Morgunblaðið - 16.02.1992, Page 4
4 FRETTIR/YFIRLIT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. FEBRÚAR 1992
ERLENT
INNLENT
Samningnm
um EES lokið
Samningum um Evrópskt efna-
hagssvæði lauk á föstudag með
því að aðalsamningamenn Evr-
ópubandalagsins og Fríverslunar-
bandalags Evrópu skrifuðu undir
yfirlýsingu þess efnis. Samning-
amir taka gildi um næstu áramót
ef þeir fást staðfestir. Jón Bald-
vin Hannibalsson utanríkisráð-
herra segir ekki hægt að slá því
föstu að samningurinn sé kominn
í örugga höfn vegna óvissu um
það hvernig ýmsar stofnanir Evr-
ópubandalagsins taki á honum.
Samkvæmt samkomulaginu frá
því á föstudag er fallið frá hug-
myndum um sameiginlegan dóm-
stól en EFTA mun setja upp eigin
dómstól og eftirlitsstofnanir. í
samkomulagi um sjávarútvegsmál
verður EB heimilað að veiða 3
þúsund tonn af karfa á ísland-
smiðum á næsta ári og í staðinn
fá íslendingar veiðiheimildir á 30
þúsund tonnum af loðnu úr kvóta
EB við Grænland.
Viðræður hafnar um
sameiningu spítala
Formlegar viðræður fulltrúa
ríkisins, Reykjavíkurborgar og
Landakots um sameingingu Borg-
arspítala og Landakotsspítala hó-
fust á miðvikudag. St. Jósefssyst-
ur sendu í vikunni frá sér yfírlýs-
ingu þar sem þær lýsa vonbrigðum
með að breyta eigi spítalanum í
hjúkrunarheimili fyrir aldraða.
Starfsmenn Landakots komu
saman til fundar á fimmtudag og
lýstu yfir stuðningi við sjónarmið
systranna.
5,5% atvinnuleysi á
landsbyggðinni
Á landsbyggðinni var 5,5% at-
vinnuleysi í janúar og'jafngildir
það því að tuttugasti hver vinnu-
fær maður hafi ekki haft vinnu.
Á landinu öllu voru að meðaltali
4 þúsund manns atvinnulaus í
mánuðinum, rúmlega eitt þúsund
fleiri en í desember. Atvinnu-
tryggingasjóður greiddi út 172
milljónir í atvinnuleysisbætur í
janúar, meira en nokkru sinni
áður í einum mánuði.
Kjaradeilu vísað til
rí kissáttasemj ara
Aiþýðusamband íslands ákvað
síðastliðinn mánudag að vísa
kjaradeilu sinni við vinnuveitendur
til ríkissáttasemjara. Jafnframt
ákvað sambandið að beina því til
allra aðildarfélaga sinna að afla
sér_ verkfallsheimildar hið fyrsta.
ASÍ ákvað þetta eftir fund með
vinnuveitendum þar sem farið var
yfir þjóðhagshorfur með fulltrúum
frá Þjóðhagsstofnun. Á fundinum
kom fram að betri horfur eru í
efnahagslífmu en fram kemur í
fyrri spá Þjóðhagsstofnunar.
Kröfur í Stálfélagið 1,8
milljarðar
Lýstar kröfur í þrotabú íslenska
stálfélagsins hf. nema samtals 1,8
milljarði króna. Helstu eignir fé-
lagsins hafa verið auglýstar til
sölu á 580 milljónir íslenskra
króna þannig að útlit er fyrir að
rúmlega milljarður af lýstum kröf-
um tapist við gjaldþrot félagsins.
ERLENT
Loftbrú til
samveldis-
ríkjanna
LOFTBRÚ með matvæli og lyf frá
Vesturlöndum til sovétlýðveld-
anna fyrrverandi, allra nema Ge-
orgíu, var komið
á í síðustu viku.
Verður flogið til
borga í öllum
ríkjunum á
næstu vikum en
það, sem unnt
er að flytja með
þessum hætti,
er eins og dropi
í hafið. Meginá-
herslan verður því á flutninga á
sjó og landi. DMÍTRÍJ Volkog-
onov, varnarmálaráðgjafi Bo-
rísar Jeltsíns Rússlandsforseta,
sagði í vikunni, að Rússar ætluðu
að stofna sinn eigin her og fara
í því að dæmi Úkraínumanna.
