Morgunblaðið - 10.05.1992, Síða 6
6 FRETTIR/INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. MAÍ 1992
Tap á KÁ 38
milljónir í fyrra
Aðalfundur Kaupfélags Árnesinga var haldinn á Hótel Selfossi 7.
maí sl. Fundinn sátu um 130 manns.
I skýrslum stjórnarformanns og
kaupfélagsstjóra kom fram að kaup-
félagið var rekið með nokkru tapi á
árinu 1991. Nam tapið tæpum 38
milljónum eða um 1,3% af heildar-
veltu. Heildarvelta kaupfélagsins var
árið 1991 2.918,1 milljón og jókst
um 5,69% frá árinu á undan. Fjár-
fest var fyrir 67,4 milljónir og voru
aðal fjárfestingarverkefnin
byggingavöruverslunin Húsey í Vest-
mannaeyjum og endurbygging kjöt-
vinnslu KÁ á Seifossi. Bókfærðar
afskriftir námu kr. 53,1 milljón.
Eiginfjárhlutfall lækkaði frá 27,4%
í árslok 1990 í 25,0% í árslok 1991,
en veltufjárhlutfall batnaði lítið eitt
á árinu 1991 og hækkun varð á
hreinu veltufé.
Söluhæstu verslunardeildir Kaup-
félags Ámesinga árið 1991 voru
Vömhús KÁ með 823,2 milljónir,
verslun KÁ í Þorlákshöfn með 136,9
milljónir og verslunin í Hveragerði
þar sem salan var 100,9 milljónir.
Sölutölur eru tilgreindar án VSK.
Af iðnaðar- og þjónustudeildum var
Selfoss apótek með sölu að upphæð
85,2 milljónir, Brifreiðasmiðjur KÁ
71,5 milljónir og Trésmiðja KÁ 69,3
milljónir.
Á aðalfundinum var samþykktum
Kaupfélags Ámesinga breytt til sam-
ræmis við hin nýju Samvinnulög
m.a. sett inn í samþykktimar heim-
ildir til stofnunar B-deildar stofn-
sjóðs. Þá var felit niður ákvæði um
takmörkun stjómarsetu starfsmanna
kaupfélagsins. Varastjómarmenn
verða nú þrír í stað eins áður og er
aukningin einn úr V-Skaftafells-
sýslu og annar frá Vestmannaeyjum.
Úr aðalstjóm KÁ áttu að ganga
Þórarinn Siguijónsson stjómarform-
aður og Valur Oddsteinsson, Valur
var endurkjörinn en Þórarinn gaf
ekki kost á sér til endurkjörs og var
nýr stjómarmaður kosinn Þorfinnur
Þórarinsson. Á fundinum voru Þór-
ami Siguijónssyni þökkuð heilla-
dijúg störf fyrir Kaupfélag Ámes-
inga. Hinir varastjómarmenn voru
kosnir Tómas Pálsson úr V-Skafta-
fellssýslu og Jóhann Bjömsson frá
Vestmannaeyjum. Garðar Eiríksson
var kosinn skoðunarmaður í stað
Amórs Karlssonar sem ekki gaf kost
á sér til endurkjörs. Varaskoðunar-
menn voru kosnir María Hauksdóttir
til eins árs í stað Þorfinns Þórarinss-
onar sem færðist upp í aðalstjórn og
þá var Hansína Stefánsdóttir endur-
kjörin varaskoðunarmaður. Löggiltur
endurskoðandi var kosinn Guðmund-
ur Jóelsson.
Morgunblaðið/Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir
Kappsamir foreldrar í Foreldra- og kennarafélagi Hvolsskóla við
smíðar á leiktækjum við skólann.
Hvolsvöllur:
Foreldrar
smíða
leiktæki
Hvolsvelli.
FORELORA- og kennarafélag
Hvolsskóla hefur undanfarið
staðið fyrir smíði á veglegum
leiktækjum við skólann. Hafþór
Bjamason sá um hönnun á leik-
tækjunum í samvinnu við
nokkra foreldra og þykir börn-
unum mikið til leiktækjanna
koma og una sér við leik dag-
langt.
Við útfærslu á tækjunum var
lögð áhersla á að þau stuðluðu
að bættri líkamsþjálfun barnanna
en ekki þykir veita af slíku í dag.
Nokkrir félagar í foreldra- og
kennarafélaginu hafa eytt miklum
tíma í verkið.
- S.Ó.K.
Rekstur ríHissjóðs á fyrsta ársfjórðungi 1992:
Afkoman er 900 mílljónum
króna betri en áætlað var
REKSTRARAFKOMA ríkissjóðs
var rúmlega 900 milljónum króna
betri fyrstu þijá mánuði þessa árs
en áætlað hafði verið samkvæmt
niðurstöðu fjármálaráðuneytisins
um afkomu ríkissjóðs á fyrsta
ársfjórðungi 1992 sém fjármála-
ráðherra kynnti í ríkisstjórn á
föstudag. Rekstrarhalli ríkissjóðs
fyrstu þrjá mánuði ársins nam
tæplega 4,6 milljörðum kr. og er
þriðjungi minni en á sama tíma í
fyrra, en þá nam hann 6,6. millj-
örðum kr. Friðrik Sophusson fjár-
málaráðherra segir að þetta sé
viðunandi niðurstaða en varhuga-
vert sé að draga of víðtækar
ályktanir af þremur fyrstu
mánuðum ársins.
