Morgunblaðið - 24.01.1992, Síða 27

Morgunblaðið - 24.01.1992, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 1992 27 ÁstsL G. Karlsdótt- ir — Minning Fædd 6. október 1926 Dáin 12. janúar 1992 í dag er kvödd hinstu kveðju Asta G. Karlsdóttir, fyrrum fulltrúi á Skattstofunni í Reykjavík. Hetju- legri baráttu við illvígan sjúkdóm er lokið, baráttu sem stóð á annað ár. Ásta vissi ailan þann tíma að hveiju stefndi. Hún bauð þó örlög- unum hnarreist byrginn eins og svo oft áður í lífinu. Tæpri viku áður en hún lést sótti ég hann suður á Keflavíkurflugvöli. Hún var að koma, raunar fyrr en hún hafði ætlað sér, úr síðustu heimsókninni til eldri dóttur sinnar og fjölskyldu sem búsett er í Wales. í þetta skipt- ið fékk hún fylgd dóttur sinnar heim. Viku síðar var hún öll. Ásta var fædd og uppalin í Reykjavík. Hún var elst níu barna hjónanna Margrétar Tómasdóttur og Karls Guðmundssonar, kvik- myndasýningar- og rafvélaviðgerð- armanns. Margrét var dóttir Tóm- asar Guðmundssonar og konu hans, Ástrósar Sumarliðadóttur á Eini- felli í Stafholtstungum en Karl var sonur Guðmundar Sigfreðssonar og konu hans, Guðrúnar Einarsdóttur Thoroddsen, Króki á Rauðasandi. Ekki buðu aðstæður í foreldrahús- um upp á það að Ásta gengi menntaveginn þótt svo að hvorki skorti hana til þess námsvilja né námshæfileika. Ung að árum byrjaði hún að vinna. Nítján ára gömul hóf hún störf á Skattstofunni á Akureyri. Eftir að hún fluttist frá Akureyri árið 1947 með barnunga dóttur sína, Ragnheiði Ólafsdóttur, fór hún að vinna í Skattstofunni í Reykja- vík. Þar vann hún sleitulaust, oft allt of langan vinnudag, fram á afmælisdag sinn haustið 1989, alls um 42 ára skeið. Skömmu eftir að Ásta fluttist aftur til Reykjavíkur fór hún að leggja drög að því að komast í eig- ið húsnæði. Með sparsemi og út- sjónarsemi byggði hún sé bjarta og fallega íbúð í Hamrahlíð 1, sem hún leigði að hluta út meðan hún var að yfirstíga erfiðustu íjármálahjall- ana. Þá kleif húh þó einn af öðrum af festu og öryggi enda kunni hún flestum mönnum betur að fara með fé. _ Á árum áður tók Ásta virkan þátt í ýmsu félagsmálavafstri. Hún var varaborgafulltrúi Framsóknar- flokksins í Reykjavík eitt kjörtíma- bil, hún sat um árabil í stjóm Starfs- mannafélags ríkisins (SFR) og var um skeið trúnaðarmaður starfs- mannafélags Skattstofunnar. Ásta eignaði tvær dætur. Árið 1955 fæddist hin dóttir hennar, Ástrós Arnardóttir. Það var Ástrós sem leiddi götur okkar Ástu saman haustið 1977 í Hamrahlíðinni. Mér var vel tekið. Við nánari kynni komst ég fljótt að því hvern mann tilvonandi tengdamóðir mín hafði að geyma. Ásta hafði nefnilega sín- ar skoðanir á hlutunum og lá sjaldn- ast á þeim. Því kynntust víst flest- ir, sem hana þekktu. Á siglingunni í lífsins ólgusjó sigldi hún ávallt af festu á vit þess sem hún keppti að. Sjaldan rifaði hún seglin og sjaldn- ast leit hún um öxl, ef hún hafði hreppt ágjöf. Mér er þó kunnugt um að stundum sá hún eftir að hafa ekki hvikað örlítið af þeirri leið sem hún