Morgunblaðið - 16.05.1992, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 16.05.1992, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAl 1992 Brids: Jón Bald- ursson varð í 4. sæti á Evrópumóti JÓN Baldursson varð í 4. sæti á fyrsta Evrópumóti í einmenningi í brids sem lauk í París í gær- kvöldi. Björn Eysteinsson varð í 17. sæti og Guðlaugur R. Jóhanns- son í 36. sæti en allt tóku 52 spilar- ar þátt I karlaflokki. Pólverjinn Piotr Gawiys varð Evr- ópumeistari með 57,37% skor en hann var í pólska liðinu sem tapaði fyrir íslendingum í úrslitaleik heims- meistaramótsins í Yokohama á síð- asta ári. 1 öðru sæti varð Austurrík- ismaðurinn Jan Fucic með 55,63%, Alan Levy frá Frakklandi varð 3. með 54,90%, Jón var með 54,52% skor, Hans Göhte frá Svíþjóð varð í 5. sæti. Krzysztof Martens frá Póllandi í 6. sæti, Michel Perron frá Frakklandi í 7. sæti, Bretarnir Ro- man Smolski og Andy Robson urðu í 8. og 9. sæti og Philippe Cronier frá Frakklandi varð 10. Allir þessir spilarar hafa unnið Evrópu- eða heimsmeistaratitla. Björn endaði með 50,96% skor eftir slaka byrjun. Guðlaugur endaði með 48,91% skor. Hann byijaði einn- ig illa á mótinu en náði síðan hæstu skor keppenda í annarri umferð af fjórum. Jón byijaði vel og var í efsta sæti eftir tvær umferðir, fór síðan niður í 4. sæti í þriðju umferð og sat þar til enda. Einnig var keppt í kvennaflokki og þar varð Evrópumeistari Maria Erhard frá Austurríki. í öðru sæti varð Colette Lise frá Frakklandi og í 3. sæti varð Nieola Smith frá Bret- landi. Verðlaun á mótinu námu alls 2,5 milljónum króna. Jón hlaut 10 þús- und franka eða um 100 þúsund krón- ur fyrir 4. sætið. Fornleifafræðingur hjá Árbæjarsafni mælir dýpt brunnsins. Aðalstræti: Komið nið- urálng- ólfsbrunn VIÐ gatnaframkvæmdir í Aðalstræti í gær var grafið ofan á svonefndan Ingólfs- brunn sem er undir gang- stétt við Aðalstræti 9. Þessi brunnur er frá tím- um innréttinganna og var aðalvatnsból Reykvíkinga uns vatnsveitan komst í gagnið árið 1909. Hann var í daglegu tali kallaður Prent- smiðjupóstur eftir Lands- prentsmiðjunni sem rekin var við Aðalstræti. Til eru tillögur frá 1968 um endurbyggingu brunns- ins og að sögn Margrétar Hallgrímsdóttur borgar- minjavarðar er áhugi á því hjá borgaryfirvöldum að byggja upp vatnspóst og hafa brunninn til sýnis í framtíð- inni. Nina Simone Listahátíð: Gipsy Kings og Nina Sim- one vinsælust „ÞAÐ hefur verið töluverð að- sókn í dag,“ sagði Hávar Sigur- jónsson blaðafulltrúi Listahátíð- ar, en í miðasala hófst í gær. Sagði Hávar, að til þessa hafi mest verið spurt um miða á tónleika Gipsy Kings í Laugardalshöll 27. maí og á tónleika Ninu Simone í Háskólabíói 4. júní. Þá mætti nefna hátíðarsýningar íslensku óperunnar á Rigoletto. Frumvarp um skattskyidu innlánsstofnana: Fiskveiðasj óður þarf að greiða um 280 milljónir króna á ári Frumvarpið rýrir lánstraust okkar erlendis, segir Már Elísson forstjóri Lögregla fann amfetamín og hass við leit Fíkniefnalögreglan handtók í fyrradag tólf manns og lagði hald á sextán grömm af amfet- amini og tíu grömm af hassi. Lögreglan gerði húsleit í þremur húsum í borginni, þar sem grunur lék á að fíkniefni væru seld, með fyrrgreindum árangri. Allt fólkið hefur áður komið við sögu fíkniefnalögreglunnar. Það gekkst við að hafa neytt fíkniefna en neitaði sakargiftum um dreif- ingu. Fólkið var látið laust að lokn- um yfírheyrslum. VERÐI stjórnarfrumvarp um skattskyldu innlánsstofnana að lögum nú í vor þýðir það að Fiskveiðasjóður þarf að greiða um 280 milljón- ir króna á ári í skatta og gjöld til hins opinbera. Er hér um að ræða tekju- og eignaskatt og stimpilgjald. Már Elísson, forsljóri Fiskveiðasjóðs, segir að þessi gjöld muni lenda á lántakendum hjá sjóðnum að verulegu leyti og þar að auki geti þessi lagasetning rýrt iánstraust sjóðsins erlendis en það liafi verið mjög gott á undan- förnum árum. Samkvæmt frumvarpinu er gert ráð fyrir að tekju- skattur nemi 45%, eignaskattur 1,45% og að innheimt stimpilgjöld nemi 40 milljónum króna á ári. Fiskveiðasjóður er ein af stærstu lánastofnunum landsins með niður- stöðutölu efnahagsreiknings upp á um 23,6 milljarða króna. Lán Fisk- veiðasjóðs til fiskiskipa nema nú um 17 milljörðum króna eða 24,4% af vátryggingarverði alls flotans. Ef aðeins er miðað við lán til skipa á vegum sjóðsins nema þau um 36% af vátryggingarverði þeirra. Sam- kvæmt ársreikningum síðasta árs námu