Morgunblaðið - 16.02.1992, Side 25

Morgunblaðið - 16.02.1992, Side 25
Og hvenær fáum við þakkað sem þessa höfum notið? Kæra Guðrún. Við þökkum þér öll árin sem þú veittir birtu og yl inn í líf frænda okkar, og fyrir allar góðu stundirnar sem við höfum átt með ykkur tveim, um leið og við færum þér einlægar samúðarkveðjur og biðjum þér blessunar á ókomnum árum. Aðalheiður, Sigurður Þorsteinn og Baldur. Það er komið að því að kveðja hann Ásmund hinstu kveðju. Ég læt aðra um að rekja ættir hans og uppruna, en Ásmundur kvæntist föðursystur minni, og nöfnu, hinn 24. júlí 1958. Þeim varð ekki barna auðið, en þar með er ekki sagt að þau hafi ekki átt börn. Því systkina- börn þeirra, Guðrúnar og Ásmund- ar, urðu að börnum þeirra og er ég svo heppin að vera eitt þeirra. Ótelj- andi eru æskuminningar mínar um helgarheimsóknir á Barónsstíginn. Alltaf var það með tilhlökkun sem ég fór þangað. Fyrir mér var Ásmundur einstak- ur maður. Hann var svo rólegur og yfirvegaður, sanngjarn og fróður, svona gæti ég lengi talið. Ég lærði alltaf eitthvað í hvert sinn sem ég hitti hann. Mér eru ógleymanleg bréfin sem hann sendi mér til Frakk- lands, þau voru full af fréttum, um ástand mála og menningarlífíð á íslandi, hreint ótrúlegt að tæplega áttræður maður skrifaði svona löng og ítarleg bréf. Hann hafði einnig mjög ákveðinn og góðan smekk. Er mér minnis- stætt eitt sinn er ég var mjög efins um hvort ég væri að kaupa réttan kjól, þá fékk ég hann lánaðan og fór með hann á Barónsstíginn til að leyfa Ásmundi að sjá hann. Það var alveg sama hvar var borið nið- ur, alltaf var hægt að treysta á Ásmund. Áður en ég varð móðir kom ég oft í heimsókn í hádeginu og voru þá rædd mál málanna hverju .sinni. Var þá oft mikill ágreiningur og æsingur en þegar klukkan nálg- aðist eitt var blaðinu snúið við, ánægja yfír að hafa komið blóðinu á hreyfingu, kvatt var með kossum og brosi á vörum. Hugsa ég oft, með söknuði, til þessara ánægjulegu stunda og þakka fyrir þær. Það verður erfítt fyrir Baldvin Inga, son minn, að skilja að Ás- mundur verður ekki til að kveikja „stóra eldinn" í sumarbústaðnum í sumar, og svo verður víst örugglega um fleiri. Því í huga manns eru sumarbústaðurinn, Guðrún og Ás- mundur eitt. Það eru margar minningarnar sem koma upp í hugann, þegar ég hugsa til liðins tíma og ég fyllist þakklæti fyrir að hafa verið svo gæfusöm að hafa átt Ásmund fyrir frænda. Megi minningin um hann Ásmund gera okkur að betri mönn- um. Kæra Guðrún, við Gunnar send- um þér okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Guðrún Sigríður. Á morgun verður til moldar bor- inn Ásmundur Sigurðsson frá Reyð- ará í Lóni. Þegar ég tengdist Reyðarárfjöl- skyldunni varð þessi föðurbróðir mannsins míns mér strax mjög kær. Návist hans fyllti mig ávallt trausti og bjartsýni á lífíð og tilver- una. Stuðningur Ásmundar og Guð- rúnar Árnadóttur konu hans hefur verið okkur hjónum og börnum okkar svo ómetanlegur gegnum árin, að hann verður seint fullþakk- aður. Ásmundur var maður vorsins. Að hlúa að því sem var að vaxa upp var honum svo eðlislegt og ljúft. Margt barnið hefur fengið dijúgan skerf í veganesti sitt á þroskabraut- inni frá „Ásmundi frænda", og margur jarðarsprotinn hefur orðið að vöxtulegu tré og blaðfagurri jurt í nærfærnum höndum hans. Þótt Ásmundur hafí verið orðinn aldinn að árum, var hann síungur í anda, starfsgleðin svo rík og alltaf litið fram á veginn. Hann varð aldr- ei ,,gamall maður“. 1 minningunni um Ásmund mun mynd hans alltaf tengjast vorinu og því sem er að vaxa og þroskast. Þess vegna syngur í huga mér Ijóð- morgunblaðIð ' MINMNðjtö&WMt'a' FEBRÚAR 1992 lí25 ið hans Þorsteins Valdemarssonar. Vor mitt, það er blæösp, sem ber við lága sól, blæösp i maí undir sinufólvum hól, blaðsmá og ung, og hvert blað sem gull á lit, bært fyrir logni með undarlegum þyt. Vor mitt, það er blæösp, og það var á sínum stað veturinn langa, þar sem fónnin settist að, ósýnilegt, unz í allri sinni dýrð aftur það birtist sem hrislan, geislum skírð. Með þökk fyrir allt. Hólmfríður Aradóttir. Ásmundur Sigurðsson frá Reyð- ará í Lóni, fyrrum alþingismaður, lézt 8. febrúar sl., 88 ára að adri. Ásmundur var bóndi á Reyðará í allmörg ár en jafnframt