fylgdi svo einarðlega. Lífsskoðanir sínar byggði Ásta á þekkingu og reynslu sem hún hafði aflað sér bæði í leik og starfi á við- burðaríkri ævi. Hún var hafsjór af fróðleik og ættfróð með afbrigðum. Efst verður mér þó í huga sjálf- stæði hennar og metnaður bæði fyrir sína hönd og dætranna tveggja sem hún ól ein upp og gekk í raun báðum í föðurstað. Báðar gengu þær menntaveginn. Ragnheiður lærði læknisfræði og starfar sem sérfræðingur í meina- fræði í Bretlandi en Astrós er líf- fræðingur á Rannsóknarstofu Há- skólans við Barónsstíg. Ragnheiður fluttist til Bretlands fyrir 15 árum og giftist þar breskum lækni, Paul M. Smith. Við Ástrós dvöldum um fímm ára skeið í Þýskalandi. Þetta notfærði Ásta sér óspart og heim- sótti hún dætur sínar á víxl til Bret- lands og Þýskalands. Víst var það kærkomin tilbreyting fyrir hana sem ekki komst árum saman inn fyrir Elliðaár þegar erfiðast var hjá henni. Þegar barnabörnin hennar fimm komu í heiminn eitt af öðru var hún ætíð reiðubúin að rétta foreldrunum hjálparhönd. Siðustu árin, eftir að hún hætti að vinna, helgaði hún sig meira og minna barnabörnunum sem áttu hug henn- ar alian. Þau áttu með henni dýr- mætar stundir sem seint gleymast. Eitt helsta áhugamál Ástu utan ættfræðigrúsksins var að binda inn bækur og fór hún á nokkur bók- bandsnámskeið til að læra þessa iðju sem best. Fjölmargar listilega innbundnar bækur bera handbragði hennar fagurt vitni. Annað áhuga- mál hennar var matargerð. Margir muna eftir sérlega fallega skreytt- um og bragðgóðum tertum sem hún bakaði bæði fyrir fjölskylduna og vini sína ef svo bar undir og marg- ar voru veislurnar sem við sátum hjá henni í gegnum árin í Hamra- hlíð 1. Ég kveð Ástu Karlsdóttur með þakklæti fyrir allar ánægjustund- irnar sem við áttum saman og allan þann fróðleiks em hún lét mér í té. Blessuð sé minning hennar. Karl Skírnisson. í dag verður til moldar borin Ásta Guðrún Karlsdóttir, Hamrahlíð 1, Reykjavík. Hún var elst af níu börnum þeirra sæmdarhjóna Margr- étar Tómasdóttur ljósmóður og Karls Guðmundssonar rafvirkja- meistara sem lengi bjuggu á Grett- isgötu 58b. Ásta var fulltrúi á Skattstofu Reykjavíkur alla sína starfstíð með- an kraftar leyfðu. í starfi sínu kynntist hún fjölda fólks úr ýmsum stéttum þjóðfélagsins og hélt sam- bandi við margt af því í gegnum árin. Með hinni látnu og þeirri sem þetta ritar tókst vinátta sem aldrei bar skugga á. Tengdir okkar voru þær að eiginmaður minn, Einar Th. Guðmundsson læknir, var föður- bróðir hennar. Meðan við bjuggum á Bíldudal um 19 ára skeið annað- ist Ásta innkaup og margskonar fyrirgreiðslu fyrir fjölskyldu okkar og gerði það af góðum hug og smekkvísi, sem og allt annað sem hún tók sér fyrir hendur. Ásta eignaðist 2 dætur. Þær eru: Ragnheiður Ólafsdóttir læknir, maður hennar er Paul M. Smith læknir, þau eiga 2 börn og búa í Cardiff, og Ástrós Arnardóttir líf- fræðingur, maður hennar er dr. Karl Skímisson líffræðingur, börn þeirra em 3, þau búa í Kópavogi. Á kveðjustund þakka ég