Morgunblaðið - 20.11.1991, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. NOVEMBER 1991
33
Sigríður Jónsdótt-
ir - Minning
Fædd 11. júní 1907
Dáin 11. nóvember 1991
I þessum mánuði eru 40 ár liðin
frá því er við fluttum í nýtt hús við
Melhaga 6. Á hæðinni fyrir ofan
okkur fluttu þá einnig Sigríður og
maður hennar, Helgi Magnússon
deildarstjóri í Landsbanka Islands.
Okkur langar með þessum línum
að minnast Sigríðar og þakka fyrir
að hafa fengið að kynnast þeim
ágætu hjónum, en Helgi lést 1961
á besta aldri og hefur það verið
Sigríði mikill missir. Hún bjó síðan
ein í íbúð sinni, en þau hjón voru
barnlaus.
Aldrei bar neinn skugga á sam-
veru okkar í húsinu. Sigríður var
einstaklega heimakær og sjálfri sér
næg. Listelsk var hún, áhugasöm
og fjölhæf á því sviði. Hún lék á
píanó, málaði, vann ýmislegt úr
leðri og fékkst einnig við tréskurð
svo eitthvað gé nefnt.
Börnin okkar urðu fljótt hænd
að Sígríði og þótti gaman að
skreppa upp til hennar. Alltaf hafði
hún eitthvað að sýna þeim eða gefa
og með hæglátu, virðulegu fasi sínu
ávann hún sér vináttu þeirra og
virðingu. Um hver jól gaf hún þeim
jólagjafir og var auðséð að hún
valdi gjafir sínar af mikilli alúð.
Síðar voru það barnabörnin sem
gjafa hennar nutu en þau fóru fljótt
að venja komur sínar í undraheima
Sigríðar eins og foreldrar þeirra
áður.
Þó Sigríður hafi verið orðin 84
ára er hún lést, þá sá hún alveg
um sig sjálf fram undir það síð-
asta. Halidóra, svilkona Sigríðar,
var hennar nánasta vinkona og
reyndist henni umhyggjusöm alla
tíð, stoð og stytta er þörf var á.
Síðasta æviár sitt naut Sigríður
mjög góðrar þjónustu fyrir aldraða
frá Reykjavíkurborg. Gott er til
þess að vita að fólki sé þannig gert
kleift að búa á heimili sínu fram á
elliár þó heilsan sé eitthvað farin
að gefa sig. Sigríður mat það mik-
ils. Eins og líf hennar var, hljóðlátt
og kyrrt, bar andlát hennar að eft-
ir stutta sjúkdómslegu.
Við sendum Halldóru og fjöl-
skyldu samúðarkveðjur og munum
sakna Sigríðar á loftinu.
Anna, Hannes og börnin.
í dag er útför vinkonu okkar,
Sigríðar Jónsdóttur, Melhaga 6 í
Reykjavík.
Sigríður, eða Sigga Jóns eins og
hún var ávallt kölluð meðal vina
sinna, fæddist í Hafnarfirði 11. júní
1907 og var því á 85. aldursári er
hún lést. Foreldrar Siggu voru hjón-
in Jón Jónasson, skólastjóri í Flens-
borg, og kona hans, Valgerður
Jensdóttir. Þau eignuðust, auk
Siggu, þtjá syni, en tveir þeirra,
Jens og Kjartan, dóu ungir, Jens
árið 1913, aðeins níu ára, og Kjart-
an 1928, þá 18- ára að aldri. Þriðji
bróðirinn, Jónas, var að mestu alinn
upp á Akureyri, en hann andaðist
1938, þá 33 ára að aldri. Hann lét
eftir sig eiginkonu og dóttur sem
báðar eru látnar fyrir mörgum
árum. Faðir Siggu lést einnig á
unga aldri árið 1914, aðeins 38 ára
gamall, en þa var hún aðeins 7
ára. Móðir hennar, Valgerður, sem
einnig var kennaramenntuð, tók þá
við skólastjórn Flensborgarskóla og
stýrði honum um árabil. Hún varð
fyrst kvenna skólastjóri á íslandi.
Sigga ólst upp með móður sinni í
Hafnarfirði á fyrri hluta þessarar
aldar, á þeim tímum sem 20. öldin
var að hefja innreið sína. Kjörin
voru knappari þá en nú og kröfurn-
ar vissulega minni og þegar venju-
legri skólagöngu sleppti var ekki
um annað að ræða en fara að vinna
fyrir sér. Sigga vann um árabil hjá
Landsímanum í Hafnarfirði sem
talsímastúlka,_ en réðist síðar til
Landsbanka íslands sem þá var
með útibú í’Hafnarfirði. Þár'starf-
aði hún m.a. sem gjaldkeri um
skeið. Við bankaútibúið starfaði
ungur glæsilegur maður, Helgi
Magnússon frá Eskifirði, Magnús-
sonar Erlendssonar frá Eyri í Reyð-
arfirði. Þau felldu hugi saman og
giftu sig í október 1936. Helgi var
þá bankaútibússtjóri.