„Ég bendi á að á næstu mánuðum
koma upp vandamál sem ekki voru
séð fyrir. Kjarasamningarnir gætu
kostað ríkissjóð á annan milljarð
króna en sem betur fer verða vaxta-
Tyrkneska forræðismálið:
Mamma ykkar er dáin
- sagði faðirinn við dætur Sophiu Hansen
SOPHIU Hansen tókst með eftirgangsmunum að éyða nokkrum
klukkustundum með dætrum sínum í Istanbúl í Tyrklandi siðast-
liðinn Iaugardag. Henni hefur verið dæmdur réttur til að vera
ein með systrunum 7 tíma í senn tvo laugardaga i mánuði en
faðir þeirra sættir sig ekki við umgengnisrétt hennar. Sophia
segir að telpurnar hafi verið glaðari að sjá hana og verið fljótari
að opna sig en áður.
Sérsveit lögreglu var fengin til
að sækja telpurnar til föður þeirra
sl. laugardag en þegar komið var
að húsi hans reyndist hann ekki
vera heima. Því var hins vegar
skilað til Sophiu að hann biði fyr-
ir framan verslanamiðstöð í ná-
grenninu og reyndist það vera
rétt. Sophia segist ekki skiija af
hverju hann hafi farið að heiman
enda hafí lögfræðingur hans sagt
honum að hann skildi vera heima
á þessum tiltekna tíma.
Föður telpnanna var gerð grein
fyrir því að Sophia hefði rétt á
því að taka telpumar og vera með
þær án hans afskipta á hóteli eða
annars staðar í Istanbúl og svo
fór að hann lét þær af hendi í
lögreglubíl sem fór með þær og
móður þeirra á hótel í nágrenninu.
Sophia segir að faðir telpnanna
hafí ekið á eftir lögreglubílnum
að hótelinu.
„Þegar þangað var komið byij-
aði hann á því að heimta að við
yrðum niðri í borðsalnum þannig
að hann gæti séð til okkar en ég
fékk hann til að samþykkja að ég
færi með þær upp á herbergi með
því skilyrði að hann fylgdi okkur
þangað. Upphaflega hafði ég hins
vegar ekki ætlað að láta hann
hafa herbergisnúmerið til þess að
við gætum verið í friði,“ segir
Sophia en faðir telpnanna vildi
láta þær lofa sér að hringja á
mínútu frestu. Samkomulag varð
hins vegar um að þær hringdu í
hann á klukkutíma fresti.
Starfsmanni mútað
Eftir að hafa verið inn á her-
berginu dálitla stund ákvað Sop-
hia að fara með dætur sínar út
af hótelinu. „Lögfræðingurinn
minn og bróðir höfðu þá náð hon-
um niður og fengið hann til að
borða með sér en skyndilega var
réttur þráðlaus sími á borðið og
honum tilkynnt að ég hefði farið
með stelpurnar út af hótelinu.
Kom þá í ljós að hann hafði mútað
einhveijum starfsmanni hótelsins
til að hafa gætur á okkur og til-
kynna okkur ef við fasrum út,“
sagði Sophia. Tíðindin hleyptu illu
blóði í pabba telpnanna. Hann
hrópaði að eitrað hefði verið fyrir
honum og kærði Sophiu fyrir að
hafa rænt dætrum þeirra.
Kærð fyrir barnsrán
„Hann hafði ekki fyrir því að
draga kæruna til baka þó svo að
ég skilaði stelpunum á réttum
tíma. Við komumst að því þegar
við ætluðum að yfírgefa landið
daginn eftir. Um leið og flett var
upp á nafni mínu í vegabréfsskoð-
uninni á flugvellinum varð allt vit-
laust. Verðirnir sögðu að ég hefði
framið bamsrán en ég spurði á
móti hvar börnin væru þá. Þeir
vildu fá mig með sér en ég neit-
aði að fara nema ég hefði lögfræð-
ing minn með mér og Rósa, systir
mín, komst til að sækja hann þar
sem hann hafði kíkt í búðir rétt
hjá. Farið var með okkur inn í
herbergi með 14 lögreglumönnum.
Lögfræðingur minn gerði grein
fyrir málinu gegnum túlk og ég
sýndi fram á að ég hefði umgengn-
isrétt yfír telpunum. Hefði hitt þær
deginum áður og farið með þær
út án hans vitundar enda bæri
mér ekki að tilkynna hor.um slíkt.
Á endanum urðu lögreglumenn-
irnir fullir meðaumkunar og við
náðum flugvélinni eftir lz/0 tíma
töf á flugvellinum," sagði Sophia.
