Morgunblaðið - 16.02.1992, Síða 8

Morgunblaðið - 16.02.1992, Síða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ DAGBOK SUNNUDAGUR 16. FEBRÚAR 1992 1T\ \ /^er sunnudagur 16_. febrúar, sem er 47. dag- -L'-ii-VX urársins 1992. ÁrdegisflóiðíRvíkkl. 4.48 og síðdegisflóð kl. 17.16. Fjarakl. 11.11 ogkl. 23.22. Sólar- upprás kl. 9.22 og sólarlag kl. 18.03. Myrkur kl. 18.54. Sólin er í hádegisstað í Rvík kl. 13.42 og tunglið í suðri kl. 24.25. (Aimanak Háskóla íslands.) Sjá, ég sendi sendiboða minn, og hann mun greiða veg- inn fy rir mér. (Mal. 3,1.) ÁRNAÐ HEILLA ára afmæli. Á morgun, mánudaginn 17. febrúar, er sextugur Gunnar Hersir Valdimarsson sendi- bílstjóri, Rauðarárstíg 32, Rvík. Eiginkona hans er Björg Hersir. Þau taka á móti gestum í menningarmið- stöðinni Gerðubergi á afmæl- isdaginn kl. 20-22. FRÉTTIR/MANNAMÓT NÍUVIKNAFASTA hefst í dag. „Páskafasta sem hófst 9 vikum fyrir páska og fólst í tveggja vikna viðbót við sjö- viknaföstuna. Aukafastan var tekin upp sem sérstök yfir- bót, ýmist af fijálsum vilja eða skylduð af kirkjunnar mönnum,“ segir í Stjörnu- fræði/Rímfræði. FUGLAVERNDARFÉLAG íslands heldur fræðslufund nk. þriðjudagskvöid í Odda, hugvísindadeildarhúsi Há- skólans og hefst kl. 20.30. Fundurinn er öllum opinn. Ólafur Karl Nielsen fugla- fræðingur flytur erindi sem hann nefnir: Er flórgoðinn að hverfa úr náttúru iandsins? Mun hann í erindinu gera grein fyrir niðurstöðum taln- ingar á varpstofni fuglsins á Mývatni sumarið 1990. Á Suðurlandsundirlendi og í Borgarfirði var flórgoðinn áður algengur fugl en er nú að heita má horfínn og á víð- ar á landinu undir högg að sækja. FÉLAG eldri borgara. í dag kl. 14 verður spiluð félagsvist í Risinu og dansað í kvöld kl. 20 í Goðheimum. Á þriðjudag- inn verður skáldakynning í Risinu kl. 14. Hjörtur Pálsson fjallar um Jón skáld Helga- son. Herdís Þorvaldsdóttir og Gils Guðmundsson lesa úr verkum hans. Ráðgert er að á þriðjudaginn hefjist nám- skeið í framsögn. Leiðbein- endur verða Sigrún Valbergs- dóttir og Sigríður Eyþórsdótt- ir. Nánari uppl. á skrifstofu félagsins. SLYS á börnum. Rauði Kross íslands efnir til tveggja kvölda námskeiðs um slys á bömum, hvemig við þeim skuli brugðist og hvernig hægt sé að koma í veg fyrir þau. Námskeiðin verða á Hót- el Lind við Rauðarárstíg 24. og 25. þ.m. Skrifstofa RKÍ s. 26722 skráir væntanlega þátttakendur og veitir nánari uppl. KVENNADEILD Styrktar- félags lamaðra og fatlaðra heldur aðalfund annað kvöld á Háaleitisbr. 11-13 kl. 20.30. VESTURGATA 7, fé- lags/þjónustusmiðstöð aidr- aðra. Létt leikfimi fyrir konur og karla hefjst á mánudags- morgun kl. 11 og verður tvisvar í viku, líka á fimmtu- dögum, sama tíma. Jónas Þorbjarnarson sjúkraþjálfí stórnar. Nánari uppl. í síma 627077. HREPPSTJÓRASTAÐA er laus hjá sýslumanninum í Strandasýslu, Ríkharði Más- KROSSGATAN LÁRÉTT: - 1 rósemd, 5 LÓÐRÉTT: - 2 fálm, 3 skjögra, 8 durts, 9 dreng, 11 mjög gott, 14 álít, 15 koma í veg fyrir, 16 skaða, 17 sækja sjó, 19 lengdarein- ing, 21 beitu, 22 skammt frá, 25 hrygla, 26 tunna, 27 magur. knæpa, 4 refsar, 5 þrútna af mjólk, 6 háttur, 7 megna, 9 spil, 10 smábók, 12 líkams- rækt, 13 gerir ekki, 18 belt- um, 20 komast, 21 árið, 23 leyfíst, 24 frumefni. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: LÁRÉTT: - 1 skref, 5 kátar, 8 fitan, 9 hrafn, 11 nafar, 14 net, 15 launa, 16 aftri, 17 rór, 19 undu, 21 eðla, 22 iðn- inni, 25 ann, 26 ára, 27 rót. LÓÐRÉTT: — 2 ker, 3 eff, 4 Finnar, 5 kantar, 6 ána, 7 ana, 9 holduga, 10 afundin, 12 fátíðir, 13 reiðast, 18 óðir, 20 uð, 21 en, 23 ná, 24 Na. Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra: 900 milljónirnar eru smáanrar miðað við 90 milljarða kvótann Hugmyndir sjávarútvegsráðherra óraunsæjar og óframkvæmanlegar Þetta er nú bara sama og að hirða aurinn og kasta krónunni, Steini minn. — Snúðu þér að sægreifunum ... syni. Er það staða hreppstjóra í Broddaneshreppi og er um- sóknarfrestur til 1. mars, til- kynnti sýslumaðurinn í Lög- birtingi. KÓPAVOGUR. Kvenf. Freyjan heldur spilafund í dag, félagsvist. Byrjað að spila kl. 15 á Digranesvegi 12 þar í bænum. Spilaverð- laun og kaffiveitingar. KIWANISKLÚBBURINN Viðey heldur fund þriðjudags- kvöldið nk. kl. 20 í Kiwanis- húsinu Brautarholti 26. SÓKN & FRAMSÓKN halda sameiginlegt spilakvöld í Sóknarsalnum nk. miðviku- dagskvöld kl. 20.30. Spila- verðlaun/kaffiveitingar. BARNADEILD Heilsu- vemdarstöðvarinnar, Baróns- stíg, hefur opið hús fyrir for- eldra ungra bama kl. 15-16. Umræðuefni verður: Vatns- þjálfun barna. Um það fjallar Guðrún Einarsdóttir þroska- þjálfi.___________________ DAGPENINGAR ríkis- starfsmanna. í Lögbirtinga- blaðinu tilk. ferðakostnaðar- nefnd að hún hafí ákveðið dagpeninga til til greiðslu gisti- og fæðiskostnaði ríkis- starfsmanna á ferðalögum, á vegum ríkisins, hér innan- lands. Nema þessar greiðslur frá kr. 1.750-6.500. LEIKLISTARSKÓLI ís- lands. Menntamálaráðuneytið auglýsir í Lögbirtingi lausa stöðu skólastjóra þessa skóla. Segir þar að hann skuli settur eða skipaður af ráðherra til fjögurra ára í senn og miðast við 1. júní. Menntun og reynsla í leiklistarstörfum er skilyrði. í næstu viku, 20. þ.m., rennur umsóknarfrestur út. NESSÓKN. Aðalfundur kvenfélags Neskirkju verður í safnaðarheimili kirkjunnar annað kvöld, mánudag, kl. 20.30. ITC-deildin Eik, Hafnarfirði, heldur fund annað kvöld í Hjallahrauni 9 kl. 20.15. Ræðukeppni. SKAFTFELLINGAFÉL. Félagsvist verður spiluð í Skaftfellingabúð í dag kl. 14. SAMVERKAMENN Móður Teresu halda mánaðariegan fund í safnaðarheimilinu Há- vallagötu 16 kl. 16 á mánu- dag. ÁRBÆJARSÓKN, starf aldraðra. Nk. þriðjudag leik- fimi kl. 13.30. KIRKJUSTARF GRENSÁSKIRKJA: Æsku- lýðsfundur í kvöld kl. 20. HALLGRÍMSKIRKJA: Fundur í Æskulýðsfélaginu Örk mánudagskvöld kl. 20. Fundur með foreldrum ferm- ingarbarna mánudagskvöld kl. 20. HÁTEIGSKIRKJA: Fundur í æskulýðsfélaginu í kvöld kl. 20. Starf fyrir 10-11 ára mánudag kl. 17.30. Starf fyr- ir 12 ára mánudag kl. 19.30. Biblíulestur mánudagskvöld kl. 21. LAUGARNESKIRKJA: Æskulýðsfundur í kvöld kl. 20. NESKIRKJA: Æskulýðs- fundur kl. 20 mánudagskvöld. SELJTARNARNESKIRJA: Fundur í æskulýðsfélaginu í kvöld kl. 20.30. 