Morgunblaðið - 12.12.1991, Side 72
72
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1991
fclk f
fréttum
Morgunblaðið/Sverrir Vilhelmsson
Tónlistin flutt. Sævar Karl t.h. á tali við tónleikagesti.
TÓNLIST
Tónleikar fyrir fiðlusjóð
Þetta er annað árið í röð sem
ég stend fyrir tónleikjahaldi
af þessu tagi. í fyrra var það
mest til gamans gert, en að þessu
sinni var hugmyndin að geta rétt
eitthvað fram í fiðlukaupasjóð
fyrir Sigrúnu Eðvaldsdóttir. Því
kostaði inn á tónleikana núna og
allur aðgangseyrir rennur í sjóð-
inn. Þetta er engin smáfíðla,
kostar milljónatugi," sagði Sæv-
ar Karl Olason klæðskeri og
kaupmaður í samtali við Morgun-
blaðið, en um síðustu heígi fóru
hinir árlegu tónleikar hans fram
í Óperunni.
Eins og fyrri daginn voru það
meðlimir í Sinfóníuhljómsveitinni
sem spiluðu og voru flutt nokkur
klassísk verk eftir þekkta meist-
ara. Aðsókn var góð, en ekki
húsfyllir eins og í fyrra, en eitt-
hvað mun pyngjan í fiðlusjóðnum
þyngjast eftir sem áður. Að-
gangseyrir var 900 krónur,
„svona eins óg ein pizza,“ sagði
Sævar Karl.
Allt þetta...
- skíði
shnmorco - skíðaskór
OSUIIX - skíðaáburður
swins - skíðagleraugu
Sy - púðapeysur og -b
allsport - skíðagallar
- rúllukragabolir
- húfur
ennisbönd
og
y.
eira
fæst hjá okh
SER4C
- skíðagallar
- skíðafatnaður
Dreifing: ALSPORT
HEILDVERSLUN
SÍMI: 68 80 75
FAX: 67 81 28
BORGARKRINGLUNNI
SIMI: 67 99 55
PLÖTUÚTGÁFA
Operutónleikar
Hljómsveitin Todmobile hefur
haldið tónleika í íslensku
óperunni í desember undanfarin
ár og þá yfirleitt í tengslum við
útgáfu breiðskífu með sveitinni.
Svo var einnig í síðustu viku, þeg-
ar hljómsveitin hélt útgáfutónleika
vegna breiðskífunnar „Opera“,
sem kom út sama dag. Færri kom-
ust að en vildu, því það seldist
þegar upp á tónleikana og höfðu
margir á orði að næsta ár þyrfti
sveitin að halda tónleika a.m.k. tvo
daga í röð. Gerðu gestir góðan róm
að frammistöðu hljómsveitarinnar,
sem lagði mikið í sviðsbúnað, bún-
inga og sviðsframkomu að venju.
Andrea Gylfadóttir söngkona Todmobile.
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
MAGIC JOHNSON
Ævisaga og alnæmis-
varnarit væntanleg
Körfuknattleiksmaðurinn
frægi, Magic Johnson, sem
hætti körfuknattleiksiðkun 7. nóv-
ember s.l. er í ljós kom að hann
hafði tekið alnæmísveiruna, hefur
f kvðld kl. 21.30
Meirihátiar nátlfiil, náUkjólar.
sloppar ofí undirfiil
undirritað samning við Random
House útgáfufyrirtækið um að
skrifa þijár bækur. Ein þeirra
verður sjálfsævisaga kappans,
önnur á að fjalla um þær öryggis-
ráðstafanir sem menn geta gert
til að forðast alnæmissmit við
kynmök en efni hinnar þriðju hef-
ur ekki verið gefið upp.
Leiðbeiningabókin um öryggi í
kynmökum mun koma út með
vorinu og er unnin í samvinnu við
C. Everett Koop, fyrirverandi
landlækni Bandaríkjanna. Bókin,
sem verður stíluð fyrir fullþroska
yngra fólk, mun koma út í milljón
eintökum. Allur ágóðinn rennur í
nýstofnaðan sjóð sem ber nafn
Magic Johnsons og er ætlað að
veita styrki til alnæmisrannsókna,
fræðslu um sjúkdóminn og til að
bæta aðstöðu þeirra er sýkst hafa.
Geysihátt verð hefur á síðustu
misserum verið greitt fyrir líklegar
metsölubækur. Til dæmis voru
fimm milljónir greiddar fyrir minn-
ingar Schwarzkopfs hershöfðingja
bandamanna í Persaflóastríðinu.
Ekki hefur fengist uppgefíð hvað
Magic Johnson fær fyrir ævisögu
sína né heldur þriðju bókina sem
hann hyggst vinna fyrir Random
House
■H
frá
versluninni Conny,
lirtislorgi
_______SÝNA_______
NAUSTKJALIARINN