Morgunblaðið - 12.12.1991, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1991
Kaup á 9 loðdýrahús-
um borín undir Alþingi
STEINGRÍMUR J. Sigfússon
skrifaði í ráðherratíð sinni í land-
búnaðarráðuneytinu undir sam-
komulag um kaup á 9 loðdýrahús-
um og annarri aðstöðu að verð-
mæti rúmlega 47 milljónir króna
á jörðunum Kirkjuferju og
Kirkjuferjuhjáleigu í Olfus-
hreppi. Fyrrum ráðherra segir
í fréttatilkynningu kemur fram
að tveir aðilar, Landsbanki íslands
í Grindavík og Olís og Olíusamlag
Grindavíkur, hafa lagt fram 200
að kaupin hafi verið liður í að-
gerðum jarðadeildar landbúnað-
arráðuneytisins til hjálpar loð-
dýrabændum. Samkvæmt úr-
skurði ríkislögmanns J)arf að bera
kaupin undir Alþingi.
Sigurgeir Þorgeirsson, aðstoðar-
maður landbúnaðarráðherra, sagði í
þúsund hvor um sig á bókina og
hvetja fyrirtæki og einstaklinga að
gefa í þessa söfnun.
samtali við Morgunblaðið að sam-
kvæmt ábúðarlögum væri ríkinu
skylt að kaupa allar eigur ábúenda
á ríkisjörð ef hann stæði ekki í skil-
um. Því hefði stundum verið brugðið
á það ráð að greiða fyrir fjárhags-
stöðu ábúenda með því að kaupa
hluta eigna þeirra til þess að koma
í veg fyrir ábúðarlok. Yfirleitt sagði
Sigurgeir að um smærri upphæðir
væri að ræða en að þessu sinni
væri hún svo há að leitað hefði ver-
ið eftir samþykki fjármálaráðuneyt-
isins. Ríkislögmaður hefði hins vegar
úrskurðað að Alþingi þyrfti að sam-
þykkja kaupin. Því hefði fjárhags-
nefnd verið ritað erindi þar að lút-
andi.
Steingrímur J. Sigfússon sagði í
samtali við Morgunblaðið að sam-
komulag um kaupin hefði verið liður
í aðgerðum jarðadeildar til hjálpar
loðdýrabændum. Farið hefði verið
yfír hvert mál fyrir sig og ákveðið
hvort kaup á hluta eigna ábúenda
væru skynsamleg lausn eða ekki.
Slysið við Grindavík:
Styrktarsjóður stofnaður
Grindavík.
STOFNAÐUR hefur verið sparisjóðsreikningur í Landsbanka íslands
í Grindavík til að styrkja eiginkonur og fjölskyldur þeirra sem fór-
ust með Eldhamri GK 14 i Grindavík. Reikningurinn er númer 6180
við Landsbankann.
VEÐURHORFUR í DAG, 12. DESEMBER
YFIRLIT: 975 mb djúp og víðáttumikil lægð yfir Grænlandshafi
hreyfist norðaustur. 1040 mb hæð yfir Suður-Skandinavíu.
SPÁ: Vestlæg átt, allhvöss framan af degi en lægir síðan smám
saman. Léttskýjað austanlands en éljagangur í öðrum landshlutum,
mest vestanlands. Víðast vægt frost.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FÖSTUDAG OG LAUGARDAG: Vestlæg átt, víða kaldi
eða stinningskaldi. Lengst af léttskýjað austanlands en óljagangur
í öðrum landshlutum. Hiti um eða rétt undir frostmarki.
Svarsimi Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
Akureyri Reykjavík hitl 5 4 veður skýjað rigning
Bergen 6 skýjað
Helsinki 0 þokumóða
Kaupmannahöfn 1 þokumóða
Narssarssuaq +8 léttskýjað
Nuuk +7 snjókoma
Osló +2 þokaigrennd
Stokkhólmur 4 léttskýjað
Þórshöfn 5 léttskýjað
Algarve 17 léttskýjað
Amsterdam 1 heiðskírt
Barcelona 8 rignlng
Berifn +2 mistur
Chicago vantar
Feneyjar 4 heiðskirt
Frankfurt 0 léttskýjað
Glasgow +4 þokuruðningur
Hamborg +1 léttskýjað
London 0 mistur
LosAngeles 14 alskýjað
Lúxemborg +3 skýjað
Madríd 8 þokumóða
Malaga 15 alskýjað
Mallorca 13 skýjað
Montreal 4 skýjað
NewYork 6 heiðskirt
Orlando vantar
París 0 léttskýjað
Madeira 20 skýjað
Róm 6 skýjað
Vfn +3 mistur
Washington vantar
Winnipeg +5 léttskýjað
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Sýslumaðurinn átta manna maki
Jón Isberg sýslumaður Húnvetninga, sem löngu er landskunnur,
gerði sér lítið fyrir á dögunum og gaf öllu starfsfólki sínu frí eina
viku og notaði fólkið tækifærið og brá sér til Amsterdam í innkaupa-
ferð. Jón gekk á meðan í öll störf á sýsluskrifstofunni. Það skal þó
tekið fram að lögreglan í Húnaþingi fékk ekki frí. Aðspurður sagði
Jón að það væri hollt að kynnast öllum þáttum starfseminnar á sýslu-
skrifstofunni og að hlutirnir hefðu ekkert vafíst fyrir sér. Það voru
átta starfsmenn sem Jón ísberg gekk í störf fyrir og má með sanni
segja að Jón ísberg sýslumaður Húnvetninga sé átta manna maki.
