Morgunblaðið - 19.01.1992, Page 14
14 C
MORGUNBLAÐIÐ FASTEIGNIR SUNNUDAGUR 19. JANÚAR 1992
SETBERGSHLÍÐ
Til sölu 2,3 og 4 herbergja SÉRÍBÚÐIR íþessufallegahúsi. Stórkostlegt
útsýni. Sérinngangur í allar íbúðir, engin sameign, þvottaaðstaða inni í
íbúð, ævintýraleg útivistarsvæði allt um kring.
Kynntu þér málið nánar á skrifstofu
okkar þar sem ítarleg upplýsinga-
mappa um allt sem máli skiptir liggur
frammi eða hafðu samband við okkur
í síma 652221.
SH VERKTAKAR HF
Opið mán. - föstud. frá 9 til 18
SKRIFSTOFA STAPAHRAUNI 4
HAFNARFIRÐI SÍMI652221
814433
OPIÐ KL. 13.00-15.00
Einbýlis- og raðhús
EINBYLISHUS
í VESTURBÆ
Nýtt í sölu 196 fm hús byggt
1980 á einni hæð m/28 fm bílsk.
á besta stað í Vesturbæ. I hús-
inu eru m.a. 2 stofur og 5 herb.,
vandaðar innr., fallegur garður.
SEL TJARNARNES
Nýtt 230 fm hús á tveimur
hæðum m/innb. bílsk. M.a
stofa, sólst., alrými, 4 svefn-
herb., stórt baðherb., gestasn.
Allar innr. 1. flokks. Gott verð.
LAUFBREKKA
Nýl. 185 fm raðhús á tveimur
hæðum. Niðri: 2 stofur, 3 svefn-
herb., eldhús o.fl. Uppi: Alrými,
svefnherb., bað o.fl. Verð 13,5
millj.
RAUÐAGERÐI
Hús á tveimur hæðum, byggt
1978, alls 350 fm, með innb.
bílsk. Skipti á minni eign mögul.
SKERJA FJÖRÐUR
Aðflutt timburhús í endurbygg-
2ja og 3ja herb.
KAMBSVEGUR
2ja herb. 60 fm íb. á 2. hæð í
steinhúsi. Verð 4,8 millj. Laus
strax.
HÁTÚN - LYFTA
Nýkomin í sölu 3ja-4ra herb. íb.
á 3. hæð. M.a. 2 stofur og 2
svefnh. Sameign nýstandsett.
VÍÐIMELUR
Vel með farin íb. á 4. hæð m.a.
2 stofur (skiptanl.) og 1 svefn-
herb. Veðdeild 3,3 millj. Verð
6,4 millj.
4RA OG 5 HERB.
Fallegar íbúðir í Setbergshlíð
og víðar.
„PENTHOUSE"
180 fm íb. á tveimur hæðum
tilb. u. trév. og máln. ásamt
bílskýli v/Skúlagötu.
2JA HERB.
Ný og falleg íb. á 1. hæð við
Þverholt. Bílskýli.
GRENIMELUR
Nýkomin í sölu sérl. falleg 4ra
herb. efri hæð m/sérinng. 2
stofur m/svölum, 2 stór svefn-
herb., eldhús og bað. Nýjar
innr. í eldhúsi og baði. Nýjar
lagnir, nýtt gler og gólfefni.
ÞINGHÓLSBRAUT
5 herb. efri sérhæð í þríbhúsi
með bílsk. Nýtískuleg íbúð.
Glæsil. útsýni. Verð 10,8 millj.
FÁLKAGATA
5 herb. íb. á 3. hæð. 2 stofur
og 3 stór svefnherb. Eldhús og
baðherb. með nýjum tækjum.
Verð 8,9 millj.
AUSTURBORGIN
120 fm endaíb. í 3ja hæða húsi
innst v. Kleppsveg. Stórar stof-
ur. 3 svefnherb. Þvottah. innaf
eldh. Laus fljótl.
SKEIFUNNI
Húsn. á jarðhæð m/mikilli loft-
hæð, nýjum innr. og loftræsti-
kerfi. Tilvalið f. hvers kyns fram-
leiðslu, iþrstarfsemi o.fl.
