Morgunblaðið - 19.01.1992, Síða 12
12 C
MORGUNBLAÐIÐ FASTEIGNIR SUNNUDAGUR 19. JANÚAR 1992
INNANSTOKKS OG UTAN
Oftiar sem ylja
sal og líkaina
UM langan aldur hafa menn búið í eldlausum húsum á íslandi. Hús-
in hafa verið kynl með kolum, olíu og heitu vatni og hvergi sást í
opinn eld. Það var með vilja gert að menn byrgðu eldinn, hann
þótt bæði hættulegur og óþægilegur. Frá eldinum neistaði bæði og
rauk, sót myndaðist og loftið mengaðist. Það var því mikil framför
þegar hægt var að leggja miðstöðvakerfi í hús og enginn saknaði
opna eldsins.- Ekki strax að minnsta kosti.
En það er samt langt síðan menn
fóru að gera ráð fyrir arni í
nýjum húsum og margir þeir sem
búa í húsum með gömlum skorstein-
um hafa notað tækifærið og komið
sér upp arinofni
þar sem hægt er
að njóta kosta
opna eldsins en
sleppa við ókost-
ina.
Þeir sem þekkja
tiifinninguna að
sitja við opinn eld
vita að ekkert ann-
að kemur í staðinn. Engin önnur
hitunaraðferð hefur eins mikil áhrif
á manninn. Auk ylsins gefur eldur-
inn frá sér hlýja og milda birtu sem
flöktir og flytur með sér líf. Hljóðið
í eldinum er konfekt fyrir eyrað og
ilmurinn sem fylgir þegar timbur
er brennt stendur öllum öðrum ilmi
framar. Hitinn frá góðum ofni yljar
manni fljótt á köldu vetrarkvöldi.
Þrjár gerðir ofna
Arinofnar seljast jafnt og þétt,
tískan kemur þar lítið við sögu þótt
ofnarnir hafi komist í tísku fyrir
u.þ.b. 15 árum, enda eru þessir
ofnar í raun alls ekki tískuvara
heldur eitthvað sem fólk kaupir
vegna nota sinna af þeim. í arinofn-
um og brennsluofnum má líka
brenna ýmislegt sem ekki er hægt
að endurnýta og annars færi til
Sorpu, garðúrgang sem ekki fer í
safnhauginn, blöð, pappa, umbúðir
og timburrusl svo eitthvað sé nefnt.
Þeir hafa líka verið mjög vinsælir
til að kynda með sumarbústaði,
enda gera þeir þar gott gagn í kynd-
ingu og við hreinsun.
Úrvalið er mikið og hægt er að
velja milli þriggja gerða.
ARINOFNAR. Arinofnar eru
opnir og svipar mjög til venjulegra
ama. Þeir eru lágir og oftast úr
smíðajárni eða plötujarni og hafa
stórt opið eldstæði.
BRENNSLUOFNAR. Brennslu-
ofnar eru lokaðir og oftast úr
steypujárni og níðþungir. Þeir eru
venjulega minni og turnlaga.
Brennsluofnar gefa frá sér mikinn
hita sem endist lengi eftir að eldur-
inn er dauður.
einn og sér næstum hvar sem er
í íbúðinni. Hann kemst næst því
að vera eins og venjulegur arinn.
LOKAÐIR ARINOFNAR (com-
biofnar) Þessir arinofnar eru eins
konar blanda af báðum hinum. Þeim
svipar meira til arinofna en má loka
með hurðum sem oftast eru úr eld-
traustu gleri. Þeir hitna ekki eins
vel og brennsluofnar úr steypujámi.
Ofni komið fyrir
Mikið má til mikils vinna“ segir
máltækið og það þarf stundum
nokkrar tilfæringar við að koma
ofninum fyrir. Engar íslenskar regl-
ur eru til um staðsetningu eða notk-
un þessara ofna en stuðst er við
norska reglugerð og það er sjálf-
sagt að kynna sér hana áður en
farið er af stað. Reglurnar er hægt
s
0
B: Brennsluofninn er oftar notað-
ur til kyndingar í sumarbústaði
en í heimahús. Hann gefur mik-
ill yl en eldurinn er ekki opinn
og hann er því ekki augnayndi.
að fá hjá Brunamálastofnun.