Faðir telpnanna fékkst til að
eiga orðaskipti við Sophiu þegar
hún skilaði telpunum af sér. „Ég
hélt að eitthvað af viti myndi koma
út úr honum en hann réðst að
okkur og spurði hvað við hefðum
eiginlega verið að gera. Hann
væri gersamlega óður,“ segir Sop-
hia. „Hann talaði líka til stelpn-
anna og sagði þeim að ég væri
ekki mamma þeirra heldur aum-
ingi og hóra. Mamma þeirra væri
dáin. Ég spurði hann þá að því
hvort hún hefði verið góð og hann
sagði að hún hefði víst einu sinni
verið góð. Á endanum fór ég því
ég vildi ekki hafa svona tai fyrir
börnunum og sagði að nú væri
runnið upp hans síðasta tækifæri.
Ef hann héldi áfram að þjarma
að þeim sæi ég til þess að hann
fengi þær ekki aftur. Þá kyssti
ég þær þrátt fyrir að hann bann-
Sophia Hansen.
aði mér það en þær sýndu engin
viðbrögð."
Vil þakka öllum persónulega
Sophia segir að heimili föður
bamanna megi líkja við geðveikra-
hæli. „Og meðan læknar eru 6-10
ár að mennta sig og fá áhættu-
þóknun til að geta meðhöndlað
svona fólk þá eru tvær saklausar
barnssálir látnar lifa við þessar
aðstæður og íslensk stjórnvöld
gera sama sem ekkert í málinu.
Eg veit ekki önnur dæmi um að
íslendingar erlendis séu látnfr þola
svona. Ef jarðskjálftar verða eða
óeirðir bijótast út eru þeir fengnir
heim, borgað fyrir þá heim, allt
gert fyrir þá,“ sagði Sophia en tók
fram að hún væri þakklát fyrir
stuðning frá utanríkisráðuneytinu
og Flugleiðum. Hún væri einnig
afar þakklát öllum þeim einstakl-
ingum sem hefðu látið fé af hendi
rakna henni til aðstoðar. Henni
fyndist leiðinlegt að geta ekki
þakkað öllum persónulega.
Söfnunarreikningur Sophiu er
nr. 16005 í Grensásútibúi Lands-
banka.
gjöldin væntanlega lægri en við
höfðum gert ráð fyrir,“ sagði Friðrik
í samtali við Morgunblaðið.
Hrein lánsfjárþörf ríkissjóðs nam
rúmlega 5,3 milljörðum á fyrsta árs-
fjórðungi samanborið við 8,2 millj-
arða í fyrra. Innheimtar tekjur ríkis-
sjóðs á þessu tímabili námu 23 millj-
örðum kr., sem er rúmlega 100 millj-
ónir kr. umfram áætlun en hækkun-
in milli ára nam 13%. Á sama tíma
var almenn hækkun verðlags 6-7%
þannig að innheimta jókst nokkuð
að raungildi fyrstu mánuðina frá
fyrra ári.
Friðrik sagði um horfur fyrir árið
allt að gert væri ráð fyrir að minni
velta skilaði lægri tekjum en við var
búist og einnig væri nú talið að sala
eigna skilaði ekki öllum þeim tekjum
sem ráð var fyrir gert.
Útgjöld ríkissjóðs á fyrsta árs-
íjórðungi voru tæplega 800 milljón-
um kr. undir áætlun. Á föstu verð-
iagi hafa útgjöld ríkissjóðs lækkað
um 1,1 milljarð kr. á milli ára eða
um 3,9%. Heildarlántökur ríkissjóðs
námu 6,3 milljörðum sem fóru að
mestu leyti fram með sölu ríkisverð-
bréfa á markaði.
í skýrslu fjármálaráðuneytisins
segir m.a. að á gjaldahlið hafí þegar
komið fram vísbendingar um vanda-
mál, sem bregðast þurfi við, m.a.
bendi tölur um atvinnuleysi til að
greiðslur atvinnuleysisbóta verði
umfram áætlun. „Loks má nefna að
niðurstöður útgjalda eftir fyrsta árs-
fjórðung benda til að enn hafi nokk-
ur ráðuneyti ekki gripið til fullnægj-
andi aðgerða til að tryggja útgjalda-
markmið fjárlaga. Sem dæmi má
nefna sjúkratryggingar, sjúkra-
stofnanir, málefni framhaldsskóla,
embætti sýslumanna og ýmis verk-
efni umhverfisráðuneytis,“ segir í
skýrslu ráðuneytisins.
„Aðalatriðið er að þótt ríkisstjóm-
in nái í meginatriðum fram markmiði
sínu í ríkisfjármáium á þessu ári
má hvergi slaka á ef okkur á að
takast að halda verðlagi i skefjum
með stöðugu gengi og lágum vöxt-
um,“ sagði Friðrik. „Ríkisstjórnin
stendur nú frammi fyrir fjárlagagerð
næsta árs en á yfírstandandi ári er
gert ráð fyrir 4 til 5 milljarða króna
halla. Til lengdar verður aldrei
viðunandi að reka ríkissjóð með
halla. Ríkisstjórnin á eftir að vinna
síðari hluta verksins og sá verká-
fangi verður áreiðanlega erfiðari en
sá fyrri. Því verðum við að láta hend-
ur standa fram úr ermum,“ sagði
hann.. .