Morgunblaðið - 24.01.1992, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 1992
Fundur utanríkisráðherra með sunnlenskum bændum um GATT:
Ráðherrann bjartsýnn en
bændur vantrúaðir á áhrifin
Selfossi.
BÆNDUR á Suðurlandi fjöl-
menntu á fyrsta kynningarfund
Jóns Baldvins Hannibalssonar
utanríkisráðherra um GATT-
málið en fundurinn var haldinn
í félagsheimiiinu Hvoli á Hvol-
svelli. Hann sagði forsvarsmenn
bændasamtakanna og fleiri hafa
stórlega ýkt áhrif samningsins á
landbúnaðinn. Talsverðar um-
ræður urðu á fundinum og voru
bændur sem til máls tóku flestir
svartsýnir á jákvæð áhrif samn-
ingsins.
„Það hefur verið stórlega ýkt
hver yrði verðlækkunin vegna
þessa kerfís. Menn verða að átta
sig á því að það er full heimild til
að taka upp jöfnunartolla sem brúa
algjörlega bilið milli niðurgreidds
innflutningsverðs og innlends
verðlags. Engin önnur skuldbind-
ing en sú að þetta eigi að lækka
í áföngum. Sú lækkun getur verst
orðið 36%,“ sagði Jón Baldvin.
Hann sagði að kjami málsins
væri um samkeppnishæfni íslensks
landbúnaðar til að mæta takmark-
aðri samkeppni frá innfluttum vör-
um. „Ég held því fram sem íslensk-
ur neytandi og fyrrverandi sveita-
maður að íslenskur landbúnaður
geti keppt á grundvelli gæða. Þetta
kerfi leiðir til nokkurrar verðlækk-
unar í kerfinu en ekki til hruns,“
sagði Jón er hann ræddi áhrif sam-
komulagsins. Hann lagði áherslu
á að í fyrirliggjandi búvörusamn-
ingi lægi fyrir skuldbinding. um
20% lækkun til neytenda og það
yrði að skoðast í samhengi.
Jón sagði landbúnaðinn verða
að laga sig að aðstæðum eins og
aðrar atvinnugreinar: „Meginmálið
er það að breytingamar verði
þannig að markaðshlutdeildin
haldist, að krafan um samkeppnis-
skilyrðin sé réttlát vegna þess að
sameiginlegir hagsmunir em þeir
að hægt sé að framleiða þessa
vöru með sem lægstum tilkostnaði
og á sem viðráðanlegustu verði
fyrir neytendur."
Bændur áhyggjufullir
Líflegar umræður urðu á fund-
inum og á köflum þrangnar tilfinn-
ingahita. Fram kom hjá tveimur
ræðumönnum að tilhneiging væri
hjá bændum að nefna ódóslega
hrúta eftir forystumönnum Al-
þýðuflokksins. Slíkar athugasemd-
ir lét ráðherrann sem vind um
eyrun þjóta.
Guðjón Vigfússon bóndi vildi
vita hvernig haga ætti sölu á þeim
innflutningi sem leyfður yrði. I
svari Jóns Baldvins kom fram að
mögulegt væri að sá þáttur yrði
boðinn út.
Ótti kom fram hjá nokkram
ræðumönnum um að lágt heims-
markaðsverð hefði mikil áhrif til
lækkunar á verði til bænda. Svör
við því voru á þann veg að fundið
væri út hlutfall milli innanlands-
verðs og heimsmarkaðsverðs og
samningurinn látinn hafa áhrif á
þann mun.
Magnús Finnbogason bóndi
sagði ekki hægt að tala um fijáls
viðskipti með landbúnaðarvörur og
vitnaði til ummæla Bush Banda-
ríkjaforseta sem sýndu að þeir
myndu þvinga sínar vörar inn á
aðra. Hann gagnrýndi að sönnun-
arbyrði um heilbrigðisástand var-
anna væri á kaupanda en ekki
seljanda. Það væri þýðingarmikið
að innflytjandinn þyrfti að sanna
sína vöra.
Guðmundur Lárasson bóndi
sagði of langt bil á milli lýsinga
og útskýringa bændasamtakanna
á GATT-samkomulaginu og full-
trúa utanríkisráðuneytinu. Mikil-
vægt væri að umræðan væri á
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson.
ásamt gagnrýni á stefnu flokks
hans í landbúnaðarmálum.
