Morgunblaðið - 20.11.1991, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. NOVEMBER 1991
Alþýðubandalagið:
Gylfi Þ. Gíslason, fyrrverandi iormaour /vipyounoKKsins:
Verkalýðshreyfingin ekki
gætt þess að fylgja nú-
tímalegum sjónarmiðum
GYLFI Þ. Gislason, fyrrverandi formaður Alþýðuflokksins og
ráðherra um árabil, sagði í sjónvarpsþætti í ríkissjónvarpinu á
sunnudagskvöld að verkalýðshreyfingunni hefði hnignað und-
anfarna áratugi og hún ekki gætt þess að fylgja nútímalegum
sjónarmiðum í nægilega ríkum mæli. Nefndi' hann að þegar
hann byijaði að gagnrýna landbúnaðarstefnuna fyrir 30 árum
hefði það engan hljómgrunn fengið hjá forystu launþegasamtak-
anna, þó tvímælalaust hafi verið um mikið hagsmunamál laun-
þega að ræða. Sama gildi um að láta útvegsmenn greiða fyrir
aðgang að fiskimiðunum. Það hafi engan stuðning fengið hjá
forustumönnum launþega þó augljóst sé að aukin hagkvæmni
í sjávarútvegi sé forsenda raunverulegra kjarabóta.
Árni Gunnarsson stjórnandi
þáttarins spurði Gylfa, þar sem
hann hefði verið formaður í flokki
sem kenndi sig við verkalýðs-
hreyfinguna, hvert væri hans mat
á þróun verkalýðshreyfingarinnar
og starfi hennar á síðustu árum.
Gylfi sagði að enginn vafí væri á
því að í upphafi og á fyrrihluta
þessarar aldar hefði verkalýðs-
hreyfingin gegnt mikilvægu hlut-
verki og komið mörgu góðu til
leiðar. „En undanfarna áratugi
finnst mér henni hafa hnignað og
hún ekki hafa fyigt í nægilega
ríkum mæli nútímalegum sjón-
anniðum. Hið sama á raunar við
um launþegasamtök í Vestur-Evr-
ópu yfirleitt. Ég minnist þess til
dæmis hversu erfitt var að vinna
verkalýðsforingja ýmsa til fylgis
við efnahagsstefnu Viðreisnar-
stjórnarinnar og var hún þó tví-
mælalaust launþegum til mikilla
hagsbóta. Þegar ég hóf að gagn-
rýna stefnuna í landbúnaðarmál-
um fyrir meira en 30 árum sner-
ust forustumenn bændasamtak-
anna að sjálfsögðu gegn þeirri
gagnrýni en hún hlaut engan
stuðning forustumanna iaunþega-
samtakanna og var þó hér tví-
mælalaust um mikið hagsmuna-
mál launþega að ræða. Ég hef
undanfarið verið í hópi manna
sem mælt hefur með breyttri físk-
veiðistefnu. Við viljum láta hætta
að gefa útvegsmönnum veiðileyfí
heldur láta þá greiða fyrir þau í
því skyni að stuðla að minnkun
allt of stórs fískveiðiflota, til þess
að stuðla að aukinni hagkvæmni
í rekstri og skila þjóðarheildinni
réttmætum arði af auðlind sinni,
fiskimiðunum. Þessi sjónarmið fá
hins vegar engan stuðning hjá
Gylfi Þ. Gíslason
forustumönnum launþegasamtak-
anna þó augljóst sé að aukin hag-
kvæmni í sjávarútvegi sé forsenda
raunverulegra kjarabóta. Ég held
að stefna launþegasamtakanna
þurfí að vera víðsýnni og nútíma-
legri en hún hefur verið undanfar-
ið og það hefur því miður ekki
tekist að koma á sanngjörnum
launahlutföllum. Háskólamennt-
aðir menn fá til dæmis engan
veginn greidd þau laun sem svara
til skerfs þeirra til þjóðarfram-
leiðslunnar.”
Skáldsag’a og barnabók
eftir Tryggva Emilsson
Ný útvarpsstöð:
Póstur og sími tefur
að sendingar hefjist
- segir Jóhannes Skúlason útvarpsstjóri
SÓLIN er ný útvarpsstöð, sem hefur útsendingar á næstunni. Eig-
andi Sólarinnar er hlutafélagið Sterkur miðill, en framkvæmdastjóri
þess, Jóhannes B. Skúlason, er jafnframt útvarpsstjóri Sólarinnar.
