Morgunblaðið - 19.01.1992, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ FASTEIGNIR SUNNUDAGUR 19. JANÚAR 1992
C 15
— Þetta er sérhannað húsnæði fyrir listastarfsemi á
bezta stað í borginni, segir Tryggvi Árnason. — Á jarð-
hæðum verða sýningarsalur, tólf vinnustofur og verzlan-
ir og má tengja þetta allt saman með fáum handtökum
i eina samvirka heild. Á innfelldu myndinni er útlits-
mynd af Listhúsinu, en það er hannað af Tryggva
Tryggvasyni arkitekt. Virka daga er reiknað með, að
þarna verði líflegt námkeiðahald og liststarfsemi en
um helgar sýningar og verzlunarrekstur.
því tagi en fyrir listsýningar um
helgar.
12 vinnustofur ájarðhæð
Tryggvi víkur næst nánar að hús-
inu sjálfu, sem er mikið mannvirki
eða nær 3.100 fermetrar alls. Til
samanburðar má nefna, að Kjar-
valsstaðir eru 2.194 fermetrar. —
Á jarðhæð norðan megin í húsinu
verða 12 vinnustofur, allar með
stórum vinnugluggum og er að-
koma og sérinngangur í þær einnig
að norðanverðu, segir hann. —
Fimm af þessum einingum, sem eru
í austurálmu hússins, geta tengzt
aðal sýningarsalnum, þegar þurfa
þykir. Hinar sex standa norðan
megin við gang í vesturhúsinu, þar
sem kaffistofa og verzlanir verða
og geta tengzt sölusýningum, hven-
ær sem eigendur vilja.
Stærð þessara vinnustofa er um
56 fermetrar brúttó. Fleiri slíkar
einingar má tengja saman og fá
þannig stærri vinnustofur. Allar
vinnustofurnar eru með sérinn-
gangi og hægt að ganga inn í þær,
þó að annað í húsinu sé lokað. All-
ar lagnir eins og skolplagnir þurfa
að vera sérhannaðar þarna og
stærri en venjulega til þess að hægt
sé að ná úr þeim stíflum, sem mynd-
ast af gips og leir.
Á jarðhæðinni verða ennfremur
tvær stórar verzlanir og verður
rekstur þeirra alfarið í höndum
sjálfstæðra verzlunaraðila. — Þær
ættu auðvitað að vera tengdar list-
um og listsköpun, segir Tryggvi. —
Þá verður þarna aðlaðandi kaffi-
stofa í miðjunni, sem verður líklega
opin á kvöldin. Sú starfsemi, sem
þarna verður mun því styðja hver
aðra. Þarna verða engin vandræði
með bílastæði, en þau verða bæði
mörg og fullkomin.
íbúðir með vinnustofuaðstöðu
verða síðan á 2. og 3. hæð hússins
samtals 115,8 fermetrar hver.
Gengið er inn í íbúðirnar af 4 metra
breiðum svalainngangi, sem er á
þaki verzlana og sýningarsals. —
Þessar íbúðir eru eins og lítil rað-
hús um fimm metra breið ofan á
stórum jarðhæðum, segir Tryggvi.
— Yfirbyggðar svalir fylgja auk
þess hverri íbúð.
Eignarrétti að íbúðum og vinnu-
sölum þarna verður á sama veg
farið og annars staðar. — Ég líki
þessu við raðhús, þar sem hver
maður á sína íbúð. Skilyrði voru
þau upphaflega, að þeir, sem þama
vildu búa, væru meðlimir í Banda-
lagi ísl. listamanna (BÍL), en í því
eru um 1.200 manns. En það er
ljóst, að íbúðirnar eru fleiri en svo,
að það sé markaður fyrir þær allar
á meðal fólks úr BÍL. Það hefur
því verið ákveðið að gefa öðrum
kost á þeim líka.
