Morgunblaðið - 16.05.1992, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 16.05.1992, Blaðsíða 5
5 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAÍ 1992 ------------;-----------------;---- Borgarráð: Tæpar 80 millj. fyrir 4. áfanga Selásskóla BORGARRÁÐ hefur samþykkt, að tillögu Innkaupastofnunar Reykjavíkurborgar, að taka 79.301.373 milljón króna tilboði lægstbjóðanda Ásmundar og Halls í byggingu 4. áfanga Selás- skóla. Tilboðið er 83,2% af kostn- aðaráætlun, sem er 95,3 milljónir króna. Níu tilboð bárust í verkið og átti Sigurður K. Eggertsson hf., næst lægsta boð 79,6 millj., eða 83,55% af kostnaðaráætlun, Átak hf. bauð 81 milij. eða 85,01% af kostnaðar- áætlun, K.S. verktakar buðu 83,1 millj. eða 87,25% af kostnaðaráætl- un, Sveinbjörn Sigurðsson hf., bauð 84,2 millj. eða 88,37% af kostnaðar- áætlun og Reisir sf., bauð 84,3 millj. eða 88,48% af kostnaðaráætlun. Al-verk hf., bauð 88 millj. eða 92,35% af kostnaðaráætlun, Örn Úlfar Andrésson, bauð 89,2 millj., eða 93,62% af kostnaðaráætlun og Hagvirki-Klettur hf., bauð 92,5 millj. eða 98,08% af kostnaðaráætlun. * Morgunblaðið/Áki H. Guðmundsson Myndin sýnir hvalrekann á fjörunni við Ytri-Bröttuvík. Hvalreki við Bakkafjörð TVO búrhvali rak á land við Bakkafjörð. Sá fyrri rak á land við bæinn Bjarg sem er rétt utan við þorpið, og var það tarfur. Hann var 10 metrar og 70 sentimetrar að lengd, ummálið var 6 metrar og 10 senti- metrar. Hinn rak á land við Ytri-Bröttuvík rétt fyrir sunnan bæinn Þorvaldsstaði. Hann rak 9. maí og var það einnig tarfur 10 metrar og 34 sentimetrar að lengd og um- málið 5 metrar og 90 sentimetrar. Að sögn Páls Leifssonar sem mætti og tók sýni úr hvölunum fyrir Hafrannsóknastofnun, taldi að þeir hefðu drepist um svipað leyti um miðjan apríl. Sýnin voru send til Jóhanns Sigur- jónssonar hjá Hafrannsóknastofnun. - ÁHG. NÝR OG GLÆSILEGUR Sjaldgæft að kvikni í út frá sætishitara SVERRIR Sverrisson, rekstr- arstjóri Bifreiðaskoðunar, seg- ir afar óalgengt að kvikni í út frá sætishitara í bifreiðum en talið er að upptök elds í Volvo 244 á fimmtudag megi rekja til slíks hitara. „Þegar kviknar í bílum er það oft út frá rafmagni. Eitthvað sem er bilað í rafmagnsútbúnaði hans. En ég held að sá búnaður sem tengist upphiturum í sætum valdi ekki bruna frekar en hvað annað. Þó að ekkert sé því til fyrirstöðu að slíkt geti hafa gerst,“ sagði Sverrir. Sigutjón Ólafsson, þjónustu- stjóri hjá Brimborg, segist ekki vita til þess að áður hefði kviknað í Volvo-bifreið út frá sætishitara. Ennfremur nefndi hann að ekki væri sannað að kviknað hefði í út frá sætishitara. Hann sagði að fólk þyrfti ekki að óttast að kvikni í út frá sætishiturum frem- ur en einhvetju öðru. Magnús ætl- ar að áfrýja meiðyrðadómi MAGNÚS Guðmundsson kvik- myndagerðarmaður hefur ákveð- ið að áfrýja til landsréttar í Nor- egi dómi borgardóms Oslóborgar í meiðyrðamáli norskra Grænfrið- unga vegna myndar Magnúsar, Lífsbjargar í Norðurhöfum. Magnús sagðist hafa tekið ákvörðun um að áfrýja dótnnum eft- ir að hafa farið yftr hann með lög- manni sínum. Magnús sagði að í dómnum stönguðust atriði á, einnig væri ljóst að dómarar hefðu ekki skilið sannanafærslu sem hann hefði fært fyrir ýmsum atriðum. Norsk fiskerlag hefur sent frá sér fréttatilkynningu þar sem segir, að þótt Magnús Guðmundsson hafi ekki verið sýknaður algerlega af borgar- dómi Óslóar sé mjög jákvætt að rétt- urinn hafi talið sannað að Grænfrið- ungar hafi notað falsanir í áróðri sínum. í tilkynningunni segir að nið- urstaðan sé ekki aðeins sigur fyrir Magnús heldur einnig fyrir selveiði- menn þar sem rétturinn fallist á að fullyrðingar um að selir séu fláðir lifandi eigi ekki við rök að styðjast. MITSUBISHI NÝTT OG STEFNUMARKANDI ÚTLIT > Meira innirými > Betri hljóðeinangrun > Aukinn öryggisbúnaður > > Aflmiklir hreyflar með rafstýrðri fjölinnsprautun > Styrktarbitar í hurðum > > Aukin þægindi > Enn betri aksturseiginleikar > DÆMIÐ SJÁLF AÐ'LOKNUM REYNSLUAKSTRI Verð frá kr. 897.600 HVARFAKÚTUR MINNI MEN6UN > A MITSUBISHI MOTORS G3 HEKLA LAUGAVEG1174 SÍMI 695500

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.