Morgunblaðið - 20.11.1991, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 1991
■ ÁSGEIR Elíasson komst á
sjúkralista Sigurjóns Sigurðsson-
ar, læknis landsliðsins, í gærmorg-
un. Ásgeir fékk tak í bakið.
■ MICHAEL Platini, landsliðs-
þjálfari Frakka, segir að það verði
ekki auðvelt að leggja íslendinga.
„Þeir hafa staðið sig vel í Tékkósló-
vakíu og Spáni.”
■ ÍSLENSKA liðið tapaði, 0:1, í
Tékkóslóvakíu og 1:2 á Spáni.
■ ÍSLENSKA landsliðið æfði í
flóðljósum á Parc des Princes-leik-
vanginum fræga í gærkvöldi. Rign-
ing var í París í gær og kalt í veðri.
■ LEIKENN íslenska landsliðs-
ins fengu að sjá fimm mörk í gær.
Þá komu þeir saman og horfðu á
upptöku á leik Frakka og Albana,
sem Frakkar unnu, 5:0, í París.
FAX 120
Stórlækkað verð!
I nútímaviöskiptum dugar
engin næstum því lausn.
Aðeins hágæða tækni-
búnaður sem endist og
skilar verki sínu fljótt og vel.
VeriS velkomin í söludeild
okkar að Síðumúla 23 og
kynnið ykkur kosti Konica.
Síðumúla 23- 108 Reykjavík
Sími: 91 - 679494 - Fax: 91 - 679492
KNATTSPYRNA / EVROPUKEPPNI LANDSLIÐA
Getum gert
ýmislegt
- segirÁsgeirElíasson, landsliðsþjálf-
ari, um leikinn gegn Frökkum í París
„ÞETTA verður mjög erfiður
ieikur, en við höfum sýnt og
sannað að við getum gert ýmis-
legt gegn sterkum þjóðum með
skynsamlegum leik,” sagði Ás-
geir Elíasson, landsliðsþjálfari,
um leikinn gegn Frökkum í
París í dag.
sig vel. Ég tel aftur á móti það
sterkara að láta Guðmund leika við
hlið Sigurðar Grétarssonar, heldur
en að hafa Guðmund og Eyjólf sam-
an í sókninni. Annars veit ég ekki
hvernig leikurinn þróast - hvað
sóknarleikmenn okkar þurfa að fara
aftarlega. Þeir verða eins framar-
lega á vellinum og við ráðum við.
Morgunblaöið/Bernand Valsson
Ásgeir Elíasson ásamt Vali Valssyni, Hilmari Sighvatssyni og Kristjáni
Jónssyni á æfingu í París.
Skapti
Hallgrímsson
skrífar
frá París
Asgeir hefur verið að skoða
myndband með leikjum
Frakka gegn Albaníu og Spánveij-
um. „Ég hugsa að
þeir noti svipaða
leikaðferð og gegn
Albaníu í París, sem
þeir unnu 5:0. Þeir
pressuðu stíft mjög framarlega og
við verðum að ná að svara þeirri
leikaðferð. Ég reikna með að við
notum svipaða leikaðferð og gegn
Spánverjum. Við verðum að halda
boltanum vel, leika skynsamlega
og passa að missa ekki boltann
aftarlega því þá verður okkur refs-
að.”
Ásgeir sagði að liðið væri nokkuð
vel undirbúið miðað við aðstæður.
„Leikmenn eru að vísu ekki í góðri
leikæfingu og hafa sumir ekki leik-
ið alvöruleik síðan í september.
Leikurinn leggst ágætlega í mig.
Ég held að Frakkar koma afslapp-
aðir til leiks enda búnir að tryggja
sér sæti í úrslitakeppninni. Það hlýt-
ur alltaf að vera hætta á því að
þeir vanmeti okkur. Þeir vita að
keppnistímabilinu er löngu lokið hjá
okkur og koma því væntanlega sig-
urvissir til leiks og ætla að vinna
stórt.”
Slæmt að missa Sigurð
Morgunblaðið/Bernand Valsson
Guðmundur Torfason og Eyjólfur Sverrisson. Guðmundur tekur stöðu
Eyjólfs í fremstu víglínu.
Úrsit leiksins skipta okkur
kannski ekki miklu máli, nema fyr-
ir heiðurinn. Við viijum jú alltaf að
liðið standi sig vel og strákarnir
reyna _að gera sitt besta eins og
áður. Ég treysti þeim fullkomlega,”
sagði Ásgeir Elíasson.
Aganefnd UEFA ákvað að sekta
Knattspyrnusamband Spánar
vegna óláta áhorfenda í Sevilla á
Evrópuleik Spánar og Frakklands
12. október sl. og var sektin 75.000
svissneskir frankar (liðlega þrjár
millj. ISK). Spánveijar hafa nú
áfrýjað til viðkomandi dómstóls
UEFA og verður málið tekið fyrir
um_ helgina.
Á sama tíma verður áfrýjun
ítalska liðsins Tórínó tekin fyrir.
Liðinu var gert að leika Evrópuleik-
inn í 3. umferð gegn gríska liðinu
AEK 13. desember nk. í a.m.k 300
km ijarlægð frá Tórínó vegna fram-
komu stuðningsmanna liðsins á úti-
leiknum gegn Boavista í Portúgal
6. nóvember sl.
