Morgunblaðið - 20.11.1991, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 1991
Ljósritunarvélar
mikið úrval
Keuter
I nútímavi&skiptum dugar
engin næstum því lausn.
Aðeins hágæða tækni-
búnaður sem endist og
skilar verki sínu fljótt og vel.
Verið velkomin í söludeild
okkar að Síðumúla 23 og
kynnið ykkur kosti Konica.
Síðumúla 23-108 Reykjavík
Sími: 91 - 679494 - Fax: 91 - 679492
Terry Waite, sem látinn var laus úr gíslingu í Líbanon á mánudag, og Robert Runcie, fyrrverandi erk-
ibiskup af Kantaraborg, slá á létta strengi er gíslinn fyrrverandi kom til Englands í gær.
Tengist lausn gíslanna
Lockerbie-málinu?
Lundúnum. Reuter.
FJORUM dögum áður en stuðningsmenn Iransstjórnar í Líbanon
létu tvo gísla lausa, Bretann Terry Waite og Bandaríkjamanninn
Thomas Sutherland, virtust yfirvöld í Bandaríkjunum og Bretlandi
hreinsa írönsk og sýrlensk stjórnvöld af ásökunum um að þau hefðu
staðið fyrir Lockerbie-sprengjutilræðinu svonefnda. Margir telja að
þetta sé engin tilviljun og benda á að bresk og bandarísk stjórnvöld
leggi nú mikla áherslu á bætt samskipti »ið Sýrlendinga og írani.
íranir og Sýrlendingar hafa oft
verið sakaðir um að hafa stutt
hryðjuverkasamtök. Iranir eru mik-
ilvægir í gíslamálinu vegna þess að
þeir hafa haft mikil áhrif á hreyf-
ingarnar í Líbanon, sem hafa hald-
ið Vesturlandabúum í gíslingu, en
Sýrlendingar vegna þess að þeir
hafa bæði tögl og hagldir í landinu.
Það er ekki nema um vika frá
því stjórnarerindrekar í Beirút
sögðu að hreyfingarnar í Líbanon
vildu ekki láta gísiana lausa á með-
an friðarviðræður araba og ísraela,
sem íranir eru andvígir, væru enn
í sviðsljósinu. Bresk og bandarísk
yfirvöld birtu síðan sl. fimmtudag
ákærur á hendur tveimur Líbýskum
leyniþjónustumönnum fyrir að hafa
komið sprengju fyrir í bandarísku
farþegaþotunni, sem sprakk í loft
upp yfir skoska bænum Lockerbie
árið 1988 með þeim afleiðingum
að 270 manns biðu bana.
Sérfræðingar í starfsemi hryðju-
verkasamtaka segja að íranir hafi
fyrst beðið palestínsku hreyfinguna
Alþýðufylkinguna fyrir frelsi Pal-
estínu, PFLP-GC, sem stjómað er
frá Sýrlandi, um að annast
sprengjutilræðið en líbýska leyni-
þjónustan hafi síðar tekið það að
sér sem „undirverktaki”.
Breskir og bandarískir embættis-
menn hafa hins vegar alltaf sagt
að þeir hafi engar sannanir fyrir
því að önnur ríki en Líbýa tengist
sprengjutilræðinu. Douglas Hurd,
utanríkisráðherra Bretlands, sagði
til að mynda á breska þinginu að
rannsakað hefði verið hvort PFLP
hefði staðið fyrir tilræðinu en ekk-
ert komið fram sem benti til þess.
Ættingjar fórnarlamba tilræðisins
Lockerbie-málið:
Líbýumenn segj-
ast hafðir til blóra
Nikosíu, Lundúnum. Reuter.
LIBYUMENN sögðu í gær að Bretar og Bandaríkjamenn hefðu not-
að þá sem „blóraböggla” til að fá gísla í Líbanon lausa með því að
saka þá um að hafa sprengt bandaríska farþegaþotu í loft upp yfir
skoska bænum Lockerbie árið 1988.
