Morgunblaðið - 16.02.1992, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
SUNNUDAGUR 16. FEBRUAR 1992
23
Grímiir Fjalar
Pétursson - Mhming
Fæddur 23. október 1990
Dáinn 9. febrúar 1992
Við viljum minnast litla drengsins
okkar með örfáum orðum. Fljótlega
eftir fæðingu kom í ljós að hann
var með alvarlega hjartagalla. Meiri
hluta sinnar stuttu ævi þurfti hann
því að dveljast á sjúkrahúsi. Þegar
Grímur Fjalar kom heim eftir tæp-
lega níu mánaða sjúkrahúsdvöl,
kynntumst við betur þessu bros-
milda barni sem gaf svo mikið af
sér. Augun hans voru sem lýsandi
stjörnur. Þrátt fyrir erfiðar aðgerð-
ir og öll sín veikindi var viljastyrkur-
inn einstakur. Allt vildi hann reyna:
Standa, ganga, ærslast. Gera svo
miklu meir en hann hafði þrek til.
Grímur Fjalar hafði sérstakar mæt-
ur á afa sínum, þegar afi kom í
heimsókn var Grímur alltaf að sýna
honum hvað hann væri nú orðinn
stór og sterkur. Svo bað hann afa
sinn um að taka sig upp.
Síðustu vikur fór Grími mikið
fram bæði andlega og líkamlega.
Það gaf okkur von um betra líf
honum til handa, en þá slokknaði
ljósið.
Móðir hans hefur sýnt einstakan
kærleik og dugnað við umönnun
hans. Nú er það huggun harmi
gegn.
Oft spyr maður þegar ung börn
deyja, hver sé tilgangurinn með líf-
inu. Þeirri spurningu verður víst
seint svarað. Við viljum sérstaklega
þakka hjúkrunarfólki og læknum á
deild 13E á Barnaspítala Hringsins
fyrir kærleiksríkt starf.
Ævi Gríms Fjalars var stutt en
minningin um hann mun ylja okkur
um ókomin ár. Við þökkum guði
gjöfina og biðjum hann að styrkja
Guðrúnu móður hans, elsku litlu
Nönnu Birtu og aðra aðstandendur.
Afi og amma.
Grímur Fjalar litli frændi minn
hefur kvatt þennan heim.
Eftir mikil veikindi var ekki hægt
að bjarga lífi hans. Þó að það væri
aðeins stuttur tími sem Grímur Fjal-
ar fékk að vera með okkur og við
með honum hefur verið mikið ann-
ríki hjá móður hans. En vegna
M j fa
Friöfinm
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
til kl. 22,- einnig um helgar.
Skreytingar við ðll tílefni.
Gjafavörur.
■M
Birting afmælis-
og minningargreina
Morgunblaðið tekur afmæl-
is- og minningargreinar til
birtingar cndurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð i Aðal-
stræti 6, Reykjavík og á skrif-
stofu blaðsins í Hafnarstræti
85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að
greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á
mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
hennar miklu kunnáttu og kjark-
mikla hugar og dugnaðar Gríms
Fjalars náði hann 15 mánaða aldri
með mikinn hjartagalla.
Samt var ailtaf stutt í brosið
þegar hann var nokkurn veginn
hress. Þessu feimnisbrosi verður
seint gleymt.
Á svona stundu er best að hugsa
um állar góðu minningarnar sem
við eigum um hann. Eg man vel
þegar við vorum í fjölskylduboði um
jólin hjá ömmu og afa. Ég hélt á
honum og söng fyrir hann. Hann
var svo yfirvegaður og þessi stund
er mér mikils virði. Hann hafði svo
gaman af tónlist. Hreyfði sig allan
og dillaði sér.
Elsku Gunna frænka, mundu að
hann á alltaf stóran hluta í hjörtum
okkar allra. Megi algóði Guð styrkja
þig og fylgja Nönnu Birtu, tvíbura-
systur Gríms Fjalars, bjartri inn í
framtíðina.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
SOFFÍA MAGDAL SIGURÐARDÓTTIR,
Reynimel 90,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 18. febrúar kl.
10.30.
Guðjón Símonarson,
Gróa Guðjonsdóttir, Gunnar Jónsson,
Baldur Guðjónsson, Hertha Andersen,
Sigurður Guðjónsson, Kristfn Ólafsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þó að kali heitur hver
hylji dali jökull ber.
Steinar tali allt hvað er
aldrei skal ég gleyma þér.
