Morgunblaðið - 16.05.1992, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAI 1992
Tannsjúkdómasambandið:
Varað við skyndi
úthreinsun silfur-
fyllinga í tönnum
MORGUNBLAÐINU hefur borist
yfirlýsing frá Tannsjúkdómasam-
bandinu, sem er svohljóðandi:
„Úthreinsun „silfurfyllinga“
(amalgam) úr tönnum án öryggis-
og varnarbúnaðar getur verið mjög
hættuleg lífi og heilsu fólks.
Við útborun amalgamfyllingar
leysist úr læðingi mikið magn kvika-
silfursgufa á örfáum sekúndum, sem
sjúklingurinn andar þá að sér í miklu
magni á örskömmum tíma.
Gúmmídúkurinn, sem allir tannlækn-
ar eiga að nota, ver líkamann einung-
is gegn amalgamögnum, sem sjúkl-
ingurinn kyngir þá síður niður. Dúk-
urinn vemdar sjúkling hins vegar
ekki gegn kvikasilfursgufunum. Til
þess þarf annan öryggisbúnað.
„Fyrir alla muni látið ekki taka
úr of mörgum fyllingum í einu. Lát-
ið gera það hægt og með löngu milli-
bili.“ Þessi viðvörunarorð mælti Helgi
Rósa sýn-
ir á Höfn
OPNUÐ verður sýning Rósu Ing-
ólfsdóttur á Höfn í Hornafirði,
Víkurbraut 4 (salarkynnum verka-
lýðsfélagsins Jökuls), laugardag-
inn 16. maí nk. kl. 16.
Rósa sýnir sjónvarpsgrafík úr 1.
þætti heimildamyndaflokksins
Straumhvarfa er fjallaði um versl-
unarstaðinn Papós, forvera kaup-
staðar Hafnar á Hornafirði.
Sýningin er styrkt af menningar-
sjóði félagsheimila og verður opin
daglega frá kl. 9-5, en henni iýkur
sunnudaginn 24. maí.
Guðbergsson yfirlæknir á atvinnu-
sjúkdómadeild Heilsuverndarstöðv-
arinnar í Reykjavík, í útvarpsþættin-
um „Mál til umræðu" á rás 1 Ríkisút-
varpsins þann 9. apríl sl. Helgi situr
jafnframt í nefnd á vegum Land-
læknisembættisins, sem fjallar um
amalgamfyllingar. Hann sagði einnig
að til væru dæmi um fólk sem veikst
hefði eftir úthreinsanir of margra
amalgamfyllinga, og að þá hefði
kvikasilfursmagn í blóði mælst í
marktæku magni. Helgi sagði að
hann væri út af fyrir sig ekki að
mæla með því að fólk léti skipta um
fyllingar, en bað þá sem það gerðu
að gæta sín.
„Kvikasilfurssogrörið „clean-uþ“
er besta vöm sjúklings gegn kvika-
silfursgufum við útborun amalgams
úr tönn, sem til er á markaðnum í
dag.“ Þetta sagði dr. Anders Lind-
vall yfírlæknir amalgameitrunar-
deildar Háskólasjúkrahússins í Upp-
sölum í viðtali við Dagens Nyheter
þann 12. nóvember sl. er hann var
spurður um álit sitt á nýjum öryggis-
búnaði sem Dr. Bertil Agdur fyrrum
prófessor við Tækniháskólann í
Stokkhólmi hefur hannað og mark-
aðssett í Svíþjóð og víðar, m.a. á
íslandi. Hópur vísindamanna undir
stjóm Dr. Bertil Agdurs birti niður-
stöður mælinga á kvikasilfursgufum
í munni sjúklings við útborun amalg-
ams úr tönn. Þær leiddu í ljós að
gufumar geta hundraðfaldast að
magni til í munninum, ef sogörið er
ekki notað.
Tannsjúkdómasambandið varar
fólk alvarlega við skyndiúthreinsun-
um „silfurfyllinga" (amalgam) úr
tönnum og hvetur það til þess að
afla sem upplýsinga um nauðsynleg-
- ar öryggisreglur og búnað áður.“
Heitu pottarnir írá TREFJUM eru fyllilega sambærilegir við þá
bestu erlendu, bæði er varðar verð og gæði. Þeir eru mótaðir úr
akrýli, níðsterku plastefni, hörðu sem gleri og hita- og efnaþolnu.
Þá er auðvelt að þríía og hægt er að fá öryggishlíf, sem dregin
er yfir pottinn, þegar hann er ekki í notkun.
Pottana má hafa frístandandi eða grafa þá í jörð og ýmis
aukabúnaður er fáanlegur, svo sem loft- eða vatnsnuddkerfi.
Akrýlpottarnir frá TREFJUM fást í ótal litum og 5 stærðum, sem
rúma frá 4 -12 manns og verðið er írá aðeins kr. 82.000
Sjón er sögu ríkari, komið í sýningarsal okkar í Stapahrauni 7,
hringið eða skrifið og fáið sendan litprentaðan bækling og
verðlista.
Opið laugardaga frá kl. 10 -17.
TREFJAR HF.
