Morgunblaðið - 16.05.1992, Qupperneq 9
9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAÍ 1992
KANARÍEYJAR
Hvers vegna ekki Kanaríeyjar í fríinu?
Þú sérð um flugið en við um gistinguna.
Getum nú útvegað góða gistingu á Gran Canaria.
Hafðu samband. Ef til vill er þetta valkostur sem borgar sig.
Upplýsingar í síma (903428)-560895 eða 150222 (biðja á
um línu 280).
Hraðbátur til sölu
170 „Mirage Reinellu árgerö 1986
Lengd 4,90 (16’2“), breidd 2,06
★ Aflmikil 140 hestafla OMC vél, innanborðs.
★ OMC hældrif.
★ 75 lítra innbyggður bensíngeymir.
★ Teppi og klæðning að innan.
★ Vandaður vagn með ljósabúnaði.
★ Allar yfirbreiðslur.
Einstakt tækifæri til þess að eignast vandaðan og
vel með farinn amerískan bát. Verð 870.000 stgr.
Til sýnis hjá Bílasölu Reykjavíkur, Skeifunni 11,
sími 678888.____________________________________
Boró veró fró kr. 5.700. Stóll Sonja kr. 9.000 stgr.
Sonja sófi + 2 stólar kr. 33.500 stgr.
Visa - Euro raégreidslur
Opió i dag »81 kl. 14.00
□□□aaca
HÚSGAGNAVERSLUN
REYKJAVÍKURVEQI66 HAFMARFIRÐI SI>\I5<1I00
KÖRFUHÚSGÖGN
Mikió úrval -
Stakir stólar
mjög hagstætt veró
- sófar - borð - hillur
Endurreisnarstarf — og
vinsældaleikur
LÍTILL hópur íslendinga neitar að hórfast í augu
við vandann, sem landsmenn eiga við að glíma,
stjórnmálamennirnir, sem um áraraðir hafa keypt
sér vinsældir og áhrif með sóun og reiðileysi. Þeir
halda því blákalt fram, að allt sé hægt að gera
fyrir alla. Þetta kom fram hjá Karli Steinari Guðna-
syni.formanni fjárlaganefndar, í eldhúsdagsum-
ræðunum fyrir skömmu.
Vinsældir á
kostnað skatt-
borgara
1 ræðu sinni á Alþingi
sagði Karl Steinar m.a.:
„Vinsældir og völd
freista margra. Það er
gaman að vera vinsæll.
Það er einmitt sú
skemmtan sem stjórn-
málamenn undanfarna
tvo áratugi hafa ástund-
að svo mjög ötullega. Það
er ekki bara ganian held-
ur líka ódýrt og þægi-
legt, þjóðin borgar. Þú
borgar. Erfiðasta vanda-
mál þjóðarinnar er ein-
mitt sú staðreynd að
stjórnmálamenn hafa
keypt sér atkvæði, keypt
sér vinsældir á þinn
kostnað. Það er þess
vegna sem við erum núna
í erfiðleikum, meiri
vanda en við höfum
þekkt í áratugi.
Sannleikurinn
— eftir tutt-
uguár
íslenska þjóðin skuld-
ar nú rúmlega 200 millj-
arða króna.
Erlendar skuldir eru
svo geigvænlegar að
þriðji hver fiskur fer í
afborganir og vexti til
útlanda. Reiðileysi í ríkis-
fjármálum hefur verið
með ólíkindum, það hef-
ur verið regla undanfar-
in ár fremur en undan-
tekning að afgreiða fjár-
lög með halla, þ.e. út-
gjöld ríkissjóðs hafa ver-
ið meiri en tekjurnar,
meira að segja þegar
góðæri hefur verið hvað
mest.
Ég er að segja ykkur
frá staðreyndum, óþægi-
legum staðreyndum. Nú-
verandi ríklsstjórn er sú
fyrsta í tuttugu ár sem
þorir að segja sannleik-
ann. Þessar byrðar eru
famar að segja til sín.
Fólkið sem horfir upp á
gjaldþrota fyrirtæki,
missi atvinnunnar og erf-
iðleika í atvinnulífinu,
skynjar vel að það er
mikill vandi á höndum.
Það er í raun aðeins lítill
hópur íslendinga sem
neitar að horfast í augu
við vandann. Sá hópur
eru stjómmálamennirnir
sem í áraraðir hafa keypt
sér vinsældir og áhrif
með sóun og reiðileysi.
Sem sitja á Alþingi og
halda því fram að ekkert
sé að. Enn heldur vin-
sældaleikurinn áfram.
