Morgunblaðið - 10.05.1992, Page 8
8
MORGUNBLAÐIÐ DAGBOK SÚNNUDAGUR 10. MAÍ 1992
IT\ \ í~^er sunnudagur 10. maí, 131. dagur ársins
1992. Árdegisflóð í Reykjavík kl. 0.07 og
síðdegisflóð kl. 12.56. Fjara kl. 6.39 og kl. 19.06. Sólarupp-
rás í Rvík er kl. 4.28 og sólarlag kl. 22.22. Myrkur kl.
23.50. Sólin er í hádegisstað í Rvík kl. 13.24 og tunglið er
í suðri kl. 20.37. (Almanak Háskóla íslands.)
Ég vil vegsama þig að eilífu, því að þú hefur því til vegar
komið. (Sálm. 52,11.)
ÁRNAÐ HEILLA
munda K. Júlíusdóttir fyrr-
um húsfreyja í Skjaldartröð
á Hellnum, Austurbergi 2,
Rvik. Eiginmaður hennar var
Valdimar T. Kristófersson
óðalsbóndi. Hann lést fyrir
23 árum. Þeim varð 9 bama
auðið, 6 em á lífí. Afkomend-
ur hennar em nú 64 talsins.
Hún tekur á móti gestum í
dag, afmælisdaginn, kl.
14-17 í Hreyfilshúsinu,
Fellsmúla 24.
rjf\kva. afmæli. í dag, 10.
fl vl þ.m., er sjötugur
Guðmundur Guðmundsson
bifreiðastjóri, Skriðustekk
12, Rvík. Kona hans er Anna
Pálmadóttir. Þau era stödd í
Þýskalandi hjá dóttur sinni,
Auði, og tengdasyni. Hún á
þrítugsafmæli í dag.
/\ára afmæli. Næst-
O U komandi þriðjudag,
12. maí, er sextugur Hilmar
Jónsson, Keflavík. Hann
tekur á móti gestum í dag,
sunnudag, í húsi Karlakórs
Keflavíkur við Vesturbraut
kl. 16-19.
FRÉTTIR/
MANNAMÓT
í DAG er 3. sd. eftir páska.
Þennan dag árið 1940
gengu breskir hermenn^ á
land hér og hernámu Is-
land. I dag er eldaskildagi.
Um það segir í Stjörnu-
fræði/Rímfræði: „Þann dag
var vepja, að bændur skil-
uðu „úr eldunum", þ.e. skil-
uðu húsdýrum, sem þeim
hafði verið gert að skyldu
áð hafa á fóðrum yfir vet-
urinn.“ I dag er mæðradag-
urinn. Á morgun, 11. maí,
er síðasti dagur vetrarver-
tíðar á Suðurlandi, segir i
sömu heimildum.
HÁSKÓLI íslands. í tilk. frá
menntamálaráðuneytinu í
Lögbirtingi segir frá skipan
eftirtalinna lækna í hlutastöð-
ur við læknadeildina til næstu
fimm ára: Árni Kristinsson í
dósentsstöðu í hjartasjúk-
dómafræði; Bjarni Þjóðleifs-
son í dósentsstöðu i melting-
arsjúkdómum; Guðmundur
Oddsson í lektorsstöðu í klín-
ískri lyfjafræði; Guðmundur
Þorgeirsson í dósentsstöðu í
LÁRÉTT: — 1 skálk, 5 hækka, 8 eldar, 9 dreki, 11 fasta,
14 fín, 15 aldir, 16 afræð, 17 aur, 19 blær, 21 syng, 22
rósunum, 25 rói, 26 áann, 27 aur.
LÓÐRETT: — 2 kær, 3 lek, 4 klifra, 5 hafnar, 6 æra, 7
kot, 9 drabbar, 10 eldfæri, 12 streyma, 13 auðugur, 18
unun, 20 ró, 21 SU, 23 sá, 24 NN.