Þetta voru viðbrögð líbýskra
stjórnvalda við því að Terry Waite
og Thomas Sutherland voru látnir
lausir úr gíslingu í Líbanon á mánu-
dag. „Markmiðið með þessum ásök-
unum hefur nú loksins komið í Ijós.
Líbýumenn voru hafðir til blóra í
því skyni að semja um lausn vest-
rænna gísla,” sagði í frétt Ifbýska
sjónvarpsins. „Líbýumenn, sem eru
saklausir af hryðjuverkum, geta
fallist á að gegna hlutverki blóra-
bögguls í þessu máli á meðan það
stuðlar að því að saklaust fólk er
W\ HutaVAih ‘iunmi •
leyst úr haldi og aðilar, sem eru
okkur kærir, eru hreinsaðir af til-
hæfulausum ásökunum,” sagði
sjónvarpið ennfremur og vísaði þar
til yfirlýsinga breskra og banda-
rískra embættismanna um að ekk-
ert bendi til þess að íranir og Sýr-
lendingar séu viðriðnir sprengjutil-
ræðið.
Líbýustjórn fól á mánudag dóm-
ara að kanna hvort verða ætti við
kröfu Breta um framsal tveggja
Líbýumanna, sem hafa verið ákærð-
ir fyrir sprengjutilræðið.
VESTRÆNIR GISLAR
I LIBANON
Að neðan sjást nöfn þeirra vestrænu gísla. sem
enn eru í haldi í Libanon eftir lausn Bretans
Terry Waite (var i haldi i 1.663 daga) og Banda-
rikjamannsins Thomas Sutherland (2.354 dagar)
IAR
1987 1988 1989 1990 1991
Terry Anderson (Bandaríkjunum)
HlkhlTT'.'H'Ji
Alberto Molinari' (Italíu)
raa
Joseph James Cicippio (Bandaríkjunum)
Alann Steen {Bandaríkjunum)
Heinrich Strubig (Þýskalandi)
Thomas Kempner (Þýskalandi)
Reulen
vestræmr gislar i Libai
'Talmn af.
sögðust hafa miklar efasemdir um
þá yfirlýsingu. „Ég tel að tengist
Sýrlendingar og Iranir málinu á
einhvern hátt verði það ekki gert
opinbert og menn þurfa aðeins að
líta á stefnu George Bush í utanrík-
ismálum til að skilja það,” sagði ein
þeirra, bandaríska konan Susan
Cohen.
Talið er að lausn gfslanna á
mánudag sé til merkis um að íran-
ir og Sýrlendingar annars vegar og
Bandaríkjamenn og Bretar hins
vegar hafi áttað sig á að þeir þarfn-
ist hvorra annarra meira en þeir
hafa taiið á undanförnum árum.
íranir þarfnast efnahagsaðstoðar
vegna kreppu í kjölfar Persaflóa-
stríðsins, sem stóð í áratug. Sýr-
lendingar geta ekki lengur reitt sig
á stuðning Sovétmanna og verða
að taka þátt í friðarviðræðum við
ísraela til að geta endurheimt
Gólan-hæðii'nar. Hvorug þessara
þjóða vill að framhald verði á gísla-
málinu.
Bandaríkjastjórn þarfnast aftur
á móti Sýrlendinga vegna friðarum-
leitana hennar í Miðausturlöndum
og stendur í þakkarskuld við þá
vegna þátttöku þeirra í stríðinu
gegn írökum. Þá hefur breska
stjómin lagt áherslu á bætt sam-
skipti við Irani og tók nýlega upp
stjórnmálasamband við Sýrland.
Sovétmenn
skutu niður
DC-3 flugvél
Stokkhólmi. Frá Erik Lidén, fréttaritara
Mor^unblaðsins.
SOVESK stjórnvöld viðurkenndu
óvænt í fyrradag að sovésk hcr-
flugvél hefði skotið niður sænska
DC 3- flugvél, sem var í njósna-
leiðangri fyrir sænska herinn yfir
Eystrasalti, milli Gotlands og
hafnarborgarinnar Ventspils í
Lettlandi, 13. júní 1952.
