Morgunblaðið - 10.05.1992, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 10.05.1992, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR SUNNUQAGUR 10. MAÍ 1992 SIGLINGAR / AMERÍKUBIKARINN ; eyjamárans og SffiAUimBSB stórfokkuna tnÖli£^A1&5iðpSS£ tækið Montedison stendur á bak við þátttöku skútunnar í Amer- íkubikarnum og hefur varið jafnvirði 6 milljarða ÍSK til und- irbúnings þátttöku ítðlsku áhafnarinnar. fnonTÉi rískar skútur hófu keppnil 4. anúar um hver Deirra ver Ameríku- Dikarinn (t.h.). Níu skútur frá átta þjóðum hófu keppni 25. janúar um hver [Deirra siglir síðan einvígi um bikarinn við bandarísku skútuna, en ein- vígi þeirra hófst í gær. Broutarlengd Sjómílur Keppnis brautin RÁS-/ENDAMARK Kjölurinn er leynivopn skútanna yg hvílir jafnan mikil j yfir hönnun þeirra 13) StórskautsmaSur 14) StýrismaSur 15) „Taktíker" 16) SiglingafræSingur 17) Eigandi/skipstjóri aíZ>l) StafnmaSur 2) Framdekksmaður 3) Falur 4) BelgskautamaSur 5-10) Vindumenn 11-12) Fokkuskautsmenn San Diego-flói Keppnisstaður AHOFNIN Ójafn leikur Dennis Conners og Bills Koch Conner og Koch háðu ójafnan leik frá bytjun. Sést það best í því að Conner tókst einungis að raka sam- an 15 milljónir dollara, jafnvirði 900 milljóna íslenskra króna (ÍSK), til að standa straum af kostnaði sínum. Var hann fórnarlamb efnahags- kreppunnar í Bandaríkjunum, fjár- fúlgur reyndust ekki eins auðsóttar til stórfyrirtækja og áður þegar hann gat valið milli styrktaraðila. Milli þess sem hann stóð við stýri skútu sinnar var hann á þönum um Banda- ríkin þver og endilöng til að verða sér úti um aukinn fjárstuðning. Fór hann til dæmis tvær ferðir þeirra erinda til New York í vikunni fyrir undanúrslitaeinvígið við Koch. Koch brúkaði hins vegar 65 millj- ónir dollara, jafnvirði 3,9 milljarða ÍSK, til þess að komast í úrslitin. Sú upphæð nemur um 10% af hreinni eign Koch. Mest af fénu, eða um 45 milljónir dollara, koma úr eigin vasa Koch. Afganginn fékk hann hjá styrktaraðilum. Fjármunirnir endurspegluðust í aðstöðu skútufélaganna tveggja við höfnina í San Diego. Að fara úr verbúð Koch til Conners var eins og að fara af höfuðbóli yfir á hjáleigu. Vegna takmarkaðs fjármagns gat Conner einungis smíðað eina skútu en Koch fjórar sem hann notaði á ýmsum stigum undankeppninnar. Og raunar má segja að Koch hafi notað fimm skútur því hann keypti notaða franska skútu til æfinga í fyrrasumar en seldi hana áður en keppnin hófst í janúar. Hefur Koch því haft mun meiri möguleika til að reyna ýmsar smíðisgerðir og endur- bæta þær í ljósi þess hvernig þær reyndust við ýmsar aðstæður til að koma eins vel undirbúinn til lokaein- vígisins og hugsast getur. Conner sigldi hins vegar sömu skútunni, Stars & Stripes, frá fyrsta degi og varð því að láta sér nægja að gera á henni endurbætur milli umferða en kappsiglingin fer fram í nokkrum lotum. ítalir treysta á mátt peninganna Þá hefur Koch getað leyft sér þann munað að borga áhafnarlimum sínum kaup og eru árslaun hvers þeirra um 100.000 dollarar eða 6 milljónir ÍSK. Conner hafði hins veg- ar eingöngu sjálfboðaliða í áhöfn en þrátt fyrir það var valinn maður í hveiju rúmi og áhöfnin líklega sú reynslumesta í keppninni. Þrír skip- veijanna hafa verið með honum í Nær Feneyja- márinn Ameríku- bikamum til Evrópu eftir 141 árs hlé? Peningaskorturvarð Dennls Conner aðfótakefli ÓGJÖRNIIMGUR er aö spá um hver fer með sigur af hólmi í mestu siglinga- keppni heims, Ameríkubikarnum, en úrslitaeinvígi keppninnar hófst í gær undan Lómatanga við San Diego i'Kaliform'u. í boði er 141 ársgömul silfur- kanna sem keppt hefur verið um frá upphafi vega en engin peningaverð- laun. Það sem skiptir kappsiglarana þó mestu máli er þó heiðurinn sem sigri fylgir og að því leyti ræður sannur íþróttaandi ferðinni þó tiikostnað- ur hvors skútufélags sem keppir sé á bilinu 4-6 milljarðar íslenskra króna. Spurningin er hvort það komi i hlut olíuauðkýfingsins Bill Koch frá Kansas- ríki að verja bikarinn fyrir hönd Bandaríkjanna á skútunni America3 en fjög- ur undanfarin skipti hefur sá heiður fallið gardínukaupmanninum Dennis Conner frá San Diego í skaut. Vann Koch einvígi þeirra um réttinn til að verja bikarinn sem Conner hefur fjórum sinnum unnið og einu sinni tapað. Hann hefur átt stærstan þátt í að breyta keppninni í þá vi'sindamennsku og „bisness" sem nú ræður ríkjum og þess vegna er það kaldhæðni