Morgunblaðið - 10.05.1992, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. MAI 1992
13
HEIMSKUJBBUR
INGÓLFS KYNNIR
Skipulag og fararstjóm:
Ingólfur Guðbrandsson
ÞAD BEZTA14 HEIMSALFUM
Landið er ríkara en flest önnur af öHu, sem ferðalangur
getur óskað sér. Hvergi finnurðu aðra eins fjölbreytni
og litadýrð í ríki náttúrunnar, nærri 300 tegundir villtra
dýra, þ. á m. fíla, gíraffa, ljón, hlébarða, zebra, nashyrn-
inga, vísunda, ótal yndisfagrar antilópu- og gazelluteg-
undir, 500 tegundir fugla og 24.000 tegundir blóm-
strandi trjáa og jurta í blóma vorsins á suðurhveli. Fólk
er orðlaust af undrun og fögnuði og finnst engin skemmt-
un jafnast á við að njóta þessara töfra í ríki náttúrunnar.
Ferðin er full af spennandi ævintýrum og sterkari upp-
Iifun náttúrunnar en þig hefur órað fyrir, þú verður
þátttakandi í þessu stórkostlega sjónarspili, rétt eins og
í kvikmynd. Alls þessa nýturðu við beztu skilyrði, vega-
kerfið er gott eins og farartækin, hótelin glæsileg og
matur og vín með því bezta, sem þekkist í heiminum á
verði, sem er lægra en víðast annars staðar, loftið tært,
hitastig hæfilegt, um 25°C, heilnæmasta veðurfar í heimi
er talið vera í Höfðaborg.
FEGUItl) OG PURBUR AFMKlJ'í.f
FERÐA TILHÖGUN:
Flogið er til London og áfram samdæg-
urs til JÓHANNESARBORGAR og gist
á hinu glæsilega J OH ANNESBURG SUN
& TOWERS með fullkomna þjónustu og
fjölda .veitingasala. Heimsókn í GOLD
REEF CITY, gamla gullgrafarabæinn
og daginn eftir dagsferð til höfuðborg-
arinnar PRETORIA með fagrar bygg-
ingar, minnismerki og blómstrandi trjá-
göng. Jóhannesarborg er nýtízkuleg
með fjölda fagurra bygginga og glæsi-
verzlana, borgin sem reis á gulli, en þar
fundust auðugustu gullnámur heims fyr-
ir 100 árum.
Ekið norður um frjósamar lendur
TRANSVAAL í KRUGER-ÞJÓÐGARÐ-
INN, stærsta friðaða svæði villidýra í
heimi, í safari-ferðina miklu og gist 2
nætur í Safari Lodge við jaðar villidýra-
svæðisins og lágskógarins „bushweld“,
fullt fæði, sundlaug og frábær aðbúnað-
ur. Ekið suður í DREKAFJÖLL og gist
2 nætur á lúxushótelinu DRAKENS-
BERG SUN í hrífandi umhverfi „Hring-
leikahússins" svonefnda, farið þaðan í
safariferðir. Þaðan liggur leiðin til DUR-
BAN, stærsta baðstaðar Afríku, gist á
fimmstjörnuhótelinu MAHARANI á
strönd Indlandshafsins, 4 nætur. Flogið
til PORT ELIZABETH, en þaðan hefst
þriggja daga ferðalag eftir „blómaleið-
REYNSLA FARÞEGA:
„Afríkuferðin var samfellt ævintýri. Hver
einstakur dagur var ferðarinnar virði. Ég
sagði við Sigríði kvöldið sem við komum
frá Chobe að ég mundi hafa keypt ferðina
fyrir þcnnan eina dag. Mér finnst óliklegt
að ég eigi eftir að fara jafn skemmtilega
ferð og þessa, þó ég voni, að ég komist í
ferð síðar, sem nálgist þessa. Glaðværðin,
sem rikti í allri ferðinni og hve allir urðu
góðir vinir, tel ég líka einn bezta mæli-
kvarðann á hrifningu og
ánægju þátttakenda.
Beztu þakkir.
Björn Traustason,
i býggingameistari.
H AFRICA '
^ -
Heimsreisufarar í Höfða-
borg. Borðfjallið íbaksýn.
inni“, GARDEN ROUTE, til HÖFÐA-
BORGAR með viðkomu á mörgum heill-
andi stöðum eins og OUTSHORN og
WILDERNESS. Gist á nýjasta lúxushót-
eli CAPE TOWN í einni af fegurstu
borgum veraldar í 4 nætur og farið í
ferðir á „Borðfjallið“ fræga, GÓÐRAR-
VONARHÖFÐA og í VÍNLÖNDIN, þar
sem sum beztu vín heimsins eru fram-
leidd. Hægt að framlengja í Höfðaborg.
Flogið þaðan um London heim.
ÍTALÍA
LISTAVEISLAN MIKLA 17. - 30. ágúst.
LÖND MORGUNROÐANS
6. - 27. sept.
Filippseyjar - Japan - Taiwan - Thailand
TÖFRAR MALAYSIU
5. - 23. nóv.
Kuala Lumpur - Borneo - Singapore - Penang.
Síðustu sætin. Vinsamlegast
staðfestið pantanir strax.
FERDAKYNNING:
Ingólfur Guðbrandsson kynnirferðina í
máli og myndum í Ársal Hótels Sögu
kl. 16.00 í dag. Sérstakur gestur á kynn-
ingunni frú Margrét Margeirsdóttir,
deildarstjóri og félagsráðgjafi. Einnig
stutt kynning á öðrum ferðum Heims-
klúbbs Ingólfs. Ókeypis lukkumiði af-
hentur með ferðaáætlun og gildir sem
happdrættismiði. Dregið verður í ferða-
happdrætti Heimsklúbbsins í lok kynn-
ingar, vinningur kr. 150 þúsund.
Kaffiveitingarseldarviðinngang,en
aðgangurókeypis.
MISSIÐ EKKIAF ÞESSARIL0KA-
KYNNINGU Á FERÐUM ÁRSINS!
AUSTURSTRÆTI 17, 4. hæS 101 REYKJAVIK
sími é?nánn»FAY aiaaaa