SUÐURLANDSBR.
VIÐ FAXAFEN
Skrifstofu- og verslunarhús-
næði í ýmsum stærðum. Góð
fjárfesting.
140 FM FYRIR
IÐNAÐ í HAFNARF.
Nýtt húsnæði á 1. hæð við
Hvaleyrarbraut. Laust strax.
ÚRVAL AF
ATVHÚSNÆÐI
Hjá okkur er mikið úrval af hvers
kyns atvhúsnæði víðs vegar um
borgina. Leitið upplýsinga.
íbúóimar I List-
hnsinu í Laugar-
dal komnar i sölu
SMÍÐI Listhússins í Laugardal hefur gengið vel. Byggingarfram-
kvæmdir eru þegar 4 mánuðum á undan áætlun, þannig að áform-
að er að afhenda vinnustofur og íbúðir þar tilbúnar undir tré-
verk og málningu í maí næstkomandi í stað september eins og
upphaflega var áætlað. Lóð og bílastæði ásamt upphituðum gang-
stéttum og svalagöngum eiga að verða tilbúin nokkru síðar. Þeg-
ar er búið að ráðstafa nokkrum vinnustofum og íbúðum og hefur
Reykjavíkurborg m. a. keypt þarna eina íbúð og vinnustofu, sem
ætlaðar eru til menningarstarfemi á vegum borgarinnar.
Listhúsið er hugsað sem staður,
þar sem listamenn og listunn-
endur hittast. Þar verður ekki bara
vinnuaðstaða fyrir margar greinar
listar og listiðnaðar heldur einnig
sýningar- og sölu-
aðstaða og greiður
aðgangur fyrr all-
an almenning til
að skoða og fylgj-
ast með og kaupa
þá list, sem þarna
verður í boði. Það
er Byggingarfélag
Gylfa og Gunnars
hf., sem hefur tekið að sér að
byggja húsið, en það eru teiknað
af Tryggva Tryggvasyni arkitekt
og stendur við Engjateig 17 og 19
á milli Suðurlandsbrautar og As-
mundarsafns. Ætlunin er, að félag-
ar í Bandalagi íslenzkra listamanna
hafi forkaupsrétt á þeim vinnustof-
um og íbúðum, sem þarna eru til
sölu.
Þetta kom m. a. fram í viðtali
við Tryggva Árnason grafíklista-
mann, en hann er upphafsmaður
að smíði hússins. — Listhúsið verð-
ur samsett úr tveimur húsum auk
tengibyggingar, sagði Tryggvi. —
Á jarðhæðum verða sýningarsalur,
tólf vinnustofur og verzlanir og má
tengja þetta allt saman með fáum
handtökum í eina samvirka heild.
Virka daga er reiknað með, að
þarna verði líflegt námkeiðahald og
liststarfsemi en um helgar sýningar
og verzlunarrekstur. Á efri hæðum
beggja húsanna verða tíu til tólf
vinnustofuíbúðir listamanna, lis-
tiðnaðarmanna og annarra þeirra,
sem tengjast menningarstarfsemi
okkar.
Tryggvi Árnason er fæddur 1936
og alinn upp við Tjörnina í Reykja-
vík. — Eg starfaði lengi í Verzlunar-
bankanum og nú rek ég tölvufyrir-
tæki jafnhliða myndlistinni, segir
hann. — En það er langt síðan ég
lét gamlan draum rætast að leggja
út í myndlistarnám. Fyrst fór ég í
Myndlistaskóla Reykjavíkur, en síð-
an lauk ég námi í grafík frá Myndl-
ista- og handíðaskóla Reykjavíkur
1983 og hef reynt að vera virkur
á því sviði æ síðan.
Fyrirmyndin frá Cornwall
— Erlendis má víða finna fyrir-
myndir að starfsemi af þessu tagi,
heldur Tryggvi áfram. — Þær eiga
það flestar sameiginlegt, að þar er
stöðug starfsemi alla daga vikunnar
allan ársins hring. Þar er alltaf nóg
um að vera og gestir ganga að því
sem vísu. Sjálfur kynnti ég mér
svona sambýli fyrst í Saint Ives
fyrir um 10 árum, en það er lítill
listmannabær í Cornwall í Eng-
landi. Hann var þó ekki byggður
frá grunni með þetta í huga, heldur
varð það smám saman.