henni allt sem hún gerði fyrir mig og mitt fólk og óska henni guðsbless- unar í æðra heimi. Dætmm hennar, dætrabörnum og öðram skyldmenn- um sendi ég innilegar samúð- arkveðjur. Alma Tynes. í dag verður Ásta Karlsdóttir lögð til hinstu hvílu og langar mig að minnast hennar í nokkrum orð- um. Ástu kynntist ég þegar ég hóf nám í Menntaskólanum við Hamra- hlíð og fluttist í nágrenni við heim- ili hennar. Fljótlega urðu heimsókn- ir til hennar fastur hluti tilverunni og þegar Rósa og Kalli fóru utan í framhaldsnám urðu samskipti okkar enn meiri. Ásta var um margt sérstök kona, trygg og sanngjörn og vissi einatt ráð á hveijum vanda. Oft hef ég sótt til hennar ráðleggingar og hafa þær ætíð orðið mér til góðs. Þar miðlaði hún bæði af fróðleik sínum og lífsreynslu. Það var alltaf gaman að spjalla við Ástu. Hún var um margt víðsýn og fróð og hafði skemmtiiegan frá- sagnarstíl. Tókst henni vel að gera löngu liðna atburði ljóslifandi fyrir hugskotum. Ásta var gestrisin kona. Alltaf þegar gest bar að garði, bar hún á borð góðgjörðir og fannst óhæfa að nokkur færi frá sér án þess að þiggja eitthvað lítilræði. Reyndar fannst henni mjög gaman að stúss- ast i matargerð og gilti einu hvort um hefðbundinn íslenskan mat var að ræða eða framandi rétti, Ferðir mínar upp í Hamrahlíðina til þess að njóta með henni þess sem á borð var borið eru óteljandi. Ég vil þakka fyrir þau kynni sem ég hafði af Ástu en þau hefðu mátt vera miklu lengri. En þegar illvígir sjúkdómar eiga í hlut, þýðir ekki að deila við dómarann. Blessuð sé minning hennar. Hjördís Skírnisdóttir. Mig langar að setja á blað nokk- ur kveðjuorð um Ástu, móður bernskuvinkonu minnar. Ég varð snemma heimagangur í Hamrahlíð Minning: Fæddur 23. janúar 1918 Dáinn 17. janúar 1992 Góður vinur minn og tengdafað- ir Hjörtur Ármannsson frá Siglu- firði er látinn. Hjörtur fæddist á kirkjusetrinu Urðum í Svarfaðard- al einn átta systkina. Foreldrar vora Elín Sigurhjartardóttir og Ármann Sigurðsson. Eftirlifandi eiginkona hans er Sigríður Guð- mundsdóttir frá Siglufirði, en hún er dóttir Guðmundar Hafliðascnar hafnarstjóra á Siglufirði og konu hans Theodóra Pálsdóttur Árdal. Hjörtur og Sissy eignuðust Jón- innu eða Ninnu Hjartar eins og flestir þekkja hana. Einnig eignuð- ust þau lítinn dreng sem lést að- eins fárra mánaða gamall. Ninna er gift Kristjáni Óla Jónssyni varð- stjóra í lögreglunni á Sauðárkróki og eru þau búsett þar. Þau eiga 3 börn. Hjörtur var lögreglumaður og varðstjóri í 37 ár á Siglufirði. Hann var einnig trésmíðameistari og rak trésmíðaverkstæðið Tré- verk ásamt Guðmundi Þorlákssyni frá Gautlandi til margra ára á Si- glufirði. Hjörtur skar mikið út í tré og var framúrskarandi fimur við þá list. Stórar og sterkar hendurn- ar gátu rist fegurstu og fínlegustu rúnir. Margir listagripir eru til eft- ir hann af útskornum hestasvipum, skápum, hillum, borðum og stólum. Tveir stólar með háum bökum eru í Siglufjarðarkirkju skornir út af Hirti Ármanssyni. Hjörtur var afar sterkur