Hann hafði áður útvarpsstöðina Stjörnuna á leigu. Jóhannes segir
að útsendingar Sólarinnar hefjist um leið og mögulegt sé, en nú
strandi á Pósti og Síma vegna sendis, sem stöðin hefur til notkunar.
BÓKAÚTGÁFAN Stofni hefur
gefið út skáldsögnna Konan sem
storkaði örlögunum eftir
Tryggva Emilsson rithöfund.
í kynningu Stofna segir m.a.:
„Konan sem storkaði örlögunum ér
ógleymanleg saga um viðburðaríka
ævi konu sem flestir íslendingar
kannast við. Hún er allt í senn ótrú-
leg og sönn, hijúf og falieg, gleði-
saga og harmsaga. Hún er þjóðsaga
um konu sem bíða sterk örlög og
■ WORDPERFECT-BÓKIN eft-
ir Gísla Ó. Pétursson er komin
út. Þetta er önnur prentun bókar-
innar um Wordperfectö.O. í kynn-
ingu höfundar segir að bókin sé
sérstaklega sniðin að þörfum byrj-
enda en nýtist einnig sem handbók
fyrir þann sem meira kann. Þar
muni mest um lista fyrir allar að-
gerðir og ítarlega atriðaskrá.
hún berst gegn með yfirnáttúruleg-
um kröftum, forneskju, líkamsafli
og góðvild. Þetta er saga um hvern-
ig það góða sigrar hið illa, að
minnsta kosti um stundarsakir”.
Guðbjörg Lind gerði kápumynd
bókarinnar.
Á þessu ári kemur einnig út eft-
ir Tryggva Emilsson barnabókin
Pétur prakkari og hestaþjófamir,
með myndskreytingum eftir Grétu
V. Guðmundsdóttur.
í kynningu Stofna segir m.a., að
í Pétri prakkara og hestaþjófunum
segi frá því að lándsfrægum kapp-
reiðahestum hefur verið rænt. Pétur
prakkari og vinir hans frá það verk-
efni að fínna þá og skila þeim heil-
um heim. Hverri bók fylgir fjöl-
skylduspil í kaupbæti sem heitir
Leitin að týndu hestunum. Pétur
prakkari og hestaþjófarnir er 32
blaðsíður að stærð, litprentuð í
stóru broti.
Tryggvi Emilsson
Skerpla sá um hönnun og um-
brot bókanna og Prentsmiðjan Oddi
hf. um filmuvinnu, prentun og bók-
band. íslensk bókadreifing hf. sér
um dreifingu.
„Um leið og þessi mál komast á
hreint ákveðum við hvaða dag við
förum í loftið,” segir Jóhannes.
„Við viljum að hlustendur taki þátt
í þessu með okkur. Við viljum vera
íslenskt útvarp, en ekki undir þess-
um áhrifum frá Bandaríkjunum,
sem eru mjög ráðandi hjá hinum
stöðvunum. Við viljum að hlustend-
ur leiðbeini okkur með það hvers
konar útvarp þeir vilja hlusta á,”
sagði Jóhannes.
Ný stefnuskrá
stærsta mál
landsfundar
LANDSFUNDUR Alþýðubanda-
lagsins hefst með ræðu formanns
kl. 18 á morgun, fimmtudag, en
fundinum lýkur á sunnudag.
Stærsta mál fundarins er af-
greiðsla nýrrar stefnuskrár sem
verið hefur í smíðum að undanf-
örnu, að sögn Flosa Eiríkssonar,
skrifstofustjóra flokksins.
Steingrímur J. Sigfússon alþing-
ismaður og varaformaður flokksins
og Már Guðmundsson hagfræðingur
eru höfundar að lokadrögum að nýrri
stefnuskrá Alþýðubandalagsins sem
verður til umfjöllunar og afgreiðslu
á landsfundinum en Steingrímur
hefur framsögu í málinu. Þá er talið
að tekist verið á um afstöðu flokks-
ins til Evrópusamrunans og evrópsks
efnahagssvæðis á fundinum, skv.
heimildum Morgunblaðsins. Enn-
fremur er búist við miklum umræð-
um um skipulagsbreytingar sem
snúa að stofnun kjördæmisráðs í
Reykjavík og um breytingatillögu á
lögum flokksins um að varaformaður
flokksins verði jafnframt formaður
framkvæmdastjórnar. Síðdegis á
laugardag fer fram kosning forystu-
sveitar Alþýðubandalagsins og kjör
til framkvæmdastjórnar og mið-
stjórnar. Landsfundurinn verður
haldinn í Borgartúni 6.
