Morgunblaðið - 16.05.1992, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAI 1992
7
Morgunblaðið/Halldór Gunnarsson
Máríuerlu-
hreiður í
dráttarvél
Það var úr vöndu að ráða
hjá bónda hér undir Eyjafjöllum
þegar hann að morgni dags
uppgötvaði að Máríuerla hafði
gert hreiður á vatnskassa
dráttarvélarinnar sem var sú
eina sem var gangfær þá stund-
ina á heimilinu. Dráttarvélin
hefði verið keyrð á hveijum
degi en þrátt fyrir það voru 4
egg í hreiðri. Úr því svona hafði
skipast var dráttarvélin notuð
áfram og enn eru engir sjáan-
legir árekstrar milli Máriuerl-
unnar og bóndans.
Ármannsfell hf.:
Hið opinbera ætti
að líta í eigin barm
- segir Armann Armannsson forstjóri
ÁRMANN Ármannsson, forsljóri Ármannsfells hf. segir að hið opin-
bera ætti að líta í eigin barm og koma ábyrgt fram gagnvart verk-
takaiðnaðinum. Því sé ekki að heilsa nú.
Pram hafa komið steypu-
skemmdir á Fjórðungssjúkrahúsinu
á ísafirði en Ármannsfell var verk-
taki hússins. Þegar Ármann Ár-
mannsson var spurður að því hvort
tryggja ætti að verktakafyrirtæki
séu dregin til ábyrgðar vegna
skemmda á borð við steypu-
skemmdir á Fjórðungssjúkrahúsinu
á ísafirði sagði hann að fram-
kvæmdaaðili sjúrahússins, Ár-
mannsfell hf., beri eins árs ábyrgð
á verkinu og fyrirtækið sé ekki
tryggt fyrir áföllum af þessu tagi.
Slíkt tíðkist ekki. Aftur á móti sagði
hann að ef fyrirtækið bæri ábyrgð
á skemmdunum ætti það endurkr-
öfurétt á steypuframleiðandann
sem væri steypustöðin Grænós á
ísafirði.
Komið hafa upp hugmyndir um
að tryggja með lögum að verktakar
beri ábyrð á þeim verkum sem þeir
tækju að sér. Ármann sagði sem
svar við fyrirspurn þess efnis að
ábyrg verktakafyrirtæki væru
sem betur fer til í verktakaiðnaði
á Islandi en mjög víða væri pott-
ur brotinn. „Og kannski fer hið
opinbera fyrir í ábyrgðarleysi
með því að semja ætíð við lægst
bjóðanda sem oft á tíðum epu
gjörsamlega óábyrgir menn. Ég
held að ætti að byija þar,“ sagði
hann.
Myndin er tekin er Gústaf Adolf Skúlason afhendir Vig-
dísi Finnbogadóttur frímerkið.
Fékk stærsta
frímerki í
heimi að gjöf
GUSTAF Adolf Skúlason, annar eigandi aug-
lýsingastofunnar 99 Design í Stokkhólmi,
færði Vigdísi Finnbogadóttur, forseta ís-
lands, stærsta handgrafna frímerki í heimi
að gjöf. Graflistamaðurinn er Czeslaw Slania
og merki var gefið út í Sviþjóð í tilefni 70
ára afmælis graflistamannsins.
Frímerkið sýnir krýningu Gústafs 3. Svíakon-
ungs og er í sérstakri listaverkamöppu númer
392 af átta þúsund númeruðum eintökum. 99
Design sá um frágang möppunnar til prentunar
í samráði við sænsku hönnuðina Evu Jern og
Mari Mártensdottir. íslenski hönnuðurinn Ólöf
Baldvinsdóttir, hinn eigandi 99 Design, hefur
hannað 12 frímerki fyrir Svía í myndröðinni
Óiympísk gull.
ISLENSKUR
IÐNAÐUR
OKKAR
ALLRA
islenskt atvlnnulíf stendur á tímamótum.
Breytlnga er þörf. ðgrandi verkefnl bíða í
nýfum helml. Lífsklör verða ekkl bætt með auklnni
sókn í náttúruauðlindlr. Það reynir á okkur slálf.
Vlð elgum metnað, vllja, hugsun og kraft. Aukum
verðmætasköpun og bætum lífskjör HJöðarlnnar.
Sköpum okkar eigln framtið.
ÍSLAND ÞARFNAST IBNAÐAR.
LANDSSAMBAND
IÐNAÐARMANNA
Samtök atvlnnurekenda f Iðnaöi
ÁGÚST Einarsson, prófess-
or.formaður samninganefndar
ríkisins, hefur óskað eftir lausn
frá störfum. Hann hefur gegnt
þeirri stöðu í tæpt ár.
Undir stjórn Ágústar hafa verið
gerðir samningar við þorra opinbera
starfsmanna. Fjármálaráðherra hef-
ur fallist á beiðni hans uin lausn frá
störfum. Birgir Guðjónsson, skrif-
stofustjóri í starfsmannaskrifstofu
fjármálaráðuneytisins, verður fyrst
um sinn í forsvari fyrir nefndina,
segir í fréttatilkynningu.
Hættir sem for-
maður samninga-
nefndar ríkisins