útlán Fískveiðasjóðs tæplega 21 milljarði króna. Fjármunatekjur námu 2,6 milljörðum króna og hagnaður ársins nam 122 milljónum króna. Eigið fé sjóðsins nam 4 millj- örðum króna. Már Elísson segir að það sé hans skoðun að verði sett lög á grund- velli fyrrgreinds frumvarps að óbreyttu muni þau verða á margan hátt andstæð hagsmunum Fisk- veiðasjóðs og annarra fjárfestingar- sjóða sem starfa með áþekku sniði eins og til dæmis Iðnlánasjóðs og Iðnþróunarsjóðs. „Málið er að það er engin ástæða til að Fiskveiða- sjóður borgi ekki skatta eins og aðrar sambærilegar stofnanir en við viljum fá að sitja við sama borð og aðrir í þessum efnum,“ segir Már Elísson. „Sá hluti frumvarpsins sem fjallar um tekju- og eignaskatt ger- ir ráð fyrir að lögin um þessa skatta verði afturvirk og gildi frá síðustu áramótum. Þar að auki er alltof skammur frestur gefinn til aðlögun- ar og við hefðum kosið að þetta mál allt biði áformaðrar heildarlög- gjafar um opinbera sjóði sem við- skiptaráðherra hefur boðað.“ Hvað varðar misrnun milli stofn- ana sem Már telur að frumvarpið leiði til nefnir hann að Fiskveiða- sjóður og aðrar opinberar lánastofn- anir komi til með að greiða eigna- skatt af öllu eigin fé hvort sem um hagnað af rekstri er að ræða eða ekki. Hinsvegar gi-eiði hlutafélaga- banki ekki skatt af hlutafé en greið- ir hluthöfum arð ef hagnaður verð- ur af rekstri eða aðalfundur ákveð- ur svo. í máli Más Elíssonar kemur fram að Fiskveiðasjóður nýtur ekki ríkis- ábyrgðar á lántökur sínar erlendis Eyrarbakki: Elsti kaupmaðurimi fær beinlínukerfi Sclfossi. ELSTI kaupmaður landsins, Guðlaugur Pálsson á Eyrarbakka, fékk beinlínukerfi VISA í verslun sína í gær og jafnframt af- greiddi hann fyrsta viðskiptavininn með greiðslukorti í verslun- inni. Hingað til hefur hver og einn greitt sína vöru með pening- um, eða fengið skrifað eins og margir þorpsbúar. „Það er sjálfsagt ágætt að hafa þetta hjá sér,“ sagði Guðlaugur og kvaðst vonast til þess að þeir sem notuðu greiðslukort og færu í aðrar verslanir sem byðu upp á slíka þjónustu, kæmu eftirleiðis til sín. Hann sagði það koma fyr- ir að spurt væri hvort greiða mætti með korti. Forsvarsmenn Visa ísland voru viðstaddir þegar Guðlaugur renndi fyrsta kortinu gegnum kortarás vélarinnar Beinlínukerf- ið sækir sjálfkrafa um heimild þegar kortinu er rennt í gegnum vélina. Að loknum degi sendir hún færslurnar til Reiknistofu bank- anna sem skiptir þeim sjálfkrafa niður á kortafyrirtækin og reikn- ingshafa. Reikningar eru síðan skrifaðir út vélrænt og manns- höndin kemur aðeins að þessum ferli þegar reikningurinn fer í póst. Sig. Jóns. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Guðlaugur rennir fyrsta kortinu í gegnum kortavélina. og að frá 1. mars sl. hafí verið felld niður ríkisábyrgð á innlendum 'skuldbindingum. Sjóðurinn hefur þó ávallt notið mikils trausts á er- lendum vettvangi sökum góðrar eiginfjárstöðu en þetta traust geti rýrnað að minnsta kosti til skamms tíma ef frumvarpið verður að lögum óbreytt. Már nefnir sem dæmi um traustið að í vetur bauð sjóðurinn út lán að upphæð 50 milljónir þýskra marka eða 1,8 milljarð kr., í gegnum Sumitomo bank í London og fór svo að bankar skrifuðu sig fyrir 70 milljónum marka. Már segir að ljóst sé að veruleg breyting á högum sjóðsins og stöðu, svo sem með gagngerri breytingu laga, geti haft áhrif á núgildandi lánasamninga milli Fiskveiðasjóðs og erlendra lánastofnana. „Hætta er á að viðeigandi ákvæði lána- samnings verði notuð til gjaldfell- ingar lána til að fá þau greidd upp,“ segir Már. „Ekki er heldur neinn vafi á því að erfiðara getur reynst fyrir Fiskveiðasjóð að afla nýrra lána á erlendum markaði nema með lakari kjörum en fengist hafa til þessa.“ ------♦ ♦ ♦----- Nýr Herjólfur: Fyrsta sigl- ing gekk vel Flckkcfjord. Frá Gríini Gíslasyni, frctta- ritara Morganbladsins. PRÓFANIR á nýrri Vestmanna- eyjalerju standa nú yfir á Flekkefjord í Noregi. Skipinu var siglt til reynslu um fjörðinn í gær og gekk allt, vel. Gang- hraðinn var 18 sjómílur og er búist við að hann aukist eftir lokafrágang skipsins. Eftirlitsmenn og starfsmenn sem verða á skipinu á leiðinni til íslands fylgjast með reynslusigl- ingunni. Skipið verður aflient 4. júní og hefur öll vinna við það gengið eftir áætlun til þessa en skrifað var undir samninga við skipasmíðastöðina Simek í apríl í fyrra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.