EES-samningurinn undirritaður
Utanríkisráðherrar Evrópubandalagsins (EB) og Fríverslunarbandalags Evrópu (EFTA) undirrituðu á laugar-
dag samninginn um Evrópskt efnahagssvæði í borginni Oportó í Portúgal.
lyfjafræði; Halldór Jóhanns-
son í dósentsstöðu í hand-
læknisfræði; Jakob Kristins-
son í dósentsstöðu í eiturefna-
fræði; Jón Hjaltalín Ólafsson
í dósentsstöðu í húð- og kyn-
sjúkdómum; Jón G. Stefáns-
son í dósentsstöðu í geðlækn-
isfræði; Reynir Tómas Geirs-
son í dósentsstöðu í fæðinga-
og kvensjúkdómafræði;
Sverrir Bergmann í dósents-
stöðu í taugasjúkdómafræði;
Þorsteinn Sv. Stefánsson í
dósentsstöðu í svæfipgalækn-
isfræði; og Lúðvík Ólafsson í
hlutastöðu lektors í heimilis-
læknisfræði.
DALASÝSLA. Sýslumaður-
inn, Friðjón Þórðarson, tilk.
að skv. lögum um fuglaveið-
ar/fuglafriðun hafi verið
ákveðið að friðlýsa allt æðar-
varp innan marka Dalasýslu.
„Á sama hátt og gert var
árlega á manntalsþingum í
hverjum hreppi frá fornu
fari.“ Jafnframt er friðlýst
lögnum, látrum og varplönd-
um öllum, sérstaklega minnt
á lagaákvæði um friðhelgi
eignarréttar og vemdun ísl.
náttúm og lífríkis, segir í tilk.
sýslumannsins, sem birt er í
Lögbirtingi fyrir skömmu.
BÚSTAÐASÓKN. Kvenfé-
lag sóknarinnar heldur fund
mánudagskvöldið í safnaðar-
heimilinu kl. 20. „Græna fjöl-
skyldan“ segir frá. Barnakór
Bústaðakirkju kemur í heim-
sókn. Einnig koma í heimsókn
konur úr Kvenfélagi Lága-
fellssóknar. Skemmtiatriði.
Rætt verður um væntanlegt
sumarferðalag félagskvenna
'og verða þátttakendur skráðir
á fundinum.
FÉLAG eldri borgara. í dag
kl. 14 spiluð félagsvist í Ris-
inu og ki. 20 dansað í Goð-
heimum. Mánudag er opið í
Risinu kl. 13-17. Lögfræð-
ingur félagsins er til viðtals
á þriðjudag. Panta þarf tíma.
HAFNARFJÖRÐUR. Slysa-
varnadeildin Hraunprýði.
Mánudagur er kaffi- og
merkjasöludagur. Kaffisalan
fer fram daglangt á tveim
stöðum í bænum; kl. 15-18
í íþróttahúsinu Álfafelli, og
kl. 15-22 i húsi félagsins við
Hjallahraun.
BARNADEILD Heilsu-
verndarstöðvarinnar við Bar-
ónsstíg. Á þriðjudag opið hús
fyrir foreldra ungra barna kl.
15-16. Umræðuefnið verður
aðlögun barna að dagvistun.
BLÖNDUÓS. í Lögbirtinga-
blaðinu tilk. heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytið að
Þór Oddssyni lyfjafræðingi
hafi verið veitt leyfi til rekst-
urs Apóteks Blönduóss og
tekur hann við því 1. júní
næstkomandi.
STYRKUR, samtök krabba-
meinssjúklinga og aðstand-
enda þeirra, hefur opið hús í
húsi Krabbameinsfélagsins í
Skógarhlíð 8 kl. 20.30. Gestur
fundarins verður Ellen Moon-
ey húðsjúkdómalæknir og
húðfræðingur. Fundurinn er
öllum opinn. Kaffiveitingar.
KVENFÉLAG Kópavogs
heldur opinn fund nk. þriðju-
dagskvöld fyrir konur í bæn-
um. Fjölbreytt skemmtidag-
skrá og skyndihappdrætti.
Vorferð félagsins verður farin
16. þ.m. að Þingborg í Flóa.
Nánari uppl. veittar í þessum
símum: 43299, 41726, 40531
og 40826.
BARÐASTRAND-
ARSÝSLA. Sýslumaðurinn
þar, Stefán Skarphéðinsson,
augl. í Lögbirtingi friðlýsingu
æðarvarps í 36 landareignum
í Reykhólahreppi.
GRENSÁSSÓKN. Árlegur
kaffisöludagur er í dag í safn-
aðarheimili kirkjunnar milli
kl. 15 og 17.30. Tekið verður
á móti kökum þar eftir kl. 10
í dag. Mánudagskvöldið verð-
ur lokafundur vetrarstarfsins
kl. 20.30 á sama stað. Guðrún
Hulda kemur á fundinn.
