Morgunblaðið - 31.12.1991, Qupperneq 19
Jón Gunnlaugsson
Úlfar Ágústsson
Ingveldur Hjartardóttir
voru ekki bragðmiklar, en stjórn-
armyndunin á eftir þeim gekk
ótrúlega fljótt fyrir sig.
Sannast þar hið fornkveðna að
nýir siðir koma með nýjum
herrum. Uppákomur í þinginu er
líða tók nær áramótum, sem hafa
aðallega einkennst af utandag-
skrár- og þingskapaumræðu þar
sem stjórnarandstaðan reynir að
drepa málum á dreif, sem ogyfirlýs-
ingagleði ráðamanna út og suður
er koma málum ekki beint við. Nær
væri fyrir þessa herra að vinna
heimaverkefnin sín, nefnilega að
stjórna landinu sem virðist ærin
þörf á nú á tímum samdráttar þjóð-
artekna.
Af íþróttasviðinu er það náttúr-
lega Austfírðingurinn Magnús Ver
sem sigraði alla sína andstæðinga
og stóð uppi sterkastur allra. Minn-
isstæður er mér uppgangur ís-
lenskrar dægurtónlistar á árinu sem
ég tel helgast af nýafturbyijuðum
dægurlagakeppnum Evró og
Landslags.
Af austfirskum vettvangi kemur
fyrst upp í hugann frestun Fljóts-
dalsvirkjunar sem var slæmt fyrir
austfirskt athafnalíf. Afskipti nátt-
úruverndarmanna er svo kalla sig
af virkjunarmálinu og línulögnum
þar að lútandi eru með allsérstæð-
um hætti sem líkist æ meir aðferð-
um grænfriðunga í útlandinu, tel
ég að þetta fólk ætti að taka nú
strax upp aðra starfsaðferðir til að
mark verði á því tekið.
Úr minni heimabyggð kemur
uppí hugann vanhugsuð samninga-
umræða sveitarfélaga, sending að
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBER 1991
C 19
sunnan, enda svo vitlaus að hún
gat tæpast komið annars staðar
frá. Síðan alveg dæmalaus fáviska
landgræðsluforkólfa er þeir hröktu
bændur af jörðum sínum á Hólsfjöll-
um í nafni uppgræðslu.
Að síðustu af innlendu minnis-
stæðu nefni ég fádæma gott árferði
hér til landsins, með snjóléttum
vetri, hlýju og mjög grasgefnu
sumri.
Af erlendum vettvangi kemur
upp í hugann Persaflóastríðið og
endalok þess, það er að segja hvað
það tók fljótt af. Valdaránið í Sovét-
ríkjunum og eftirmála þess hljóta
allir að muna en það leiddi til enda-
loka þess Sovéts er við þekktum
með formlegum hætti nú um ára-
mótin.
VILMUNDUR
HANSEN,
TRÉKYLLISVÍK,
STRÖNDUM:
Mikill at-
gangur í
grútar-
mengun
Á SÍÐASTLIÐNU ári bar ýmis-
legt til tíðinda í Árneshreppi sem
vert er að minnast. Árið hófst
með óveðri, ófærð, simasam-
bands- og rafmagnsleysi en slíkt
verður þó að teljast til fastra liða
frekar en undantekninga hér i
sveit. í febrúar gekk svo ofsaveð-
ur yfir landið með tilheyrandi
skemmdum og djöfulgangi, í
einni snarpri vindhviðu losnaði
gamla kirkjan í Árnesi af grunn-
inum, lyftist og færðisttil um
einn metra. Telja verður til
happs að skemmdir urðu litlar
og auð veldlega tókst að koma
henni á réttan stað aftur.
En í Árnesi er ekki bara ein
kirkja heldur tvær, sú nýja
sem hefur verið í byggingu í nokk-
ur ár var formlega tekin í notkun
í haust. Um vígsluna sá biskup ís-
lands og vígslubiskup. Fjöldi gesta
sótti athöfnina. Þó að nýja kirkjan
sé öll hin veglegasta þá eru ýmsir
áhugasamir hreppsbúar staðráðnir
í að halda þeirri gömlu við svo hún
geti þjónað þeim sem það kjósa.