Ef einhver vill selja síðar, þá er
hann að sjálfsögðu frjáls að því að
selja hverjum sem er. — En það er
mjög sennilegt, að listafólk eða fólk
tengt listiðnaði af einhverju tagi
veljist í þetta húsnæði, segir
Tryggvi. — Þá verður sennilega
ekki heppilegt, að þama safnist
saman margir listamenn úr sömu
grein t. d. fimm listmálarar. Sam-
keppnin milli þeirra um athygli
gestanna yrði alltof hörð og hætt
við, að þeir myndu ekki allir selja
nógu mikið til þess að geta lifað
af list sinni, sem ætti að vera tak-
markið. Miklu æskilegar væri, að
þarna byggi og starfaði fólk úr
mörgum greinum listar og listiðnað-
ar. Það myndi auka á fjölbreytnina.
Þeir sem þarna munu starfa og
búa, verða að sjálfsögðu að hafa
eithvað samráð um daglegan rekst-
ur. En þeir ráða alveg, hvenær er
opið hjá hverjum um sig og njóta
þeirra kosta, sem felast í því, að
markaðurinn er þar, sem þeir eru
sjálfir. Þetta verður líka auðveldara
fyrir viðskiptavina. Þeir vita, að
þarna er fólkið sem er að bjóða
fram list sína og það ætti að eygja
þá von að geta haft afkomu sína af
listinni.
Góðar viðtökur
Tryggvi telur, að viðbrögðin við
smíði þessa listhúss hafi verð góð.
Búið er að selja helming af vinnu-
stofunum á jarðhæðinni en eftir að
ráðstafa flestum íbúðunum uppi,
en þær geta jafnframt verið með
vinnustofuaðstöðu. Þær eru um 115
fermetrar brúttó að stærð og munu
kosta um 9 millj. kr. tilbúnar undir
tréverk og málningu ásamt fullfrá-
genginni sameign, bílastæðum og
garði og þá væntanlega fullbúnar
um 11-12 millj. kr., allt eftir þeim
kröfum, sem fólk gerir til þeirra.
— Þessar íbúðir eru því á hag-
kvæmu verði, segir Tryggvi. —
Jafnframt er ennþá hægt að hafa
þessar íbúðir helmingi stærri, þar
til skilveggir á milli þeirra hafa
verið steyptir. Allt hefur verið boðið
út í einingum og reynt að spara,
án þess að það kæmi niður á gæðun-
um. Byggingin er nú að verða fok-
held og byijað á pípulögnum og
múrverki. Það er því ekkert því til
fyrirstöðu, að flutt verði inn í fyrstu
íbúðirnar í vor.
Kaupverðið er líka greitt eins og
þegar keypt er íbúð í hveiju öðru
fjöibýlishúsi. — Það er tiltölulega
lág staðfestingargreiðsla, en síðan
er kaupverðið greitt jöfnum hönd-
um, segir Tryggvi. — Ibúðirnar falla
undir húsbréfakerfið, þar sem láns-
möguleikar eru allt að 6 millj. kr.
Vinnustofurnar á fyrstu hæð húss-
ins, sem kosta frá 4,6-4,9 millj.kr.
er ýmist hægt að fá leigðar eða
keyptar og hafa nokkir lánasjóðir
tjáð sig fúsa til að fjármagna slík
kaup, þannig að það hefur ekki
verið vandamál að útvega fé til
þessara framkvæmda.
Eins og staðan er í dag er nokkr-
um vinnustofum óráðstafað fyrir
listmálara, leirkerasmiði, högg-
myndasmiði og veflistarmenn.
Auk þess óskum við eftir sam-
starfí við aðila, sem annast vilja
veitingarekstur hússins, sem telja
verður nauðsynlegan lið vegna fjöl-
þættrar sýningarstarfsemi og
námsskeiðahalds. Síðan verður
ákveðið í samráði við eigendur verk-
stæðanna, hvaða verzlanir fái inni
í Listhúsinu.
Þarna verður væntanlega búið
að ganga frá öllu í sumar. — Ætlun-
in er meira að segja, að garðurinn
verði frágenginn, segir Tryggvi. —
Það var þarna skemmtilegur garður
fyrir með margra mannhæða tijám
og við höfum gert allt til að varð-
veita þau. Það verður vaflítið prýði
að þeim, þegar þau eru komin á
sinn stað í nágrenni hússins.
