Morgunblaðið - 31.12.1991, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 31.12.1991, Qupperneq 7
□ 0 C 7 1>KH lí SiUH/vUJKíUíU (lllÍAJílUUttHÚM MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBER 1991 INNLEND INNLEND INNLEND INNLEND INNLEND INNLEND INNLEND INNLEND INNLEND INNLEND INNLEND 36 Mikið framboð var af jóiatijám fyrir þessi jól. Þetta tré var valið sérstaklega til að piýða húsakynni: a) Fjármálaráðuneytisins. b) Sambands íslenskra samvinnufélaga. c) Handknattleikssambands ísiands. d) Grýlu og Leppalúða. a) Réttargeðdeildin átti að vera í Olfusinu. b) Ráðleggingar hennar um starfsemina voru hunsaðar. c) Þekktur síbrotamaður lagðist gegn ráðningu hennar. d) Daggjöld sjúklinga áttu að standa undir rekstrinum. 16. íslenska landsliðið í bridds vann frækilegan sigur á heimsmeistara- mótinu í Yokohama í Japan. Heims- meistararnir beittu vissri tækni sem virtist slá andstæðingana út af lag- inu. Þeir beittu: a) Blúpp-aðferðinni. b) Brostu. c) Blésu tóbaksreyk í vit and- stæðinganna. d) Dæstu. 17. Grút rak að landi á Húnaflóa og víðar um miðjan júlí og olli dauða a.m.k. 20-25 þúsund æðarunga. Grúturinn var: a) Dauð rauðáta. b) Sólgrjón. c) Hárþvottalögur úr bresku flutningaskipi sem var sökkt undan Horni 1943. d) Lýsi. 18. Stjórn Heilsuhælis Náttúrulækn- ingafélagsins í Hveragerði fól lög- mönnum sínum snemma sumars að höfða mál gegn Læknafélagi ís- lands. Síðar féll hún frá málshöfðun og sættir tókust. Það sem olli úlfa- þytnum var: a) Aðvörun frá Læknafélaginu til félagsmanna þar sem læknar voru varaðir við að sækja um læknisstöðu á heilsuhælinu. b) Fullyrðing Læknafélagsins um skaðsemi leirbaða. c) ítrekuð brot lækna á Hippó- kratesar-eiðnum. d Afskipti Læknafélagsins af úti- vistartímum sjúklinga. 19. Járnsteypan hf. stefndi Alþingi fyr- ir að greiða ekki reikning frá fyrir- tækinu. Reikningurinn var vegna vinnu við: a) Koparafsteypu af Jóni Sig- urðssyni. b) Skjaldarmerki íslands. c) Uppsteypu á niðurföllum á lóð Alþingis. d) Hrákadalla að fornri gerð sem koma átti fyrir í kaffistofu Al- þingis. 20. Nýr vígslubiskup var vígður að Hólum í júnílok. Nafn hans er: a) Jón Vídalín. b) Sr. Bolli Gústavsson. c) Arthúr Björgvin Bollason. d) Sr. Þórir Stephensen. 21. Ný íslensk kvikmynd, Börn náttúr- unnar, var frumsýnd í byrjun ág- úst. Undirbúningur hófst jafnframt á tökum á annarri íslenskri kvik- mynd. Hún heitir: a) Svo má brýna deigt járn ... b) Pourquoi pas? c) Svo á jörðu sem á himni. d) A langhalaslóð. 23. Náttúruverndarráð afturkallaði rannsóknaleyfi til Landsvirkjunar í ágúst á friðlýstu svæði á hálendinu. Rannsókn Landsvirkjunar átti að beinast að því: a) Hvort olíu væri að finna þar í jörð. b) Hvort vegagerð um hálendið vegna Fljótsdalsvirkjunar væri fýsileg. c) Hvort lagning Fljótsdalslínu væri fýsileg á þessum slóðum. d) Hvort unnt væri að flytja bæki- stöðvar Landsvirkjunar þangað. 24. Utanríkisráðherrar Eystrasaltsríkj- anna komu hingað til lands síðla í ágústmánuði og undirrituðu yfirlýs- ingu um stjórnmálasamband við ísland. Utanríkisráðherra Eistlands heitir: a) Vytautas Landsbergis. b) Edúard Shevardnadze. c) Lennart Meri. d) Janis Jurkans. 25 Hafa bjargað fjölda íjölskyldna frá gjaidþroti“, sagði í fyrirsögn Morgunblaðsins 18. september sl. Við hvað var átt? a) Skilagjöld á gosdósum. b) Verðlækkanir á sólarlanda- ferðum. c) Greiðsluerfiðleikalán Hús- næðisstofnunar. d) Háir lottó- og getraunavinn- ingar á árinu. 26 íslandskynning var haldin í Lund- únum síðari hluta ársins. Hún vakti mikla athygli og umtal hérlendis vegna: a) Frábærra fiskafurða íslend- inga. b) Sérstaks skemmtiatriðis í formi búksláttar. c) Vinsælda íslenskra fegurða- drottinga sem mættar voru á staðinn. 