Morgunblaðið - 20.11.1991, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 1991
13
Opið bréf til stjórnar
Hins íslenska kennara-
félags og 32ja annarra
eftir Heimi Pálsson
Fyrrverandi félagar.
Þið voruð þrjátíu og níu sem tók-
uð þá ákvörðun 15. nóvember 1991
að Hið íslenska kennarafélag gengi
úr Bandalagi háskólamanna, BHM,
við fyrsta tækifæri, þ.e.a.s. þegar
yfirstandandi fjárhagsári lýkur á
hausti komanda. Sem formaður
BHM hlýt ég að spyija ykkur um
fáein atriði og þar sem svörin koma
átta þúsund félögum í BHM við
finnst mér eðlilegast að biðja Morg-
unblaðið að spara ykkur sendingar-
kostnaðinn með því að hýsa bréfa-
skipti okkar.
Um aðdraganda
í ’fyrsta lagi hlýt ég að biðja
ykkur að gera hreinskilnislega grein
fyrir aðdraganda þessarar úrsagnar
og tek til þrjú atriði.
Það eru liðin tvö ár síðan allshetj-
aratkvæðagreiðsla fór fram í félagi
ykkar og niðurstaða varð sú að
halda áfram aðild að BHM. Hvað
hefur breyst síðan?
Það er rétt rúmt ár síðan þáver-
andi og núverandi formaður félags
ykkar kom ásamt mörgum öðrum
formönnum aðildarfélaga BHM á
minn fund og fór þess á leit að ég
tækist á hendur formennsku í sam-
tökunum. Þá var um það rætt að
nausynlegt væri að breyta ímynd
háskólaborgarans, vinna að eflingu
menntunarinnar og . virðingu
menntamanna. Engin leið var að
skilja þær samræður öðru vísi en
svo að rætt væri um næsta kjör-
tímabil stjómar BHM, þ.e.a.s. til
haustsins 1992. Þá yrði staðan
skoðuð á nýjan leik. Hvað hefur
breyst síðan?
Það eru tveir mánuðir síðan for-
maður ykkar, ásamt öðmm sem
sæti eiga í aðalstjórn BHM, veitti
formanni og varaformanni BHM
fullt umboð til þess að ganga frá
stofnun samtaka sænskra, norskra
og íslenskra háskólamanna. Það var
gert og BHM falin formennska í
samtökunum fyrsta árið. Hvað hef-
ur breyst síðan? Eða var verið að
hafa okkur Ragnheiði Haraldsdótt-
ur að ginningarfíflum?
Um forsendur BHM
Það em nokkur ár síðan gerð var
stórfelld kerfisbreyting á Bandalagi
háskólamanna. Um alllangan tíma
hafði verið ágreiningur innan sam-
takanna vegna þess að þar áttu
aðild bæði launþegafélög ríkis-
starfsmanna og mjög sundurleit
félög þar sem jafnvel gat verið
margt verktaka innan vébanda.
Þetta þótti mörgum óeðlilegt og
þess vegna var launamálaráð BHM
gert að sjálfstæðu félagi, BHMR,
en hlutverki BHM þar með breytt
í að vera fyrst og fremst þverfagleg-
ur umræðuvettvangur þar sem há-
Heimir Pálsson
„Þið voruð þrjátíu og
níu sem tókuð þá
ákvörðun 15. nóvember
1991 að Hið íslenska
kennarafélag gengi úr
Bandalagi háskóla-
manna, BHM, við fyrsta
tækifæri, þ.e.a.s. þegar
yfirstandandi fjárhags-
ári lýkur á hausti kom-
anda. Sem formaður
BHM hlýt ég að spyrja
ykkur um fáein atriði
og þar sem svörin koma
átta þúsund félögum í
BHM við finnst mér
eðlilegast að biðja
Morgunblaðið að spara
ykkur sendingarkostn-
aðinn með því að hýsa
bréfaskipti okkar.”
skólamenntað fólk úr ýmsum vís-
indagreinum gæti hist til sam-
ræðna, vettvangur þar sem hin
akademísku sjónarmið greinanna
væru ríkjandi og þar sem. hægt
væri að vinna að eflingu háskóla-
menntunar á íslandi. Undanfarna
daga hafa heyrst alls konar raddir
um það að BHM sé búið að gegna
hlutverki sínu, aðrir aðilar hafi tek-
ið við því. Og ég hlýt að spyija
ykkur, vegna þess að ég veit að að
þið eruð búin að grandskoða málið:
Hvert eru hlutverk BHM farin? Og
ef þau eru ekki farin eitthvert, hvert
eiga þau þá að fara?
Þessum spurningum hljótið þið
að geta svarað því ykkur var mæta
ve) ljóst að úrsögn ykkar úr BHM
hefði það í för með sér að samtök-
in gætu ekki lengur kallast heildar-
samtök háskólamanna, auk þess
sem rekstrargrundvöllur þeirra
væri brostinn.
Um kennara og
háskólamenntun
Það eru ekki ýkja mörg ár síðan
barist var fyrir lögverndun kenna-
rastarfsins. Hún var tryggð með
lögum frá Alþingi. í allri þeirri bar-
áttu voru aðeins höfð uppi ein rök:
Klifað var á því að kennarastarfið
krefðist akademískrar fagrnenntun-
ar. Hefur aldrei hvarflað að ykkur
að það geti verið álitshnekkir fyrir
stétt ykkar þegar þið lýsið því yfír
að þið teljið ekki brýnt að eiga sam-
leið með öðrum háskólaborgurum í
faglegri umræðu? Eða er það
kannski sannfæring ykkar að þið
séuð best komin ein á báti?