Borghildur Sverrisdóttir.
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug vegna andláts
ÁSU HULDUJÓNSDÓTTUR,
Ránargötu 31,
Reykjavík.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir samúð og vináttu við andlát og útför eigin-
konu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu,
KRISTÍNAR VALGERÐAR ÁRNADÓTTUR
Benjamfn Eiríksson,
Guðfinna Benjamínsdóttir, Guðmundur Sigmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Systir okkar,
RANNVEIG SIGURSTEINSDÓTTIR,
lést 7. febrúar.
Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 17. febrúar
kl. 15.00.
Fyrir hönd systkina.
Unnur Sigursteinsdóttir.
t
Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
SIGRÍÐUR ALEXANDERSDÓTTIR,
Elliheimilinu Grund,
áðurtil heimilis
á Bræðraborgarstíg 35,
sem lést mánudaginn 10. febrúar, verður jarðsungin frá Fossvogs-
kirkju þriðjudaginn 18. febrúar kl. 15.00.
Sæmundur Ingi Sveinsson, Anna Jóhannesdóttir,
Vilhelmfna Soffa Sveinsdóttir, Þorsteinn Ásgeirsson,
Guðlaug Helga Sveinsdóttir, Grfmur Friðbjörnsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Elsku litli sonur minn og bróðir,
GRÍMUR FJALAR PÉTURSSON,
Miðvangi 41,
Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Kapellunni við
kirkjugarða Hafnarfjarðar mánudaginn
17. febrúar kl. 13.30. Blóm og kransar
eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim
sem vildu minnast hans er bent á
Barnaspítalasjóð Hringsins.
Guðrún J. Ásgrímsdóttir,
Nanna Birta Pétursdóttir.
t
Hjartkær eiginkona mín, móðir, tengda-
móðir, amma og langamma,
HALLDÓRA PÁLMARSDÓTTIR,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju
mánudaginn 17. febrúar nk. kl. 13.30.
Þeir, sem vilja minnast hennar, láti
Krabbameinsfélagið njóta þess.
Ögmundur Guðmundsson.
Guðmundur Pálmar Ogmundsson, Þórunn Blöndal,
Anna Margrét Ögmundsdóttir, Ófeigur Geirmundsson,
Ágúst Ögmundsson, Elfnborg Kristjánsdóttir,
Jóhann Ogmundsson, Ingibjörg Jónsdóttir,
Lárus Ögmundsson, Hildigunnur Sigurðardóttir,
Sverrir Ogmundsson, Ásbjörg Magnúsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum auðsýnda samúð og veitta aðstoð við andlát og jarðarför
SKARPHÉÐINS GUÐMUNDSSONAR,
Garði, Aðaldal.
Þökkum sjúkrahúsi Húsavíkur langa og góða umönnun.
Guðný Benediktsdóttir,
Benedikt, Halldór, Guðmundur
og Valdimar Skarphéðinssynir,
tengdadóttir og barnabörn.
t
Alúðarþakkir sendum við öllum þeim er sýndu okkur vinarhug
og samúð við fráfall
PÁLS MELSTEÐ ÓLAFSSONAR
múrarameistara.
|
Sérstakar þakkir til starfsfólks á nýja-gangi á Grund fyrir góða
umönnun.
Aðstandendur.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa,
BÚA RAFNS EINARSSONAR,
Víðigrund 33,
Kópavogi.
Sigrfður Hjartardóttir,
Stefán H. Búason,
G. Eydís Búadóttir,
Rúna Hjördís Búadóttir, Aðalsteinn Hallgrímsson,
Sigríður íris Hauksdóttir, Búi Bjarmar Aðalsteinsson,
Rósa Rún Aðalsteinsdóttir.
t
Okkar innilegustu þakkir til allra er
sýndu okkur samúð og hlýhug við and-
lát og útför elskulegs fósturföður okk-
ar, tengdaföður, afa og langafa,
HELGA ÞÓRARINSSONAR,
Hrafnistu,
Hafnarfirði.
Erla Guðmundsdóttir, Stefán V. Þorsteinsson,
Helga Bjarnadóttir, Hjalti Jóhannsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum samkennd og hlýhug allan við
andlát og útför
JÓNÍNU HELGU JÓNSDÓTTUR
frá Gamla Hrauni,
Álfaskeiði 64,
Hafnarfirði.
Sigurbjörn Eldon Logason,
Haraldur Eldon Logason,
Jón Eldon Logason,
Ingibjörg Eldon Logadóttir,
tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.