4) Góðra undirtekta Breta sem hafa fjölmennt til íslands eftir kynninguna. 27 Bág fjárhagsstaða Handknattleiks- sambands íslands var mikið til uinræðu í haust. Ríkisstjórnin lofaði að hlaupa undir bagga með því skilyrði að: a) HSI einbeitti sér að eflingu kvennahandknattleiks á íslandi. b) HSÍ lofaði heimsmeistaratitli innan þriggja ára. c) HSÍ hætti við að halda heims- meistarakeppnina hér á landi árið 1995. d) HSÍ stefndi að því að halda heimsmeistarakeppni hér á landi sem oftast. 28 Slegist með hnefum og stólum" var fyrirsögn á baksíðu Morgunblaðsins í október. Við hvað var átt? a) Fjöldaslagsmál brutust út í veitingahúsinu Café Jensen í Mjóddinni í Breiðholti. b) Veitingahús hér í borg efndi til leðjuglímu. c) Ríkisstjórnin lagði fram fjár- lagafrumvarp á Alþingi. d) Tollverðir í Keflavík gerðu tilraun til að stöðva íslendinga sem voru að koma úr verslunar- ferð frá Glasgow. 29 í byijun nóvember kom fram Morg- unblaðinu kom fram að Steingrímur Hermannsson hefði hafnað tilboði Jón Baldvins Hannibalssonar utan- ríkisráðherra um að: a) Að konia á stjórnmálasam- bandi milli Islendinga og Palest- ínu-Araba. b) Skrifa inngang að bókinni „Hvernig efla á minnið“. c) Verða sendiherra Islands hjá Sameinuðu þjóðunum í New York. d) Verða sendiherra íslands í Litháen. 30 Á Orkuþingi íslands í nóvember sl. var mikið fjallað um möguleika ís- lendinga á útfiutningi orku: a) Með gervihnattasendingum. b) Með gámasendingum. c) Með raflögn um neðansjávar- göng. d) Með sæstreng. 31 Stirnpilklukkur á íslenskum vinnu- stað urðu tilefni mikillar óánægju starfsmanna síðari hluta árs. Hver var vinnustaðurinn? a) Togarinn Þórunn Sveinsdóttir. b) Landsspítalinn. c) Alþingi.- d) Kolaportið. 32 Beiðni SAS felur í sér óeðlilega við- skiptahætti," var fyrirsögn í Morg- unblaðinu í haust. Hver sagði þetta og hvers vegna?Ð a) Halldór Blöndal, samgöngu- ráðherra, vegna beiðni SAS um heimild fyrir rýmri fargjöldum á flugleiðum félagsins milli íslands og Danmerkur. b) Hörður Sigurgestsson, for- stjóri Eimskips, þegar SAS vildi kaupa hlutabréf í fyrirtækinu fyrir 50 milljónir króna. c) Einar Sigurðsson, fréttafull- trúi Flugleiða, þegar SAS sótti um leyfi til að nota Leif heppna í vörumerki flugfélagins. d) Ómar Jóhannsson, fram- kvæmdastjóri Samskipa, þegar SAS hugðist hefja vöruflutninga frá Islandi með sjóflugvélum. 33 Hilmar Örn Hilmarsson, tónlistar- maður, hlaut á árinu verðlaun fyrir tónlist við kvikmyndina Börn nátt- úrunnar. Hvað hétu verðlaunin? a) Plútó b) Snati c) Tobbi d) Felix 34 Ein af bókunum í jólabókaflóðinu bar titilinn „Kúaskítur og norður- ljós.“ Um hvers konar bók er að ræða og hver er höfundurinn? a) Náttúrufræðirit eftir Reyni Ördal. b) Nýaldarbók eftir Valgerði Matthíasdóttur. c) Ljóðabók eftir Steinunni Sig- urðardóttur. d) Unglingabók eftir Þorgrím Þráinsson. 35 1 desember voru miklar umræður í fjölmiðlum um sameiningu tveggja sjúkrahúsa. Hveijir eru það? a) Landakots- og Borgarspítali. b) Landakots- og Landsspítali. c) Borgarspítali og Landaspítali. d) Fjórðungssjúkrahúsið á Akur- eyri og Borgarspítali. Sjá svörábls 16c 37. Þessi mynd var tekin þriðjudaginn 24. september sl. og birtist í Morgunblaðinu þremur dögum seinna. Hún sýnir þann atburð þegar: a) Starfsmenn iðnaðarráðuneytisins klipptu á borða sem afmarkaði land Flekkuvíkur á Reykjanesi. b) Klippt vai’ á gamla sæstrenginn út í Eyjar þegar nýr var tekinn í notkun. c) Yfirmaður varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli klippti á borða til að opna formlega nýja aksturs- braut fyrir flugvélar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.