Af mannvirkjagerð má nefna
gagngerar lagfæringar á smábáta-
bryggjum í Norðurfirði og á Gjögri,
smíði fjárréttar í Kjósinni við Reykj-
afjörð og byggingu neyðarskýlis í
Skjaldarbjamarvík.
Skólastarf var með hefðbundnu
sniði og vel gekk að manna í þær
stöður sem þar eru, skólinn fékk
margar góðar gjafir, s.s. tölvubúnað
og skáp undir náttúrugripi frá Fé-
lagi Árnesbúa og ýmsa fallega nátt-
úrumuni frá hreppsbúum. I sumar
var rekin gistiaðstaða í skólanum
við mikla aðsókn.
Það sem teljast verður til mestu
tíðinda ársins er tvímælalaust grút-
armengunin í sumar. I einum vet-
fangi var Árneshreppur miðdepill
landsins og svo mikið gekk á að
heimamönnum fannst nóg um,
blaðamenn, sjónvarpsmenn og fétt-
asnápar á hveijum bæ. Umhverfís-
ráðherra og sérfræðingar hans í
(vettvangsferð) og hvað eina.
Úngadauði af völdum mengunar-
innar var gífurlegur og hafa sumir
viljað telja hann í tugum þúsunda,
þó ómögulegt sé að segja slíkt með
vissu. I upphafi stóðu menn ráð-
þrota og ýmsar skýringar voru
gefnar á orsökum mengunarinnar.
Erlent skip átti að hafa losað grút
í hafið eða að þetta væri lýsi sem
væri að losna úr tankskipi sem sökk
á stríðsárunum. Ein skýringin var
sú að um væri að ræða óvenju mik-
ið magn af hvalabrundi sem á ein-
hvern hátt hafi ratað af leið og lent
í fjörum hér á Ströndum. Að lokum
var orsökin rakin til rauðátu sem
drepist hafi í stórum stíl vegna
SJÁ NÆSTU SÍÐU
Reynsla okkar o§ Irausl rlðsklptasambönd koma
farþegum okkar til góða
Viö höfum á að skipa sérþjálfuðu starfsfólki, sem fylgist vel
með þeim breytingum er verða í fargjaldaheiminum. Þannig
tiyggjum við ávallt hagstæðasta verðið fyrir viðskiptavini okk-
ar hverju sinni. Viljir þú panta gistingu, bílaleigubíl eða skoðun-
arferðir, þá sjá traustir umboðsmenn okkar víðs vegar um
heim um að þú fáir örugga fyrsta flokks þjónustu alla leið.
Ferðaskrifstofan Saga
óskar öllum
viðskiptavinum sínum
gleðilegrajóla
og farsæls nýs árs
Flugvallarskattur til Evrópu er kr. 1.250,-
Flugvallarskatturtil Bandaríkjanna er kr. 2.350,-
Pr. gengi og flug 27.12 '91
FEROASKR/FSIOfiAN
ðdýf sumarleyfisgjöld 1992
Glasgow..............15.900,-
London...............20.100,-
Kaupmannahöfn........20.900,-
Gautaborg............20.900,-
Ósló.................20.900,-
Amsterdam............20.900,-
Hamborg..............24.900,-
Frankfurt............24.900,-
Munchen..............24.900,-
París................24.900,-
Zurich...............24.900,-
Salzburg.............24.900,-
Stokkhólmur..........24.900,-
Helsinki.............24.900,-
Ferðatími: 15/4-30/9
Sölutími: Tii 1/3
Dvalarlengd: 7-30 dagar
Árshátíðargjöld 1992
Hópar Hópar 20-50 50 manns manns og fleiri
Glasgow 17.900,-15.900,-
Amsterdam 19.900,-18.900,-
Luxemborg 19.900,-18.900,-
Kaupmannah. 19.900,-18.900,-
Osló 19.900,-18.900,-
London 21.900,-19.900,-
Stokkhólmur 21.900,-19.900,-
Baltimore 31.900,-30.900,-
NewYork 31.900,-30.900,-
Ferðatími: 3/1-4/4
Sölutími:Til 1/4
Dvalarlengd: Helgi/hámark 3 nætur