Morgunblaðið - 20.11.1991, Qupperneq 28
28
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. NOVEMBER 1991
Héctor Bonilla í hlutverki grímumannsins dularfulla í mexikósku myndinni Afhjúpunin.
Mexíkóskir kvikmyndadagar:
Afhjúpunin - „La ley-
enda de una máscara”
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Handrit og leikstjórn José
Buil. Aðalleikendur Héctor
Bonilla, Damián Alcásar, Gina
Morett, Héctor Ortega. 95
mín. Enskir skýringartextar.
Mexíkó 1989.
Þegar „Grímuklæddi en-
gillinn”, frægasti fjölbragða-
glímumaður, teiknimyndasögu-
hetja og kvikmyndastjama Mex-
íkó fellur frá, er drykkfelldum
blaðamanni fengið það erfiða
verkefni að kynna sér einkalíf
mannsins á bak við grímuna. En
kappinn tók hana aldrei ofan
opinberlega en lifði öðru lífí
grímulaus. Það drífur margt á
daga hins smávaxna og vínholla
í rannsóknarblaðamennskunni,
hann fær m.a. að kynnast því
heldur betur að þessi þjóðhetja
og fyrirmynd ungra manna í
Mexíkó er illskeyttur glæpamað-
ur með manndrápara sem sína
hægri hönd. Og eru grímumenn-
irnir frekar tveir en einn.
Myndin fylgir ekki vana-
bundnum söguþræði heldur er
hún á köflum á mörkum draums
og veruleika og oftar en ekki er
efniviðurinn í teiknimyndastíl
fjarri raunveruleikanum. Þetta
skilar sér upp og ofan til áhorf-
andans við ysta haf. Mörg atrið-
in eru dágóð, flest bles'sunarlega
fyndin - en spaugið er jafnan í
fyrirrúmi - önnur útá þekju.
Enda flokkast Afhjúparinn frek-
ar með tilraunamyndum en hefð-
bundnum. Leikurinn er undan-
tekningarlaust góður, einkum
hjá Alcásar í hlutverki blaða-
mannskækilsins sífulla, harla
óvenjuleg rulla það. Eins og
myndin öll sem færir manni heim
sanninn um að þeir brugga
margt misjafnt í Mexíkó.
Tossar verða hetjur
Kvikmyndir
Amaldur Indriðason
Ungir harðjaxlar („Toy Sold-
iers”). Sýnd í Regnboganum.
Leikstjóri: Daniel Petrie jr.
Framleiðandi: Jack E. Freed-
man. Aðalhlutverk: Louis Gos-
set jr., Sean Asting, Wil Whea-
ton, Keith Coogan og Denholm
Elliot.
í bandarísku hasarmyndinni
Ungir harðjaxlar gera kólumbísk-
ir eiturlyfjabarónar innrás í
bandarískan drengjaskóla og taka
drengina þar í gíslingu. Þeir vilja
föður forsprakka síns lausan úr
fangelsi. Innan skólans eru nokkr-
ir óknyttapiltar í stöðugu stríði
við yfirvald hverskonar og kól-
umbískir hryðjuverkamenn eru
þar ekki undanskildir.
Strákarnir mynda andspymu-
hóp gegn hryðjuverkamönnunum
og koma upplýsingum til land-
gönguliðanna í kringum skólann
og grípa til vopna þegar þess
gerist þörf.
Ef maður lítur framhjá heldur
döprum boðskap myndarinnar,
sem hefur algera tossa upp til
skýjanna, hugsar ekki alltof sterkt
til þess hvort strákar í grunnskóla
geti yfirleitt valdið vélbyssu hvað
þá drepið með köldu blóði og vík-
ur frá sér efasemdum um að þeir
geti átt við fjarstýrðar stórbombur
án þess að sprengja sig í loft upp
- forsendurnar í hasarmyndum
eru ekki allar jafn traustar -
stendur eftir ágætis hasarmynd
sem heldur manni vel við efnið.
