Morgunblaðið - 20.11.1991, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 1991
19
Morgunblaðið/Þorkell
Ragnhildur Stefánssdóttir myndhöggvari stendur við lágmyndina
af Þorbirni Sigurgeirssyni, sem staðsett er í húsi Raunvísindastofnun-
ar að Dunhaga 3.
Raunvísindastofnun
un Háskólans 25 ára
Afhjúpuð lág-mynd af Þorbirni
Sigurgeirssyni prófessor
Á ÞESSU ári eru 25 ár liðin frá upphafi Raunvísindastofnunar Há-
skólans. Var þessara tímamóta minnst siðastliðinn þriðjudag, 12.
nóvember. Þorsteinn I. Sigfússon prófessor, stjórnarformaður stofn-
unarinnar, setti hátíðina. Einnig var afhjúpuð lágmynd af Þorbirni
heitnum Sigurgeirssyni prófessor
stofnunarinnar.
í ávarpi Þorsteins I. Sigfússonar
prófessors, kom fram að Raunvísind-
astofnunin var reist fyrir fjárframlag
Happadrættis Háskólans og gjöf frá
Bandaríkjastjórn. Stofnuninn sé nú
rammi utan um rannsóknir í eðlis-
fræði, efnafræði, jarðeðlisfræði,
jarðfræði, landafræði, reiknifræði og
stærðfræði við Háskóla íslands.
Starfsmenn stofnunarinnar séu um
eitt hundrað talsins og þáttur þeirra
stór í ritsmíðum og nýsköpun innan
Háskóla íslands.
Þorsteinn sagði einnig frá gjöf,
sérhæð við Víðimel, sem stofnuninni
hefði fyrir nokkru borist frá dánar-
, sem var einn liclsti frumkvöðull
búi Björns Jóhannessonar. íbúðin
verður innréttuð sem gestaíbúð fyrir
fræðimenn sem koma til rannsókn-
ardvalar hér á landi. Þakkaði Þor-
steinn öllum velunnurum stofnunar-
innar, m.a. Eggert V. Briem, sem
við er kenndur sjóður til eflingar
rannsóknum.
Það var frú Þórdís Þorvarðardótt-
ir, ekkja Þorbjörns Sigurgeirssonar,
sem afhjúpaði lágmyndina, en það
var Ragnhildur Stefánsdóttir, mynd-
höggvari, sem gerði myndina. Eftir
að boðið hafði verið upp á kaffi hélt
Leó Kristjánsson prófessor erindi um
Þorbjörn Sigurgeirsson.
Sög’iir eftir Elísabetu
Jökulsdóttur komnar út
VITI MENN, nýstofnuð bókaút-
gáfa, hefur gefið út bókina, Rúm
eru hættuleg, eftir Elísabctu Jök-
ulsdóttur. I bókinni eru átta sjálf-
stæðar sögur, sem tengjast inn-
byrðis.
Á bókarkápu segir: „Einu sinni
voru níu systur sem fóru að heim-
an. Þegar þær hittust fyrir tilviljun
seinna höfðu þær sína sögu að
segja. Sögur um blíðu, grimmd,
drauma, dóp, ást, forvitni, stöðnun,
ofbeldi, brúarsmíði, hatur, skipa-
ferðir, óskastundir, regnbogafugl
og karlmenn.
Ein ein systranna kom ekki í leit-
irnar.”
I bókinni eru átta blýantsteikn-
ingar eftir Söru Jóhönnu Vilbergs-
dóttur. Bókarkápu gerði Snorri
Ægisson. Rúm eru hættuleg er
kilja, 157 bls. að stærð. Bókin er
blýsett og trukkprentuð hjá Prent-
berg hf.
Elísabet Jökulsdóttir
Ljóð Einars Svanssonar
ÚT ER komin Ijóðabókin Undir
stjörnum og sól eftir Einar
Svansson, framkvæmdastjóra
Fiskiðjunnar Skagfirðings hf. á
Sauðárkróki.
Þetta er fyrsta bók höfundar
og hefur að geyma 49 ljóð. Nokk-
ur ljóðanna birtust á sínum tíma
í tímaritinu Lystræningjanum.
Kápumyndina gerði Svanur Jó-
hannesson, faðir höfundar og
félagi í Jam-klúbbnum. Bókin er
96 bls., prentuð hjá Félagsprent-
smiðjunni/ bundin hjá Félagsbók-
bandinu Bókfelli en dreifingu ann-
ast íslensk bókadreifing. Höfund-
ur er útgefandi bókarinnar.
