Morgunblaðið - 16.02.1992, Side 10

Morgunblaðið - 16.02.1992, Side 10
eftir Jóhörwu Ingvarsdóttur „ÉG SKIL ekki af hverju þetta skólafólk er sífellt að kvarta. Þegar ég var í skóla, þá var ég í tvær vikur í skólanum og eina viku í fríi á milli. Þannig gekk minn skólavetur, sem var ekki niu mánaða skóli eins og nú er heldur sjö mánaða skóli. Og ekki nóg með það. Nemendun- um var skipt upp í tvær deildir, yngri og eldri, sem báðar deildu sömu kennslustofunni. Yngri krakkarnir lásu einsamlir á meðan hinum eldri var kennt og öfugt, og ég held að þetta hafi bara verið í góðu lagi. Að minnsta kosti tel ég mig hvorki vera andlega né félagslega skemmdan heldur bara ágæt- lega settan í dag,“ sagði kunn- ingi minn við mig þegar ég var í miðju kafi við að safna saman upplýsingum um niðurskurð í íslenska menntakerfinu. Það skal hinsvegar tekið fram að þessi kunningi minn er ekki háaldraður maður, eins og sum- ir kunna að halda. Hann er nú 32 ára gamall og gekk í sveita- skóla norður í landi á sínum æskuárum. En nú eru breyttir tímar. Breytt þjóð- félag kallar á breytt og „fullkomið“ skólakerfi og það eitt er víst að vin- sældir ríkisstjómar eru ekki miklar á niðurskurðartímum, eins og nú fara í hönd. Ríkisstjómin hefur einsett sér það markmið að ná tök- um á ríkisfjármálunum á næstu tveimur árum, en á síðasta ári nam ríkissjóðshallinn 12,6 milljörðum króna og var hinn mesti í 40 ár. Sú upphæð samsvarar því sem árlega fer til alls menntakerfísins, en það tekur til sín um 15% af fjárlögum. Talsmenn opinberra starfsmanna og annarra hagsm- una- og þrýstihópa hafa verið ötul- ir við að mótmæla niðurskurði hins opinbera og þrátt fyrir að ráða- menn reyni eftir megni að skýra út fyrir almúganum í landinu hvað verið sé að gera í raun og vem, segja þeir að þau skilaboð nái ekki eyrum fólksins því múgæsingin sé orðin það mikil að allar útskýring- ar dmkkni í mótmælayfirlýsingum hinna ýmsu félagasamtaka. 300 milljónir til baka Samkvæmt lögum um ráðstaf- anir í ríkisfjármálum, sem sam- þykkt voru á Alþingi 23. janúar sl., ber menntamálaráðherra að skera niður 5% af útgjöldum til skólastofnana. í krónum talið nem- ur sú upphæð 750 milljónum. Ráð- herra fær síðan 2% til baka til ráðstöfunar, eða um 300 milljónir, þannig að nettóspamaður í menntakerfinu verður þegar upp er staðið um 450 milljónir króna. Af 750 milljóna króna brúttóniður- skurði, voru 300 milljónir kr. tekn- ar af grunnskólanum, 200 milljón- ir af framhaldsskólunum, 93 millj- ónir af Háskóla íslands og aðrar stofnanir á háskólastigi, ráðuneyt- ið sjálft og aðrar stofnanir, sem undir það heyra, taka á sig brút- tóniðurskurð á bilinu 150-160 milljónir kr. Ráðuneytið vinnur nú að skipt- ingu þeirra 300 milljóna króna, sem skila á til baka, og gera ráðu- neytismenn ráð fyrir að þeirri vinnu ljúki upp úr helgi. Sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins munu grunnskólar fá 120 milljónir til baka, framhaldsskólar 80 millj- ónir og Háskóli íslands mun fá 52 milljónir til baka, eða hlutfallslega meira en helming af flata niður- skurðinum. „Auðvitað þýðir það að verið er að svína á öðrum stofn- unum til að bæta háskólanum þetta upp. Sá sem grenjar hæst, fær mest, ekki satt,“ segir heimild- armaður. Aðrar stofnanir, sem tóku á sig 150-160 milljóna kr. skerðingu, munu fá til baka 50 milljónir, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Svo getur farið að sumir skólar muni fá allan sinn niðurskurð bættan á meðan aðrir fái ekkert, þó líklegra sé talið að allir fái þeir eitthvað. Ráðuneytið mun