jesúm Krist og ríki Guðs, þar sem réttlæti mun búa um eilífð, lof og þökk sé Guði. Höfum hugfasta kristniboðsskipun frelsarans nú þegar líða fer að jólum og hátíð Guðssonar fer í hönd. Einar Ingvi Magnússon Víkverji skrifar Athygli Víkverja var nýlega vak- in á hættulegri þróun sem væri að verða í áfengissölu hér á landi. Var þar bent á, að þjónustu- staðir við þjóðveginn hefðu fengið leyfí til að selja áfengan bjór og létt vín. Þessi sala væri að því leyti frábrugðin áfengissölu almennt á vínveitingastöðum, að á veitinga- staðina við þjóðveginn kæmu menn ekki til að kaupa áfengi til neyslu á staðnum heldur tækju bjórkipp- una með sér út í bíl og héldu áfram ferð sinni. Víkverja er ekki kunnugt um hve víða við jjjóðvegi er unnt að kaupa áfengi en útbreiðsla á slíkri áfengis- sölu hér gengur þveit á það, sem er að gerast hvarvetna annars stað- ar. Meira að segja í vínlandinu mikla, Frakklandi, er verið að setja áfengissölu á áningarstöðum við þjóðvegi skorður. Þegar slíkt bann er sett, er jafnframt verið að vinna að öryggi í umferðinni og draga úr slysahættu, sem má ekki síst rekja til áfengisneyslu. Víkverji telur nauðsynlegt að umræður fari fram um þessa þróun hér og rætt sé um kosti hennar og galla á opinberum vettvangi. Vín- veitingaleyfí eru veitt til þess að veitingamenn geti selt viðskiptavin- um sínum alhliða þjónustu á veitingastaðnum. Það er ekki veitt í því skyni að koma á fót eins kon- ar aukaútsölu fyrir Afengis- og tób- aksverslun ríkisins. xxx Hugmyndir eru uppi um að af- nema einkarétt ríkisins til að selja áfengi. Enginn vafi er á því, að seint næst eining um slíka breyt- ingu. Deilurnár eiga ekki eftir að verða um það, hvort hagkvæmara eða óhagkvæmai'a sé að selja vör- una fyrir tilstilli einkaaðila en ríkis- ins. Rökin fyrir ríkiseinokun eru ekki skotheld, þegar rætt er um málið með viðskiptasjónarmið í huga. Annað verður uppi á teningn- um, þegar rætt er um félagslega þáttinn eða heilbrigðisþáttinn. Sam- kvæmt öllum lögmálum eykst neysla á vöru í réttu hlutfalli við hve auðvelt er að nálgast hana. Þeir sem vilja hafa einhvern hemil á áfengisneyslu munu því andmæla afnámi ríkiseinokunarinnar. xxx Þegar rætt er um bindindismál og stjórnmál, er erfitt að nota hefðbundnar flokkslínur til að setja mörkin á milli manna. Bindindis- málin eru þverpólitísk. Þetta kom til dæmis glögglega í ljós, þegar rætt var um bjórsölu á Alþingi. Innan stjórnmálaflokka gegnir mik- illar tregðu til að ræða um bindind- ismál, og fyrir suma eru orð eins og til dæmis bindindissemi beinlínis bannorð, þegar að því kemur að álykta um brýn úrlaúsnarefni þjóð- arinnar. Víkveiji er þeirrar skoðunar að þessi tregða til þess að líta á áfeng- isneyslu í stóru þjóðfélagslegu sam- hengi sé á undanhaldi. Er það að- eins í samræmi við útbreiðslu þeirra skoðana, að sérhver einstaklingur verði Sjálfur nokkuð á sig að leggja til að gæta eigin heilsu og velferð- ar. Æ fleiri átta sig á því að ekki dugar að lifa í þeirri trú, að ríkið hugsi fyrir þá og segi hvað þeir megi og hvað þeim sé bannað.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.