Eykur á fjölbreytni
borgarlífsins
Tryggvi segir, að til þessa hafi
fólk hér yfirleitt ekki snúið sér beint
til listamannanna og bætir við: —
Það fer í galleríin og borgar þar
30-40% ofan á venjulegt verð. Eitt
megin markmiðið með Listhúsinu
er, að fólk veit þá hvert á að snúa
sér og listamennirnar þar gera jafn-
framt ráð fyrir því, að fólk komi
þangað til þess að kaupa verk
þeirra. Þar skapast því beint sam-
band milli viðskiptavinarins og list-
amannsins og það ætti að vera
mikill ávinningur fyrir báða.
Þessi listamiðstöð ætti einnig að
auka á fjölbreytni borgarlífsins. —
Það er i rauninni undarlega mikið
fásinni hér í Reykjavík um helgar,
sem lýsir sér í því, að þeir eru furðu
margir, sem þurfa að aka austur í
Hveragerði bara til þess að finna
tilbreytingu,_ segir Tryggvi Árnason
að lokum. I Listhúsinu má búast
við, að verði töluverð umferð af
fólki einkum um helgar, enda þess
að vænta, að listafólkið muni stefna
að því að sýna og falbjóða list sína
þá en nota virku dagana til að vinna
að list sinni.
1000-2000 fm
Til leigu iðnaðarhúsnæði í Vogahverfi sem er ca. 1000
fm jarðhæð m. lofthæð 3,35 fm og ca. 1000 fm lager
og skrifstofuloft m. lofthæð 1.90-3,40 m. Auðvelt að
taka milliloft úr að hluta. Laust nú þegar.
Upplýsingar veitir:
Skúlagötu 30, 3. M
Sími 26000
, ASBYRGI,
Borgartúni 33, 105 Reykjavík.
INGILEIFUR EINARSSON, lögg. fastsali. SÖLUMAÐUR: Örn Stefánsson.
623444 623444
Símatími frá kl. 12.00-14.00
Vegna mikillar sölu vantar okkur
allar gerðir allar eigna á söluskrá strax.
Skoðum og verðmetum samdægurs.
2ja—3ja herb.
Háaleitisbraut — 2ja
Góð 49,2 fm íb. á 2. hæð (endaíb.) í
fjölbh. Bílskréttur. Verð 5,1 millj.
Vesturbær — laus
55 fm 2ja herb. falleg íb. á 1. hæð í
nýl. fjölbh. JP-innr. Vönduð eign. Verð
5,8 millj.
Laugavegur — ódýrt
38 fm 2ja herb. íb. í steinhúsi. Verð 3,0
millj. hagst. greiðslukjör.
Austurströnd — 2ja
50 fm íb. á 5. hæð ásamt stæði í bílskýli.
Verð 5,5 millj. Áhv. 1,4 millj. byggsjóður.
Kríuhólar — laus
2ja herb. 45 fm falleg, nýstandsett íb.
á 3. hæð. Laus strax. Verð 4,7 millj.
Asparfell — útsýni
90 fm 3ja herb. íb. á 5. hæð. þvoherb.
á hæðinni. Lyklar á skrifst. V. 6,2 m.
Krummahólar m/bílsk.
3ja herb. 75,6 fm íb. á 4. hæð ásamt
25 fm bílsk. Þvottaherb. innan íb. Flísal.
Skeljagrandi — einb.
319,8 fm gott einbhús. 2ja herb.
sóríb. í kj. Áhv. 2,0 millj. bygg-
sjóður.
Næfurás — raöh.
251,9 fm raðh. á tveimur hæöum m.
innb. bílsk. Á neðri hæð eru eldh., stof-
ur, þvottah., snyrting. Á efri hæð eru 4
svefnherb. og baöherb. í risi er bað-
stofuloft. Bein sala eða skipti á minni
eign.
bað. Laus strax. Verð 6,0 millj. I
Engjasel - míkið áhv. 83,9 fm falleg 3ja horb. íbúð á 1. hæð. Parket og flísar é gólfum. Áhv. 3,0 millj. byggsj. pr^gwiriit
s|| — "
Víkurás — 3ja - i
Góð 85 2ja fm íb. á 2. hæð. Áhv. 2
millj. Byggingarsj. Verð 6,5 millj. Laus
strax.