Jón Sig / Blönduós
Borgarráð:
Þjónustumiðstöð fyr-
ir aldraða í S-Mjódd
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
tillögu að þjónustumiðstöð fyrir
aldraða í Suður-Mjódd í Breið-
holti en þar er fyrirhugað að
reist verði hjúkrunarheimili og
íbúðir fyrir aldraða. Áætlaður
heildarkostnaður þjónustumið-
stöðvarinnar ásamt búnaði er
um 181 milljón króna.
Gert er ráð fyrir tveggja hæða
húsi ásamt kjallara og er fyrsta
hæð 655 fermetrar. Þar verður
móttaka, skrifstofur, matsalur,
handavinnu- og föndurherbergi. Á
annari hæð, sem er 245 fermetrar,
verður setustofa, bókasafn, sjúkra-
bað og hreyfisalur. í kjallara, sem
er 207 fermetrar, er tæknirými,
sorpgeymsla og geymslur. Fram
kemur að byggingarnefnd aldraðra
fellst í meginatriðum á tillögu
hönnuða og samþykkir jafnframt
að kanna hvort hluti hússins þar
á meðal önnur hæð verði sameign
hjúkrunarheimilisins og þjón-
ustumiðstöðvarinnar.
-----» ♦ ♦
Hæstiréttur:
3 sóttu um emb-
ætti dómara
ÞRJÁR umsóknir bárust um emb-
ætti dómara við Hæstarétt íslands
en umsóknarfrestur rann út á
miðnætti á þriðjudag. Umsækj-
endur eru: Auður Þorbergsdóttir
borgardómari, Garðar Gíslason
borgardómari og dr. Páll Sigurðs-
son prófessor.
Umsóknirnar hafa verið sendar
Hæstarétti til umsagnar lögum sam-
kvæmt. Um er að ræða það emb-
ætti sem Bjarna K. Bjarnasyni hæst-
aréttardómara hefur verið veitt
lausn frá, frá og með áramótum.
Tvær bækur eftir
Hannes Pétursson
HJÁ Bókaútgáfunni Iðunni eru
komnar út tvær bækur eftir
Hannes Pétursson skáld, Eintöl á
vegferðum og endurútgáfa á
ljóðabókinni Stund og staðir. I
kynningu útgefanda segir:
„I bókinni Eintöl á vegferðum
er að finna minningabrot og hugleið-
ingar frá nokkrum ferðalögum
Hannesar Péturssonar skálds inn-
anlands og utan, ferðum til móts við
ný yrkisefni, ferðum á vit minning-
anna, ferðum á bak við ár og at-
burði. Kaupmannahöfn, Róm, Stað-
arfjöll, Búdapest, Álftanesfjara —
ætíð tekst skáldinu af innsæi og
fágætri stílsnilld að birta lesandan-
um nýja sýn, nýjan sannleik, hvort
sem sporin liggja um kunnar slóðir
eða ókunnar.
Bókin er gefin út í takmörkuðu
upplagi í tilefni af 60 ár afmæli
skáldsins. Vandað er til útgáfunnar
í hvívetna og er hluti upplagsins
áritaður af höfundi. Gunnar Karls-
son listmálari myndskreytti bókina.
Ljóðabókin Stund og staðir, þriðja
ljóðabók Hannesar Péturssonar, sem
út kom árið 1962 hefur lengi verið
ófáanleg en kemur nú út í nýrri
útgáfu. Hún geymir mörg eftir-
Hannes Pétursson
minnileg ljóð, þar sem yrkisefni er
sótt jafnt til æskustöðvanna sem
mannlífsiðu erlendra stórborga."
Prentsmiðjan Oddi prentaði.
(Féttatilkynning.)