Morgunblaðið - 12.12.1991, Síða 84
EIMSKIP
VIÐ GREIÐUM ÞÉR LEIÐ
Opnar heimildir fjármálaráðherra;
MORGUNBLADID, ADALSTRÆTI 6,
SÍMI 691100, FAX 691181, PÓSTHÓl
101 REYKJAVÍK
tLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 86
FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1991
VERÐ I LAUSASOLU 110 KR.
Hafa oft kostað
^milljarða króna
- segir Karl Steinar Guðnason
KARL Steinar Guðnason formað-
ur fjárlaganefndar gagnrýndi í
ræðu sinni á Alþingi opnar heim-
ildir fjármálaráðherra sem venja
er að veita ráðherra samkvæmt
6. gr. Karl Steinar sagði að þess-
ar heimildir hefðu oft kostað
milljarða króna í viðbótar útgjöid
ríkissjóðs.
Fjárlagafrumvarpið var til annar-
ar umræðu á Alþingi í gærdag.
Karl Steinar Guðnason mælti fyrir
áliti meirihluta fjárlaganefndar.
Hann fór nokkrum orðum um stöðu
ríkisfjármála og gagnrýndi m.a.
viðvarandi halla í rekstri ríkissjóðs
sem mætt hefði verið með lántök-
um. Væri nú svo komið að ríkissjóð-
ur greiddi árlega um 10 milljarða
króna í vaxtakostnað. Fyrir helming
þessarar upphæðar væri hægt að
byggja tvenn Vestfjarðargöng og
eina Reykjanesbraut til viðbótar.
Karl Steinar hvatti til uppstokk-
nar í ríkisfjármálum og sagði að
mikil ringulreið ríkti í kjaramálum
opinberra starfsmanna. Það taxta
kerfi sem nú gilti væri gjörsamlega
úr sér gengið og virtist aðeins not-
að fyrir þá sem gætu litlum vörnum
við komið. Fyrir þá með lægstu
dagar
til jóla
launin. Hann sagði að í ríkiskerfinu
tíðkaðist mismunun og klíkuskapur,
til að mynda væri samið um óunna
yfirvinnu til að „koma til móts við
markaðinn.“
Sjá ennfremur bls. 47
Bensíngjald og
þungaskattur:
2% hækkun
um áramótin
BENSÍNGJALD og þungaskatt-
ur hækka um 2% um næstu ára-
mót samkvæmt ákvörðun fjár-
málaráðherra í gær. Þá hækk..
dagsektir vegna álesturs af mæl-
um bíla úr 180 kr. á dag í 300
kr. Friðrik Sophusson fjármála-
ráðherra sagði í samtali við
Morgunblaðið að þessi hækkun
væri í samræmi við forsendur
fjárlagafrumvarps og breytingar
á vegaáætlun og ætti að standa
út allt næsta ár til að standa
undir aukningu fjár til vegamála.
Indriði H. Þorláksson, skrifstofu-
stjóri í fjármálaráðuneytinu, sagði
að þessar tekjur væru markaðar til
vegagerðar og sagði hann ekki rétt
að fyrirhuguð lækkun á verði bens-
íns og gasolíu um áramót skilaði
sér ekki til neytenda þrátt fyrir
þessar hækkanir en forstjóri Skelj-
ungs sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær að raunhæft væri að
ætla að af þessari verðlækkun yrði
svo framarlega sem opinberar álög-
ur á olíuvörurnar hækki ekki.
Hlutur bensíngjalds í 92ja og 95
oktana bensíni hækkar úr 20,35
kr. í 21,78 kr. og af 98 oktana
bensíni úr 22,25 kr. í 23,82 kr.
Hækkun fastagjalds og kílómetra-
gjalds í þungaskattinum hækkar
einnig um 2% um áramót.
140 barna kór
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Mikið fjolmenni var á æfíngu Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands í gærdag því auk hljómsveitar-
innar tóku 140 börn úr 6 skólum á höfuðborgar-
svæðinu þátt í æfingunni. Börnin koma fram
á tónleikum Sinfóníuhljómsveitarinnar í Há-
skólabíói í kvöld, en þar verða flutt jólalög,
kafli úr Hnetubijótnum og Söngvaseið, svo
eitthvað sé nefnt.
Þjóðmálakönnun um EES-samninginn:
Jafnmargir með og
á móti samningnum
Afstaða fylgir að hluta skiptingn milli
sljórnar og sljórnarandstæðinga
SAMKVÆMT þjóðmálakönnun
Félagsvísindastofnunar skiptist
þjóðin í tvo nær jafna hópa í af-
stöðu sinni til EES-samningsins.
Fram kemur í könnuninni að
50,6% þeirra er afstöðu taka eru
hlynntir samningnum en 49,4%
eru honum andvígir. Skipting
stuðningsmanna og andstæðinga
EES-samningsins fylgir að hluta
skiptingu milli stjórnarflokka og
stjórnarandstæðinga á þingi.
Hlutafjáreign Eimskips í Flugleiðum:
Markaðsvirði hefur
lækkað um 190 millj.
MARKAÐSVIRÐI hlutabréfa Burðaráss hf., eignarhaldsfyrirtækis
Eimskips, í Flugleiðum, hefur lækkað um röskar 190 milljónir frá því
í ágúst samkvæmt sölugengi Hlutabréfamarkaðarins HMARKS. Er
þá miðað við skráð sölugengi í ágúst sein var 2,50 en í gær var það
skráð 2,20. Síðustu daga eru dæmi um að bréf í Flugleiðum hafi
verið boðin á genginu 2,0-2,10 á tilboðsmarkaði Kaupþings. Miðað
jið gengið 2,10 er iækkun á verðmæti hlutafjáreignar Burðaráss í
T'lugleiðum alls um 255 milljónir.