Hafa yfirmenn sovéska hersins
fyrrverandi lagt að Jeltsín að gera
þetta, meðal annars til að hægt
sé að staðfesta afvopnunarsamn-
inga Sovétríkjanna við Vesturl-
önd. Engin lausn er þó í augsýn
á deilu Úkraínumanna og Rússa
um skiptingu hergagnanna, þús-
unda skriðdreka og annarra víg-
tóla. Segjast Úkraínumenn vilja
sitja við sama borð og Rússar í
þeim efnum. Til eins konar upp-
gjörs kom í vikunni milli Jeltsíns
og varaforseta hans, Alexanders
Rútskojs, sem hefur gagnrýnt
efnahagsaðgerðir forsetans harð-
lega. Jeltsin fól Rútskoj að koma
á umbótum í landbúnaðinum og
lét um leið orð um það falia, að
hann hefði „nóg að starfa á næst-
unni“.
Viðskiptastríð ef GATT
bregst
DAN Quayle, varaforseti Banda-
ríkjanna, sagði á mánudag í Genf,
að færu viðræðurnar um nýjan
GATT-samning út um þúfur yrði
útkoman viðskiptastríð þjóða í
milli. Kvað hann Bandaríkjastjórn
mundu mæta niðurgreiðslum Evr-
ópubandalagsins á landbúnaðar-
vörur með nákvæmlega sömu nið-
urgreiðslunum. Quayle sagði þó,
að stríð af þessu tagi myndi skaða
alla og hvatti til, að GATT-drögin
yrðu samþykkt. Hann lagði hins
vegar áherslu á, að bandarísk
stjórnvöld ætluðu ekki að blanda
saman viðskiptum og varnarmál-
um en nokkrir bandarískir þing-
menn höfðu gefið í skyn, að yrði
ekkert af GATT-samningum gæti
það haft áhrif á áframhaldandi
veru bandarískra hermanna í Evr-
ópu.
Gæslulið til Króatíu
BOUTROS Boutros-Ghali,
framkvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna, hefur fallist á tillögu
Cyrusar Van-
ce, sendimanns
SÞ, um að
senda sem
fyrst friðar-
gæslulið til
Króatíu. Skýrði
hann frá þessu
á fundi með
fastafulltrúum
í öryggisráðinu
en búist er við,
að það samþykki í þessari viku
að senda friðargæsluliðið, 13.000
manns. Verður þetta umfangs-
mesta friðargæslustarf á vegum
samtakanna frá því í Kongó á sjö-
unda áratugnum og það fyrsta í
Evrópu.
Fjármálahneyksli í Japan
NÝTT fjármálahneyksli virðist í
uppsiglingu í Japan og bendir flest
til, að það sé miklu umfangsmeira
en Recruit-hneykslið fyrír þremur
árum. Hafa fjórir menn verið
handteknir en hneykslið varðar
ólögleg lán frá öðru stærsta vöru-
flutningafyrirtæki í Japan, tengsl
þess við glæpamannasamtök og
mútur til 200 þingmanna, stjórn-
arandstæðinga sem stjórnarsinna.
Talið er, að þetta mál kunni að
verða stjórn Kiichi Miyazawa að
falli.
Samkomulag um vopnahlé í Sómalíu
Sameinuðu þjódunum. Reuter.
FULLTRÚAR þeirra tveggja fylk-
inga sem háð hafa blóðugt borgar-
astríð í Sómalíu undanfarna mán-
uði hafa ákveðið að hætta átökum
og stefna að því að undirrita form-
legt vopnahléssamkomulag fýrir
lok mánaðarins. Var sameiginleg
yfirlýsing þessa efnis gefin út hjá
Sameinuðu þjóðunum á föstudag.
Talið er að allt að tuttugu þúsund
manns hafi fallið í þeim átökum sem
geisað hafa í Sómalíu síðan 17. nóv-
ember í fyrra. Fyrir fylkingunum
tveimur sem tekist hafa á eru ann-
ars vegar Mohamed Ali Mahdi for-
seti Sómalíu og hins vegar Mo-
hammed Farah Aideed. Þeir eru báð-
ir meðlimir í sama flokki, Sameinaða
Sómalíuráðinu, en urðu ósáttir um
hvernig skipta bæri völdum í landinu.
