Morgunblaðið - 16.05.1992, Side 17

Morgunblaðið - 16.05.1992, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAI 1992 17 Doktor í líffræði Þannig ferst þeim sumum sem hvorki njóta svigrúms né réttlætis til að fylgja bókmenntabrautinni, þeim reynist unnt að bijótast út úr einu vítinu sem engin leið er að stjórna né réttlæta, í annað sem er lauslega sagt sjálfvalið og viðráð- anlegra — svo lengi sem maðurinn heldur áfram sjálfseyðileggingunni. Kýs að auðmýkja sjálfan sig fremur en aðrir geri það. Ein skapgerð Það að koma sér upp meðalgildi á mannfólkið og hafna hinum frá- brigðilegustu er nauðsynlegt í ein- stökum tilvikum. En aldrei þegar um bókmenntir er að ræða. Sjálf réttlætingin, sjálf nauðsyn þess að bókmenntir eru til, er þessi að skapa svigrúm fyrir hina frábrigðilegri, — án þess að nein hætta stafi af þeim. Það þarf ekki nema að líta til bók- menntasögunnar til að sjá fram á gildi þessarar fullyrðingar. Er Lax- ness ekki skrítinn? Haldið þið að hann væri hátt skrifaður hjá starfs- launanefnd höfundarskaparins í dag ef samur væri og um árið þeg- ar hann gekk á skíðum frá Jökuld- al á Austurlandi vestur á Ísafjörð til að ná skipi? Ég held ekki. Hér- lendis er svo komið í bókmennta- málum að jafnt almenningsáliti sem samfélagsstofnunum, sem um bók- menntamál fjalla, er stýrt af fólki sem beitir fyrir sig lögmálum auð- mýkingar og útskúfunar í eigin- hagsmunaskyni, til þess að halda aðstöðu sinni og sinna, til að halda virðingu, fé og frama án þess að verðleikar komi til álita. Og auðvit- að fær allt á sig sama svip við svo búið. Allt eru þetta freistingar, jafn fyrir matsmönnum sem höfundum, og víst ekki við neinn að sakast sérstaklega þótt hann láti undan freistingum. Hitt er aftur á móti nauðsyn ef taka á lýðræðissamfélag alvarlega að siðferðisgrundvöllur þess sé nægilega styrkur til að ein- stakir menn komist ekki upp með að móta almenningsálit og sníða stofnanir eftir eigin þörfum hverjar sem þær eru. Slíkan heilsteyptan siðferðisgrundvöll skortir svo mjög í landinu að jafnvel er ekki hægt að deila að gagni opinberlega held- ur fer allt þegar í tilfinningaflækj- ur. í staðinn sættast menn á mann- gerðir og í gildi staðlar sem menn eru sniðnir eftir, jafnvel á sviðum lista. Takist ekki að koma saman manni og staðli verður sá hart úti og er þá ekki hirt um málefnin. Nú hefur ein skapgerð orðið ofan á þegar að bókmenntum kemur. Það er vissulega hægt að sjá það fyrir hvað mannlegt samfélag þolir mönnum síst, ófyrirsjáanleikann. Slíkt fólk er allstaðar og alltaf til vandræða. Oftar en ekki eru hinir ófyrirsjáanlegu þó í viðbrögðum sín- um óhæfir til að hafa áhrif á fólk því að þeir. falla, þrátt fyrir ófýrir- sjáanleikann, undir þrönga skil- greiningu, teljast vangefnir frá fæðingu eða hafa misst vitið af ein- hveijum ástæðum og hljóta ef vel er sérfræðilega umönnun. En ævin- lega er einhver hluti mannfólksins í öllu sem máli skiptir í þessu sam- bandi sjálfbjarga en samt sér á parti, — og þar með táldir viðsjár- verðir. Ég á við þá menn sem gædd- ir eru óvenju ríkri innsæisgáfu, megnri sköpunarþörf, vitsmunum sem bera með sér að lítið þurfi fyr- ir þeim að hafa. Hér er um forystu- hæfileika að ræða. Það er grund- vallaratriði í lýðræðisþjóðfélagi að þroskaskilyrði slíks fólks séu ekki heftari en annarra