Morgunblaðið - 24.01.1992, Síða 34

Morgunblaðið - 24.01.1992, Síða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 1992 Sænskur blásarakvint- ett í Norræna húsinu TÓNLEIKAR verða í Norræna húsinu sunnudaginn 26. janúar kl. 17, þar sem sænski blásarakvintettinn Quint- essence flytur verk sem að mestu leyti eru samin fyrir hópinn. Á tónleikunum verður frumfluttur Kvintett fyr- ir tréblásara eftir Áskel Másson, en þetta verk pöntuðu hljóðfæraleikaranir hjá Áskeli. Blásarakvintettinn held- ur einnig tónleika á laugardag 25. janúar í Selfoss- kirkju og hefjast þeir kl. 16.00. Nýtt útibú Spari- sjóðs Hafnarfjarðar SPARISJÓÐUR Hafnarfjarðar opnar í dag nýtt útibú fyrir Garðabæ og Bessastaðahrepp á Garðatorgi 1 í Garðabæ. Á þessu ári hefur sparisjóðurinn þjónað íbúum Hafnarfjarðar, Garðabæjar og Bessastaðahrepps í 90 ár. í hinu nýja útibúi verður boðið upp á alhliða spari- og fjármálaþjónustu jafnt fyrir einstaklinga, fyrirtæki sem og aðra aðila, segir í frétt frá Sparisjóði Hafnarfjarðar. Starfsmenn verða fimm tals- ins og hafa þeir allir starfað hjá sparisjóðnum. Opið verður frá kl. 8.30- 16.00 nema á fimmtudögum en þá verður opið til kl. 18.00. í dag verður opið frá kl. 8.30 til 16.00 og á morg- un, laugardag, verður opið hús frá kl. 10.00 til 15.00. Verða veitingar í boði báða dagana af þessu tilefni. Úti- bússtjóri í Garðabæ er Hall- dór J. Árnason sem verið hefur forstöðumaður hag- deildar sparisjóðsins frá ár- inu 1987. Halldór J. Árnason Hella: Tregasveitin leik- ur í Laufafelli Á efnisskrá tónleikanna eru ennfremur verkin Spele- vink eftir Bengt Hallberg og Labyrint f. blásarakvintett eftir Georg Riedel og eru þau sérstaklega samin fyrir Qu- intessence, Dejá connu eftir sænska tónskáldið Bo Nils- son og Blásarakvintett í G- dúr eftir þýska tónskáldið Franz Danzi (1763-1826). Quintessence-kvintettinn skipa Mats Wiberg, flauta, Sven Uggeldahl, óbó, Bruno Nilsson, klarinett, Bo Strand, fagott, og Tomas Danielsson er leikur á vald- hom. Þriðju tónleikarnir verða með Blásarakvintett Reykja- víkur þriðjudaginn 28. jan- úar og eru tónleikarnir haldnir í tilefni af 10 ára afmæli Blásarakvintettsins á þessu ári. Á efnisskránni verða m.a. verk fyrir tvöfald- an blásarakvintett. Quintessence-blásarak- vintettinn kemur frá Váxjö í Suður-Svíþjóð. Hann hefur áunnið sér nafn meðal tón- listarfólks í Svíþjóð og má þakka það einkar góðu sam- starfi við mörg tónskáld og frumflutning á verkum þeirra. Eftir íslandsferðina held- ur blásarakvintettinn í tón- leikaferð til Danmerkur og leikur aðallega tónlist eftir íslensk tónskáld, Jón Ás- geirsson og Þorkel Sigur- björnsson auk þess að leika verk Áskels Mássonar. NOMUS, norræna tónlist- arnefndin, veitti Quintess- ence styrk til Islandsfarar- innar og tónsmíðanna. ■ VEITINGAHÚSIÐ Lindin, Rauðarárstíg 18, hefur í samvinnu við Aðal- stöðina bryddað upp á þeirri nýbreytni að efna til uppskriftasamkeppni. Osk- að er eftir uppskriftum að karrýréttum sem senda á til Lindarinnar fyrir 7. febr- úar nk. Þar verða þær áhugaverðustu valdar úr og lesnar upp á Aðalstöðinni en síðan eldaðar og fram- reiddar í Lindinni af