Morgunblaðið - 20.11.1991, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 20.11.1991, Blaðsíða 27
27 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 1991 Morgunblaðið/Ámi Sæberg Lagt við hlustir Það er eins og ákveðið líf færist í þingheim þegar hinn styttri fyrirspurnatími Alþingis er á dagskrá, eins og gerðist í gær. Þingmenn mega þá beina fyrirspumum til ráðherra, óundirbúið og varir fyrirspurnatíminn í hálftíma. Fyrirspytjandi má tala í tvisvar sinnum þijár mínútur og ráðherra í tvisvar sinnum fimm mínút- ur. Þingmenn og ráðherrar tala alla jafna skemur en það í þessum fyrirspumatíma. Þannig voru að sögn Salome Þorkelsdóttur forseta Aiþingis fluttar 24 ræður á þessum hálftíma í gær. Hér leggja þingmennim- ir Ámi Mathiesen, Steingrímur J. Sigfússon og Jóhannes Geir Sigurgeirsson við hlustir. Stúlkubörnin í Tyrklandi: Verður að reka málið fyrir tyrkneskum dómsstólum - segir Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra JÓN Baldvin Hannibalsson utan- ríkisráðherra sagði á Alþingi í gær um málefni stúlknanna tveggja í Tyrklandi að lögfróðir menn teldu líkurnar á því að já- kvæð lausn fengist I málinu meiri en minni, en hann sagði jafn- Síðastliðinn fimmtudag mælti Hjálmar Jónsson fyrir þingsálykt-. unartillögu sem hann flytur ásamt tíu öðmm þingmönnum úr öllum flokkum þeim: Láru Margréti Ragn- arsdóttur (S-Rv), Ragnari Arnalds (Ab-Nv), Steingrími Hermannssyni (F-Rn), Kristínu Einarsdóttur (SK- Rv), Rannveigu Guðmundsdóttur (A-Rn), Pálma Jónsyni (S- Nv), Jónu Valgerði Kristjánsdóttur (SK- Vf), Geir H. Haarde (S-Rv), Krist- ínu Ástgeirsdóttur (SK-RV) og Tómas Inga Olrich (S-Ne). Tillaga þingmannanna gerir ráð fyrir að Alþingi álykti að fela ríkis- stjórninni að skipa nefnd til að kanna tíðni og orsakir sjálfsvíga á íslandi. Leiti nefndin jafnframt leiða til að snúa við þeirri ógnvekj- andi þróun sem skýrslur sýni að nú eigi sér stað. Nefnd þessi verði skipuð aðilum úr þeim stéttum er sérfróðar geti talist í þessum og skyldum efnum. f framsöguræðu sinni lagði Hjálmar ríka áherslu á að sjálfsvíg væru viðkvæmt og vandasamt efni, fjöldi fólks ætti um sárt að binda vegna sjálfsvígs í fjölskyldu, ást- vina- eða vinahópi. Ræðumaður rakti nokkuð það sem rannsóknir hefðp leit1j|:|í ljós( um orsakir og áhrifáþætti sjálfsvíga, m.a: Örar framt að sérfróðir menn væru sammála um að reka yrði málið fyrir tyrkneskum dómstólum. Guðrún Helgadóttir (Ab-R) spurði hvað utanríkisráðherra og utanríkisráðuneytið hefði beitt sér þjóðfélagslegar breytingar og sveiflur í atvinnulífi, aukið atvinnu- leysi. Veik staða meginstofnana þjóðfélagsins eins og fjölskyldu og kirkju. Hnignun hefða og rótgró- inna siða. Einnig væri vitað að bein tengsl væru í mörgum tilvikum milli þunglyndis og sjálfsvíga. Þegar litið væri á tölur um fjölda sjálfsvíga á íslandi sæist ógnvekj- andi þróun; æ fleiri féllu fyrir eigin hendi og tíðni sjálfsvíga meðal ungra karlmanna á aldrinum 15-24 ára hefði margfaldast. Hjálmar Jónsson taldi fulla ástæðu til að taka þetta mál hérlendis öruggum og föstum tökum. Þörfin fyrir rann- sóknir væri ótvíræð, þar sem ein- hlítar skýringar á stóraukinni tíðni sjálfsvíga væru vandfundnar, ekki síst meðal ungmenna. Það dyldist ekki að mitt í