Álfholt
2ja-3ja herb. íb. 84,8 fm. Sem selst
tilb. u. trév. og máln. Sameign. fullfrág.
Verð 6,3 millj. Til afh. strax.
Hörgshlíð — 3ja
94,7 fm jarðhæð í nýju þríbhúsi ásamt
bílskýli. íb. selst tilb. u. trév. með sam-
eign fullfrág. Verð 8,6 millj.
Hraunbær — 3ja
Góð 80,8 fm íb. á 2. hæð í fjölb. Stór
svefnherb. Húsið er nýsprunguviðg. að
utan. Áhv. ca 2,5 millj. byggsj.
4ra-5 herb.
Hraunbær — 4ra
99,6 fm góð íb. á 3. hæö. Parket á
stofu, eldhúsi og gangi. Góð eign. Mik-
ið útsýni. Bein sala eða skipti á rað-
eða einbh. í Árbæjarhv. Verð 7,3 millj.
Kirkjuteigur - ris
4ra herb. björt og skemmtil. ib. i fjórbh.
Mikið útsýni. Verð 7,5 millj.
Birkimelur — 4ra
Góð 86 fm endaib. á 1. hæð auk
herb. I kj. Parket. Verð 8,1 millj.
Hólahverfi - einb.
tveimur hæðum ásamt 67,2 fm
bílsk. Að auki er ca 80 fm óupp-
fyflt rými í kj. Frábært útsýni yfir
Elliðaárdal. Laust strax.
Kögursel — einb.
Gott ca. 176,3 fm einbhús á 2 hæðum
ásamt 22 fm bílsk. Til afh. strax. Verð
14 millj.
Atvinnuhúsnæði
Frostafold - m/bílsk.
Glæsii. 116 fm nettó 6 herb. ib.
á 3. h»ð ásamt bflsk. Parket og
flísar. Vandaðar innr. Pvhús innaf
eldh. Suðursv. Áhv. 3,3 mlllj.
Byggsj. Verð 10,5 millj.
Krummahólar
— „penthouse"
Góð 125,7 fm íb. á 2 hæðum ásamt
stæði i bílskýli. Frábært útsýni. Verð
8,8 millj.
Stærri eignir
Smíöjuvegur — Kóp.
209 fm glæsil. iðnhúsn. m. góð-
um innkdyrum. Tll afh. strax.
Nýbýlavegur
310 fm verslhúsnæði á jarðhæð. Laust
strax.
I smíðum
Aflagrandi — parh.
Höfum i sölu 2 parh. á tveimur hæðum
sem eru 207 og 213 fm m. innb. bílsk.
Húsin afh. tilb. að utan og fokh. eða
tilb. u. trév. að innan. Arkitekt er Einar
V. Tryggvason.
Skyndibitastaður
Til sölu litill skyndibitastaður í miðborg-
inni. Ný tæki og innr. Góð velta. Hagst.
verð og grkjör.
Sumarhús — Húsafelli
Góöur 28 fm A-bústaður í Kiöárbotnum.
Selst m/öllum búnaði. Verð 1,8 millj.
Sumarbústaðaland
Gott eignarland i nágrenni Reykjavíkur
1,25 ha að stærð.
Seltjarnarnes - raðh.
Gótt 175 fm endaraðh. á ról.
stað. Innb. 30 fm bílsk. Stór lóð.
Fallegt útsýni.
Hraunbær-3ja V. 6,4
Hamraborg - 3ja V. 6,5
Reykás - 5-6 V.11,0
Leirut. - parh. V. 13,2
Ásgarður - raðh. V. 8,5
Mikið áhvilandi.
Bakkasel - raðh. V. 15,0
Bæjartún - einb. V. 19,5
Selás — raðhús
Gott 190 fm raðhús á pöllum, auk 60
fm rýmis í kj. og 41 fm bilsk. Húsiö er
mjög vel staðsett ofan v. götu. Stór
ræktuð lóð. Verð 16 millj.
LAJMT____
SÓLUSKRÁ
Asbyrgi
I IGMASALW
[IALTAS1
•sssm*