Sögusviðið er sannarlega nýst-
árlegt og leikstjórinn, Daniel
Petrie yngri, hefur lag á að halda
uppi hraða í frásögninni og
spennu sem fær mann til að
gleyma annmörkum í handriti.
Agætis leikarahópur hjálpar hon-
um að gera hryðjuverkamennina
að hinum verstu fólum sem við
fáum strax í byrjun að vita að
svífast einskis til að fá kröfum
sínum framfylgt. Hasarinn er fag-
mannlega framkvæmdur og
spennandi og myndinni tekst það
sem hún setur sér, að bjóða uppá
frambærilega afþreyingu.
Hliðarsaga segir frá mafíósa,
sem Jerry Orbach leikur, er á son
í skólanum og reynir að fá hann
lausan í gegnum glæpatengsl sín
með hörmulegum afleiðingum.
Öllum þeim kafla er reyndar frek-
ar ofaukið og er hann síst til að
auka trúverðugleikann.
Helsta stjarnan í myndinni er
Louis Gossett yngri (ef frá er tal-
inn breski leikarinn Denholm Elli-
ott) en hlutverk hans er heldur
rýrt því honum er allan tímann
haldið utan við hasarinn. Drengja-
hópurinn er hér í aðalhlutverki
og stendur hann sig ágætlega í
heildina.
Ungir harðjaxar er ólikindaleg
á margan hátt en stendur fyrir
sínu sem hasarmynd og góð af-
þreying. Þýðingin var hvorki betri
eða verri en gengur í bíóhúsunum.
A einum stað kemur fram að fað-
ir eins drengjanna sé formaður
samtaka veitingahúsaeigenda
(„Bar Association”) en hlýtur að
eiga að vera lögmannasamtaka.
Firrtur Fríslendingur
Otto III. Sýnd I Háskólabíói.
Leikstjóri, handritshöfundur
og aðalleikari: Otto Waalkes.
Þriðja myndin um Hafnfírð ...
nei, Fríslendinginn Ottó er nú
komin í Háskólabíó og fyrir þá
sem á annað borð dýrka manninn
og fínnst allt sem hann gerir og
stendur fyrir fyndið, er hún
ómissandi í Ottómyndasafnið.
Jafnvel þótt sumt detti út í
þýðingu (stundum dettur textinn
reyndar alveg út) og Ottó sé
örugglega fyndnastur á móður-
málinu er margt bráðhlægilegt
við Ottó III sem allir ná og höfð-
ar til flestra. Eins og gengur eru
brandaramir misgóðir, sumir
hitta í mark, aðrir ekki en þeir
bestu fá þig til að hlæja af hjart-
ans list.
föJ
Sá þýski Otto Waalkes fyllir
að nokkru leyti upp í tóm sem
Woody Allen skildi eftir sig þeg-
ar hann gerðist „alvarlegt” kvik-
myndaskáld. Og þótt Ottó eigi
langt í land með að ná Allen eru
brandararnir hans margir
skemmtilega vitfírrtir, kringum-
stæðumar yndislega fáránlegar
og persónan sjálf kostugur
undirmálsmaður iðulega í dular-
fullum árekstri við ill öfl. af furð-
ulegum toga.
Vondu kallarnir í Ottó III eru
viðskiptajöfrar sem vilja leggja
land furðulega Fríslendingsins
undir flugbraut fyrir flugvélar
fínar, sem koma til með að verða
alger samgöngubylting. Ottó er
eina hrukkan á planinu því hann
býr í turni á miðju flatlendinu
þar sem brautin á að vera og
tefur framkvæmdir. í ljós kemur
að Frísland allt er í hættu og
aðeins bróðir Ottós, búsettur í
Flórída, getur bjargað því. Þang-
að heldur Ottó í vonarferð.
