Morgunblaðið - 20.11.1991, Blaðsíða 44
RISC SYSTEM/6000 KEYRIR UNIX FRAMTÍÐARINNAR: tonitiiililftfcib VÁTRYGGING sjják, SEM BRIÍAR 'ájpllfe;
IBM AIX SJÓVÁt«LMENNAR
SÍMl eOn'oO^FAX eOltÍfVóSTHó’LFISSS^AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI #5 MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 1991 VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR.
:i' •' ..-vi • ' w ' ■'',
■
Jakob Guðlaug'sson myndar ólgandi kvísl Skeiðarár.
Morgunblaðið/KGA
*
Ovenjuhraður vöxtur í Skeiðará
RENNSLI í Skeiðará var á bil-
inu 1700-1800 rúmmetrar á
sekúndu í gær en talið er að
hlaup hafi hafist í ánni fyrir
tæpri viku, að sögn Snorra
Zóphóniassonar jarðfræðings.
Hann sagði að vaxið hefði
óvenjuhratt í ánni. Jakob Guð-
laugsson bóndi í Skaftafelli,
sem hefur fylgst með mörgum
Skeiðarárhlaupum, sagði að
breytingar hefðu orðið á jöklin-
um siðan sl. sumar og byrgði
hann nú sýn til Lómagnúps frá
vissum stöðum í þjóðgarðinum
í Skaftafelli.
Ain rennur fram í fjórum meg-
inkvíslum og smærri álum og
leggur mikla jöklafýlu af henni.
Snorri sagði að vaxið hefði
óvenjuhratt í ánni, því að í fyrra-
dag mældust 1200 rúmmetrar á
sekúndu. Hann sagði að það gæti
allt eins bent til þess að þetta
hlaup yrði ekki stórt. Eðlilegt
rennsli árinnar um þetta léyti árs
er 100-150 rúmmetrar.
Upptök hlaupsins eru í Gríms-
vötnum og sagði Snorri að vatn
safnaðist þar fyrir í katli vegna
eldsumbrota eða jarðvarma á
svæðinu. Þegar þrýstingur væri
orðinn nægur til að sleppa undir
jökulinn ryddist vatnið fram und-
an jökulsporðinum í einum far-
vegi. Það réðist síðan af stærð
opsins í sporðinum hve stórt
hlaupið yrði.
Sverrir Hermannsson bankastjóri Landsbankans:
Slaka þarf á ákvæðum um
lausafjárskyldu bankanna
Slj órnarf rumvarp:
Framkvæmda-
sjóður verði
lag’ður niður
RÍKISSTJÓRNIN samþykkti í
gær að vísa til þingflokka stjórn-
arflokkanna frumvarpi um að
Framkvæmdasjóður verði lagður
niður og gerður að deild í Lána-
sýslu ríkisins. Frumvarpið er
byggt á tillögum fortíðarvanda-
nefndar, sem í gær skilaði
skýrslu um vanda Framkvæmda-
sjóðs.
Fortíðarvandanefnd segir í
skýrslu sinni að eigið fé Fram-
kvæmdasjóðs hafi rýmað um 2,7
milljarða króna á fimm ára tíma-
bili, frá ársbyrjun 1986. Nefndin
gagnrýnir afskipti stjórnvalda af
lánveitingum sjóðsins og telur að
þau hafi haft þau áhrif að staða
hans versnaði.
Nefndin leggur til að skipuð verði
yfirtökunefnd, sem taki við eignum,
kröfum og skuldbindingum Fram-
kvæmdasjóðs um áramót. Lána-
sýslu ríkisins verði falið að gera
tillögur um hvernig haga megi end-
urfjármögnun til að standa undir
skuldbindingum sjóðsins, en fyrir-
sjáanlegur er mikill greiðsluhalli.
.■jsmÞá mun sjóðurinn þurfa á ríkisfram-
iagi að halda, enda er eigið fé hans
neikvætt um 1.300 miiljónir króna.
Sjá frétt á miðopnu.
Handbolti:
Heimsmeistara-
keppni eða fjár-
hagsstuðningur
Forsætisráðherra og fjármála-
ráðherra hafa sagt Handknatt-
leikssambandi Islands að verði
—heimsmeistarakeppnin í hand-
knattleik haldin hér á landi árið
1995 fái HSÍ hvorki ríkistryggt
lán né styrk frá ríkisvaldinu
vegna fjárhagsstöðu sambands-
ins.