10-12 ára starf mánudag kl. 17.30. ÁRBÆJARKIRKJA: For- eldramorgunn þriðjudag kl. 10-12. Haraldur Tómasson fjallar um fyrirtíðaspennu. FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Mánudag: Fyrirbænir í kirkj- uni kl. 18. Starf fyrir 11-12 ára börn kl. 18. Fundur í æskulýðsfélaginu mánudags- kvöld kl. 20.30. Söngur, leik- ir, helgistund. SELJAKIRKJA: Mánudag: Fundur hjá KFUK, yngri þeild, kl. 18, eldri deild kl. 18.30. Opið hús hjá æskulýðs- félaginu SELA kl. 20. Helgi- stund. SKIPIN RE YK JAVÍKURHÖFN: í gær kom Kistufell úr strandferð. Kyndill kom líka og fór aftur í ferð samdæg- urs. Á morgun er Brúarfoss væntanlegur að utan og tog- arinn Jón Baldvinsson kem- ur af veiðum og landar. MINNINGARSPJÖLtT" MINNINGARKORT Barn- aspitala Hringsins fást á eftirtöldum stöðum: í apótek- um í Reykjávík, Kópavogi, Garðabæ og Mosfellsbæ: Ennfremur eru þau seld í Blómabúð Kristínar (Blóm & Ávextir), Blómabúðin Dahlía, Grensásvegi. Verslunin Ell- ingsen og verlunin Geysir. Barna- og unglingageðdeild Dalbraut 12. Heildverslun Júlíusar Sveinbjörnssonar. Kirkjuhúsið. Bókabúð Olivers Steins, Hafnarfirði. Ólöf Pét- ursdóttir Smáratúni 4, Keflavík. Kort með gíróþjón- ustu fást afgreidd hjá hjúkr- unarforstjóra Landsspítalans. MINNINGARKORT Safn- aðarfélags Áskirkju eru seld hjá eftirtöldum: Þuríður Ág- ústsdóttir, Austurbrún 37, sími 81742, Ragna Jónsdóttir Kambsvegi 17, sími 82775, Þjónustuíbúðir aldraðra, Dal- braut 27, Helena Halldórs- dóttir, Norðurbrún 1, Guðrún Jónsdóttir, Kleifarvegi 5, sími 81984, Hoitsapótek Lang- holtsvegi 84, Verzlunin Kirkjuhúsið, Klapparstíg 27. Þá gefst þeim, sem ekki eiga heimangengt, kostur á að hringja í Áskirkju, sími 84035 milli kl. 17.00 og 19.00. ORÐABÓKIN Eins og naut íflagi Á undanförnum vikum hefur brugðið fyrir í mín eyru orðtakinu: að haga sér eins og fíll í krístalls- búð. Hefur mér einkum virzt ýmsir stjórnmála- menn grípa til þessa orð- taks í sambandi við þær aðgerðir, sem núverandi ríkisstjórn hefur verið að gera til þess að freista þess að koma böndum á verðbólgu og ríkisfjármál. Hefur þeim þá ofboðið, hversu stjórnin svarfazt stundum um, og þótt að- farir hennar keyra um þverbak. Orðalagið bendir strax til þess, að hér sé erlend hugsun og óís- lenzkuleg að baki enda ganga engir fílar hér um götur og kristallsbúðir hafa ekki heldur verið al- gengar hér á landi. Upp- runans verður því að leita annað og þá kemur danskan helzt í hug. Ekki verður þar fundin bein samsvörun, en aftur á móti í þýzku: sich wie ein Elefant im Porzellanladen benehmen. í OH er 50 ára gamalt dæmi, en þeim, sem það notaði, hefur fundizt eðlilegra að tala um naut en fíl. Hann sagði eins og naut í glervöru- búð. Trúlega hefur hann verið minnugur íslenzks orðalags, sem nær alveg því, sem við er átt, þótt hann hafi kosið að breyta því örlítið og færa nær borgarmenningunni. Það er orðtakið að haga sér eins og naut / (moldar)flagi. Á það ekki alveg eins vel við hér? - JAJ.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.