örlag- anna að helsta fótakefli hans nú var peningaskortur. Vart hafði hann játað sig sigraðan er hann lýsti því yfir að hann mundi mæta til leiks í næstu keppni, árið 1995. Paul Cayard Fullþ-úi áskorenda verður ítalska skútan II Moro di Venezia eða Feneyjamárinn en hún lýtur stjórn annars Bandaríkja- Áaúst manns, Pauls Pierre Ásgeirsson Cayards. Hann er skrifar fæddur í San Fran- cisco, franskur í aðra ættina og var í áhöfn einnar banda- rísku skútunnar sem þátt tók í keppninni 1986-87 en þá fór hún fram við Fremantle í Ástralíu. Þjóð- hollusta Cayards hefur verið dregin í efa fyrst hann siglir ítalskri skútu en vinni hann bikarinn fyrir Itali gæti hann allt eins reynt að ná hon- um úr höndum þeirra aftur fyrir hönd Bandaríkjamanna þegar keppnin fer næst fram, árið 1995. Feneyjamárinn er fyrsta evrópska skútan sem siglir til úrslita um Evr- ópubikarinn í 28 ár eða síðan enska skútan Sovereign sigldi móti banda- rísku skútunni Constellation við Rhode Island 1964. Keppnin um Ameríkubikarinn fer nú fram í 28. sinn en hún var fyrst háð árið 1851 við eyna Wight við suðurströnd Englands. Skonnorta í eigu siglingafélags í New York, America, sigldi þá til Englands gagngert til keppni um eins meters háa og 4,1 kílóa silfurkönnu, Hundr- að gíneu bikarinn, eins og verðlaun- in voru nefnd í fyrstu. Vann banda- ríska skonnortan 16 enskar duggur auðveldlega í eins dags keppni 12. ágúst 1851. Upp frá því var kannan nefnd Ameríkubikarinn og er verð- launagripurinn orðinn 141 árs gam- all. Fór keppnin um könnuna fram við austurströnd Bandaríkjanna þar til 1983 en þá var Australia II, skúta í eigu Ástralans Alans Bonds, fyrst til að vinna bikarinn úr hönaum Bandaríkjamanna. Við það tækifæri öðlaðist Dennis Conner þann vafa- * sama heiður að verða fyrstur Banda- ríkjamanna til að tapa bikarnum en ijórum árum seinna endurheimti hann silfurkönnuna eftirsóttu á skútu sinni America II. Keppti hann þá í nafni siglingafélagsins í San Diego þar sem New York siglinga- félagið skipti um skútustjóra eftir að hann tapaði bikarnum ’83. Eng- inn bandarísku skútustjóranna hafði hins vegar roð við Conner við Fre- mantle ’87 en þá var Paul Cayard einmitt í áhöfn skútu New York- félagsins. / Stoppað í götin / í keppnisreglunum V í keppninni við Fremantle í Ástralíu att Conner kappi við áströlsku skútuna Kookaburra II en stjórnandi henni Iain Murray féll fljótt úr keppni nú. Nýsjálenski auðkýfmgurinn Michael Fay skoraði á Conner og fékk því framgengt með dómsúrskurði að nýtt einvígi færi fram milli þeirra tveggja rösku ári seinna. Hafði hann smíðað risa- skútu á leynd og ætlaði að ná miklu forskoti á Conner sem hefði tæpast haft tíma til að smíða sams konar skútu, hvað þá að reynslusigla henni. En Conner sá við honum og nýtti sér göt í reglum keppninnar, mætti á hraðskreiðri tvíbytnu og var ekki að sökum að spyija; einvígið var eins og leikur kattarins að músinni. Ameríkubikarinn setti niður við þessa uppákomu og náðist sam- komulag um nýjar leikreglur þar sem skútustærðin var fastákveðin og tekið fyrir klæki af því tagi sem Fay beitti. Eftir stríð var jafnan siglt á svonefndum 12-metra skútum en Bill Koch nú eru skúturnar 30% léttari en samt 15% lengri og með 40% stærri segl- flöt. Að þessu sinni hófst keppnin um Ameríkubikarinn 14. janúar sl. og þegar undankeppninni lauk sl. laug- ardag höfðu 10 skútur frá átta þjóð- um lagt 163 kappsiglingar að baki, aldrei færri en tvær í hverri. Keppn- isbrautin er 22,6 sjómílur eða 41,5 km og hefur það yfirleitt tekið skút- urnar nálægt þremur stundum að Ijúka henni. Sama braut verður not- uð í úrslitaeinvíginu en hún-skiptist í átta leggi, ýmist hliðarvinds-, mót- vinds- eða undanvindsleggi. Annars vegar var keppt í flokki áskorenda en hins vegar í flokki veijenda og þar glímdi Dennis Conner við fjórar skútur Bills Koch. AMERlKUBiKARiNN 1992 LA.CC 12-melra Lengd 75fet 65fet Sjólina 57fet 45fet 8reidd 18fet 12fet Djúprista 13fet 9fet Masturshæð NOfet 86fet Aðalseql oq 279 186 fckka ferm. ferm. Belgsegl 418 ferm. 232 ferm. Skipsþyngd 16,8 25,4 tonn tonn Ný skúfutegund, svonefnd lACC-gerS, er nofuS til keppni að þessu sinni og kemur . staS svonefndra 12 metra skúta. GanghraSi nýju skút- anna er tvöfalt meiri en 12 metra skútanna sem . Ijeppt var á í 30 ár. Mission-flói 'í/' REUTER Bandarikin

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.