kennari á ýmsum stöðum í Austur-Skafta- fellssýslu. Hann var í framboði fyrir Sósíal- istaflokkinn í Austur-Skaftafells- sýslu í fyrstu kosningum flokksins 1942 og síðan áfram meðan gamla kosningaskipanin hélzt. Eftir kjör- dæmabreytinguna 1959 var hann á framboðsiista Sósíalista í Austur- landskjördæmi. Ásmundur tók sæti á Alþingi sem varamaður, 1944, 1945 og 1946, en var síðan landskjörinn þingmaður 1946-1953. Kom síðan á þing 1960 og enn 1966 sem varaþingmaður Austurlandskjördæmis. Samstarf okkar Ásmundar á Alþingi og í Sósíalistaflokknum var því orðið langt og mikið. Skoðanir okkar Ásmundar fóru vel saman. Hann reyndist mér einn bezti og traustasti samstarfsmaður sem ég hefí átt. Ásmundur var sann- ur sósíalisti. Hann var af þeirri gömlu og góðu gerð sósíalista, sem fann óréttlætið á ýmsum sviðum þjóðfélagsins og sá rangláta skipt- ingu þeirra verðmæta, sem sköpuð höfðu verið, oftast með miklu erfíði og trúmennsku í starfi. Ásmundur var sósíalisti, sem sá að fátækir bændur í sveitum lands- ins áttu hagsmunalega samleið með verkamönnum bæjanna. Hann fann að sósíalismi þeirra sem vildu æsa bændur gegn verkamönnum og bæjarbúa gegn sveitafólki var rang- ur sósíalismi. Ásmundur hlaut því að skipa sér í raðir okkar róttækra sósíalista. Ásmundur Sigurðsson varð einn af beztu talsmönnum okk- ar sósíalista á sviði landbúnað- armála. Hann tók saman mjög gagnlegan bækling um „Erindi Sósíalista- flokksins til bænda" árið 1946. Og hann skrifaði margar greinar um landbúnaðarmál, enda var hann einn gagnfróðasti maður um þau mál sem ég þekkti. Vinátta okkar Ásmundar var traust ojg góð frá því við fyrst kynnt- umst. Eg leitaði oft til Ásmundar, þegar ég vildi ræða 'vandamál við góðan félaga. Hann var gætinn, vandvirkur og sanngjarn í dómum um_ menn og máleftii. Ásmundur tókst á hendur marg- vísleg trúnaðarstörf á vegum okkar flokks. Hann var lengi fulltrúi flokksins í Nýbýla- og landnáms- stjóm. Hann vann í landbúnaðar- nefndum og í fjárveitinganefnd Al- *- þingis. Hann var um tíma yfirskoð- unarmaður ríkisreikningar. Síðustu starfsár sín vann Ásmundur í Bún- aðarbankanum og naut þar trausts og virðingar eins og annars staðar. Um leið og ég kveð vin minn og samheija Ásmund Sigurðsson, vil ég, og kona mín, Fjóla, þakka konu Ásmundar, Guðrúnu Árnadóttur, hjúkrunarkonu, fyrir vinskap og vin- arhug sem hún og Ásmundur sýndu okkur. Það var alltaf ánægjulegt og hlý- legt að koma á heimili þeirra Guð- rúnar og Ásmundar. Lúðvík Jósepsson. Fleiri greinar um Ásmund Sigurðsson bíða birtingar og munu birtast næstu daga SOMARIÐ 1992 ÓDÝRA LEIGCIFLCIGIÐ OKKAR OPNAR PÉR AFTQR ÓTAL FERÐAMÖGCILEIKA LONDON frá kr. 13.900 Alla þriðjudaga og föstudaga frá 1. maí til 24. september. GLASGOW frá kr. 11.900 Alla miðvikudaga frá 20. maí til 30. september. KAUPMANNAHORN frá kr. 15.900 Alla þriðjudaga og föstudaga frá 1. maí til 30. sept. Alla miðvikudaga frá 24. júní til 30. sept. AM StERDAM frá kr. 15.800 Alla sunnudaga frá 3. maí til 27. september. Frjálst val um gististaði eftir efnum og ástæðum, allt frá svefnpokaplássi upp í Hilton Hótel. Bílaleigur og hótel á ótrúlega hagstæðu samningsverði með allt að 50% afslætti. Framhaldsferðir með dönskum, enskum og hollenskum ferðaskrifstofum. íslenskt starfsfólk okkar er til þjónustu á öllum áfangastöðum. Ekki er ráð nema í tíma sé tekið, pantið strax, því að á síðasta ári áttum við ekki pláss fyrir alla þá sem vildu notfæra sér ódýra leiguflugið okkar. Ódýru flugferðirnar okkar eru kærkomin kjarabót á tímum lífskjararýrnunar og gefa mörgum möguleika til utanlandsferða, sem annars ættu þess ekki kost. Ofangreindar leiguflugsferðir eru skipulagðar, framkvæmdar og seldar samkvæmt reglugerð samgönguráðuneytisins um leiguflug, nr. 21 frá 7. janúar 1985, ásamt ákvörðun sama ráðuneytis í bréfi frá 18. október 1990 - og með leyfi og í samvinnu við flugmálayfirvöld í Danmörku og Bretlandi. SPANN - GRIKKLAND ÍTALÍA - PORTGGAL Frábærir gististaðir á eftirsóttum stöðum ÓTRÚLEGA HAGSTÆTT VERÐ FLUGFERDIR SDLRRFLUG Vesturgata 17, Sími 620066 Staðgreiðsluverð miðast við gengi 03.01.92 Flugvallagjöld og forfallagjald ekki innifalið í verði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.