Þegar Landsbankinn lagði niður
útibúið í Hafnarfirði fluttu þau til
Reykjavíkur og starfaði Helgi við
aðalbankann frá þeim tíma.
Þau bjuggu á nokkrum stöðum
í Reykjavík, en 1951 byggðu þau,
ásamt samstarfsmönnum í bankan-
um, á Melhaga 6 og áttu þar heima
frá þeim tíma.
Árið 1939 byggðu þau sér lítinn
sumarbústað á fögrum stað við
Lögberg ofan Rauðhóla. Á þeim
tíma voru íjarlægðir mældar með
annarri mælistiku en nú, og að fara
úr Reykjavík að Lögbergi var ferða-
lag. Þangað gekk strætó kvölds og
morgna og þarna voru þau flest
sumarleyfi og jafnvel heilu sumrin.
Mann sinn missti Sigga, langt
um aldur fram, 1961. Þeim varð
ekki barna auðið. Eftir það bjó
Sigga ein á Melhaganum. Sumarbú-
staðinn seldi hún 1971, enda var
þá orðið erfitt fyrir hana að halda
honum við vegna skemmdarvarga,
nálægðin við höfuðstaðinn hafði
minnkað.
Sigga var ákaflega gáfuð og
heilsteypt manneskja, hún var ekki
allra, henni var ekki lagið að liggja
á skoðunum sínum. Hún hafði
áhuga og skoðanir á flestum hlut-
um, hún var víðlesin og bráðgreind
en fyrst og síðast var hún listamað-
ur af guðs náð. Þessa gáfu sína fór
hún afar vel með, og bar í raun
mikla virðingu fyrir henni. Það að
hafa ekki á yngri árum fengið tæki-
færi til að þroska þennan hæfileika
sinn háði henni, og síðar þegar
augnsjúkdómur fór að angra hana
varð hún smátt og smátt að haétta
þessu föndri eins og hún kallaði það.
Sigga skar út í tré og leður, batt
inn bækur og málaði myndir. Hún
hafði yndi af tónlist, lék á píanó
og fleiri hljóðfæri ef svo bar undir.
Lög og tónverk samdi hún þó það
færi ekki hátt. Allt sem hún gerði
var svo hárfínt og hnitmiðað, fágað
og stílhreint, en þó svo látlaust og
venjulegt.
Þannig var Sigga. Hún hafði
yndi af börnum þótt hún bæri ekki
gæfu til að eignast þau eða um-
gangast daglega.
Smátt og smátt fór heilsu hennar
að hraka.og i september sl. var svo
komið að hún gat ekki lengur búið
ein. Þá lá leiðin á ný í Hafnarfjörð
sem hún, þrátt fyrir áratuga búsetu
•í Reykjavík, taldi alltaf sinn bæ.
Hún andaðist í St. Jósefsspítala 11.
nóvember sl. sátt við guð og menn.
Útför hennar er frá Hafnarfjarðar-
kirkju í dag.
Megi algóður guð vera sál henn-
ar náðugui.
Hjörg og 'rii(*odór Hlöndal.
30% RAUNIÆKKUN
FLUTNINGSGJALDA
ER STAÐREYND!
Markvissar aðgerðir starfs-
manna EIMSKIPS til hagræð-
ingar ásamt fjárfestingum fé-
lagsins í nýrri flutningatækni og
fullkomnum skipum hafa á
síðustu 5 árum skilað að meðal-
tali um 30% raunlækkun á
flutningsgjöldum.
Frumkvæði, aðhald og virk
þátttaka viðskiptavina okkar
hefur verið okkur hvatning og
kveikt nýjar hugmyndir varð-
andi leiðir til að ná fram þessari
lækkun.
Við óskum öllum viðskipta-
vinum og starfsmönnum fé-
lagsins til hamingju með þann
mikla árangur sem þegar hefur
náðst.
Höldum áfram á sömu braut!
1986 1987 1988 1989 1990 1991
jan/ág
Meðalflutningsgjöld í stykkjavöru
Visitölur m.v. verölag jan/á 1991 á föstu verðlagi
m.v. byggingarv. 1986 =100
EIMSKIP
VIÐ GREIÐUM ÞÉR LEIÐ
I 3HU OSIIKC3;