Landbúnaðarstefnan
stendur óhögguð
Utanríkisráðherra hafði loka-
orðið á fundinum. Hann sagði að
heimsendaspámenn kæmu iðulega
fram í íslenskri pólitík en mikil-
vægt væri að ræða viðskiptaleg
mál á málefnalegum grunni. Menn
ættu að forðast að búa til grýlur
í jafn veigamiklum málum og
þessu. Hann vitnaði í álit Ketils
Hannessonar hagfræðings Búnað-
arfélags Islands fyrir og eftir yfir-
lýsingu íslensku ríkisstjórnarinnar.
I fyrra álitinu kemur fram að al-
gjört hran verði í landbúnaði með
GATT-samningnum eins og drög
Dunkels gera ráð fyrir.
í niðurlagi síðara álitsins sem
utanríkisráðherra las úr kemur
fram að landbúnaðarstefnan
standi óhögguð, miðað við hefð-
bundnar búgreinar. Magntak-
markanir á innflutningi verði
heimilar sem umbun fyrir afnám
útflutningsbóta og verði fært til
tekna. Þessar mikilvægu
ákvarðanir eigi drýgstan hlut í því
að hindra hran landbúnaðarins.
Settar era fram hugmyndir hvem-
ig megi bregðast við varðandi
mismunandi framleiðsluvörar.
Orðrétt segir í lokaorðum sem ráð-
herra las: „Samþykkt ríkisstjóm-
arinnar frá 10. janúar veitir land-
búnaðinum traustar stoðir næstu
sex árin þó að nokkrar undantekn-
ingar séu þar á ef þær ná fram
að ganga. Ekki verður því annað
sagt en að bændur megi vel við
una.“
í lok fundarins svaraði ráðherra
beinum fyrirspurnum og aðdrótt-
unum um ósannan málflutning.
Fundarstjórinn, Þröstur Ólafsson
aðstoðarmaður ráðherra, svaraði
fyrirspum úr sal um það hvers
vegna svo margir fréttamenn væru
viðstaddir. „Ætli þeir hafi ekki
haldið að hér rynni blóð,“ svaraði
Þröstur. Svo var þó ekki en áhugi
bænda er greinilegur á málefninu
og þeir munu fylgjast grannt með
því hvemig framtíð landbúnaðin-
um verður sköpuð. Hún var þung
krafa þeirra um réttar útskýringar
sem örugglega má taka mark á.
Málefnið varðar hagsmuni og lífs-
hætti fólks. Það er því ekkert und-
arlegt við það þó mönnum hlaupi
kapp í kinn og þeir roðni á vanga
enda var það þangað sem blóðið
rann í hita umræðnanna á þessum
fundi.
- Sig. Jóns.
Hluti fundarmanna á bændafundi utanríkisráðherra á Hvolsvelli.
Magnús Finnbogason bóndi á Lágafelli talar.
málefnalegum grunni. Mikilvægt
væri að viðunandi staða næðist í
þeim samningaviðræðum sem
fram fara. Hann gagnrýndi það
að bændasamtökin væra ekki höfð
með í ráðum varðandi áherslur í
samningnum.
Séra Halldór Gunnarsson benti
á að bændur hefðu þegar búið sig
undir að mæta áhrifum frá GATT-
samkomulaginu. „Standi fyrirvar-
ar íslensku ríkisstjórnarinnar þá
era okkar mál í mjög góðum far-
vegi,“ sagði Halldór meðal annars.
Kjartan Ólafsson ráðunautur
sagði stefnuna í landbúnaðarmál-
um ekki hafa miðast við að gera
íslenska bændur samkeppnishæf-
ari. Ef það ætti að verða yrði að
bæta rekstrarskilyrði greinarinnar
og gera hana svipaða og hún er
annarstaðar. Framundan væru
miklar breytingar í landbúnaðinum
og það væri á ábyrgð stjórnvalda
að skapa landbúnaðinum sömu
skilyrði og þeim sem flyttu hingað
vörar.
Tryggvi Skjaldarson bóndi sagði
GATT-samkomulagið yfirvofandi
og að því yrði að mæta þeim nýja
hugsunarhætti sem þvi fylgdi.
Hann sagði búvörasamninginn
ekki nægilega markaðsaðlögun þó
forystumenn bænda segðu svo.
„Við vitum að það eru út um allt
land hokrandi bændur með allt of
lítinn kvóta og sjá allt svart fram-
undan og það er óvíst að það verði
kynslóðaskipti á þessum jörðum.
