Morgunblaðið - 19.01.1992, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 19.01.1992, Blaðsíða 2
2 C MORGUNBLAÐIÐ FASTEIGNIR SUNNUDAGUR 19. JANÚAR 1992 Markaóunnn: Einbýlishns fremur þimg i sölu Eftírspurn eftír atvfnnuhúsnæói að glæóast Markaðurinn fyrir einbýlishús og stærri eignir er heldur þyngri en áður. Aftur á móti er meiri eftir- spurn eftir vönduðum eignum af millistærð eins og blokkaríbúðum á verðbilinu 8-10 millj. kr. og hef- ur orðið verðhækkun á þeim. Kom þetta kom fram í viðtali við Frið- rik Stefánsson í fasteignasölunni Þingholti. — Það eru samt ýmsir að velta fyrir sér kaupum á hús- um, sagði Friðrik. — Oft verð- leggjum við aðeins fram í tímann, ef við finnum, að eignirnar eru að hækka. Þegar húsbréfin komu til sögunnar og hægt var að fá ,'allt að 9 millj. kr. lán þar, virtist vera fyrir hendi tilhneiging til / hækkana á einbýlishúsum. Það hefur samt ekki orðið. Hús sem við verðlögðum á 18 millj. kr. fyr- ir einu og hálfu ári, eru enn á svipuðu verði. Nú virðist vera eftirspurn eftir blokkaríbúðum á verðbilinu 8-10 millj. kr., sagði Friðrik ennfrem- ur. — Skýringin kann að vera sú, að þjónstuíbúðimar fyrir gamla fólk- ið eru svo okurdýrar, að það kýs heldur að kaupa á almennum mark- aði. Þar við bætist, að aldraðir fá ekki síðri þjónustu frá því opinbera með þeim hætti. Sá sem er í sinni eigin íbúð, getur t. d. fengið ókeypis öryggishnapp, því að Trygginga- stofnunin borgar hann. Sá sem er í þjónustuíbúð, þarf aftur á móti að borga fyrir hann sjálfur. Þetta háa verð á þjónustuíbúðun- um á sér því stað á fölskum forsend- um, því að þjónustan þar er ekkert meiri en annars staðar. Ástæðan fyrir því, að þjónustuíbúðimar em seldar svona dýrt, er sú, að eldra fólk er að selja sín skuldlausu hús og byggingaraðilamir eru að reyna að ná því, sem ná má af þessu fólki. Þetta er staðreyndin. Gamla fólkið er hrætt við að verða ósjálfbjarga og þarf þá á aðstoð að halda, en fær svo bara litla blokkaríbúð fyrir sama verð og húsið sitt og svo enga þjón- ustu umfram þá, sem það hafði á gamla staðnum. Friðrik sagði að lokum, að tölu- vert líf væri að færast í fasteigna- markaðinn í heild. — Eftir allan böl- móðinn í opinberri umræðu fyrir jól erum við hér eiginlega hissa á því, hve markaðurinn tók vel við sér strax eftir áramótin. Það hefur verið mikið um fyrirspumir og mikið af eignum komið inn, þannig að vertíðin virðist vera að byija og breytir þar engu, hvort sem það er kreppa eða ekki í þjóðfélaginu. Meira lánað í stórum eignum Að mati Þorsteins Steingríms- sonar í Fasteignaþjónustunni er fremur hæg sala í einbýlishúsunum. — Þar er þó ein breyting áberandi, sagði hann. — I kjölfar þeirrar breytingar á húsbréfakerfinu að hafa hámarkið 5 millj. kr. í stað tæpl. 10 millj. kr. áður, em seljandur stórra húsa farnir að lána sjálfir stærri hluta kaupverðsins en tíðkaðist á sambærilegum kjörum, það er með verðtryggingu, sömu vöxtum og sama lánstíma og í húsbréfakerfinu. MÞorsteinn kvað mikil umskipti hafa orðið varðandi atvinnuhúsnæði að undanförnu og þá sérstaklega á minna skifstofu- og iðnarhúsnæði. — Það er mikil eftirspurn eftir slíku húsnæði til leigu í Múlahverfi og uppi á Höfða. Verðið er að mjakast upp á við, bæði leiga og söluverð. Algeng leiga á skristofuhúsnæði er nú um 650 kr. fermetrinn í Múla- hverfi, en var um 500 kr. í samning- um, sem gerðir voru á seinni hluta síðasta árs. Eftirspurn eftir iðnaðarhúsnæði er einkum eftir 300-400 fermetra húsnæði fyrir alls konar iðnað t. d. járnsmíði en einnig fyrir heildsölur undir lager. — Það er komið