Það var sovéska varnarmálaráðu-
neytið í Moskvu sem viðurkenndi í
fyrsta sinn, eftir margítrekaðar
heimsóknir háttsettra embættis-
manna Svía, að DC 3-flugvélin hefði
verið skotin niður. í opinberri til-
kynningu Sovétmanna sagði að þessi
aðgerð hefði verið gróft brot á al-
mennum venjum þjóðaréttar og að
sovéskir leiðtogar færðu aðstandend-
um flugliðanna átta, sem allir létu
Kf.'A í árásinni. samúðarkveðjur sínar.
-------^----
New York:
Verðlækk-
un á hluta-
bréfum í
Wall Street
New York. Reuter.
VERULEGT verðfaU varð í
kauphöllinni í New York í gær
og ollu því enn sem fyrr áhyggj-
ur af ástandinu í bandarísku
efnahagslífi. Varð það síðan til
að valda verðlækkun á mörkuð-
um í Evrópu og Austur-Asíu.
Síðastliðinn föstudag féllu hluta-
bréf í Wall Street verulega í verði
en á mánudag hækkuðu þau aftur.
Verðlækkunin hélt hins vegar
áfram í gær, nam um tveimur pró-
sentum, og gerði betur en að vega
upp ávinninginn frá í fyrradag. Er
það haft eftir verðbréfasölum, að í
raun sé um að ræða leiðréttingu
og aðlögun markaðarins að efna-
hagsástandinu og ekki að vænta
neins hruns. Stefnan sé þó heldur
niður á við. Það, sem olli fyrst og
fremst, voru fréttir um, að hallinn
á viðskiptum Bandaríkjanna við
útlönd hefði aukist í september en
ekki minnkað eins og við hafði ver-
ið búist.
Hlutabréf á evrópsku mörkuðun-
um lækkuðu nokkuð í kjölfarið og
mest í París, sem stafar einnig af
skyndilegri vaxtahækkun í Frakk-
landi á mánudag. í Tókýó lækkuðu
hlutabréf dálítið en hækkuðu aftur
á móti í Hong Kong og Sydney.
Er það rakið til hækkunarinnar,
sem varð í Wall Street á mánudag
og því viðbúið, að þau eigi eftir að
lækka.
Rússland:
Litlar líknr á
að Honeck-
er fái hæli
Bonn. Reuter.
NÍKOLAJ Fjodorov, dóms-
málaráðherra Rússlands,
sagði í samtali við þýska
fjölmiðla í gær, að litlar líkur
væru á því að Erich Honec-
ker, fyrrum leiðtogi austur-
þýska kommúnistaflokksins,
fengi pólitískt hæli í Moskvu.
Fjodorov sagði að beiðni
Honeckers um pólitískt hæli,
sem mun hafa verið komið til
Sovétstjórnarinnar, yrði tekin
til athugunar. Hún byggði á
veikum grunni og mætti allt
eins gera ráð fyrir að honum
yrði fljótlega vísað úr landi, lík-
lega innan einnar viku.
Stjórnvöld í Bonn vilja að
Honecker verði framseldur svo
hægt verði að láta hann svara
til saka í Þýskalandi fyrir dráp
á fólki sem gerði tilraun til
þess að komast yfir Berlínarm-
úrinn og hið rammgerða járn-
tjald á landamærum þýsku ríkj-
anna.
Míkhaíl Gorbatsjov Sovétfor-
seti hefur lagst gegn því að
Honecker verði framseldur og
hefur því skorist í odda í þessu
máli milli hans og Borís Jeltsín
Rússlandsforseta. Í fyrradag
sagði Helmut Kohl kanslari
Þýskalands að deila forsetanna
um Honecker væri óviðeigandi
og sagðist Kohl myndu skerast
leikinn og biðja Gorbatsjov að
taka tillit til sjónarmiða Þjóð-
veija.