Finnland:
Bráðabirgðalausnum hafnað
og stefnt að fullri EB-aðild
NÚ í haust töldu flestir flnnsk-
ir stjórnmálaleiðtogar og for-
ystumenn á sviði verslunar og
viðskipta að Evrópska efna-
hagssvæðið (EES), sameigin-
legt markaðssvæði Evrópu-
bandalagsins (EB) og Fríversl-
unarbandalags Evrópu (EFTA),
væri innan seilingar. Þeir töldu
einnig að myndun Evrópska
efnahagssvæðisins myndi full-
nægja flestum þörfum finnsks
atvinnulífs. Allt hefur þetta
gjörbreyst. Þeir eru nú fáir sem
telja EES raunhæfan valkost.
Athugasemdir Evrópudóm-
stólsins vegna ráðagerða um
að koma á fót sameiginlegum
dómstóli Evrópubandalagsins
og EFTA eru aðeins vísbending
um þann vanda sem fyrirsjáan-
legur er. Við þetta er síðan að
bæta þeirri skoðun, sem óðum
vex fylgi, að samningurinn um
Evrópska efnahagssvæðið sé
aðeins tímabundið fyrirbrigði,
eins konar millibilsástand sem
ljúka muni með stækkun Evr-
ópubandalagsins.
Almenningsálitið hefur gjör-
breyst einkum þó á meðal
þeirra sem virkan þátt taka í
finnsku stjórnmálastarfi. Hægri
menn hafa raunar lengi verið
hlynntir aðild Finnlands að Evr-
ópubandalaginu. Jafnaðarmenn,
sem nú eru í stjórnarandstöðu,
hafa einnig tekið undir þessa hug-
mynd og afstaða verkalýðshreyf-
ingarinnar er jákvæð. Hvað stóru
flokkana varðar hafa deilur um
aðild Finna að EB einungis risið
innan Mið-
flokksins. Und-
anfarnir mánuð-
ir hafa verið
Esko Aho, for-
sætisráðherra
Finnlands, erfið-
ir, þar eð hann
er jafnframt for-
maður Miðflokksins. Innan
flokksins hafa farið fram miklar
umræður um kosti og galla EB-
aðildar. Niðurstaða þeirra hefur
reynst jákvæð. Flestar fylkingar
innan flokksins styðja Esko Aho
og hann hefur nú lýst yfir því að
hann sé hlynntur inngöngu Finna
í Evrópubandalagið.
Vitað var að afstaða forseta
Finnlands, Mauno Koivisto, myndi
skipta sköpum í máli þessu. For-
seti landsins hefur samkvæmt
finnsku stjómarskránni umtals-
verð völd á vettvangi utanríkis-
mála. Ér Koivisto lýsti því yíir á
þingi í síðustu viku að hann væri
hlynntur inngöngu í Evrópuband-
alagið má segja að teningnum
hafí verið kastað. Nú á eftir að
fara fram formleg þingumræða
um EB-aðild. Traustsyfirlýsing
við ríkisstjórnina verður borin
fram og síðan mun ríkisstjómin
ákveða með formlegum hætti að
leggja fram umsókn um inn-
göngu. Á því leikur enginn vafi
að þingheimur mun fylgja ríkis-
stjórninni í máli þessu.
í Finnlandi hafa skapast Iífleg-
ar umræður um skilyrði umsóknar
og hafa menn þá einkum í hyggju
hagsmuni landbúnaðarins. Margir
telja að hann verði fyrir þungu
höggi bætist Finnar í hóp EB-
ríkja. Þá blasir einnig við vandi á
Mauno Koivisto Finnlandsfor-
seti. Yfirlýsing hans á þingi
ölli straumhvörfum í umræð-
unni um aðild Finna að EB.
sviði utanríkismála og þó einkum
öryggismála. Finnum er mjög
annt um hlutleysisstefnuna sem
reyndist þeim svo gagnleg á tím-
um kalda stríðsins. Spurt er hvort
aðild að Evrópubandalaginu og
hlutleysisstefna geti farið saman.
Paavo Váyrynen, utanríkisráð-
herra Finnlands, hefur að undanf-
örnu átt fundi með fjölmörgum
stjórnmájaleiðtogum í Vestur-
Evrópu. I síðustu viku skýrði hann
frá því að ríkisstjómir aðildarríkja
EB hefðu skilning á sérstöðu
Finna jafnt á sviði lanbúnaðar-
sem utanríkis-
mála. Ráðamenn í
Evrópu gerðu sér
ljóst að einhverjar
tilslakanir myndu
reynast nauðsyn-
legar til að greiða
fyrir inngöngu
Finna.