Það eru margar góðar jarðir sem
fara í vaskinn." Hann sagði mót-
sögn í því ef leyfður yrði innflutn-
ingur á hráu kjöti í ljósi þess að
ekki hefur mátt flytja inn dýr til
kynbóta.
Kjartan Ágústsson bóndi benti
á að þegar kæmi að hagræðingu
lenti hún á bændum, það þyrfti
Utanríkisráðherra útskýrir
GATT-málefnin.
mönnum að vera ljóst. Hann efað-
ist um sannleikann í málflutningi
fundarboðenda og vitnaði til sögu-
persónu úr bókmenntum sem
sagði: „Það er gallinn við hana að
hún lýgur svo deginum ljósara að
það er sannleikur á sína vísu.“
Magnús Sigurðsson bóndi og
fleiri höfðu áhyggjur af þvi að ís-
lensk framleiðsla ætti erfítt með
að keppa við framleiðslu frá suð-
lægari löndum. Guðmundur Sig-
urðsson bóndi spurði utanríkisráð-
herrann hvað tæki við eftir aðlög-
unartímann. Ráðherra kvaðst ekki
geta svarað því enda erfitt að sjá
langt fram í tímann. Fleiri tóku
til máls og beindu svipuðum athug-
asemdum til utanríkisráðherra
Klippt prent, úr myndröðinni
„Biblíumyndir“ 1991.
Þorvaldur Þor-
steinsson sýnir
í Nýlistasafn-
inu og Mokka
ÞORVALDUR Þorsteinsson
myndlistarmaður opnar sýningu
á teikningum, klippmyndum,
textum og Ijósmyndum í Nýlista-
safninu laugardaginn 25. janúar
klukkan 16. Samhliða sýningunni
hefur verið sett upp sýning á
Mokka, þar sem gefur að líta
frummyndir úr bókinni Open-
ings, sem kom út í Hollandi 1989,
en það verk er nokkurs konar
lykill að verkunum í Nýlistasafn-
inu. Sýningin í Nýlistasafninu er
opin alla daga frá klukkan 14 til
18 og á Mokka á afgreiðslutíma
kaffihússins.
Þorvaldur Þorsteinsson er Akur-
eyringur, fæddur 1960 og hóf hann
myndlistarnám í Myndlistarskólan-
um á Akureyri 1977. Síðan stund-
aði hann nám við nýlistadeild Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands unz
leiðin lá til Hollands, þar sem hann
hélt áfram námi. Hann hefur tekið
þátt í samsýningum heima og er-
lendis og haldið einkasýningar.
-----» ♦-<----
Dagskrá um
sálmaskáldið
Sigurbjörn
Einarsson
„VIÐ krossins djúpa, hreina
harm“ nefnist dagskrá, sem flutt
verður í Hallgarímskirkju sunnu-
daginn 26. janúar klukkan 17 um
sálmaskáldið dr. Sigurbjörn Ein-
arsson biskup. Dagskráin er á
vegum Listvinafélags Hallgríms-
kirkju, en séra Bolli Gustavsson
vígslubiskup á Hólum hefur tekið
hana saman.
Samkoman á sunnudaginn hefst
með því að Hörður Áskelsson org-
anisti leikur „Jesu, meine Freude"
eftir Bach, en síðan syngur Mót-
ettukór Hallgrímskirkju fyrstu tvö
versin úr þýðingi dr. Sigurbjörns á
þessum sálmi. Dr. Hjalti Hugason
formaður Listvinafélags Hallgríms-
kirkju flytur ávarp, en að því búnu
fjallar séra Bolli Gústavsson vígslu-
biskup um sálmaskáldið og tengir
saman sálmaskýringar og söng
Mótettukórsins og kirkjugesta. Hlín
Pétursdóttir syngur einsöng með
Mótettukórnum. Helmingur sál-
manna sem sungnir verða á sunnu-
daginn eru nýútkomnir í sálmabók-
arviðbæti, “Sálmar 1991“. Aðgang-
ur er ókeypis og öllum heimill.
-----» ♦ ♦----
Hálft þriðja
tonn safnaðist
BJÖRGUNARSVEITIN Strákar
í Siglufirði og Kvennadeild
Slysavarnadeildarinnar Varnar
gengust fyrir fatasöfnun hér til
styrktar Kúrdum.
Á fyrsta degi söfnunarinnar, þriðju-
degi, söfnuðust hvorki meira né
minna en 2,5 tonn. Allt voru þetta
góð föt.
- m.j.