mun meira líf í þennan markað en var, sagði Þorsteinn. — Mér finnst eins og flestir séu að komast út úr svart- sýnistímabilinu. Skrifstofuhúsnæði í gamla bænum hefur þó orðið útund- an en þó nokkur eftirspurn er eftir góðu verzlunarhúsnæði við Laugar- veg og í Kvosinni. Nú er mikill áhugi kominn upp á Smárahvammslandinu í Kópavogi og búið að selja þar lóðir og farið að teikna og fyrirtæki búin að skrifa sig fyrir húsnæði í væntan- legum nýbyggingum þar. SMIÐJAN Austnrbæjar- skóllnn D U ndirstöðurnar eftir Bjarna Ólafsson Undirbúningsvinna fyrir undir- stöður hins nýja skólahúss á Skólavörðuholtinu, er hafist var handa 1926 við að byggja Austur- bæjarskólann, mun hafa verið erfið °S þurft hefur að sprengja klöppina mikið niður. Loftpressu höggborar voru notaðir til að bora fyrir sprengjutúp- um. Voru þessir höggborar stórir og þungir og loft- pressurnar einnig mun stærri og þyngri í meðförum en þær sem síð- ar eru algengastar til slíkrar vinnu. Nú eru mest notaðar loftpressur sem festar eru á dráttarvélar, en svona dráttarvélar voru ekki til 1926, ekki heldur jarðýtur eða vél- skóflur eða vélkranar til að lyfta grjótinu upp úr grunninum. Steinar sem lyft var til brottflutnings á vörubflum, voru yfirleitt færðir til með handafli og lyft með talíu á þrífættum gálgum. Vörubifreiðir voru litlar á þessum árum og gátu borið eitt og hálft tonn til þrjú tonn, hinar stærstu og nýjustu. Loft- þjöppuvélarnar voru á fjórhjóla- vögnum sem bílar gátu dregið á milli vinnustaða. Mótauppsláttur Mót fyrir steinsteypu voru smíð- uð með allt öðrum hætti á árunum kringum 1930 en tíðkast hefur nú um marga áratugi. Þegar iokið var við að steypa gólfplötu var hafist handa við að undirbúa veggjamótin. Voru þá negldar saman uppistöðu- grindur, tvær og tvær uppistöður (ytri og innri) negldar saman með mjóum listum. Fór sú vinna fram á vinnuborði sem slegið var saman í þessum tilgangi. Þess var auðvitað gætt að hafa bilið á milii uppistað- anna hæfilegt miðað við hver veggjaþykktin átti að vera. Þ.e. ef veggur átti að vera 30 sm þykkur þá var bætt við tveimur borðþykkt- um og haft 35 sm bil á milli uppi- staðanna. Þessum uppistöðugrindum var síðan raðað í háa stafla, mannhæð- arháa. Þótti börnum staflarnir skemmtilegir til feluleikja, eftir að smiðir voru hættir störfum á kvöld- in. Þegar lokið var við að negla sam- an hæfilegt magn af uppistöðum í veggina, var tekið til við að mæla fyrir veggjunum, reisa uppistöðurn- ar, taka veggina rétta og stífa þá, svo að þeir skekktust ekki né féllu ef hvessti. Vegglínan varð auðvitað að vera bein og hallalaus. Síðan var tekið að klæða borðvið innan í uppistöð- urnar. í fyrstu var ekki klætt hærra en upp undir glugga. Það tíðkaðist ekki á þessum árum að steypa hærra en sem svaraði upp undir glugga í fyrstu. Með þeim tækjum sem notuð voru við steypuvinnuna á þessum árum hefði verið ófram- kvæmanlegt að steypa alla vegg- hæðina samdægurs. Mótin voru ekki heldur höfð svo sterk að þau héldu þunga steypunnar á heilli vegghæð. Steypuvinnan Á þeim árum sem bygging Aust- urbæjarskólans stóð yfir, 1926- 30, var steypan oftast handhrærð, enda þótt steypuvélar væru komnar til sögunnar. Smíðaður var sérstakur pallur sem klæddur var borðum sem lágu þversum og voru 2,1 m til 2,4 m löng. Algengt var að slík steypu- bretti, en svo nefndust pallarnir hér í Reykjavík a.m.k., voru 2,70 til 3,0 m x 2.10 til 2.40 m að stærð. Á steypubrettið var síðan ekið í hjólbörum sandi og möl, hæfilega mörgum hjólbörum til blöndunar með einum sementspoka. Sandur og möl voru lögð