velferðinni væru brotalamir og alvarlegir brestir. Velferðin stæði ekki á varanlegum grunni nema mannlegi þátturinn væri mest metinn. Fjöldi þingmanna tók til máls og lýstu allir sem einn stuðningi við tillöguna og þökkuðu framsögu- manni fyrir flutning hennar. Að lokinni þessari fyrstu umræðu var málinu vísað til allsheijarnefndar og síðari umræðu. í máli íslensku stúlknanna tveggja sem nú væri haldið í einskonar gísl- ingu í Tyrklandi, þrátt fyrir að móðir þeirra hefði forræði þeirra. Utanríkisráðherra sagði að frá því fyrst hefði verið leitað til utan- ríkisráðuneytisins með þetta mál hefði eftirfarandi verið gert: „Fyrst var málið tekið upp við tyrknesk stjórnvöld, þ.e.a.s. dómsmálaráðu- neytið tyrkneska í gegnum sendiráð Tyrkja á Islandi sem er í Osló og leitað eftir því að fá svör við til- teknum lögfræðilegum álitamálum. Síðan var málið skoðað með aðstoð lögfræðinga og þar á meðal í sam- ráði við dómsmálaráðuneytið. Nið- urstaða okkar að höfðu samráði við dómsmálayfirvöld í Tyrklandi var þessi: Okkur þótti einsýnt að málið yrði að reka fyrir tyrkneskum dóm- stólum,” sagði ráðherra. Hann sagði að ráðuneytið hefði fengið mat á því hvað það myndi kosta að reka slíkt mál fyrir tyrkn- eskum dómstólum. Utanríkisráðu- neytið hefði ráðlagt viðkomandi aðilum að leita eftir því að fá stjórn- valdsúrskurð um bráðabirgðafor- ræði yfir börnunum staðfestan fyrir íslenskum dómstóli. Dómsmálaráð- uneytið hefði synjað beiðni um gjaf- sókn, með vísan til einhvers for- dæmis, en utanríkisráðherra kvaðst hafa lýst því yfir að utanríkisráðu- neytið væri reiðubúið til þess kosta þann hluta af lögfræðikostnaðinum sem matsgerð hins tyrkneska lög- fræðings hefði hljóðað upp á. Jafnframt kvaðst utanríkisráð- herra hafa ritað tyrkneskum starfs- bróður sínum bréf og beðið hann að taka málið upp með persónuleg- um hætti til að greiða fyrir lausn á málinu, sem hann hefði gert en fengið þau svör í dómsmálaráðu- neytinu að ekki yrði hjá því komist í þessu máli að reka það fyrir tyrkn- eskum dómstólum. Utanríkisráð- herra sagði líkurnar á því að niður- staðan í málinu ætti að geta orðið jákvæð væru að mati lögfróðra manna meiri en minni. Guðrún Helgadóttir sagði það ánægjulegt að þarna hefði verið - reynt sfr gera-ýrrristegt:------- Könnun á tíðni sjálfsvíga: Mannlegi þátturinn undir- staða varanlegrar velferðar - segir Hjálmar Jónsson „Velferðin stendur ekki á varanlegum grunni nema mannlegi þátturinn sé mest metinn. Að maðurinn, lífið og gildi þess sé efst á listanum hvað velferð viðkemur,” sagði Hjálmar Jónsson (S-Nv) þeg- ar hann lagði til að tíðni og orsakir sjálfsvíga verði kannaðar. Páll Pétursson: Forsætísráðherra beitír beinni skoðanakúgnn Til allharðra orðaskipta kom á Alþingi í gær á milli framsóknarþing- mannanna Páls Péturssonar og Halldórs Ásgrímssonar annars vegar og Davíðs Oddssonar forsætisráðherra hins vegar, vegna þeirrar ákvörðunar forsætisráðherra að selja þá Bjarna Einarsson og Jónas Hallgrímsson út úr stjórn Vest-norræna sjóðsins. Páll og Halldór töldu í fyrirspurnum sínum að forsætisráðherra beitti opinbera starfsmenn „beinni skoðanakúgun og misbeitingu valds af grófasta tagi” eins og Páll orðaði það með þessari ákvörðun, en forsætisráðherra kvaðst