Þessi litli hópur einangr-
aðra íslendinga heldur
þvi blákalt fram að allt
sé hægt að gera fyrir
alla. Þeir fullyrða að ill-
mennska og ótugtar-
skapur ráði ferðinni hjá
ríkisstjóminni, sem hef-
ur lagt sig fram um að
taka á vandanum, endur-
reisa efnahagslegt sjálf-
stæði þjóðarinnar, veija
lifskjör í landinu.
Frumkvæði
verkalýðshreyf-
ingarinnar
Það er athyglisvert að
það er verkalýðshreyf-
ingin sem hefur haft
frumkvæði að þvi á liðn-
um árum að benda á
hættur óstjómar, eyðslu
og óráðsíu. Benda á
nauðsyn þess að ná kjara-
samuingum sem tryggðu
betur atvinnuöryggi og
kaupmáttinn.
Það þarf kjark til þess
hjá foringjum verkalýðs-
hreyfingarinnar að segja
frá erfiðleikunum. En sá
kjarkur var fyrir hendi.
Það er þess vegna sem
nú hafa aftur tekist
kjai-asamningar sem
verða lóð á vogarskál
stöðugleika.
Ríkisstjómin hefur nú
liafið endurreisnarstarf-
ið í fjármálum ríkisins.
Því fylgja erfiðar að-
gerðir. Spamaður og
ráðdeild em í fyrirrúmi.
Dregið er saman þar sem
unnt er, útgjöld ríkisins
em minnkuð þar sem
nokkur kostur er á. Það
hefur þurft að bera víða
niður. Það verður meira
að segja að draga saman
þar sem sárast er, það
er á félagslega sviðinu.
Og það verður að halda
áfram að draga saman
seglin þar til jafnvægi er
komið á ríkisfjármálin.
Vandinn er svo mikill að
það tekur tíma að vinna
verkin.
Velferðin og
ábyrgð í fjár
málum
Alþýðuflokkurinn,
flokkur jafnaðarmanna,
telur það gmndvallarat-
riði að sýna ábyrgð í fjár-
málum. Öðm vísi fáist
ekki fjármunir til að
byggja velferð á varan-
legum gmnni.
Ábyrgðarleysi í fjár-
málum verður til þess að
velferðarkerfið hrynur.
Við emm að forða því,
við erum að koma í veg
fyrir að sjúkir, aldraðir
og fatlaðir líði nauð
vegna óráðsiu fyrri ára.
Eg geri mér grein fyr-
ir að stöðvun eyðsliumar
er ekki til vinsælda fallin.
En við verðum, við ger-
um þetta til að skapa
betra þjóðfélag. Við ger-
um þetta til að forða
þjóðinni frá efnalegu
gjaldþroti. Við gerum
þetta til að geta haldið
áfram á framfarabraut.
Það er erfitt að tapa at-
kvæðum og missa vin-
sældir.
Við jafnaðarmenn rís-
um undir þvi. Það væri
erfiðara að rísa undir því
að hafa skömm á sjálfum
sér, svíkja hugsjónir sín-
ar og sitt fólk. Ef við
tökum ekki fast og af
ábyrgð á fjárhagsvanda
þjóðarinnar emm við að
svikja þá sem minnst
mega sín, svíkja hugsjón-
ir okkar um réttlátara
og betra þjóðfélag og
velta skuldunum, óreið-
unni, yfir á bömin okkar.
Það er algjör nauðsyn
að taka fast á málum.
Við verðum að vera ein-
huga og staðföst á þess-
um erfiðu tímum, nú þeg-
ar verið er að hreinsa
til. Þau skipta hundmð-
um heimilin sem á undan-
förnum árum hafa þurft
að upplifa gjaldþrot og
uppboð. Það verður að
stöðva þetta. Það verður
að koma fjárliagnum
þamiig að nauðungar-
uppboðin, gjaldþrotin,
upplausn heimila og
gjaldþrot fyi-irtækja taki
enda. Það gemm við best
með því að taka til í rik-
isfjárhirslunum. Þegar
því er lokið mun framtíð-
in blasa við okkur."
Viðskiptavinir ATH.
Vegna námskeiðahalds Nissan
og Subaru á sviði þjónustu
og samskipta fyrir starfsfólk
og þjónustuaðila
ingvars Helgasonar
Verða sýningasalir okkar
lokaðir um helgina
riNISSAN
Ingvar
Helgason ht
Sævarhöföa 2
sími 91-674000