Morgunblaðið - 24.01.1992, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 24.01.1992, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 1992 15 Listasafn íslands: Níu sérsýningar á árinu KAFFISTOFA Listasafns íslands hefur tekið upp á þeirri nýbreytni að bjóða gestum hádegisverð á tilboðsverði. Kaffistofan er opin á sama tima og sýningarsalir Listasafnsins, eða alla daga nema mánudaga, kl. 12-18. Níu sérsýningar verða í Listasafni Islands á árinu og koma þar bæði íslenskir og erlendir listamenn við sögu. Kaffistofa Listasafns íslands býður á næstunni upp á tilboðsverð á heimalagaðri súpu með heimabök- uðu brauði, osti og salati á 390 krónur og er kaffi innifalið í því verði. Auk þess er hægt að fá létta hádegisverði og kökur. Listasafn íslands býður einnig hópum al- menna leiðsögn í fylgd listfræðings um safnið og geta hópar matar- gesta pantað slíka leiðsögn. Fyrsta sérsýning Listasafnsins er sýning á grafíkverkum eftir Ed- vard Munch, sem eru í eigu safns- ins, og verður hún haldin 8. febrúar til 8. mars. Þá tekur við sýning verka úr gjöf Finns Jónssonar til Listasafns Islands og stendur hún frá 14. mars til 26. apríl. Um er að ræða úrval verka, sem Finnur Jónsson og frú Guðný Elísdóttir gáfu Listasafninu og telur gjöfin hátt í eitt þúsund verk. Jafnframt má nefna sýningu á breskum bókverkum og sýningu frá Jórdaníu, en þar verða m.a. sýnd mósaíkverk frá því fyrir kristsburð og koma munirnir frá Þjóðminja- safni Jórdaníu. Báðar þessar sýn- ingar verða í júní og júlí í tenglsum við Listahátíð í Reykjavík. Einnig stendur safnið fyrir því, í samvinnu við Listahátíð í Reykjavík og Gall- erí 11, að franski listamaðurinn Daniel Buren geri sérstakt útiverk fyrir Listahátíð. í september verður sýning á úr- vali verka eftir Jóhann Eyfells, en þetta er stærsta sýningin á verkum hans hér á landi frá því að hann fluttist frá íslandi fyrir um tuttugu árum. Öll verkin á sýningunni koma frá Bandaríkjunum. í októbermán- uði verður sýning á olíumyndum eftir alla höfuðlistamenn úr fínns- kri aldarmótalist. Listasafn íslands býður upp á ókeypis leiðsögn í tenglsum við sérsýningar safnsins alla sunnudaga kl. 15. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Frá vinstri Bera Nordal forstöðumaður Listasafns Islands og Fríða Böðvarsdóttir sem hefur umsjón með kaffistofunni. Fyrirlestur um lífið og stjörnurnar ÞRIÐJA erindi í fyrirlestraröð Stjarnvísindafélags Islands um stjarnvísindi nútímans verður haldið Iaugardaginn 25. janúar í stofu 101 í Lögbergi og hefst klukkan 14. Fyrirlesari er Karl Jósafatsson stjarneðlisfræðingur og nefnir hann erindi sitt: „Lífíð og stjórnurnar". Meðal annars verður ijallað um myndun og þróun stjarnanna og mikilvægi þeirra fyrir lífíð í al- heimi. Ræddar verða hugmyndir vísindamanna um nauðsynleg skil- yrði þess að líf myndist og tilraunir þeirra til að fínna merki um vits- munalíf á öðrum hnöttum. Rétt er að minna á að fyrirlestr- amir um stjamvísindi nútímans em fyrst og fremst ætlaðir leikmönnum og em þeir opnir öllum, sem áhuga hafa á. ----» ♦ ♦---- Námskeið fyrir foreldra og aðstandendur fatlaðra barna DAGANA 28. febrúar til 1. mars verður haldið námskeið fyrir for- eldra og aðstandendur fatlaðra unglinga, 12 ára og eldri. Fjögur félög standa að námskeiðinu, en þau eru Sjálfsbjörg landssam- band fatlaðra, Landssamtökin Þroskahjálp, Styrktarfélag lam- aðra og fatlaðra og Styrktarfé- lag vangefinna. 0 •KARAOKE* ÖLVER & BYLGJAN LdWENBRAU léttöl ♦ ♦ j kvöld er úrslitokeppnin í Íslandsmeistorakeppninni i KARAOKE. ♦ ♦ ♦ Undanfarna mónuði hefur verið keppt i KARAOKE söng i veitingohúsinu Ölveri og ó Bylgjunni fm 98,9 og nú er komið að úrslitastundinni. 13 keppendur syngja til úrslita ó stórglæsilegu hótiðarkvöldi í Danshúsinu Glæsibæ. Bein útsending er frú keppninni ú Bylgjunni i kvöld og hefst útsendingin kl. 21.00 stundvíslega. Húsið opnar kl. 20.00 með hótiðarfordrykk i boði FINLANDIA. Vegno útsendingar ó Bylgjunni hefst skemmtidagskróin stundvislega kl. 21.00 og þess vegna lokar húsið kl. 20.50. Kynnar kvöldsins eru Jón Axel Ólafsson og Bjorni Dagur Jónsson. Á milli atriða skemmta Halli og Laddi með ný atriði auk þess sem óvæntar uppókomur komo fólki í opna skjöldu. Dómnefnd somonstendur of aðstandendum keppninnar og íslensku tónlistorfólki. Á námskeiðinu verða fluttir fyrir- lestrar um líkamlegan þroska ung- lingsáranna, um andlegan og vits- munalegan þroska, fatlaða ungling- inn og fjölskylduna og um það að flytja að heiman. Einnig mun for- eldri fatlaðs unglings verða með innlegg og segja frá sinni reynslu. Það verður unnið mikið í minni hópum þar sem þátttakendur fá tækifæri til a'ð ræða sameiginlega reynslu og viðhorf. Námskeiðið verður haldið í hús- næði Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra í Reykjadal, Mosfellsbæ. Námskeiðsgjald er 4.500 kr. auk þess sem fólk utan af landi fær greiddan ferðakostnað. Tilkynna þarf þátttöku fyrir 14. febrúar nk. til Kristínar Jónsdóttur í síma 682223 kl. 18-19 virka daga eða til Lilju Þorgeirsdóttur í síma 29133 á skrifstofutíma. yiís CiD PIOIVEER' Björgvin Halldórsson, formaður dómnefndor Magnús Halldórsson, veitingomoður Hallgrímur Thorsteinsson, Bylgjunni Halldór Bockman, Skífunni Þórarinn Friðjónsson, Hljómbæ Skúli Böðvorsson, ferðoskrifstofunni Alís Sigriður Beinteinsdóttir, söngkono Evo Ásrún Alhertsdóttir, útvorps- og söngkono. Söngvorinn með bestu sviðsframkomuno verður volin of gestum kvöldsins. Komdu og fylgstu með spennandi keppni og taktu þótt í beinni útsendingu ó Bylgjunni. Ósóttar miðapantonir verðo seldar i dog.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.