Morgunblaðið - 16.02.1992, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 16. FEBRÚAR 1992
33
Ingimundur Einars-
son - Kveðjuorð
Ingimundur Einarsson, verka-
maður í Borgamesi, var jarðsettur
frá Borgameskirkju í gær, laugar-
daginn 15. febrúar. Ingimundur
var fæddur á Hjarðamesi á Kjalar-
nesi 21. mars 1898 og lést á
Dvalarheimili aldraðra í Borgar-
nesi 4.þ.m.
Ingimundur var einn þeirra for-
vígismanna í ræktunarmálum,
sem á 2. áratug þessarar aldar
ferðuðust um með hesta og plóg
og tóku að sér að plægja fyrir
bændur landsins. Áður hafði hann
unnið um eins árs skeið við garð-
yrkjustörf í Danmörku. Ennfrem-
ur stundað sjóróðra frá Suðurlandi
og síldarvinnu norður í landi. Má
því segja, að hann hafi strax á
þessum fyrstu ámm starfsævi
sinnar kynnst vel öllum þeim at-
vinnuþáttum, sem framfleytt hafa
þessari þjóð allt til þessa dags, og
munu gera um ókomna framtíð.
Þessar aldamótahetjur okkar,
sem lögðu grunninn að hagsæld
okkar tíma, lifðu slíka breytingar-
tíma, að við, sem þó höfum lifað
hálfa öld, hvað þá þeir sem yngri
eru, getum vart gert okkur slíkt
í hugarlund. Og alltaf var þetta
fóík að byggja upp fyrir komandi
kynslóðir. Gerði litlar kröfur sjálf-
um sér til handa. Nægjusemi, iðni,
ráðdeild og heiðarleiki má segja
að hafi verið einkunnarorð þessar-
ar kynslóðar.
Ingimundur settist að hér í
Borgamesi og kvæntist Margréti
H. Guðmundsdóttur frá Hunda-
stapa á Mýrum. Allan sinn búskap
bjuggu þau hér í bæ. Eignuðust
þau sex syni: Guðmund, Einar,
Steinar, Grétar, Inga og Jóhann,
sem allir hafa átt dijúgan þátt í
uppbyggingu Borgarness, hver á
sínu sviði. Hér má segja að Ing-
imundur hafí stundað þau störf
sem til féllu á hvetjum tíma. Auk
þess sem hann átti alla sína starf-
sævi kindur og kýr.
Ég, sem þessar línur rita, flutt-
ist í Borgarnes 1967. Fljótlega
kynntist ég Ingimundi Einarssyni,
en þó sérstaklega eftir að við jafn-
aðarmenn tókum að hópa okkur
saman. Það varð til þess að við
buðum fram lista við sveitarstjórn-
arkosningarnar árið 1970, í sam-
starfi við óháða aðila í bænum.
Jafnaðarmenn höfðu þá ekki átt
fulltrúa í hreppsnefnd Borgamess
síðan 1958. Ingimundur var þá
orðinn 70 ára gamall. Það var
okkur „yngri krötunum“, sem vor-
um að stíga okkar fyrstu skref í
pólitíkinni, mikilvægt að hafa við
hlið okkar menn eins og Ingimund
Einarsson, sem tekið hafði þátt í
þróun þessarar byggðar, tekið
Kveðjuorð:
Jón Sigurðsson
Fæddur 15. nóvember 1897
Dáinn 30. janúar 1992
Hinn 30. janúar síðastliðinn barst
okkur sú sorgarfregn að Jón afi
væri látinn, 94 ára að aldri. Minn-
umst við með þakklæti þeirra
stunda sem við fengum að njóta
með honum.
Á morgun í bítið er löndin lýsir af degi,
þá legg ég af stað. Ég veit að þú biður mín.
Um skóga ég geng, yfir Qöil mun ég finna
mér vegi.
Ég fæ ekki lengur eirt nema skunda til þín.
Ég horfi á þá mynd er í hug mínum fastmótuð
stendur,
ég heyri’ ekki kliði, ég skynja’ ekki tima né rúm;
ókunnur, boginn og einn, með krosslagðar
hendur
eigra ég dapur, og ljósið mun virðast mér húm.
Ég sé ekki kvöldið er sígur með gullinn ljóma
né seglanna skrið þá er opnast hin víðu höf,
og kominn í áfanga legg ég Iyngstúf í blóma
við laufgrænan húlfurskvist bundinn á þina
gröf.
(Victor Hugo, þýð. Jón Helgason.)
Guðrún Unnsteinsdóttir,
Ólöf Dögg Sigvaldadóttir
og Ari Guðmundsson.
þátt í stofnun Verkalýðsfélags
Borgarness og verið þar í forystu
um langa hríð og síðar heiðurs-
félagi þess ágæta félags. Hann
var alltaf til taks þegar leita þurfti
ráða og ráð hans voru góð.
Nú, þegar ég við leiðarlok kveð
þennan aldna öðling, jafnaðar-
manninn og verkalýðsleiðtogann,
Ingimund Einarsson, vil ég færa
honum þakkir okkar jafnaðar-
manna fyrir samfylgdina, fyrir
þátt hans í að gera þetta þjóðfélag
að því sem það er í dag. — Bless-
uð sé minning Ingimundar Ein-
arssonar.
Sveinn G. Hálfdánarson.
Skemmtileg fræðsla í fullri alvöru
Iðntæknistofnun íslands
tekur að sér að þróa námsefni og halda námskeið
fyrir samtök og fyrirtæki.