Heildarhlutafé Flugleiða er nú
um 1.870 milljónir en þar af er hlut-
ur Burðaráss um 640 milljónir.
Þetta samsvaraði tæpum 1.600
milljónum í ágúst á skráðu gengi
en þessi fjárhæð hefur nú lækkað
J 1.407 milljónir.
■ Eins og kom fram í Morgunblað-
inu í gær hefur markaðsverð hluta-
bréfa í skráðum félögum hjá
HMARKI lækkað um nálægt 2
milljarða síðan í ágúst. Þar af
hefur markaðsvirði hlutabréfa í
Eimskip, Flugleiðum, Skeljungi
og Olíufélaginu lækkað um sam-
tals tæplega 1.400 milljónir á
þeim tíma. Þar vegur þyngst
lækkun á gengi hlutabréfa í
Flugleiðum,
anna miðað
HMARKI
lægra en í ágúst.
en
við
er nú
verðmæti bréf-
skráð verð hjá
um 561 milljón
Þá hefur mark-
aðsvirði hlutabréfa Eimskips
lækkað um 100 milljónir. A bréf-
um í Skeljungi er lækkunin tæp-
ar 330 milljónir og um 392 millj-
ónir á bréfum Olíufélagsins.
Hlutabréf Eimskips vom skráð á
sölugenginu 5,95 í gær samanborið
við 6,05 í ágúst, bréf Skeljungs
5,45 samanborið við 6,30 í ágúst
og loks voru bréf Olíufélagsins
skráð á genginu 5,05 samanborið
við 5,70 í ágúst.
Sjá Viðskiptablað Bl.
I
var
könnuninni, sem framkvæmd
síðustu viku nóvember, var
notað 1.500 manna úrtak og feng-
ust svör frá 1.055 manns. Af þeim
sem afstöðu tóku telja 74,9% að
samningurinn feli í sér efnahags-
legan ávinning fyrir íslendinga.
Um 70% allra svarenda hinsvegar
töldu sig ekki hafa fengið nægar
upplýsingar um málið. Það eru
helst sérfræðingar, atvinnurekend-
ur, og fólk í skrifstofu og þjónustu-
störfum auk iðnaðarmanna sem
telja sig hafa fengið nægar upplýs-
ingar.
Ákveðnastir í stuðningi sínum
við samninginn eru sérfræðingar
og atvinnurekendur. í ljós kom að
fleiri styðja samninginn af þeim
sem búsettir eru á höfuðborgar-
svæðinu en á landsbyggðinni. Mik-
ill meirihluti kjósenda Alþýðu-
flokksins er ákveðinn í stuðningi
við samninginn og rúmur helming-
ur kjósenda Sjálfstæðisflokksins.
Andstæðinga samningsins er
einkum að finna meðal lands-
byggðarfólks og stuðningsmanna
Alþýðubandalags, Framsóknar-
flokks og Kvennalista.
Rúmlega þelmingur þeirra sem
tóku afstöðu eða 54%, telur að
sérkenni íslenskrar menningar
verði ekki í meiri hættu eftir að
samningurinn tekur gildi. En
meirihlutinn telur að forræði þjóð-
arinnar yfir auðlindum sínum verði
í meiri hættu en áður. í könnun-
inni var sérstaklega spurt um
frammistöðu Jóns Baldvins
Hannibalssonar utanríkisráðherra
í samningagerðinni. Fram kom að
76% þeirra sem afstöðu tóku töldu
að hann hefði staðið sig vel, eða
fremur vel, þar af tæplega 90%
kjósenda Alþýðuflokksins. Þau
24% sem töldu að Jón hefði staðið
sig illa var einkum að finna meðal
stuðningsfólks stjómarandstöðu-
flokkanna.
Sjá nánar á miðopnu bls. 42-3.
Orkubú Vestfjarða:
Stórt bjarg
féll á inntaks-
mannvirki
Suðureyri.
MIKIL mildi má teljast að ekki
varð stórtjón á varaaflstöð
orkubús Vestfjarða á Suður-
eyri þegar að 7 tonna bjarg
féll um 3 metra frá spennum
og mannvirkjum þess.
Bjargið féll úr fjallinu Spilli
úr svokallaðri Skollakvísl.
Splundraði niður inntaksmann-
virki ofan við orkubúshúsið og
braut síðan niður Ijósastaur á
leið sinni til sjávar.
Gestur Kristinsson, starfs-
maður orkubúsins, var við vinnu
í spennustöðinni þegar bjargið
féll. Hann kvaðst hafa heyrt
mikinn hvin og glamur og síðan
hefði rafmagnið slegið út.
Rafmagn komst strax á aftur
til Suðureyrar og fljótlega tókst
að koma straumi á Staðardal.
Ekki mun rafmagn komast á
endurvarpa sjónvarpsins á Kleif-
inni né borholur hitaveitu Súg-
firðinga á Laugum fyrr en við-
gerð verður lokið en stefnt er
að því að klára hana sem fyrst.
Munu því Súgfirðingar verða
sjónvarps og útvarpslausir þar
til viðgerð lýkur.
Sturla Páll