Morgunblaðið - 16.02.1992, Qupperneq 35
35
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR SUNNUDAGUR 16. FEBRÚAR 1992
ÝMISLEGT
Þjálfarinn
er umboðs-
maður fyrir
skíðaáburð
Það vakti mikla athygli þegar
fraus undir skíðum Hauks
Eiríkssonar í 30 km skíðagöngu á
■BB Ólympíuleikunum í
SigmundurÓ. Albertville, en hann
Steinarsson varð að hætta
skrífar keppni eftir 13 km
Haukur bar rangan
skíðaáburð, miðað við aðstæður,
undir skíði sín.
Þessi ranga ákvörðun um skíða-
áburð vekur vægast sagt furðu
þegar að því er gáð að sænski lands-
liðsþjálfarinn í göngu, Bo Ericsson,
er umboðsmaður fyrir svissneska
skíðaáburðinn Toko í Svíþjóð. Ætla
mætti að maður sem hefur umboð
fyrir skíðaáburð eigi að vita manna
best hvernig áburð er best að nota
hverju sinni. Að umboðsmaðurinn
og þjálfarinn láti lándsliðsmann
smyrja áburð undir skíði st'n, sem
varð til þess að hann gat varla rennt
sér niður brekkur, er óskiljanlegt.
Þess má geta að Rögnvaldur Ing-
þórsson varð í 69. sæt á 1:39.23,9
klst. en vel á undan honum voru
tveir Danir á 1:33,46,2 og 1:
35,00,1 klst. Gaman væri að vita
hvaða skíðaáburð Danirnir notuðu?
Hlaup
sjúkra-
þjálfara
kærð
Greinilegt er að kæruæði hefur
heltekið menn eftir kæru Vík-
inga á framkvæmd bikarleiks Vals
og Víkings á dögunum. Það var
nokkuð sem menn óttuðust. HK-
menn hafa nú ákveðið að kæra
framkvæmd leiks þeirra gegn
Haukum á heimavelli sínum. Kæran
byggist á því að sjúkraþjálfari
Hauka hafi hlaupið inn á völlinn
án leyfts. Það er ekki nema von að
menn velti því fyrir sér hvað verði
næst kært? Ljóst er að ef svo held-
ur áfram fær dómstóll HSÍ nóg að
gera við að vísa frá hinum ótrú-
legustu kærum.
Tryggir
stuðnings-
menní
IMewcastle
Kevin Keegan tók við stjórninni
hjá Newcastle á St. James
Park fyrir rúmri viku, við mikinn
fögnuð stuðningsmanna félagsins.
Þrátt fyrir mikið atvinnuleysi og
fátækt í Newcastle, eru stuðnings-
menn félagsins þeir tryggustu á
Englandi - fylgja sínu félagi gegn-
um sætt og súrt. Þegar aðeins 5.534
áhorfendur komu til að sjá Wimble-
don leika gegn Aston Villa í 1. deild
á laugardaginn var, mættu 29.263
áhorfendur á St. James Park til að
sjá Newcastle, sem var í næst
neðsta sæti í 2. deild, leika gegn
Bristol City. Áhorfendur fögnuðu
endurkomu Keegans - og síðan
langþráðum sigri, 3:0.
Sagan segir að áhangendur New-
castle séu svo tryggir, að þegar
peysur leikmanna liðsins eru þvegn-
ar og hengdar upp til þurrkar á
grindverkinu inn á St. James Park,
komi 3.000 stuðningsmenn ein-
göngu til að horfa á peysurnar.
Kevin Keegan í búningi Newcastle
á árum áður.
HANDKNATTLEIKUR / HM 1995
HSÍ þarf að borga
uppihald fyrir
um 550 manns
Handknattleikssamband ísland
verður að greiða hótelkostnað
fyrir hátt í 550 manns þegar Heims-
meistarakeppnin í handknattleik
verður hér á landi 1995. 24 þjóðir
taka þátt í HM og þarf HSI að
borga hótel og fæði fyrir 20 manna
hóp frá hverri þjóð, eða fyrir 480
leikmenn, þjálfara, liðsstjóra, lækna
og aðstoðarmenn.
Þá þarf HSÍ að greiða uppihald
fyrir um 30 dómara og eftirlist-
menn, ásamt góðum hópi af mönn-
um á vegum Alþjóða handknatt-
leikssambandsins, IHF.
„Uppihald landsliða, dómara og
forráðamanna alþjóða handknatt-
leikssambandsins er lang stæsti lið-
urinn í útgjöldum. Á móti koma
auglýsingatekjur til með að greiða
þennan kostnað," sagði Gunnar K.
Gunnarsson, varaformaður HSÍ.
„Það verður litlu meiri kos.tnaður
með því að fjölga þátttökuþjóðum
úr sexán í tuttugu og fjórar, eins
og verður hér í heimsmeistara-
keppninni. Eftir forkeppnina fara
átta þjóðir strax heim og eftir sext-
án liða úrslitin fara aðrar átta þjóð-
ir heim. Það verða aðeins landslið
fjögurra þjóða sem verða út alla
keppnina. Við fjölgun á þátttöku-
þjóðum verða tekjur þjóðarbúsins
meiri þar sem flestar þjóðir Vestur-
Evrópu, sem standa fremstar í
flokki í handknattleik, draga að
fleiri áhorfendur. Það er reiknað
með að um fimmhundruð frétta-
mann, ljósmyndarar og tæknimenn
koma hingað til lands þegar HM
stendur yfir og allt upp í þrjú þús-
und handknattleiksunnendur.
Hótelpláss á Stór-Reykjavíkur-
svæðinu verða fullnýtt á þessum
tíma, sem er annars lítt nýttur af
ferðamönnum," sagði.Gunnar.
Solbekkir
Fitubrennsluleikfimi fyrir 30-60 ára
Morgunleikfimi
Gufuböð
<* ♦♦
FYRIR FOLK A
MÖRKIN 8 AUSTAST V/5UOURLANDSBRAUT, SÍMI 679400
Fullkomin líkamsræktartæki
Leiðbeinendur á staðnum
Stigvelar