Morgunblaðið - 16.05.1992, Page 19

Morgunblaðið - 16.05.1992, Page 19
Austur Húnavatnssýsla: MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAÍ 1992 19 Fjárhagsvandi Kaup- félagsins ræddur Blönduósi. FJÁRHAGSVANDI Kaupfélags Húnvetninga var ítarlega rædd- ur á aðalfundi Sölufélags Aust- ur Húnvetninga, sem haldin var á Blönduósi á fimmtudag. Samþykkti fundurinn að stjórn félagsins skoðaði allar leiðir til þess að styrkja rekstur samvinnu- félagana og tryggja sem best framtíð starfseminnar. Á fundin- um kom fram að eiginfjárstaða Kaupfélags Húnvetninga og Sölu- félags Austur Húnvetninga sam- eiginlega, er sterk og greiðslu- staða fyrirtækjanna út á við, er góð. Hins vegar skuldar Kaupfélag Húnvetninga Sölufélaginu 115 milljónir, og þarf að lagfæra þá stöðu milli félagana. Fram komu hjá fundarmönnum nokkrar leiðir sem til greina koma, en áhersla var lögð á áð ná sem víðtækastri samstöðu í héraðinu um framtíðarskipan samvinnu- mála. Samþykkt var að stjórnin legði niðurstöður sínar fyrir fram- haldsaðalfund, sem verður haldinn fyrir júnílok. Jón Sig. Arnessýsla: Hörkuspenna í sveita- keppni grunnskóla í skák Selfossi. ÞAÐ VORU 18 fjögurra manna sveitir sem tóku þátt í sveita- keppni grunnskóla í Árnessýslu sem haldið var á vegum Skák- klúbbs Selfoss. Hörkubarátta var í mörgum skákanna þar sem stíft var teflt til vinnings. Keppt var í tveimur flokkum, eldri og yngri. í eldri flokki voru 7 sveitir og 11 í þeim yngi-i. Mót þetta var fyrst haldið 1991 og er greinilega mikill áhugi fyrir skák- inni í skólum sýslunnar. Þeir áhugasömustu í skákinni leggja á sig reglulegar ferðir til Reykjavík- ur og sækja æfingar hjá skákskó- lanum þar. í yngri flokki sigraði Sólvalla- skóli með 32 vinninga, næstur var Þingborgarskóli með 27,5 v., síðan komu Reykholtsskóli, 26,5 v., Vill- ingaholtsskóli, 24,5 v., Laugar- vatnsskóli, 23,5 v., Grunnskóli Hveragerðis, 23 v., Grunnskóli Eyrarbakka, 21 v., Ljósafossskóli, 18,5 v., Grunnskóli Þorlákshafnar, 9 v., Grunnskóli Stokkseyrar, 8 v.,_og Flúðaskóli, 6 v. í eldri flokki sigraði Laugar- vatnsskólinn með 20 vinninga, Sólvallaskóli á Selfossi varð annar með 17 vinninga, Eyrarbakkaskól- inn þriðji með 14 vinninga, síðan komu Grunnskóli Þorlákshafnar með 13,5 v., Flúðaskóli með 9,5 v., Reykholtsskóli með 8 v. og Grunnskóli Stokkseyrar með 2 Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Einbeittir skákmenn á fyrsta borði. vinninga. Þijár fyrstu sveitirnar í hvorum flokki fengu verðlaunapeninga og sigursveitirnar veglega verðlauna- bikara. Magnús Gíslason útibús- stjóri Landsbankans og Birgir Guðmundsson mjólkurbústjóri af- hentu verðlaunin en Landsbankinn og MBF voru styrktaraðilar móts- ins að þessu sinni. - Sig. Jóns. Stykkishólmur: Hökklum og messuklæði stolið úr nýju kirkjunni Stykkishólmi. FYRIR seinústu helgi var farið inn í nýju kirkjuna í Stykkis- hólmi og þaðan tekin messu- klæði, tveir hökklar og tvær stólur. Þá var einnig tekinn kyrtill frá söngfólki. Ekki varð vart við neinar skemmdir eða harkalega umgengni. Lögregl- unni var tilkynnt um þetta strax en málið hefur enn ekki verið upplýst. Það þykir líklegt að þeir eða sá sem þjófnaðinn framdi hafi komist inn um hurð sem sjaldan eða aldr- ei er gengið um, en hún var illa læst þegar að var gáð. Sóknarprestur segir að þeir sem hafi komist með þetta burt hafi engin not eða lítið gilJi sé fyrir þá að auðgast af, en hinsvegar sé þetta tjón, tilfinnanlegt fyrir kirkj- una. Sóknarnefnd og sóknarprest- ur vilja hvetja þá sem eitthvað kunna að vita um þetta mál að hafa samband við lögreglu eða sóknarprest. Og vonandi verður hægt að upplýsa málið, svo að aðilar gætu vel við unað. _ - Árni. VINKLAR Á TRÉ HVERGI LÆGRI VERÐ ÞÝZKIR GÆÐAVINKLAR OG KAMBSAUMUR ÁVALLT FYRIRLIGGJANDI EINKAUMBOÐ „ £B Þ.Þ0RGRIMSS0N & G0 Ármúla 29 - Reykjavík - sími 38640 NýrSUZUKI aldrei sprækari. Ný og glæsileg innrétting, nýtt mælaborð, betri hljóðeinangrun auk fjölda annarra breytinga. Allir SUZUKI SWIFT með 1,3 og 1,6 L vélum eru búnirvökvastýri. SUZUKI SWIFT tveggja manna sportbíll með blæju. Þessi bíll á eftir að fá hjörtu margra til að sláörar. SUZUKISWIFT kostarfrá 726.000 kr. staðgreitt. m SUZUKIVITARA, aflmikill 3ja eða 5 dyra lúxusjeppi með frá- bæra aksturseiginleika. Traustur bíli, byggðurá sjálfstæðri grind. Verð: 3ja dyra 1.438.000 kr. staðgreitt. 5 dyra 1.696.000 kr. staðgreitt. Komið og reynsluakið gæðabílunum frá SUZUKI. Kaffi á könnunni. Opið laugardag frá kl. 10-17 og sunnudag frá kl. 13-17. $ SUZUKI —//// SUZUKIBÍLAR HF SKEIFUNNI 17 . SlMI 685100 Allir SUZKUKI bílar eru búnir vélum með beinni bensíninnsprautun og fullkomnum mengunarvarnabúnaði. SUZUKI SYNING Sýnum 1992 árgerðirnar af SUZUKI um helgina

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.