KVENFÉLAGIÐ Freyja,
Kópavogi, Spiluð félagsvist
á Digranesvegi 12- í dag kl.
15. Spilaverðlaun og veiting-
ar.
SKAFTFELLINGAFÉ-
LAGIÐ heldur árlegt kaffi-
boð fyrir eldri Skaftfellinga
og aðra velunnara félagsins í
Skaftfellingabúð, Laugavegi
178, kl. 14 í dag.
BRJÓSTAGJÖF, ráðgjöf
fyrir mjólkandi mæður.
Hjálparmæður „Barnamáls"
eru: Aðalheiður, s. 43442,
Dagný, s. 680718, Fanney,
s. 43188, Guðlaug, s. 43939,
Guðrún, s. 641451, Hulda
Lína, s. 45740, Margrét, s.
18797, og Sesselja, s.
680458.
SILFURLÍNAN, s. 616262.
Síma- og viðskiptaþjónusta
við eldri borgara rúmhelga
daga kl. 16-18.
MOSFELLSBÆR, frí-
stundastarf aldraðra. Ferðin
til Hveragerðis með viðkomu
í nýja skíðaskálanum í
Hveradölum verður farin nk.
þriðjudag. Lagt af stað frá
safnaðarheimili kirkjunnar kl.
13.45.
TOURETTE-samtökin
halda almennan félagsfund
nk. þriðjudagskvöld kl. 20.30
á Hótel Esju.
KIRKJUSTARF
HALLGRÍMSKIRKJA:
Fundur í Æskulýðsfélaginu
Örk mánudagskvöld kl. 20 í
kórkjallara.
HÁTEIGSKIRKJA: Biblíu
lestur mánudagskvöld kl. 21.
SELTJARNARNES-
KIRKJA: Fundur í æskulýðs-
félaginu í kvöld kl. 20.30.
ÁRBÆJARKIRKJA: For-
eldramorgunn þriðjudag kl.
10-12.
FELLA- og HÓLAKIRKJA:
Fundur í æskulýðsfélaginu
mánudag kl. 20.30. Söngur,
leikir, helgistund.
KÁRSNESPRESTAKALL:
Mömmumorgunn í safnaðar-
heimilinu Borgum þriðjudag
kl. 10-12.
SELJAKIRKJA: Síðasti
fundur vetrarins hjá æsku-
lýðsfélaginu SELA verður á
mánudag kl. 20, helgistund.
ORÐABÓKIIU
Fiskur - fiski
Oft heyrist sagt sem svo:
Verð fiskjaríns á markað-
inum var óvenjuhátt. Þar
sem hér er átt við no. fisk-
ur, ætti hins vegar samkv.
málfræðireglum að segja,
eða skrifa, að verð fisks-
ins hefði verið óvenjuhátt.
Orðið beygist eins og no.
hestur, ef. hests, og þann-
ig beygist fjöldi orða í ís-
lenzku. Eignarfall af orð-
inu fiskur er því uppruna-
lega fisks. Þessu hafa
menn svo ruglað saman
við ef. af kvk.-orðinu fiski,
sem merkir „fiskveiði"
eða „veiðiferð“, en það er
fiskjar. Dæmi um þennan
rugling eru kunn í seðla-
safni OH þegar á 18. öld,
en fjölmörg svo aftur frá
19. öld og fram á okkar
daga. No. fiski mun nú
alveg horfið úr mæltu
máli nema í samböndun-
um að róa til fiskjar eða
halda til fiskjar. Annars
var kvk.-orðið fiski notað
í ýmsum myndum fyrr á
tíð: I annál segir við árið
1730: reri skip eitt frá
Grímsey með öðrum tíl
fiski. Og í Jarðabók Árna
og Páls í byrjun 18. aldar
er bæði talað um að róa
til fiskjar og róa til fiski.
Merkingin er einmitt sú,
að róa til veiða eða halda
til veiða. Enda þótt komn-
ar séu upp tvær ef.-mynd-
ir af no. fiskur, er eðlileg-
ast, að menn geri hér
skýran mun á milli þess-
ara orðmynda. Menn róa
þess vegna til fiskjar til
að afla fisks. - J.A.J.