„Það er slæmt að missa Sigurð
Jónsson úr liðinu því hann stóð sig
mjög vel gegn Spánverjum - var
lykilmaður á miðjunni. En það kem-
ur maður í manns stað ogvið verð-
um ellefu eins og áður. Guðni
Bergsson á við smávægileg meiðsli
að stríða. Hann mun taka það ró-
lega fyrir leikinn.”
Ekki óánægður með Eyjólf
Ásgeir sagðist fyrst og fremst
hafa valið Guðmund Torfason til
að fá að sjá hvernig hann falli inn
í liðið. „Ég hef alls ekki verið óán-
ægður með Eyjólf Sverrisson -
þvert á móti. Eyjólfur hefur staðið
Guðmundur í stað Eyjótfs
Asgeir Elíasson, landsliðsþjálf-
ari, hefur gert þrjár breyt-
ingar á landsliði íslands frá því
gegn Spánverjum á Laugardals-
vellinum. Arnór Guðjohnsen og
Kristinn R. Jónsson koma inn á
miðjuna fyrir Sigurð Jónsson og
Ólaf Þórðarson, sem eru meiddir,
og Guðmundur Torfason tekur
stöðu Eyjólfs Sverrissonar í
fremstu víglínu.
Birkir Kristinsson verður í
markinu, en í öftustu vörn þeir
Pétur Ormslev, Guðni Bergsson
og Kristján Jónsson. Valur Vals-
son verður hægra meginn á miðj-
unni og Baldur Bjarnason á vinstri
vængnum. Kristinn R. Jónsson
verður aftasti maður á miðjunni
og Þorvaldur Örlygsson. fyrir
framan. hann, en Arnór Guðjo-
hnsen 'verður fremsti maðurinn á
miðjunni.
Guðmundur Torfason og Sig-
urður Grétarsson verða fremstu
leikmenn.
Varamenn verða Friðrik Frið-
riksson, markvörður, Sævar Jóns-
son, Hilmar Sighvatsson, Andri
Marteinsson og Eyjólfur Sverris-
son.
„Gaman að skora í
þríðja leiknum í röð”
orvaldur Örlygsson, leikmaður
Nottingham Forest, hefur
skorað í tveimur síðustu landsleikj-
um; fyrra markið gegn Spánveijum
á Laugardalsvelli og jöfnunarmark-
ið gegn Kýpur ytra. „Það yrði vissu-
lega gaman að skora í þriðja leikn-
um í röð, en það er engin pressa á
mér. Ég fer bara í þennan leik til
að hafa gaman af þessu. Eftir lá-
deyðuna hjá félagsliðinu kemur
maður í landsleiki til að rífa sig upp
og gera sitt besta,” sagði Þorvaldur
við Morgunblaðið í París,
Þorvaldur sagði að leikurinn yrði
erfiður og hann hafi trú á því að
Frakkar pressuðu framarlega á
vellinum í leiknum. „Við vel;ðum
að vera þolinmóðir og skynsamir
framan .af eins og gegn Spánverj-
um. Þá vorum við að leika gegn
liði sem var sterkara á pappírnum
og það er eins nú.” Þorvaldur bætti
því við að einmitt vegna þess að
sumir Islendinganna væru ekki í
mikilli Ieikæfíngu gæti þetta orðið
erfiðara en ella. „Það sást í leiknum '
á Kýpur að menn voru að detta úr
leikæfingu; voru ekki eins góðir og
gegn Spáni og í síðustu umferðum
Islandsmótsins. Þess vegna tel ég
að það hafi verið slæmt að komast
ekki á mótið í Túnis um daginn
eins og til stóð.”
Þorvaldur er ánægður með þá
breytingu sem orðið hefur á leikstíl
íslenska liðsins undanfarið. „Þáð er
miklu skemmtilegra að spila eins
og við erum að reyna núna. Að
halfja, boltanuin sein lAngs,t, ipnan ,
liðsins. Það var kominn tími til að
prófa þetta. Við reynum að ná
meira jafnvægi í leik liðsins, og
árangurinn í sumar hefur verið
góður. Og þó leikurinn hér skipti
okkur í sjálfu sér ekki máli viljum
við auðvitað ná góðum úrslitum.
Það kitlar að geta strítt þeim svolít-
ið — að koma í veg fyrir að þeir fari
í gegnum riðlakeppnina með fullt
hús stiga. Við höfum ekki að öðru
að keppa en því og spila heiðursins
vegna. En við megum ekki gleyma
því að Frakkar eru með hörkulið
og það yrði mjög gott að ná einu
stigi. Við ættum að reyna að halda
stiginu sem við höfum þegar leikur-
inn hefst,” sagði Þorvaldur.
jlnyíls nilto.go niB þífteianöte
H „ÞAÐ er ekki hægt að bóka
auðveldan sigur á íslendingum fyr-
irfram. Þeir eru erfiðir að eiga við,”
sagði Manuel Amaros, varnarmað-
ur hjá Marseille, sem jafnar land-
sleikjamet Maxime Bossis í París
í kvöld.
■ AMAROS, sem er fyrirliði
landsliðsins, mun leika sinn 76
landsleik. Hann ann mun slá metið
á Wembley í febrúar - þar sem
Frakkar leika vináttulandsleik
gegn Englandingum.
■ FIMM leikmenn í byijunarliði
íslands, léku gegn Frökkum á
Laugardalsvellinum, 1:2, í fyrra.
Arnór Guðjohnsen, Sigurður
Grétarsson, Pétur Ormslev,
Guðni Bergsson og Þorvaldur
Örlygsson. Sá _ lpilíur þþtti , ?kki
góður að hájlfu íslendinga.