Jóhannes sagði að ekki væri gert
ráð fyrir fréttastofu. „Við ætlum
hins vegar að vera með fréttatengt
efni í dagskránni. Við sjáum alls
engan hag í því að vera með fréttir
á einhveijum ákveðnum tímum.
Flestar útvarpsstöðvarnar eru að
gera mjög svipaða hluti og við viljum
ekki vera eins. Ég held að útvarps-
hlustun hafí minnkað verulega
vegna þess að áherslur í útvarpi eru
rangar.”
Um það að hann skuldi einhveij-
um fyrrverandi starfsmönnum sín-
um á Stjörnunni laun, sagði Jóhann-
es að hann vissi ekki nákvæmlega
hveijar þessar launakröfur væru.
„Ég hef enn ekki fengið reikninga
frá þessum aðilum. Ég hef ítrekað
beðið um þá, en þeir virðast ætla
að leita til lögfræðings áður en ég
fæ tækifæri á því að gera þessi laun
upp,” sagði Jóhannes B. Skúlason.
---------------------
■ SOVÉSK kvikmynd frá árinu
1955, „Lexía lífsins” (Úrok
Shizní), verður sýnd í bíósal MÍR,
Vatnsstíg 10, nk. sunnudag, 24.
nóvember kl. 16.00. Leikstjórinn
Júlí Raizman var í hópi brautryðj-
enda í sovéskri kvikmyndagerð,
starfaði m.a. með Púdóvkin og
Protazanov á dögum þöglu mynd-
anna, en leikstýrði síðar frá árinu
1927 einn og með öðrum fjölmörg-
um kvikmyndum á 50 ára starfs-
ferli sínum. Höfundur tökurits
Lexíu lífsins var Jevgení Gabr-
ilovitsj, gamall skólabróðir Raiz-
mans og náinn samstarfsmaður
um áratugaskeið. Kvikmyndatöku-
maður var Sergeij Úrúsevsky og
hlaut hann viðurkenningu fyrir
verk sitt á sínum tíma. í aðalhlut-
verkum eru: V. Kalinina og I.
Perevezev. Enskar skýringar eru
með myndinni. Aðgangur er
ókeypis og öllum heimill.
j . iiiínu ii ' (FréttotiJkyuning:)) iij
stœrðlr: 13 x 18 cm.
18x24cm.
24 x 30 cm.
Myndir sem birtast í Morgunblaöinu,
teknar af Ijósmyndurum blaösins
fást keyptar, hvort sem er
til einkanota eöa birtingar.
UÓSMYNDADEILD
„SALA MYNDA"
Aðalstrœti 6. sími 691150
101 Reykjavík
Karólína Lárusdótt-
ir sýnir olíumál-
verk í Gallerí Borg
KARÓLÍNA Lárusdóttir opnar
sýningu á rúmlega þijátíu nýjum
olíumálverkum í Gallerí Borg við
Austurvöll í dag, fimmtudaginn
21. nóvember. Viðfangsefni henn-
ar er fólk við leik og störf.
Karólína, sem búsett er á Eng-
iandi, er fædd og uppalin í Reykja-
vík. Hún stundaði myndlistamám
m.a. í Riskin School of Art í Oxford
og Barking College of Art. Karólína
hefur haldið margar einkasýningar
hér á landi og erlendis og tekið þátt
í fjölmörgum samsýningum víða, svo
sem á Englandi og á Italíu. Henni
hefur hlotnast margs kyns heiður
erlendis, m.a. hefur hún verið út-
nefndur félagi í Royal Society of
Painters/Printmakers og hlotið verð-
laun fyrir list sína bæði á Englandi
og á Italíu.
Þetta er fjórða einkasýning Kar-
ólínu hérlendis og stendur hún til
3. desember nk.
Sýningin er opin daglega frá kl.
14.00 til IB.nn------—.
Karólína Lárusdóttir ■ i>