meta sérstaklega hvem og einn framhaldsskóla. Aftur á móti hvað við kemur grunnskóiunum, mun ráðuneytið deila 120 milljón- um á milli fræðsluumdæmanna, og síðan er það fræðslustjóranna að úthluta til einstakra skóla, eftir efnum og ástæðum. Niðurskurður í haust Ólafur Amarson, aðstoðarmað- ur menntamálaráðherra, segir að sparnaðaráætlanir miði við að nið- urskurðurinn komi fyrst og fremst til framkvæmda í haust, þegar nýtt skólaár hæfíst því erfitt væri að skera niður nú, á miðju skóla- ári, þó vissulega mætti beita al- mennum sparnaðaraðgerðum, svo sem í skrifstofuhaldi, mötuneyti, ræstingu og forfallakennslu. Jafn- framt væru uppi efasemdir um að allur sparnaðurinn næðist á haust- misserinu. Því gæti svo farið að menntamálaráðherra þyrfti að fá samþykktar áframhaldandi heim- ildir, út skólaárið 1992-93. „Skólaárið er það sem við erum dæmdir til að lifa við og það fellur afskaplega illa saman við fjárlaga- árið.“ Ólafur segir að menntamála- ráðuneytið hafí ekki nálgast leiðir til niðurskurðar með sama hætti og heilbrigðisráðuneytið. „Við höf- um ekki viljað, að svo stöddu, neyða ákveðinni niðurskurðarleið á skólana. í skólakerfinu hefur al- mennt verið uppi krafa um sjálf- stæði skóla. Nú bregður svo við, þegar skera á niður, að krafan um sjálfstæði heyrist ekki lengur, heldur mjög skýlaus krafa um að menntamálaráðuneytið eigi að ákveða í smáatriðum framkvæmd niðurskurðarins. Við höfum verið mjög tregir til. Við treystum því að þeir, sem eru í víglínunni á hverjum stað, séu í betri aðstöðu til að meta hvaða stundir eigi að skera, heldur en við sem sitjum hér miðlægt í ráðuneytinu. Nú þegar er ráðuneytið í ákveðnu sam- starfí við framhaldsskólana um leiðir til sparnaðar og þar er m.a. rætt um fækkun valáfanga og Hreinn niður- skurður til menntakerfis nemur um 450 milljónum króna samkvæmt „bandorminum“. y A sama tíma hefur Hagfræðistofnun Hóskólans reikn- að útað lenging skóladags í 35 stundir kunni að auka þjóðartekjur okkar um 0,4%, eða um 1 til 2,5 milljarða ó óri. Morgunblaðið/Arni Sæberg. aukið sjálfsnám nemenda. Við fínnum það hinsvegar ekki á grunnskólunum að þeir séu mjög líklegir til að vilja taka þátt í niður- skurðinum með okkur. Þar á ég aðallega við fagfélög kennara. Fræðslustjórarnir hafa sýnt mun meiri samstarfsvilja,“ segir Ólafur. Færri stundir, fleiri nemendur Menntamálaráðuneytið hefur bent á hugsanlegar leiðir til að ná settum markmiðum í grunnskólun- um. Hver bekkjardeild kostar um 1,5 milljón kr. og 2.200 bekkjar- deildir væru á landinu öllu. Tiltölu- Iega einfalt væri að reikna það út að ef bekkjardeildum yrði fækkað um 120, þá væri kominn 180 millj- óna spamaður, sem grunnskólan- um væri ætlaður. „Við ætlum hins- vegar ekki að fara offari og ætlum alls ekki að flytja nemendur milli skólahverfa, en fræðslustjórarnir munu geta nýtt sér heimild í „bandorminum" til að spara pen- inga,“ segir Ólafur. Heimild þessi heimilar fræðslustjórum að fjölga í bekkjardeildum þegar þannig stendur á. Fjölga má nemendum 1., 2., og 3. bekkja úr 22 í 24 og í 4.-10. bekk úr 28 í 30. í öðru lagi hefur ráðherra fengið sam- þykkta heimild sem gerir honum kleift að skera niður tvo af fjórum svokölluðum aukatímum, sem skól- arnir hafa til ráðstöfunar í 4.-10. bekk. Mismunandi er hvernig skól- arnir nýta sér þessa tíma. Sums staðar eru þeir notaðir til að efla kennslu í grunngreinum, svo sem íslensku, erlendum tungumálum, stærðfræði og samfélagsfræði. Annars staðar hafa þeir verið nýtt- SJÁ BLS. 12

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.