og mik- ill ljúflingsmaður. Þessi meðfæddi 1 og komst þá í kynni við heimilis- hagi sem vora um margt ólíkir mínum eigin. Ekki var eins algengt þá eins og í dag að sami einstakling- ur væri í senn í móður- og föður- hlutverki. Mér skildist ekki fyrr en seinna hversu gífurlega vinnu, út- sjónarsemi og ósérhlífni þurfti til að búa sem best í haginn íyrir Rósu og Raggey. Mér sýndi Ásta alltaf hlýhug og ræktarsemi. Ég minnist þess frá menntaskólaárunum þegar við syst- ur, komnar úr föðurhúsum um stundarsakir, mættum tii Ástu með úttroðna poka _af óhreinum þvotti í hver vikulok. Ástu fannst sig ekki muna um að leyfa þessu að fljóta með. Við fengum til baka þveginn, strauaðan og vel saman brotinn þvott og ef betur var að gáð var búið að gera við eina og eina flík. Ásta var ættfróð með eindæmum og fór það varla fram hjá neinum sem henni kynntist. Ég minnist heimsóknar í Fredensborgarhöll í Danmörku en þangað fór ég með Ástu og Villa systursyni hennar fyrir fáeinum árum. Ég gekk rösk- lega í gegnum sal þar sem orður og skildir héngu á veggjunum. Inn- an skamms voru þau úr augsýn og þegar ég gekk til baka til að at- huga hvaða gauf þetta væri voru þau í hrókasamræðum um hvaða Islendingar hefðu hlotið Fílsorðuna og hveijir hefðu hlotið hinar ýmsu viðurkenningar. Heyrði ég þá að Ásta var með danska aðalinn á hreinu og var hafsjór af fróðleik um þeirra fólk langt aftur í aldir. Það var engi hálfvelgja yfir Ástu og kom það vel í ljós þegar veikind- in dundu yfir og ljóst var að hverju stefndi. Það var óþarfi að tala und- ir rós og áætlanir lagðar fyrir með það í huga að lífið tekur enda. Ég vil þakka Ástu margar ánægjulegar samverastundir og votta Rósu, Raggey og fjölskyldum þeirra innilegustu samúð. Kaja. Það mun hafa verið um 1954 sem lítil átta ára hnáta flutti í Hlíðarnar og byijaði í þriðja skólanum á sinni stuttu ævi. Hún var heppin, hún hæfileiki kom sér vel í lögreglu- starfmu þar sem menn voru talað- ir til hávaðalaust. Mér segir svo hugur að ungum mönnum hafi þótt fengur af því að hefja starf með Hirti, því hann var ekki að- eins stoð og stytta, heldur hafði hann góðan húmor og gat leikið á als oddi þegar svo bar undir við félaga sína. Þegar Hjörtur giftist Sigríði Guðmundsdóttur átti hún eina dóttur af fyrra hjónabandi, Idu Christiansen, þá 7 ára gamla. Nú eru árin orðin mörg og minningin um góðan fósturpabba gleymist e ki heldur geymist um langan ald r. Ida er gift Gísla Holgeirs- syni verslunarmanni, en þau eiga 3 börn >g búa öll í Garðabæ. Hjört r og Sissy ólu einnig upp litla stúls - frá eins árs til 12 ára aldurs, Þ -björgu Ósk Þrastardótt- ur, og á hún 2 börn og býr í Kópa- vogi. Hjörtur var góður stangveiði- maður og harðari en flestir sem með honum fóru. Honum líkaði það illa að koma tómhentur heim. Hann var einn að stofnendum stanga- veiðifélagsins á Siglufirði. Hjörtur hafði mjög gaman af að ferðast þó lítið hafi verið um það síðustu árin. Undirritaður fékk samt tæki- færi til þess um margra ára skeið að fara