mat- reiðslumeisturunum Jóni K.B. Sigfússyni og Kristj- áni Frederiksen. Verðlaun fyrir bestu uppskriftina eru ferð til London fyrir tvo með Sólarflugi. Onnur verðlaun eru gisting, morgunverður og kvöldverður fyrir tvo. Þriðju verðlaun eru kvöld- verður á Lindinni fyrir fjóra og'þau fjórðu hádegisverður á Lindinni fyrir tvo. Quintessence-blásarakvintettinn. Frumsýning- á Toyota Hilux með bensínvél Nú um helgina verður frum- sýnd ný gerð af Toyota Hilux Double Cab. Þessi bíll er nú búinn bensínvél, en hefur ekki áður verið fáanlegur í þeirri útgáfu. Ýmsar aðrar breytingar hafa verið gerðar á bílnum, svo sem sjálfstæð fjöðrun að framan, nýr fram- endi. Hann verður til í tveim- Fyrirlestraröð um fiskveiðistj órnun Ingólfsson framkvæmda- stjóri og Björn Ævar Stein- arsson, Hafrannsóknastofn- un. Að lokum verða svo fyrir- spurnir og almennar umræð- ur. Fundarstjóri verður Magnús B. Jónsson. Stafnbúi og sveitarstjórn Höfðahrepps bjóða alla velkomna. ------» ♦ ♦------ Síðasta sýn- ingarhelgi á list frá Venesúela SÍÐASTA sýningarhelgi á list frá Venesúela er nú að ganga í garð í Hafnar- borg í Hafnarfirði, en sýn- ingin var opnuð 11. janúar. Síðasti sýningardagur er 27. janúar, en um er að ræða farandsýningu, sem hingað kemur frá Júgó- slavíu og fer héðan til Lon- don. Þá er einnig sýning í Sverrissal á myndum úr safni Hafnarborgar. Að þesu sinni eru það myndir Eiríks Smiths, sem eru til ssýnis, úr listaverkagjöf hans til safnsins. Sýningartími í Hafnar- borg er frá klukkan 12 til 18 alla daga. ------♦• ♦ ♦----- ■ MÆLSKU- og rökræðu- keppni JC Kópavogur fer fram í kvöld í Þinghól, Hamraborg 11, Kópavogi og hefst hún klukkan 20,30. JC Kópavogur og JC Súlur frá Akureyri keppa. Um- ræðuefnið er „Tölvuleikir eru börnum óhollir“. JC Kópa- vogur segir já, JC Súlur nei. Hellu. UM áramótin var 1 ár liðið síðan nýir aðilar tóku við rekstri veitingastaðarins Laufafells á Hellu. Það eru veitingamennirnir Hinrik Grétarsson og Gunnar Sum- arliðason ásamt fjölskyldum sem reka staðinn. Veitingastaðurinn skipt- ist í tvennt, Grillskálann Hellu, sem margir ferða- menn þekkja, og Laufafell, þar sem boðið er upp á meiri þjónustu, vínveitingar og ýmsar skemmtanir um helgar. Að sögn Hinriks byggist rekstur staðarins að miklu leyti á viðkomu ferðamanna og móttöku erlendra og inn- lendra hópa um háannatím- ann frá vori til hausts. Þess utan hafa þeir félagar gert töluvert af því að fá tón- listarmenn á staðinn og vilja með því gera Rangæingum kleift að stunda sínar skemmtanir hér heima. Um sl. helgi spilaði hjá þeim Rúnar Þór og hljómsveit, en nk. laugardagskvöld, 25. janúar, mun Tregasveitin troða upp og flytja blús eða trega eins og meðlimir hljómsveitarinnar vilja nefna þessa tegund tónlist- ar. Mun uppákoma þessi vera hvalreki á fjörur blúsaðdáenda. Húsið opnar kl. 23.00. Þá sagði Hinrik að til stæði að endurvekja gömlu- dansa- eða hjónaklúbbinn hér á Hellu og halda tvö harmónikkubðll á næstunni. Verður það gert í samvinnu við Lionsklúbbinn Skyggni og ailur ágóði mun renna til líknarmála. - A.H. Morgunblaðið/Sverrir Guðmundur Pétursson, gítarleikari Tregaveitar- innar. STAFNBÚI, félag