liafa talið eðlilegt að skipta um stjórnarmenn í þessu tilviki. „Er það krafa forsætisráðherra að opinberir starfsmenn verði að hafa sömu skoðun og stjórnvöld í öllum málum og sé bannað að tjá sig uin þjóðfélagsmál, jafnvel þótt þau séu með öllu óskyld þeim störf- um sem þeir gegna í þágu hins opin- bera,” spurði Páll Pétursson (F-Nv) í stutta fyrirspurnatímanum í gær og bætti við: „Mega opinberir starfs- menn eiga von á refsingum ef þeir tala gegn áformum ríkisstjórnarinn- Forsætisráðherra kvaðst geta f svarað báðum spumingunum neit- andi. Að sjálfsögðu væri ekki gerð slík krafa til embættismanna í stjórnkerfinu og þeir ættu ekki von á neinum brottrekstri. „Hér er ein- göngu verið að skipta um menn í stjórnum og ráðum og það er ekkert við því að segja. Það er á valdi for- sætisráðuneytisins og ég taldi eðli- legt að skipta um í þessum tveimur störfum,” sagði Davíð. ar? Davíð Oddsson forsætisráðherra: Samráð við aðila vinniimarkaðarms DAVIÐ Oddsson forsætisráðherra svaraði fyrirspurn frá Svavari Gestssyni á Alþingi í gær að óhjákvæmilegt væri að aðilar vinnu- markaðarins kæmu að þeirri endurskoðun og endurmati á þjóð- hagsáætlun og fjárlagafrumvarpi næsta árs, sem nú stæði yfir. Svavar Gestsson (Ab R) spurði Davíð Oddsson forsætisráðherra í stuttum fyrirspurnatíma á Alþingi í gær hvenær þess væri að vænta að endurskoðun allra forsenda þjóðhagsáætlunar og fjárlaga- frumvarpsins fyrir árið 1992 yrði lokið, hvenær niðurstöðurnar yrðu lagðar fyrir Alþingi og hvort ætl- unin væri að ræða niðurstöðumar sérstaklega við aðila vinnumark- aðarins. Forsætisráðherra sagði að end- urskoðunin væri þegar- hafin af hálfu fjármálaráðuneytisins og fjármálaráðherra. Auk þess hefði verið skipaður starfshópur sér- fræðinga og embættismanna til þess að fara ofan í málin. „Ég á von á því að tillögur verði lagðar fyrir ríkisstjórn í næstu viku. Ég býst við að meginhluti þeirra að- gerða, sem má vera að gripið verði til, verði þess eðlis að þær séu á valdi ríkisstjórnarinnar. Ef atbeini ■ Alþingis þarf að koma til, þá verð- ur frumvarp þess eðlis og þess efnis lagt fyrir hið fyrsta og ég vænti þess að umræða um það eigi sér þá stað um sömu mundir.” Forsætisráðhen-a sagði jafn- framt að stjórnvöld hefðu á undan- fömum vikum átt í óformlegum viðræðum við aðila vinnumarkað- arins. Nú væri fram komin ósk frá ASÍ um viðræður við ríkisstjórnina og það kæmi sér vel, því óhjá- kvæmilegt væri að aðilar vinnu- markaðarins kæmu að þeirri end- urskoðun sem nú stæði yfir. Svavar Gestsson kvaðst telja athyglisvert að hugsa til þess að , ríkisstjórnin skyldi ekki, þrátt fyr- ir þá erfiðleika sem hún teldi að væru í efnahagslífínu, sjálf hafa haft frumkvæði að því að kalla aðila vinnumarkaðarins til form- legra viðræðna. „Ég tel að þetta sanni mjög vel af hverju henni eru mislagðar hendur, þessari stjórn. Af því hún hefur ekki vit á því að kalla þá aðila til samráðs', sam- vinnu og viðræðna, sem úrslitum ráða þegar allt kemur til alls í stjórn efnahags- og atvinnurriála í landinu,” sagði Svavar. Miele Talaðu við ofebur um uppþvottavélar U Jóhann Ólafsson & Co J SUNDABORG 13 -104 REYKJAVlK -,SlMI 688 588 Talaðu við ofebur um ryksugur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.