Einar Svansson
Sparisjóður Hafnarfjarðar:
Fimmtán ára nemend-
um kennt að fara með fé
Steinunn Benediktsdóttir og Oddný Lárusdóttir leiðbeinendur á nám-
skeiðunum. Á myndina vantar þriðja leiðbeinandann, Mjöll Flosadóttur.
SPARISJÓÐUR Hafnarfjarðar
heldur um þessar mundir nám-
skeið um peningamál fyrir nem-
endur í 10. bekkjum grunnskól-
anna í Hafnarfirði. Slík námskeið
hafa ekki verið haldin áður en
um er að ræða sex kennslustund-
ir þar sem farið er í öll helstu
atriði sem tengjast fjármálum.
Það er frjálst val nemenda að
sækja námskeiðin og mæta þeir
í frítíma utan stundatöflu í skóla.
■ Starfsmenn Sparisjóðs Hafnar-
fjarðar sjá um kennslu á námskeið-
unum og unnu þeir námsefnið, í
samvinnu við skólanefnd grunn-
skóla Hafnarfjarðar.
Að sögn Steinunnar Benedikts-
dóttur, leiðbeinanda og deildar-
stjóra afgreiðsludeildar, hafa ungl-
ingarnir sýnt námskeiðunum mik-
inn áhuga. „Nemendurnir virðast
hafa mikinn áhuga á þessum mál-
um, námskeiðin eru vel sótt og þau
spyija mikið,” sagði Steinunn í sam-
taii við Morgunblaðið.
„Við erum búin að fræða þau um
mismunandi ávöxtunarleiðir og ætl-
um að fara í ýmis atriði í sambandi
við tékkareikninga, m.a. hvernig
þau eigi að nota þá, hvað gerist ef
þau fara yfir á tékkareikningunum
og í hvetju þau geti lent ef þau
misnoti tékkareikninga. Þeim verð-
ur auk þess kennt allt um greiðslu-
kort, farið verður í kaup og sölu á
erlendum gjaldeyri og útlán, t.d.
hvað það sé að gangast í ábyrgð á
víxli eða skuldabréfi og á hveiju
þau geti átt von ef þau lenda í van-
skilum auk fjölmargra fleiri þátta,”
sagði Steinunn.
Það var samdóma álit þeirra
nemenda sem blaðamaður Morgun-
blaðsins tók tali að námskeiðin
veittu þeim góða innsýn inn í flók-
inn heim fjármálanna og gerði þá
hæfari til að takast á við þau.
„Við erum búin að læra mjög
margt bæði um hluti sem við eigum
eftir að þurfa að fást við daglega,
eins og meðferð ávísanahefta og
kreditkorta en líka um verðbréf,
bankabækur og ýmis hugtök sem
alltaf eru að koma fyrir en ekki
allir eru vissir á hvað fela í sér eins
og vextir, vísitala og margt fleira,”
sagði Hrafnhildur Árnadóttir nem-
andi í samtali við Morgunblaðið.
„Þetta eru hlutir sem ekki eru
kenndir í skyldunámskeiðum í skól-
anum. Það er komið inn á þá í bók-
færslu en gallinn er sá að það eru
ekki næstum því allir í bókfærsiu,”
bætti Ásdís Björk Pálmadóttir við.
Björn Einar Ólafsson og Arnar
Róbertsson sögðu það helsta kost
námskeiðsins að þeir lærðu þar
hvað hugtök, sem alltaf eru að
koma fyrir í fréttum og daglegri
umræðu, þýða.
Um það bil 20 nemendur geta
sótt tíma í senn og er fyrirhugað
að halda fleiri námskeið á næstu
vikum.
Moi'gunblaðið/Arni Sæberg
Björn Einar Ólafsson og Arnar Róbertsson.
Asdís Björg Pálmadóttir, Hrafnhildur Árnadóttir og
Nanna Kristín Jóhannsdóttir.
Frá DIVIIMA MODEN
blússur, jakkar,
samstæðufatnaður,
str. 36-46.
Frá SEIDENSTICKER
blússur,
blússujakkar,
str. 36-46.
Frá JÁGER-GROTE
peysur, gott úrval,
str. 26-50
GARDEUR-dömufatna'ður
gæðavara - tískuvara.
Uáuntv
Dömufatnaður
verslun v/Nesveg, Seltjarnarnesi.
Opið daglega frá kl. 9-18,
laugardaga frá kl. 10-16.