Eg get ekki að því gert að mér
sýnist róður á þeirri bátkænu geti
orðið nokkuð áfallasamur á næst-
unni. Það liggur á borðinu að „al-
þjóðavæðing” (internationalisering)
evrópskra háskóla sé brýnt með til-
komu Evrópusamfélagsins. Er það
skoðun ykkar að þá sé best að ís-
lenskir háskólaborgarar sitji með
hendur í skauti og bíði þess sem
verða vill? Eða getur verið að þið
hafið ekki hugleitt hvernig þið ætl-
ið að standa að málum þegar þar
að kemur? Hvaða afstöðu ætlið þið
t.d. að taka til samsetningar há-
skólaprófa ef þróunin verður í átt
til „skyndibita-menntunar” (sand-
wich-education) þar sem menn tína
saman bita úr ýmsum áttum og
safna einingum til lokaprófa. Kynni
þetta ekki, svo dæmi sé tekið, að
varða kennarastéttina nokkru?
Að lokum: Um sparnað
Talsmaður ykkar í Ijölmiðlum
hefur haldið á loft þeim rökum fyr-
ir úrsögn úr BHM að það væri
þröngt í búi og þyrfti að spara.
Mér er kunnugt um að starfshátta-
nefnd sú sem lagði fram einhvers
konar drög að úrsagnartillögunni
gerði jafnframt ráð fyrir að gjöld
félagsmanna lækkuðu til muna og
þá m.a. um sjötíu og fimm krónum-
ar sem hver þeirra greiðir til BHM
á mánuði. Mér er líka kunnugt um
að þessi lækkun félagsgjaldanna
var ekki samþykkt á þingi ykkar
heldur samþykktuð þið að láta
BHM-gjaldið renna til HÍK. Þið
hækkuðuð m.ö.o. framlag hvers ein-
staks félaga til rekstrar stéttarfé-
lagsins. Og ég hlýt að spyija: Er
ekki ofurlítið falskur tónn í þessari
sinfóníu? Eða hvað?
Ég bíð svara.
Höfundur er formaður Bandalags
háskólamanna.
Talaðu við
ofefeur um
þvottavélar
Talaðu við
ofefeur um
ofna
/O'. G
fRPÍf:
Mits.
IVImele
Jóhann Ólafsson & Co
SUNDABORG 13 ■ 104 REYKJAVlK ■ SlMI 688 588
Jóhann Ólafsson & Co
SUNDABORG 13 -104 REYKJAVÍK ■ SÍMI 688 588
RAFMAGNSVEITA
REYKJAVÍKUR
Húsbyggjendur
Þeim húsbyggjendum, sem þurfa á rafmagnsheimtaug
aó halda í hús sín í vetur, er vinsamlegast bent á að
leggja inn umsókn um hana sem allra fyrst til þess aó
unnt sé að leggja heimtaugina áður en frost er komió
í jörðu.
Gætið þess að jarðvegur sé kominn í sem næst rétta
hæð þar sem heimtaug verður lögð og að uppgröftur
úr húsgrunni, byggingarefni eða annað hindri ekki lagn-
ingu hennar.
Heimtaugar verða ekki lagðar ef frost er komið í jörðu,
nema gegn greiðslu þess aukakostnaðar sem af því hlýst.
Jafnframt bendir Rafmagnsveitan á aó inntakspípur heim-
tauga fyrir einbýlis- og raðhús skulu ná út fyrir lóðamörk.
Nánari upplýsingar eru gefnar á heim-
faugaafgreidslu Rafmagnsveitunnar,
Suóurlandsbrauf 34, i sima 604600.
ERT ÞU AÐ
FARA TIL ÚTLANDA?
Viltu sofa lengur og njóta þæginda?
Veist þú hvað leigubfll kostar til Keflavíkurfiugvallar?
Samkvsemt sértilboði leigubílastövanna é Reykjavíkursvæðinu
kostar 4ra farþega bíll kr. 3.800,- og 5-8 farþega bíll kr. 4.600,-.
Ef bílinn þarf að sækja farþega á fleiri en einn stað, þá er
greitt 200 kr. gjald fyrir hvern aukastað.
Þetta segir þér að gjaldið tii flugstöðvarinnar getur verið frá
575 kr. og uppí 3.800 kr. á mann eftir því hve margir farþegar eru.
Athugið! Þér er að sjáifsögðu heimilt að greiða eftir mæli, telur
þú það hagstæðara, sem getur verið í vissum tiifellum, þegar
dagtaxti er í gildi.
Næst þegar þú ferð til útlanda, taktu þá bíl á völlinn og njóttu
þægindanna. Það er ódýrara en þú heldur!
BSH BÆJARLEIÐIR HREYFILL
650666 33500 685522
BSR BORGARBÍLASTÖÐIN
611720 22440
F4966ELM
Sambyggður ofn/
örbylgjuofn
Yfir-undirhiti, blástur, grill
og snúningsgrill.
Full sjálfhreinsun,
kjöthitamælir, spegilútlit,
örbylgjuofn, tölvuklukka
og tímastillir.
FIM 6
Ofn
Yfir-undirhiti, blástur, grill
og snúningsgrill, full
sjáífhreinsun, stálútlit,
tölvuklukka og tímastillir.
F3805ELM
Ofn
Yfir-undirhiti, blástur, grill
og snúningsgrill,
fituhreinsun, svart eða
hvítt spegilútlit,
tölvuklukka með tímastilli.
O
F 4805 ELX
Ofn
Yfir-undirhiti, blástur og
grill, fituhreinsun, svart
eða hvítt glerútlit,
tölvuklukka með tímastilli.
Funahöfða 19
sími 685680
ilííllilitós.