Morgunblaðið - 10.05.1992, Blaðsíða 1
104 SIÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
105. tbl. 80. árg.
SUNNUDAGUR 10. MAI1992
PRENTSMIÐJA MORG UNBLAÐSINS
VIÐ TJÖRNINA
Morgunblaðið/Júlíus
Júgóslavía:
Hreinsanimar í hemum til
marks um nýjan fríðarvilja
Stjómin 1 Belgrad vill friðmælast við Vesturlönd
Belgrad, Sarajevo. Reuter, Daily Telegraph.
LITIÐ er á víðtækar og fyrirvaralausar hreinsanir í júgóslavneska sambandshernum
sem merki um, að stjórnin í Belgrad vilji friðmælast við Vesturlönd, kalla herinn
heim frá Bosníu-Herzegovínu og segja skilið við sína kommúnísku fortíð. Herforingj-
arnir 40, sem voru settir á eftirlaun á föstudag, voru flestir tengdir Kommúnista-
bandalagi fyrrverandi hershöfðingja, sem ekki vildu sætta sig við sundurlimun júgó-
slavneska sambandsríkisins.
„Hreinsanirnar eru liður í þeirri áætlun
Belgradstjórnarinnar að verða við kröfum
vestrænna þjóða og eiga að bæta
samningsstöðu Slobodans Milosevics for-
seta gagnvart RÖSE, Ráðstefnunni um
öryggi og samvinnu í Evrópu, Bandaríkjun-
um og Evrópubandalaginu,“ sagði Bran-
islav Milosevic, stjórnmálaskýrandi i
Belgrad. Bandaríkjastjórn hefur krafist
þess, að serbneski herinn verði kallaður
heim frá Bosníu en Blagoje Adzic, yfirmað-
ur herráðsins og starfandi varnarmálaráð-
herra, og Milutin Kukanjac, yfmnaður hers-
ins í Bosníu, neituðu að verða við því. Þeir
voru í herforingjahópnum, sem rekinn var
á föstudag.
Vuk Obradovic hershöfðingi, sem flestir
telja næsta varnarmálaráðherra, sagði í gær
á fundi með foreldrum, sem vilja fá syni
sína leysta undan herþjónustu, að serbneski
herinn yrði kallaður heim frá Króatíu þegar
friðargæslulið Sameinuðu þjóðanna kæmi á
vettvang en það verður um miðjan mánuð-
inn. Stjórnin í Belgrad tilkynnti einnig í
raun brottflutning frá Bosníu í síðustu viku
og virðist sem andstaða herforingjanna við
hann hafi tekið af skarið um hreinsanirnar.
Jerko Doko, vamarmálaráðherra Bosníu,
sagði í gær, að ekki væri tímabært að fagna
hreinsununum innan serbneska hersins en
kvaðst vona, að samstarf tækist með
Bosníustjórn og nýjum yfirmanni serbneska
herráðsins, Zivota Panic hershöfðingja. Ótt-
ast margir, að komist los á yfirstjórn Serba-
hersins í Bosníu muni fjölmennar sveitir
úr honum ganga til liðs við skæruliðasveit-
ir Serba í landinu.
í Helsinki eru 52 aðildarríki RÖSE að
ræða um ástandið í Bosníu og vill Banda-
ríkjastjórn, að hin nýja Júgóslavía eða
stjómin í Belgrad verði svipt sæti sínu á
ráðstefnunni vegna hernaðarins á hendur
nágrönnum sínum. Rússiandsstjórn er hins
vegar andvíg brottrekstri.
Vestrænn „óþjóða-
lýður“ í Moskvu
SENDIHERRA Bandaríkjanna í
Moskvu, Robert Strauss, reynir lítið til
að temja sér kurteisistal stjórnarerind-
reka. Þetta kemur meðal annars fram
í viðtali við hann, sem birtist í banda-
ríska tímaritinú Texos Monthly, þar
sem hann lýsir erlendum fjármála-
mönnum í Moskvu sem „mesta sam-
safni af óþjóðalýð í heiminum". Hann
líkti jafnframt fjármálamönnunum við
ævintýramenn í Villta
vestrinu. „Þetta er eins
og í gömlu olíuborgun-
um í Texas, stanslaus
straumur glæpamanna
og vafasamra við-
skiptavina,“ hélt hann
áfram. Um þetta eru
þó skiptar skoðanir, því
þegar starfsmaður
breska sendiráðsins í Moskvu var
spurður um þessi ummæli svaraði
hann: „Strauss sendiherra hlýtur að
ala manninn á mjög spennandi börutn.
Þetta er ekki það sem við höfum séð.“
Fá ekki alnæmis-
sjúklingar DDT?
DAN Quayle, varaforseti Bandaríkj-
anna, heimsótti sjúkrahús í New York
í vikunni og reyndi að sýna þekkingu
sína á alnæmislyfinu AZT. „Hvernig
er það,“ sagði hann við hóp lækna,
„látið þið sjúklingana ykkar taka inn
DDT?“ DDT er skordýraeitur, sem
hefur verið bannað þar sem það veldur
umhverfismengun.
Hákarlagall lækn-
ar unglingabólur
GRAFTARBÓLUR í andliti eða
unglingabólur eins og þær eru oft
nefndar geta verið erfitt mál og þegar
verst gegnir skilja þær eftir sig ör, sem
hverfa seint eða aldrei. Nú hillir hins
vegar undir nokkurn sigur í barátt-
unni við þennan vágest en vopnið gegn
honum er sótt á heldur ólíklegan stað
— í gallblöðru hákarla. „Gallið dregur
úr fitumyndun í húðinni og þar með
úr bólumynduninni," sagði dr. David
Fenton, sem starfar við St. Thomas-
sjúkrahúsið í Bretlandi, en á ráðstefnu
húðsjúkdómafræðinga í Perth í Astral-
íu skýrði hann frá rannsóknum sínum
á áhrifum gallsins á 15 sjúklinga. Var
virka efnið unnið úr gallinu og því síð-
an úðað í andlitið tvisvar á dag. Eftir
tveggja mánaða notkun höfðu 14 sjúk-
linganna fengið verulega bót og á sum-
um hurfu bólurnar alveg að sögn Fent-
ons en þegar meðferðinni var hætt
tóku þær sig upp og voru komnar í
fyrra horf eftir tvo mánuði.
Flækingar
á
HAVEL
EIHN í HEIMINUM
EKKILENGUR FJARLÆG
HUGSUN A0 SJÁ
ÍSLENSKA AÐILA
í ÚTGERÐ ERLENDIS
10
GRÆNLAND