Morgunblaðið - 12.12.1991, Síða 18
<18
'MOÉGÚtóBtÆÐÍÐ í'IAfcMttfDÁfcí'ÚR' 12. ÚESÚMBÚR T9D1
Snuðra og Tuðra
Bókmenntir
Sigrún Klara Hannesdóttir
Snuðra og Tuðra verða vinir;
Snuðra og Tuðra í búðarferð;
Snuðra og Tuðra fara í strætó;
Snuðra og Tuðra í miðbænum;
Snuðra og Tuðra missa af matn-
um. Gunnar Karlsson mynd-
skreytti. Iðunn, 1991.
Iðunn Steinsdóttir hefur sett
ævintýri systranna Snuðru og
Tuðru í fimm smábækur, sem segja
frá sérstökum viðburðum í lífi
þeirra. Þær systur eru allt annað
en þægar og gera mömmu sinni
lífið leitt, en í hverri sögu sjá þær
að sér og skilja af hverju reglur
eru settar. í fyrstu bókinni læra
þær tillitssemi hvor við aðra, í
annarri er notuð búðarferð til að
kenna þeim um hollustu í matar-
æði, í strætóbókinni er þeim hent
út úr vagninum vegna þess hve
ókurteisar þær eru og þeim kennt
að standa upp fyrir eldra fólki.
Mamma fer með þær í bæinn til
að kaupa á þær föt en þá týnist
önnur og hafnar á lögregiustöð-
inni. Og loks missa þær af matnum
þegar þær eru of uppteknar við
að leika sér og koma ekki að borð-
inu þegar á þær er kallað.
Hver saga er sjálfstæð en svo
virðist sem sá lærdómur sem dreg-
inn er af hverri sögu gangi ekki
yfir í þá næstu, enda eru frásagn-
imar af óþægð þeirra systra sjálf-
sagt hugsaðar sem efni í langa,
skemmtilega ritröð. Textinn er
léttur og skemmtilegur og Iðunn
kann vel að segja sögur af alls
kyns uppátækjum. Hverja sögu
má líka nota til að ræða um sér-
stök bemskubrek og til að leiðrétta
það sem aflaga fer í hegðun yngstu
kynslóðarinnar.
Bækumar eru heftar og frá-
gangur þannig að þær verði sem
ódýrastar. Ekkert er heldur á þeim
blaðsíðutalið. Einn galli sem ég get
ekki látið ógetið er sá að á síðustu
síðu hverrar bókar er endurtekin
einhver mynd úr sögunni sjálfri
sem er yfirleitt í miklu ósamræmi
Iðunn Steinsdóttir
við endalok sögunnar. Sem dæmi
má nefna að lokaorð fýrstu bókar
em: „Ég vissi ekki að það væri
svona gaman að vera vinir“, en
myndin sem kemur á næstu síðu
sýnir þær systur í feikna slagsmál-
um.
Myndirnar í bókunum em mér
ráðgáta og minna mig einhvern
veginn á myndimar úr gömlu bók-
unum um Snúð og Snældu. Á káp-
umyndunum, sérstaklega á fyrstu
bókinni, líkjast þær systur meira
plastbrúðum en börnum. Ég sé
ekki betur en hér séu komnar ein-
hvers konar „alþjóðlegar" myndir
þar sem ekkert minnir á ísland
nema kannski liturinn á strætó.
Veislan þegar þær systur missa
af matnum er sett út í garði og
má sjá limgerði í baksýn. Búningur
pabbans sem vinnur á hafrann-
sóknarskipi minnir meira á fran-
skan dáta en íslenskan sjómann. í
búðunum er hvergi neitt sem
minnir á íslenskar aðstæður.
Ekki er neitt við það að athuga
að forlög reyni að koma bókum
sínum á erlendan markað en samt
sem áður finnst mér óþarft að
þurrka út öll íslensk einkenni af
myndefninu.
LYKILL A Ð HÖTEL ÖRK 1992
birtu í skammdeginu
STJÖRNUDAGAR:
5 daga lykill, mánudagur til föstudags.
Innifalið: 5 dagar, 4 nætur,
morgunverðir, 3ja rétta kvöldverðir.
Fyrir manninn í 2ja manna herb. kr. 12.900,-
HELGARLYKILL:
föstudagur, laugardagur, sunnudagur
Innifalið: 3 dagar, 2 nætur,
morgunverðir, 3ja rétta kvöldverðir.
Fyrir manninn í 2ja manna herb. kr. 10.900,-
HVUNNDAGSÞRENNA: 3ja daga lykill,
mánudagur til miðvikudags/miðvikudagur til föstudags
Innifalið: 3 dagar 2 nætur,
morgunverðir, 3ja rétta kvöldverðir
Fyrir manninn í 2ja manna herb. kn 6.900,-
Með
gjafalykli
er hægt að bóka
út allt árið 1992
Þar að auki fylgin Aðgangur að sundlaug, vatnsrennibraut,
líkamsrækt, gufubaði, heitum pottum, golfvclli, dansleikjum,
hárgreiðslustofu ofl.
Á öllum herbeigjum ergervihnattasjónvarp, sími og minibar
RAÐGRBÐSLUR Upplýsingar og pantanir í síma 98-34700
Verið velkomin í
jólagjafahús
Hótel Arkarí
Kringlunni
Söluaðilar Hótel Arkar á landsbyggðinni
eru m.a.:
Vesturland
Akranes: Umboösskrifstofan
Garðabraut 2, s. 93-12800.
Borgarnes: Magnús Valsson, s. 93- 71282.
Grundarfjörður: Flugleiðaumboð, s. 93-86655.
Ólafsvik: Viðskiptaþjónustan, s. 93-61490.
Stykkishólmur: Þórður Þórðarson,
s. 93-81283.
Búðardalur: Melkorka Benediktsdóttir,
s. 93-41415.
Vestfirðir
Isafjörður: Úlfar Ágústsson, s. 94- 4150.
Bildudalur: Finnbjörn Bjarnason, s. 94-2151.
Suðurland
Keflavík: Umboðsskrifstofa Helga Hólm,
s. 92-15660.
Grindavík: Flakkarinn, s. 92-68060.
Hella/Hvollsvöllur: Umboðsskrifstofan Hellu,
s. 98-75165.
Vestmannaeyjar:
Ferðaþjónusta Vestmannaeyjar, s. 98-12922.
Austurland
Seyðisfjörður: Fjörður hf., s. 97- 21555.
Neskaupsstaður: Sigfús Guðmundsson,
s. 97-71119.
Eskifjörður: Erna Nielsen, s. 97- 61161.
Egilsstaður: Ferðamiðstöð Austuriands,
s. 97-12000.
Höfn: Júlia Imsland, s. 97-81899 — 97-81249.
Norðurland
Akureyri: Ferðaskrifstofa AkureWar,
s. 96-25000.
Sauðárkrókur: Ferðaþjónusta Árna Blöndal, s.
95-35223.
Húsavik: Ferðaskrifstofa Húsavíkur,
s. 96-42100.
Siglufjörður: Oddný Jóhannsdóttir,
s. 96-61405.
Dalvík/Ólsfsfj.: Árni Júliusson, s. 96-61405.
Blöndós: Sigurður Kr. Jónsson, s. 95-24222.