Þegar ofninum er komið fyrir
verður að vanda fráganginn því nú
er ekki verið að tjalda til einnar
nætur. Best er að setja flísar undir
ofninn og legggja gott svæði fyrir
framan hann til öryggis. Ofninn
ætti ekki að standa í gangvegi þar
sem auðvelt er að brenna sig á
honum ef leiðin liggur alltaf fram-
hjá. Hann ætti heldur ekki að
standa nálægt glugga.
Reykrörið þarf að vera rétt lagt
og hægt er að fá leiðbeiningar um
það eins og annað viðkomandi ofn-
unum hjá Brunamálastofnun. Það
er öraggara að leita sér aðstoðar
áður en maður gerir vitleysu sem
C
Q
C: Lokaður arinofn (combiofn).
Hér er ofn með opnum eldi sem
loka má fyrir. Eldurinn er samt
sjáanlegur þar sem hurðirnar
eru úr gleri. Þessi ofn er stærri
en báðar hinar gerðirnar og
hann gefur meiri möguleika.
erfitt er að leiðrétta.
Ofninn þarf ekki eins mikillar
hreinsunar við og margur gæti
haldið. Flestir þeirra eru með rist
og skúffu undir eldhólfinu og þá
má einfaldlega sópa öskunni ofan
í skúffuna. Ef gler er í hurðum
þarf að hreinsa það reglulega með
sápulegi. Ef fita kemst á glerið eða
óhreinindin eru erfið viðfangs er
hægt að hreinsa það með ofn-
hreinsi öðru hverju. Járnið í ofnin-
um gránar með tímanum, til er
sérstakt ofnkrem í túpum (svipað
skóáburði) sem borið er á ofninn
og þurrkað af með klút. Af þessu
kremi er sáralítil lykt og vinnan er
ekki meiri en við að pússa húsgögn.
eftir Jóhönnu
Harðardóttur
KiörBýli rt=
641400 Nýbýlavegi 14 - Kópavogi
Símatími 13-15
2ja-3ja herb.
Astún - 2ja
Falleg 60 fm íb. á 1. hæð í
vins. fjölb. Gengið inn af svöl-
um. Ákv. sala. Verð 5,8 millj.
Kársnesbraut - 2ja-3ja
Falleg 70 fm nýl. íb. á 2. hæð í þríb.
Parket. Svalir í vestur og norður.
Áhv. byggsj. 2,8 millj. Verð 6,5 m.
Drápuhlíð - 3ja
Falleg risíb. í fjórb. íb. er öll end-
urn. Parket. Verð 6,5 millj.
Álftröð - 3ja + bílsk.
Falleg 3ja herb. 91 fm neðri sérh.
ásamt 34 fm bílsk. og sólstofu.
Verð 7,6 millj.
4ra-6 herb.
Álfhólsvegur - 4ra
Snotur íb. á 1. hæð í fjórb. Suð-
ursv. Nál. skóla. Áhv. byggsj. (fast-
veðbr.) 4,5 millj. Verð 7,5 millj.
Hverfisgata - Hf. - 5 herb.
Til sölu 104 fm íb. á tveimur hæð-
um. Sérinng. Áhv. húsnstjlán 2,6
millj. Verð 6,0 millj.
Falleg 4ra-6 herb. efri sérh. ásamt
27 fm bílsk. Fráb. útsýni. Bein sala.
Mögul. að taka 2ja herb. íb. uppí.
Reynihvammur - sérhæð
Falleg 115 fm neðri hæð í tvíb.
ásamt 28 fm einstaklíb. m/sérinng.
Ról. staður. Skipti mögul. á stærri
eign. Verð 10,3 millj.
Einbýli - raðhús
Silfurtún - einb.
Snoturt 120 fm hús á einni
hæð. 3 svefnherb., stofa,
borðstofa. 36 fm bílsk. Ákv.
sala. Verð 10,9 millj.
Kársnesbraut - einb.
Sérlega fallegt og vandað 160 fm
nýl. hús á tveimur hæðum ásamt
33 fm bílskúr.
Njálsgata - einb.
Gott 164 fm hús á þremur hæðum
ásamt 21 fm bílsk. Nýtt eldhús,
nýtt rafm. Séríb. í kj. Verð: Tilboð.