í ílangan bing á brettinu og gerð rauf langsum ofan í binginn. Sementinu var síðan hellt úr pokanum ofan í þessa ílöngu rauf. Síðan var hafíst handa við að blanda saman þessu efni, sementi, sandi og möl. Stóðu þá tveir menn andspænis hvor öðrum, hvor sínu megin við efnisbinginn og hrærðu efninu saman með því að stinga sléttum steypuskóflublöðunum und- ir efnið, lyfta skóflunni upp og velta skóflublaðinu við svo að efnið hrundi niður í binginn. Þegar hræra þurfti mikið magn af steypu voru oft tveir menn við hvora hlið bings- ins og gekk þá hvor á eftir öðrum við hrærsluna og allir fjórir unnu í takt. Þegar þurrefnið var vel hrært saman var aftur gerð rauf langum eftir bingnum og vatni hellt þar í og það síðan hrært samanvið efnið. Þegar lögunin var fullhrærð var mokað í fötur og steypunni helt í mótin. Erfið vinna Steypuvinnan var á þessum árum mikil erfiðisvinna. Hvaðeina var erfítt eins og að moka möl og sandi, bera sementspokana, aka hjólbör- unum, bera steypuföturnar, leggja og draga steypustyrktaijám, jafna steypunni í mótin o.s.frv. Ekki heyrðust menn þó kvarta undan erfíði vinnunnar, það kom sjaldan fyrir. Því fylgdi gleði og öryggi að hafa vinnu og eiga von á launum fyrir erfiðið. Þegar lokið var við að fylla mót- in upp undir gluggana voru karm- arnir settir á sinn stað og klæðning mótanna hækkuð. Áfram var haldið við steypuvinnuna. Þeir sem helltu steypunni í mótin þurftu að standa ofar eftir því sem mótin hækkuðu. Til þess voru smíðaðar brýr, eða pallar. Þá var farið að hífa steypu- föturnar upp með talíu sem fest var á sterkan gálga sem skagaði út fyrir mótin. Það voru menn niðri á jörðu sem höfðu það starf að moka steypu í föturnar og að hífa þær upp. Til þess að pjakka og jafna steypunni í mótin var venjulega notaður þykkur ferkantaður spaði með löngu, beinu skafti. Þá þekkt- ust ekki „víbratorar“ eða titrings- vélar þær sem nú auðvelda lagningu steypu í mót. Innivinna Þegar þetta stóra skólahús hafði verið steypt upp og var orðið fok- helt, var tekið til við innivinnu, ein- angrun, pípulagnir og múrverk. Notuð voru gildari rör en síðar tíðk- ast og var t.d. átakaverk að snitta endana á þessum gildu rörum. Frá- rennslisrör voru yfírleitt úr potti, vatnslásar úr blýi. Þegar frost var úti gat verið illt að fást við múrhúðun í óupphituðum húsunum. Þá var algeng sjón að sjá blikktunnur sem alsettar voru götum. Þesskonar tunnur voru mik- ið notaðar til þess að múrhúðunin þornaði betur og til þess að forða henni frá frostskemmdum. Var þá kveiktur eldur í þessum blikktunn- um og þær látnar standa innandyra í húsum sem voru í byggingui Þar sem múrarar voru að störfum komaí nýjum húsum fylgdi störfum þeirra mjög sérstök lykt, þung og súr. Þessu olli kalknotkun sem var allmikil einkum við fínpússningu. Kalkið var innflutt í tunnum. Þegar vinnu múrara lauk komu rafvirkjar til þess að vinna við raf- kerfi hússins. Einnig komu trésmið- ir til þess að ganga frá gluggum, hurðum, skápum og öðru tréverki. Breyttist lyktin smátt og smátt í húsinu, eftir því sem múrinn þorn- aði betur. Ilmur af hefílspónum, málningu og dúkalögn fyllti húsið. Alþingishátíðar ár Þjóðin hélt upp á þúsund ára afmæli alþingis 1930, á því ári var þessi glæsilegi barnaskóli tekinn í notkun. Þjóðin var að rétta úr kútn- um. Frelsi og sjálfstæði voru fram- undan. Skólastarfíð í hinum nýja skóla bar þess vott. Ýmsir nýjir sið- ir settu mark á skólastarfið og þar var starfað með áhuga og elju, framtíðin var okkar. t 1 I 1 t I I ! I I )

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.