Stapahrauni 7, Hafnarfirði, símar 5 10 27 og 65 20 27
Frá sýningu á verðlaunagripum Ragnheiðar Runólfsdóttur. Morgunbiaðið/Jón Gunnlaugsson
Yerðlaunasafn Ragnheið-
ar til sýnis á Akranesi
Akranesi.
UM SKEIÐ hefur staðið yfír á
Akranesi sýning á verðlauna-
gripum og öðru tilheyrandi sem
Ragnheiður Runólfsdóttir
sunddrottning hefur unnið til á
löngum og glæsilegum sund-
ferli sínum.
Þama er um að ræða mjög
glæsilegt safn gripa og verðlauna-
peninga ásamt myndum frá ýms-
um viðburðum. Reyndar er safn
Ragnheiðar svo umfangsmikið að
ekki var hægt að koma því öllu
fyrir. En öllu hefur verið mjög
haganlega komið fyrir í afgreiðs-
lusal bankaútibús Búnaðarbanka
íslands.
Þessi sýning er sett upp að til-
stuðlan Iþróttabandalags Akra-
ness í tilefni af 50 ára kaupstaðar-
afmæli Akraneskaupstaðar og var
sýningin formlega opnuð við setn-
ingu ársþings IA. Vel er til fund-
ið að kynna bæjarbúum og gest-
um einstakt verðlaunasafn Ragn-
heiðar sem fyrr í vetur var kjörin
íþróttamaður ársins á íslandi. Við
opnun sýningarinnar var Ragn-
heiði veittur styrkur úr minning-
arsjóði Guðmundar Sveinbjörns-
sonar fyrrum formanns ÍA og
tóku foreldrar hennar við styrk-
veitingunni fyrir hönd Ragnheiðar
sem dvelur við æfingar og nám í
Bandaríkjunum.
- J.G.
Austur-Eyjafjöll:
Byggðasafnsbyggingn í
Skógum miðar vel áfram
Holti.
Morgunblaðið/Halldór Gunnarsson
Erlendir gestir skoða Byggðasafnið í Skógum í fylgd með Þórði
Tómassyni safnverði.
BYGGINGU nýja safnhússins við
byggðasafnið í Skógum miðar vel
áfram og er gert ráð fyrir að
húsið verði tekið að hluta i notkun
um næstu mánaðamót. Skart
byggðasafnsins, gamla áraskipið
Pétursey frá 1855, mun verða sett
upp í aðalsal með möstrum og
seglum. Aðsókn að safninu hefur
vaxið stórlega undanfarin ár. Nýja
safnhúsið mun því bæta stórlega
alla möguleika á móttöku gesta
og gefa betri heildarsýn á sýningu
safnmuna.
Byggingafyrirtækið Klakkur hf. í
Vík tók að sér að ljúka þeim bygging-
aráfanga sem nú er unnið að við
nýja safnhúsið í Skógum og á að
vera lokið í upphafí sýningartímabils-
ins sem hefst núna um næstu mánað-
armót. Björn Sæmundsson yfirsmið-
ur sagðist búast við að hægt yrði
að skila af sér á réttum tíma. Nú
væri unnið að frágangi á aðalsal þar
sem gamla áraskipið Pétursey ætti
að vera undir fullum seglum. Þórður
Tómasson safnvörður sagði að þessi
bygging væri mesta stórvirki í
byggðasafnsmálum utan Reykjavík-
ur og væri nær eingöngu enn sem
komið fjármagnað af sjóðum héraðs-
nefnda Rangárvallasýslu og Vestur-
Skaftafellssýslu í hlutfálli við fólks-
ljölda. Þetta væri metnaðargjörn og
stórhuga framkvæmd til sóma fyrir
forystumenn í héruðunum, sem
skildu hvers virði saga og munir
safnsins í byggðasafninu í Skógum
væri, merkilegasta sameign fólksins
á þessu svæði og því verðugt við-
fangsefni heimamanna að takast á
við. Safnið geymdi einnig merkan
hluta þjóðararfs, sem skylt væri að
varðveita. Þegar safnhúsið væri full-
búið ykist safnrými um 800 m% en
að auki yrðu rými fyrir héraðsskjala-
safn Rangæinga og Vestur-Skaftfell-
inga með lítilli fræðimannsíbúð og
aðstöðu til viðgerða á safnmunum.
Þegar fréttaritara bar að var Þórð-
ur að sýna útlendingum safnmuni í
því umhverfi sem Þórður hefur sjálf-
ur byggt upp í Skógum og svo marg-
ir íslendingar þekkja. Á síðasta ári
komu um 19.000 gestir til að skoða
safnið og í ár er búist við enn fleir-
um. Nýr móttökusalur með snyttingu
bíður nýrra gesta á komandi sumri.
Næstkomandi sunnudag 17. maí
verður safnið opið öllum gestum í
tilefni alþjóðlegs dags safna sem
stofnað hefur verið til í því markmiði
að vekja athygli á störfum safna og
stuðla að eflingu þeirra.
- Fréttaritari.
Nýja Byggðasafnsbyggingfin. Fyrir framan standa yfirsmiðurinn
Björn Sæmundsson og Þórður Tómasson safnvörður.