Selbraut - Seltj.
Fallegt 182 fm einbhús á einni hæð
ásamt 48 fm tvöf. bílsk. og 18 fm
sólstofu.
Skólagerði - parh.
Fallegt 125 fm parh. á tveimur
hæðum. Nýl. eldhinnr. 35 fm bílsk.
Verð 10,5 millj.
Til sölu nokkrar 2ja herb. íbúðir á
götuhæð 69-73 fm. Afh. tilb. u.
trév. eða fullb.
Álfholt - Hfj.
2. hæð með sérinng. Einnig 2ja og
3ja, 67-93 fm íbúðir, í 3ja hæða
fjölbýli. Afh. tilb. u. trév. nú þegar.
Digraneshlíðar
Gnípuheiði
Höfum til sölu nokkar 126 fm sér-
hæðir ásamt 28 fm bílskúr á besta
stað í Kóp. Frábært útsýni. Afh.
fokh. innan, frág. utan. Lóð frág.
að hluta.
Suöurhlíðar - Kóp.
Fagrihjalli - parhús
Til sölu á besta stað v/Fagrahjalla
nokkur hús á tveimur hæðum. 5-6
herb. Bílsk. 28 fm. Til afh. strax,
fokh. innan, frág. utan.
Sölustj. Viðar Jónsson,
Rafn H. Skúlason lögfr.
Sérhæðir
Álfhólsvegur - sérh.
I smíðum
Þverholt - Mos.
Opið í dag
frá kl. 12-14
Einb. - raðh. - parh.
Fagrihjalli
Sérstakl. glæsil. 180 fm
fullb. parhús ásamt bílsk.
Eignin er frág. á vandaðan
hátt. Parket og flísar. Áhv.
4,8 mlllj. veðdeild o.fl.
4ra-6 herb.
Samtún
130 fm hæð og ris. Mikið end-
urn. eign. Til greina koma skipti
á 3ja herb. íb. Verð 9,5 millj.
Holtagerði - Kóp.
Góð neðri sérhæð í tvíb. 3ja-
4ra herb. Nýtt eldhús. Parket.
Nýklætt hús. Bílsk. Skipti mögul.
Langeyrarvegur - Hf.
122 fm neðri sérh. í tvíb. 3
svefnherb. Ný innr. í eldh. Áhv.
4,4 millj. húsbréf. Verð 8,1 millj.
Skipti mögul. á eign í Hvera-
gerði.
Reykás - „lúxusíb."
Sérstakl. glæsil. 150 fm íb. á
tveimur hæðum. Bílsk.
Lyngmóar - bílsk.
92 fm falleg 3ja herb. íb. á 1.
hæð. Suðursv. (nýtt sem 4ra
herb.). Verð 8,8 millj.
Álftamýri
Góð 3ja herb. íb. á 4.
hæð. Suðursv. V. 6,1 m.
7'68 12 20
BORGARKRINGLAN, norðurturn
Lögmenn: Hróbjartur Jónatansson
og Jónatan Sveinsson hrl.
Vegna mikillar eftir-
spurnar bráðvantar
3ja og 4ra herb.
íbúðir á söluskrá
Vesturberg
Rúmg. 3ja herb. íb. á 4.
hæð. Sameign endurn.
Verð 5,9 millj.
Vesturberg
Falleg 2ja herb. íb. á 4. hæð í
lyftuhúsi. Nýtt eldhús, gólfefni
r-n RiiAiirsv. Verð 4,8 millj.
Atvinnuhúsnaeði
Bæjarhraun - Hf.
Glæsil. 492 fm verslunarrými á
1. hæð, 377 fm lagerrými í kj.
Til leigu - Hf.
2 x 100 fm ásamt 50 fm á efri
hæð við Fornubúðir. Hentar vel
fyrir fiskvinnslu. Ath. fiskmark-
aður í næsta nágrenni.
Snyrtistofa
- vel staðsett
Lág leiga. Lítill tilkostnað-
ur. Rekin samhliða þekktri
hárgreiðslustofu. Sameig-
inleg móttaka viðskipta-
vina. Góð fótaaðgerðaað-
staða. Gott verð.