Fjárhagsstaða HSÍ er mjög slæm
og hefur verið óskað eftir stuðningi
ríkisvaldsins. Stjórnvöld eru tilbúin
til að koma til móts við sambandið
vegna kostnaðar í sambandi við
umsóknina um HM að því tilskildu
að hætt verði við að halda keppn-
ina, en engar upphæðir hafa verið
nefndar. HSÍ tekur málið fyrir á
sambandsstjórnarfundi um helgina.
Sjá „Hvorki Ián né styrkur...”
á bls. 43.
SVERRIR Hermannsson, banka-
stjóri Landsbankans, segist telja
eðlilegt að stjórnvöld slaki á að-
haldsákvæðum um bindiskyldu
og Iausafjárskyldu innlánsstofn- I
ana vegna þeirra þrenginga sem
nú eru. „Þeim mun erfiðara eiga
bankarnir með að lækka vexti |
sem þeir eru beittir harðari tök-
um og refsiákvæðum að þessu
leyti,” segir hann. í Morgunblað-
inu í gær kom fram að innláns-
stofnanir hafa greitt 178 millj.
kr. í refsivexti á tímabiiinu jan-
úar til september í ár sökum
þess að hafa ekki tekist að upp-
fylla kröfur um lausafjárskyldu,
en hún miðast við 12% af ráðstöf-
unarfé. Á sama tímabili í fyrra
námu refsivextirnir 27,3 milljón-
um. Sverrir segist ekki óttast að
bankarnir auki útlán þótt slakað
verði á þessum skilmálum.
Sverrir segir að það sé nýbreytni
að 75% þeirra tekna, sem Seðla-
bankinn innheimtir í formi refsi-
vaxta, renni til ríkisins. „Ég hygg
að Ólafur Ragnar Grímsson hafi
komið þeirri breytingu á,” sagði
hann.
„Á spennutímum ber mikla nauð-
syn til að takmarka útlán og bindi-
skylda og lausafjárskylda er ein
aðferðin af hálfu stjórnvalda til að
hindra of mikil útlán. Annað mál
er að það er endalaust álitamál
hversu há.hún eigi að vera. Ég er
þeirrar skoðunar að á þeim tímum
sem nú eru rúririir upp séu þetta
of strangir skilmálar. Gífurlegur
lánsfjárþorsti ríkisins og nauðsyn
bankanna á að ná í sparifé til að
sinna atvinnulífinu helst í hendur
og allt stuðlar það að því að erfið-
ara er að fást við lækkun vaxta en
ella. Nokkur vítahringur er fólginn
í þessu og ég held að stjórnvöld
ættu að huga að því að lina þessi
ákvæði núna þegar þrengir að. Ég
held að það muni ekki skapa hættu
á að bankarnir muni taka útlána-
málin lausari tökum eins og nú er
ástatt,” sagði Sverrir.
Seðlabankinn lækkaði nýlega
bindiskyldu innlánsstofnana um 1%
fram til áramóta. Sverrir sagði að
það hefði þýtt 600 milljónir króna
fyrir Landsbankann en eftir sem
áður væru 4,2 milljarðar bundnir
af fé bankans. „Ég minni þó á að
á verðbólgutímum eru aðhaldsá-
kvæði eins og Seðlabankinn hefur
beitt mikil nauðsyn en ég tel að nú
séu þeir tímar runnir upp að þörf
sé á að taka þau til endurskoðunar
og lina tökin, því þeim mun erfið-
ara eiga bankar með að lækka vexti
.sem þeir eru beittir harðari tökum
og refsiákvæðum að þessu leyti,”
sagði Sverrir.
Þrír slösuðust í
hörðum árekstri
ÞRIR voru fluttir á slysadeild
Borgarspítalans í gærkvöldi eftir
harðan árekstur á mótum Selja-
skóga og Akrasels. Að sögn lög-
reglu slösuðust ökumaður og far-
þegi í öðrum bílnum lítillega en
hinn ökumaðurinn var mikið brot-
inn og var hann fluttur í sjúkra-
bíl á Borgarspítalann. Bílarnir eru
báðir gjörónýtir'eftir áreksturinn.
Þrír árekstrar urðu á gatnamótum
Kringlumýrarbrautar og Borgar-
túns frá kl. 16 og fram á kvöld.
Árekstrarnir voru svo harðir, að
fjarlægja þurfti alla bílana með
kranabíl. Lögreglan sagði að ekki
væri hægt að fullyrða hvað olli
árekstrunum á þessum fjölförnu
götum.
M orgu nblaðið/Ingvar