Lestin er nú komin á skrið og
ekkert fær stöðvað ferð hennar
þó svo enn eigi eftir að finna lausn
á ýmsum lagalegum vandkvæð-
um. Umsókn um aðild verður lögð
fram í marsmánuði. Þegar síðan
sjálfar samningaviðræðurnar
hefjast má búast vð því að umræð-
ur um ágæti þessa blossi upp á
ný í Finnlandi. Sérhagsmunahóp-
ar munu láta til sín taka og beita
samningamenn Finna þrýstingi.
Líklegt er að viðræður þessar taki
nokkur ár. Það er með öllu ógjör-
legt að reyna að ímynda sér
hvernig skipan heimsmála verður
1994 eða 1995 en þá ættu niður-
stöður viðræðnanna að liggja fyr-
ir. Ef eitthvað má af sögunni læra
blasir við að allt getur gerst á
þessum tíma og á það jafnt við
um alþjóðasamskipti sem og
GATT-viðræðurnar um tolla og
viðskipti. Af þessum sökum eru
margir Finnar þeirrar hyggju að
æskilegt sé að ná samkomulagi
við Evrópubandalagið sem fyrst.
Andstæðingar EB-aðildar, sem
flestir eru af gamla skólanum,
láta enn í sér heyra. Þeir telja að
aðild að EB muni hafa í för með
sér að Finnar verði jafnframt aðil-
ar að Vestur-Evrópusambandinu,
varnarbandalagi Evrópubanda-
lagsríkjanna. Það myndi, að þeirra
viti, aftur hafa í för með sér að
Paavo Vayrynen utanríkisráð-
herra segir Evrópuleiðtoga
hafa skilning á sérstöðu og
hagsmunum Finna.
Finnar yrðu enn á ný útvörður
vestursins gagnvart Rússlandi.
Reynsla Finna af þessari skipan
mála getur tæpast talist ánægju-
leg. Aðrir halda því fram, að slík-
ur hugsunarháttur heyri sögunni
til. Allt er nú með öðru sniði en
áður. Atlantshafsbandalagið hef-
ur nú komið á fót eins konar for-
dyri að þandalaginu svonefndum
Samstarfsvettvangi NATO. Mörg
ríki er áður lutu stjórn kommún-
ista hafa nú gert margvíslega
samninga við Evrópubandalagið.
Þjóðveijar leggja nú kapp á að
hjálpa Rússum að flytja herlið sitt
heim frá Evrópu. Er ekki ástæðu-
laust að hafa áhyggjur? Góðar
vonir og bjarstýni duga skammt
í hugum efasemdarmanna. Þeir
halda því fram að óstöðugleikinn
sé það mikill að vafasamt sé að
fella dóma um framtíðina. Enn
ríkir upplausn í Austur-Evrópu
og Rússlandi. Enn getur allt gerst.
Margir geta vafalaust tekið
undir þetta sjónarmið. í rauninni
getur allt gerst. En fari svo að
lýðskrumarar af hægri vængnum
nái völdum í Rússlandi er þá engu
að síður ekki betra að hafa náin
tengsl við iýðræðisríkin í Vestur-
Evrópu? Við kunnum að umgang-
ast valdamenn í Kreml. Þótt fyrri
valdhafar hafi sýnt algjört mis-
kunnarleysi voru þeir ekki ævin-
týramenn hvað samskiptin við
Evrópu varðar. En vissulega er
ekki unnt að segja til um hver
þróunin yrði færi svo að öfga-
menn, sem hika ekki við að skýra
frá draumum sínum um nýtt keis-
araveldi, næðu völdum í Kreml.
Fram til þessa hefur samruna-
þróunin í Evrópu einkum snúist
um efnahagsmál í hugum Finna.
Nú um stundir er mönnum einkum
umhugað um öryggismál og þau
algjöru umskipti sem þróun þessi
mun hafa í för með sér. Hugsun-
arhátturinn hefur gjörbreyst og
mörgum reynist erfitt að átta sig
á þessari staðreynd. Hvað sem
því líður er ljóst að fyrri „boð og
bönn“ gilda ekki lengur í finnskri
þjóðmálaumræðu.
Höfundur er formnður Ráðs nt-
vinnulífsins í Finnlandi og fyn-
verandi sendiherrn í Sviss og
Bnnduríkjunum.
BAIiSVIÐ
Jaakko Iloniemi
skrifar frá Helsinki