með Hirti í ógleymanlegar veiðiferðir vítt um landið til feg- urstu staða þar sem landið, fjöllin, dalirnir og ekki síst árnar og læ- kjarniðurinn er eins og meitlaður í huga manns, svo kyrfílega að eignaðist góða vinkonu, það var Ragnheiður dóttir Ástu Karlsdóttur sem er kvödd hér í dag. Ég á margar góðar minningar um þessa sómakonu og dætur henn- ar. Ævintýraleg fannst mér afmæl- isboðin hjá Ástu, aldrei hafði ég séð svo fallegt veisluborð. Dúkurinn svo hvítur og stífaður, súkkulaði í stór- kostlegri silfurkönnu, servíettur eins og blúndur. Og kökurnar engu líkar. Yfír öllu ljómaði svo kristals- ljósakrónan sem auðvitað tók öllu fram. Var þetta þá auðug kona? Ó, nei, ekki í veraldlegum skiln- ingi. En hún var auðvitað rík, hún átti tvær góðar og elskulegar dæt- ur. Hún var einstæð móðir, komin af verkafólki. Hún vann fýrir öllu sjálf, var ráðdeildarsöm og hyggin. Hún setti markið hátt og hvikaði aldrei frá því sem hún hafði einsett sér. Fyrsta áratuginn sem hún bjó í íbúð sinni í Hamrahlíðinni leigði hún megnið af húsnæðinu út, hélt aðeins einu herbergi fyrir sig og seinna öðru til. Kristalsljósakrónan fína var áheit frá móðursystur hennar, sem hét því að gefa henni ljósakrónu, ef hún kæmist inn í eig- in íbúð. Það gat hún auðvitað. Tækninýjungar og tíska ónáðuðu ekki Ástu Karlsdóttur, en bækur þótti henni vænt um og vildi eiga. Allt í kringum hana var vandað og traust, eins og hún sjálf og ég tel mig heiðurs aðnjótandi að hafa til- heyrt litla hópnum sem hun bauð ævinlega í kaffiboð, þegar Ragn- heiður dóttir hennar kom heim frá Englandi á haustin, en hún er gift og búsett þar. Aðra dóttur átti Ásta, Ástrósu og barnabörnin voru orðin fimm, sannarlega sólargeislar í lífi ömmu sinnar. Nú verða ekki fleiri kaffiboð í Hamrahlíð eitt, en svona er lífíð, ekkert varir að eilífu. Minningarnar eigum við svo eftir, þær tekur enginn frá okkur. Elsku Raggei og Rósa, þið megið vera stoltar af því að hafa átt slíka móður, því góð móðir leggur grund- völlinn að framtíðinni og börnin era ögn af eilífðinni. Guð blessi ykkur. Ég undirrita þessa kveðju með nafninu sem ég gekk ævinlega und- ir hjá þeim mæðgum. Sigga (í mínum bekk). aldrei gleymist. Við grínuðumst með það stundum að besta meðal- ið fyrir þá sem liðu fyrir hraða og hávaða nútímans væri að taka upp á snældu niðinn frá ánni, fossum og flúðum ásmat hljóðinu frá veiði- hjóli og línu í bland. Það verður nú að segjast eins og er að mínar veiðiferðir vora nú oftast göngu- ferðir þótt öðru máli gegndi um Hjört. Þær voru oft erfíðar kveðju- stundirnar á tröppunum við Norð- urgötu 1 nú síðustu árin. Allt breytist og mennimir með. Allt verður að hafa sinn gang og lífíð heldur áfram. Við biðjum um styrk til handa þeim sem eftir eru og minnumst góðs vinar um langan aldur. Að hryggjast og gleðjast hér um fáa daga að heilsast og kveðjast það er lífsins saga. (Páll J. Árdal) Gísli Holgeirsson. mörtur Ármanns- son frá Siglufirði

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.