Bandarísk poppmenning fær
sinn skerf í þetta sinn. Ottó trufl-
ar upptökur á „Miami Vice” og
bestu atriði myndarinnar eru tvö
stutt atriði þar sem Ottó stælir
poppgoðið Michael Jackson í
„Thriller” og „Smooth Crimina”
af eftirminnilegu innsæi. Þá er
minjagripagerð í Fríslandi einkar
áhugaverð og svo mætti lengi
telja.
í allt er myndin ágætis
skemmtun og það verður að segj-
ast eins og er að Ottó vinnur á
með hverri mynd. Ottó IV getur
ekki og má ekki vera langt und-
an.
'J iil
• U
iiiffiÍiiiiiiliiÍÍiiiiílfliíiilUililHÍiiiiitíiiliiíiiiil
Fyrsta sólóplata Egils Ólafssonar:
Listrænn metnaður
Hljómplötur
Sveinn Guðjónsson
Það er skammt stórra högga á
milli hjá Agli Ólafssyni á listabraut-
inni og má segja að hann vinni þar
hvern sigurinn á fætur öðrum.
Flestum ber saman um að hann
sýni afbragðsgóðan leik í hlutverki
Olafs konungs Tryggvasonar í kvik-
myndinni „Hvíti víkingurinn” og nú
hefur hann sent frá sér hljómplötu,
sem að mínu viti er ein sú besta
sem út hefur komið hér á landi í
mörg herrans ár. Egill er höfundur
allra laga og texta á plötunni, ‘ann-
ast söng og leikur á hljómborð og
er sama hvar borið er niður: Verkið
ber listrænum metnaði hans glöggt
vitni, fagmennskan hvarvetna í fyr-
irrúmi og hvergi snöggan blett að
finna.
í rauninni er óþarfí að hafa um
þetta fleiri orð. En mönnum til nán-
ari glöggvunar skal hér stiklað á
stóru um innihald plötunnar „Tifa
tifa”, sem hefur svo sannarlega
annað og meira að geyma en hefð-
bundna dægurtónlist. Sumum kann
að fínnast einhver laganna fullþung
og má það vissulega til sanns vegar
færa. En platan er í heild sinni
þannig gerð að hún verður betri við
hverja hlustun. Sumt minnir á þjóð-
legar Þursastemmur, annað sver sig
í ætt við kvikmyndatónlist með
frönsku harmonikkuívafi og rússn-
eskum kósakkatilbrigðum, svo sem
í laginu „Herf’ upp hugann”, og
eitt lagið að minnsta kosti er í
dæmigerðum Stuðmannaanda,
„Ekkert þras”, sem notið hefur tals-
verðra vinsælda í útvarpsstöðvum
að undanförnu. Tvö laganna á þess-
ari plötu nálgast það að vera klass-
ísk listaverk að mínum dómi, titil-
lagið „Tifa tifa” og lokalagið „Það
brennur”, sem Egill syngur ásamt
Sigrúnu Hjálmtýsdóttur. Guðrún
Gunnarsdóttir syngur einnig með
Agli í nokkrum laganna og gerir
það vel, sem og Edda Borg í laginu
„Sigling”.
Um hljófæraleikinn á þessari
plötu er ekki nema gott eitt að
segja, en hann annast auk Egils,
Asgeir Óskarsson á slagverk og
trommur, Kristján Edelstein á gít-
ar, Haraldur Þorsteinsson bassa,
og Szymon Kuran fiðlu, og auk
þeirra í einstökum lögum Þórður
Árnason gítarleikari, Tómas M.
Tómasson bassaleikari, Rúnar Vil-
bergsson fagottleikári, Guðrún Th.
Sigurðardóttir sellóleikari, Árni Sc-
heving á harmonikku og Hilmar
Örn Hilmarsson á hljómborð. Allt
þetta fólk skilar góðu verki.