manna. Gleym- um því ekki að lýðræðið er þraut- hugsuð heimspekileg niðurstaða manna sem einmitt voru ríkulega gæddir hæfileikum af því tagi sem ég lýsti. Slíkir menn af hverri kyn- slóð eiga bókmenntirnar. En óvissan sem bókmenntum fylgir var dæmd úr leik í svartsýn- iskasti fyrir tveimur áratugum eða svo. Eftir óreiðuástand á áttunda áratugnum tók sýndarmennskan við. Nýútkomnar bókmenntir í land- inu hafa lengst af verið úrræði við tilbreytingarleysi en eru það ekki frekar núorðið en bandarískir hlát- urskellir í sjónvarpi. Vegna óminnishegranna er orðið aðkallandi að spyrja: Hvar er raun- veruleikinn? Svarið yrði ekki fyndið. En því miður fyrirfínnast engar alvörubók- menntir til að svara spurningunni. Höfundar sem efnt gætu til svarsins eru úr sögunni. Höfundur er rithöfundur. Hinn 26. niars síðastliðinn varði Guðmundur Hrafn Guð- mundsson doktorsritgerð sína við örverufræðideild Stokk- hólmsháskóla. Titill ritgerðar- innar er „Structure and ex- pression of the Cecropin locus in the moth Hyalophora cecrop- ia“ og fjallar um byggingu og tjáningu cecropin-gena í risa- silkifiðrildinu. Tjáning genanna tengist ónæm- iskerfi skordýra en ofannefnt fiðr- ildi hefur verið meginrannsóknar- kerfi á þáttum vessaónæmis skor- dýra. Við bakteríusýkingu myndar fiðrildið mörg prótein sem drepa bakteríur. Virkust þessara pró- teina eru cecropin sem drepa bæði Gram-jákvæðar og Gram-nei- kvæðar bakteríur. í ritgerðinni er fjallað um einangrun á forverum þessara próteina og myndun þeirra. Skipulagning genanna í genamenginu var einnig leyst svo og athuganir á tjáningu genanna við sýkingu á púpu og lirfustigi athuguð. Guðmundur lauk stúd- entsprófi frá Menntaskólanum við Sund 1979 og BS-prófí í líffræði frá Háskóla Islands 1984. Hann hóf doktorsnám í Stokkhólmi Dr. Guðmundur Hrafn Guð- mundsson haustið 1985. Guðmundur mun halda áfram með tengdar rann- sóknir í spendýrum í Stokkhólmi. Foreldrar hans eru Guðmundur Guðmundsson og Anna Pálma- dóttir. Eiginkona Guðmundar er Ólöf Sigurðardóttir læknir. Gísli Jónsson & Co. Sundaborg 11 Sími 91-686644 Með þennan tjaldvagn ert þú viss um þottþétt ferðalag. Þú tjaldar öllu, fortjaldi og svefntjöldum á sviþstundu og nýtir tímann í lífs- gleðjandi verk (ekki heilabrot um hvemig súlur raðist saman!). f eldhúskassa er gaseldavél og vaskur. Verð kr. 409.500,- í hartnær 20 ár hefur Camp-let séð okkur íslendingum fyrir framúrskarandi tjaldvögnum, — þeir elstu eru enn við hesta- heilsu og í stöðugri notkun. Reynslan hefur sýnt að heppi- legri tjaldvagn er vart hægt að fá fyrir okkar aðstæður. í ár eru nýju Camp-let tjald- vagnarnir hlaðnir spennandi nýjungum og fallegu útliti og verðið hefur aldrei verið betra. Boðið er upp á hagstæð greiðslukjör, 25% útborgun og eftirstöðvar á allt að 30 mánuðum. Umboðsaðilar: B.S.A. hf. Akureyri, sími 96-26300, Bílasalan Fell, Egilsstöðum, sími 97-11479. Grunnútgáfan af Camþ-let þar sem allir kostimir birtast: áfast fortjald og eldhúskassi, tvö siálfstœð svefntjöld o.fl. o.fl. Verðkr. 342.800,- Flaggskiþið frá Camþ-let. Sann- kallaður lúxustjaldvagn m.a. með innbyggðum ísskáþ, eldavél og vaski með rennandi vatni. Toþþ- urinn í tjaldvögnum. Verð kr. 454.100,- TRAUSTASTI TJALD' VAGNINN ER EINNIG Á FRÁBÆRU VERDI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.