sjáv- arútvegsfræðinga við Há- skólann á Akureyri, gengst fyrir röð fyrir- lestra um fiskveiðisljórn- un. Annar fyrirlesturinn í röðinni ber yfirskriftina „Ákvörðun heildarkvóta" og verður haldinn í Hótel Dagsbrún á Skagaströnd sunnudaginn 26. janúar klukkan 14. Framsöguerindi á fundin- um flytja Kristinn Pétursson framkvæmdastjóri, Sveinn ur gerðum DX og SR5, sem er betur innréttaður en áður hefur þekkst í þessum bílum. Frá árinu 1978 hefur Diskótekið Dallý slegið í gegn sem eitt besta og fullkomnasta feróadiskátek á íslandi. Leikir, sprell, hringdansar, fjör og góðir diskótekarar er það sem þú gengu að vísu. Þægilegt diskótek, sem býður upp á það besta I dægurlögum sl. órotugi ásamt því nýjasta. Láttu vana menn sjá um einkasamkvæmið þitt. Hefur þú hlustað á kynningar- símsvarann okkar - 64-15-14? Diskótekið Ó-Dollý! Simi 91-46666. rfifS'i/W0ÐLEIKHUSIÐ sími 11200 FYRSTA FRUMSÝNING Á NÝJU SVIÐI I ÞJÓÐLEIKHÚSINU SMÍÐAVERKSTÆÐIÐ: ÉG HEITI ÍSBJÖRG, ÉG ER LJÓN eftir Vigdisi Grímsdóttur Tónlist: Lárus Grímsson. Lýsing: Björn B. Guðmundsson. Leikmynd og búningar: Elín Edda Ámadóttir. Leikstjóri: Hávar Sigurjónsson. Leikarar: Guðrún Gfsladóttir, Bryndís Petra Bragadóttir, Ragnheiöur Steindórsdóttir, Jóhann Sigurðarson, Þórarinn Eyfjörð, Pálmi Gestsson, Hjálmar Hjálmarsson og Ólafía Hrönn Jónsdóttir. Frumsýning í kvöld kl. 20.30 uppsclt. 2. sýn. sun. 26. jan. kl. 20.30 uppselt. 3. sýn. fos. 31. jan. kl. 20.30. 4. sýn. lau. 1. feb. kl. 20.30. Sýningin er ekki vió hæfí barna. Ekki er unnt að hleypa gestum í salinn eftir að sýning hefst. STÓRA SVIÐIÐ: Rómeó og Júlía eftir William Shakespeare Sun. 26. jan. kl. 20. Lau. 8. feb. kl. 20. Lau. 1. feb. kl. 20. Fim. 13. feb. kl. 20. Himjniesld: er a á li£a eftir Paul Osborn Lau. 25. jan. kl. 20. Fös. 7. feb. kl. 20. Sun. 2. feb. kl. 20. Fös. 14. feb. kl. 20. SÝNINGUM FER FÆKKANDI eftir David Ilenry Hwang í kvöld kl. 20. Fim. 6. feb. kl. 20. Fös. 31. jan. kl. 20. Lau. 15. feb. kl. 20. LITLA SVIÐIÐ: _____ eftir Ljudmilu Razumovskaju í kvöld kl. 20.30, uppselt. Uppsclt á 20 næstu sýningar. Ekki er hægt aö hleypa gestum í salinn eftir aö sýning hefst. Miðar á Kæru Jclcnu sækist viku fyrir sýningu, ella seldar öðrum. Miðasalan er opin fra kl. 13-18 alla daga nema mánudaga og fram að sýningu sýningardagana. Auk þess er tekið við pöntun- um í síma frá ki. 10 alla virka daga. Greiðsiukortaþjónusta - Græna línan 996160. Leikhúskjallarinn er opinn öll föstudags- og laugardagskvöld. Leikhúsveisla; leikhúsmiði og þríréttuð máltíð öll sýningar- kvöld á stóra sviðinu. Borðapantanir í miðasölu. læikhúskjallarinn. Stórmynd Terrys Gilliam BILUN í BEIIMNIÚTSENDINGU „Besta jólamyndin íár“- ★★★★ Bíólínan ★ ★ ★ Va HK DV ★ ★ ★ ★ S.V. Mbl. „Tvímælalaust ein eftirminnilegasta mynd, sem ég hef séö á árinu. Gott handrit og frábær leikur." Valdís Gunnarsdóttir. Bókin Bilun í beinni utsendingu fæst í bókaverslunum og söluturnum. Sýnd í A-sal kl. 4.30, 6.45, 9 og 11.30. Bönnuö innan 14 ára. " Sími 16500 Laugavegi 5>4 BORN NATTURUNNAR Framlag íslands til Óskarsverðlauna. Sýnd í B-sal kl. 7.20 og 9.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.