Með þessari plötu skipar Egill sér
í fremstu röð lagasmiða í íslenskri
dægurtónlist, sem ekki þarf að
koma á óvart í ljósi fyrri verka
hans á því sviði. Hins vegar kom
það mér dálítið á óvart hversu góð-
ur textahöfundur hann er, en text-
arnir á þessari plötu eru með besta
móti á íslenskan mælikvarða, lipur-
lega ortir, með heilbrigðri hugsun
og meiningu. Hljómgæði plötunnar
eru í háum gæðaflokki, svona eins
og til að kóróna verkið í heild sinni.
Það er sannarlega ástæða til að
óska Agli Ólafssyni til hamingju
með þessa plötu enda hefur hann
með útgáfu hennar rennt’ styrkum
stoðum undir þá skoðun mína og
margra annarra, að þar fari Iista-
maður af guðs náð.
Morgunblaðið/Amór
Jöfn og góð þátttaka er í Michell-tvímenningskeppni Bridssambands-
ins sem spiluð er hvert föstudagskvöld. Þar mæta yngri og óreynd-
ari spilarar og etja kappi við gamla harðsnúna jaxla. Meðfylgjandi
mynd var tekin á dögunum.
Brids
Umsjón Arnór Ragnarsson.
Bragi og Sigtryggur
Reykjavíkurmeistarar
Bragi Hauksson og Sigtryggur Sig-
urðsson urðu Reykjavíkurmeistarar í
tvímenningi 1991 en 36 pör spiluðu
um titilinn um helgina.
Bragi og Sigtryggur höfðu mjög
vænlega stöðu í lokaorrustunni og
þrátt fyrir afar vonda setu í síðustu
umferðinni stóðu þeir félagar uppi sem
sigurvegarar.
Lokastaðan:
Bragi Hauksson - Sigtryggur Sigurðsson 221
EiríkurHjaitason-JónHilmarsson 217
Sævar Þorljömsson - Karl Sigurhjartarson 210
Jón Baldursson - Aðalsteinn Jörgensen 198
Gunnl. Kristjánsson — Hróðmar Sigurbjörnss. 197
Sveinn R. Eiríksson - Svavar Bjömsson 189
Guðmundur Sveinsson - Valur Sigurðsson 176
SverrirÁrmannsson - MatthíasÞorvaldsson 164
Spiluð voru 3 spil milli para.
Keppnisstjóri og reiknimeistari var
Kristján Hauksson.
Bridsfélag Breiðfirðinga
Farið er að síga á seinni hlutann í
aðalsveitakeppni félagsins en búnar
eru 12 umferðir af 15 í keppninni.
Sveit Árna Loftssonar hefur enn góða
, foprstp í
I rá na-s(u f
itiiiii
að hún nái að vinna mótið. Staða efstu
sveita er þannig:
. Árni R. Loftsson 255
Jón Stefánsson 232
Gróa Guðnadóttir 217
ÓskarÞráinsson 201
Guðmundur Kr. Sigurðsson 195
Haukur Harðarson 191
Næsta keppni félagsins verður
þriggja kvölda jólatvímenningur með
tölvuútreikningi. Veitt verða sérstök
jólaverðlaun í lok keppninnar fyrir
efstu sæti.
Kauphallarmót
Bridssambands Islands 1991
Annað Kauphallarmót BSÍ verður
haldið á Hótel Loftleiðum helgina 30.
nóv.-l. dés. nk. Mótið verður með
sama sniði og síðásta ár. Pörin verða
seld á uppboði og verður lágmarksboð
10.000 kr. Miðað er við að hámarks-
þátttökufjöldi sé 32 og er þátttöku-
gjald á par 10.000. Uppboð paranna
verður á laugardagsmorgun og síðan
hefst spilamennska kl. 13.00. Keppnis-
stjóri verður Agnar Jörgensson og
reiknimeistari Kristján Hauksson.
Kauphöll verður síðan starfrækt á
staðnum þar sem hægt verður að
versla með pör eða hluta úr pörum
eftir því hvað í boði verður á hveijum
tíma.
Skráning í mótið er þegar hafin hjá
Bridssambandimi í síma 689360
i ilí íim i fií 101 riiTliiiiiilí i