Sambýlið var í stóru húsnæði,
þar sem gengið var beint inn frá
götunni. Þar voru vinnustofur lista-
manna við breiðan gang. Þarna
mátti sjá fólk að störfum við ýmsar
greinar listar og listiðnaðar t. d.
við að mála, við glerblástur, grafík
og margt fleira. Það var fjarska
gaman að fylgjast með þessu, enda
mikill fjöldi manns kominn til að
skoða verk listafólksins og kaupa
þau. Ein helzta hugmyndin að þess-
ari er einmitt að koma verkum lista-
fólksins milliliðalaust á framfæri
og auðvelda því að lifa af list sinni.
Þetta hófst með því, að ég sótti
um lóð til borgarinnar undir sýning-
arskála og vinnustofu og var þá
Dent á, að þarna væri lóð, sem
ættu að fara undir menningarstarf-
semi. Þessi lóð var auðvitað ætluð
fyrir miklu stærri byggingu en ég
hafði upphaflega í huga. Ég var svo
heppinn að fá til liðs við mig traust-
an byggingaraðila, Byggingarfélag
Gylfa og Gunnars hf., sem býr yfir
mikilli reynslu og hefur byggt
margar stórbyggingar á undanförn-
um árum.
Þarna verður stór sýningarsalur
til afnota fyrir þá, sem þar eiga
eftir að búa og starfa. — Það skipt-
ir miklu máli fyrir listafólk að kom-
ast inn í góða sýningarsali, segir
Tryggvi. — Það er margra ára bið
að komast inn í Kjarvalstaði og alls
ekki allir listamenn, sem fá að kom-
ast þangað. Þeir sem verða með
vinnustofur sínar í nýja Listhúsinu,
munu auðvitað hafa forgang að því
að halda sýningar í stóra salnum
þar, en hann er næstum því eins
stór og austursalur Kjarvalsstaða
eða nær 300 fermetrar.
Álma er út úr húsinu í átt að
Ásmundarsafni, þannig að Listhú-
sið verður samtengt þessu safni,
enda þótt það verði ekki sambyggt.
Að mati Tryggva eiga nálægðin og
tengslin við Ásmundarsal að verða
til þess að draga að heimsóknir
erlendra ferðamanna, enda stutt í
þijú af helztu hótelum borgarinnar,
það er Holiday Inn, Hótel Esju og
Hótel ísland. Laugardalshöll og
íþróttavöllurinn eru heldur ekki
langt undan. — Þarna á því eftir
að verða mikil umferð jafnt er-
lendra ferðamanna og íslendinga
og þá ekki eingöngu yfir aðal sum-
arleyfístímann heldur stóran hluta
árs, segir Tryggvi.
Ég geri ráð fyrir mikilli aðsókn
fólks þarna um helgar. Ég man
eftir því sjálfur, þegar ég hélt sýn-
ingar á Kjarvalstöðum 1983 og
1985, að þá komu allt niður í sjö
manns virka daga en fleiri hundruð
manns um helgar. Þannig er þetta
enn. Því væri heppilegast virka
daga að nota sýningarsalinn í List-
húsinu fyrir aðra starfsemi t. d.
námskeið, ráðstefnur eða annað af
Tryggvi Árnason fyrir framan Listhúsið í Laugardal. Það verður
samsett úr tveimur húsum auk tengibyggingar.
9 *
Höfðabakki -
tækifæri
Verslunar- og skrifstofuhúsnæði
Til sölu við eina mestu umferðaræð borg-
arinnar og í vaxandi þjónustuhverfi 319
fm verslunarhúsnæði á jarðhæð ásamt
skrifstofuhúsnæði á 2. og 3. hæð. Til afh.
strax. Hagstæð greiðslukjör.
, ÁSBYRGI,
Borgartúni 33, 105 Reykjavík.
INGILEIFUR EINARSSON, lögg. fastsali.
SÖLUMAÐUR: Örn Stefánsson.
'E' 623444
_
eftir Magnús
Sigurðsson