Við bjóðum reglulega:
* Grunnnám fyrir verkstjóra og millistjórnendur
* Réttindanám fyrir vinnuvélastjóra
* Starfsnám fyrir húsverði og umsjónarmenn fasteigna
* Starfsnám fyrir ræstingastjóra
* Fjarnám í ferðaþjónustu í samvinnu við Bréfaskólann og Feraðþjónustu
bænda
* Námskeið í gerð myndbanda, einkum ætluð félögum og fyrirtækjum
* Námskeið fyrir leiðbeinendur í starfsfræðslu
* Námskeið um stefnumótun í atvinnumálum, ætluð sveitarfélögum
* Stofnun og rekstur fyrirtækja
Stutt námskeið um
- gæðastaðla og gæðakerfi
- vinnufundi, fundarstjórn og fundargerðir
- verkefnastjórnun
- framsögn og málflutning
- leiðsögn og kennslu á vinnustað.
lóntæknistofnun ■ I
IÐNTÆKNISTOFNUN (SLANDS
Keldnaholt, 112 Reykjavík
Sími (91) 68 7000
Gæði
- í þína þjónustu!
Seljum vandað fræðsluefni til fyr-
irtækja, sem hyggjast koma á
altækri gæðastjórnun. Bjóðum
leiðbeinendanámskeið á stofn-
uninni eða vísum á ráðgjafa, sem
hafa réttindi til að vinna með
efnið sjálfstætt í fyrirtækjum.
Upplýsingar og skráning
f sfma 91- 687000 og 687009
Sr.Arelíus Níels-
son - Minning
Séra Árelíus Níelsson var einn " I
þeirra manna sem sýndu í verki
að góðverk Guðs á jörðu eru unn-
in í gegnum fólk. Og minnstu
bræðrum í okkar samfélagi var
hann stöðugt að hlúa að og hjálpa
í anda mannkærleika og kristilegs
hugarfars.
Félagasamtökin Vernd, fanga-
hjálpin, voru svo farsæl að njóta
krafta séra Árelíusar og mann-
kærleika strax við stofnun þeirra
árið 1960, en á vettvangi fangels-
ismála var það sannfæring séra
Árelíusar að hugtökin refsing og
refsivist væru fáránleg og ekki lík-
leg til að bæta nokkurn mann.
Séra Árelíus Níelsson starfaði
um áratuga skeið sem fangelsis-
prestur á Litla-Hrauni og hafði í
störfum sínum góðvild og kærleika
að leiðarljósi sem og orð Guðs:
„Allt sem þér gerið mínum
minnstu bræðrum það gjörið þér
mér.“ Félagasamtökin Vemd,
fangahjálpin, þakka séra Árelíusi
Níelssyni samfylgdina. Minning
hans verður ljós í lífi okkar.
F.h. framkvæmdastjórnar
Verndar,
Birgir Þ. Kjartansson for-
maður.
t
Fósturmóðir okkar og tengdamóðir,
ÞRÚÐUR BJARNADÓTTIR,
verður jarðsungin frá Fossvogskapellu þriðjudaginn 18. febrúar
kl. 13.30. Fyrir hönd annarra vandamanna
Karl Karlsson, Steinun Vilhjálmsdóttir,
Þrúður Karlsdóttir, Guðmundur Theódórs.
UNIMERCO AS LEITAR AÐ
SÖLUMANNI
fyrir loftþrýstibyssur og skurðarverkfæri
Okkar duglegi sölumaður sem, hefur starfað hjá
okkur í mörg ár, hefur ákveðið að flytja frá íslandi
og því leitum við að manni í hans stað.
Starfið felst í sölu og þjónustu á vörunum sem nefnd-
ar eru hér að ofan. Nagla-, hefti- og þrýstiloftsbyss-
ur sérstaklega ætlaðar bygginga- og umbúðariðnað-
inum og skurðarverkfæri sem henta víða, s.s. í tré-,
húsgagna-, málm-, prent- og fiskiðnaði.
Sölusvæðið er ísland, en einnig er farið í söluferðir
til Grænlands og Færeyja.
Við óskum eftir duglegum, frambærilegum og þjón-
ustusinnuðum starfsmanni með iðn- eða tækni-
menntun og gjarnan reynslu af sölustörfum. Tungu-
málakunnátta: íslenska, enska og/eða danska og
gjarnan þýska.
Nýi starfsmaðurinn þarf að geta unnið markvisst og
sjálfstætt og í nánu samstarfi við aðrar deildir fyrir-
tækisins.
Við bjóðum vel launað, áhugavert framtíðarstarf hjá
traustu fyrirtæki þar sem ábyrgð og vinnugleði leið-
irtil góðrar þjónustu við viðskiptavini og góðs starfs-
umhverfis.
Við gerum kröfu til mikillar vinnu.
Starfið er laust nú þegar, en við bíðum gjarnan eftir
rétta manninum.
Aðsetur: Reykjavíkursvæðið.
Skrifleg umsókn með nauðsynlegum uplýsingum og
tilheyrandi gögnum sendist til:
UNIMERCO A/S
Drejervej 2, DK-7451 Sunds, Danmörk.
Unimerco er framleiðslu- og verslunarfyrirtæki sem starfar á alþjóðleg-
um grundvelli og á fulltrúa í Danmörku, Sviþjóð og á íslandi. Fyrirtæk-
ið selur verkfæri til festinga, skurðarverkfæri og er með slípunarþjón-
ustu fyrir iönaöarfyrirtæki og verkstæði. Starfsmenn eru 210 og hluta-
fjááreign 26 millj. Dkr. '