Morgunblaðið - 16.05.1992, Page 20
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAI 1992
Seltjarnarnes:
Frág'angi Heilsugæslu-
stöðvarinnar er lokið
NÝLEGA lauk endanlegum frágangi á byggingu Heilsugæslustöðv-
arinnar á Seltjarnarnesi. Var hinn nýi áfangi tekinn í notkun við
hátíðlega athöfn nýlega.
Húsnæði Heilsugæslustöðarinn-
ar á Seltjamamesi er 1.000 fer-
metrar. Hún var tekin í notkun
1982, en þá vom innréttaðir 600
fermetrar. Vora síðustu 400 fer-
metramir teknir í notkun nýlega
og er því Heilsugæslustöðin komin
í endanlegt horf á tíu ára afmæli
sínu.
Þórunn Ólafsdóttir, framkvæmd-
astjóri Heilsugæslustöðvarinnar,
segir að með nýja húsnæðinu verði
hægt að reka stöðina eins og ætlun-
in hafi verið. „Nýja húsnæðið skipt-
ist í fjórar skoðunareiningar, sem
notaðar eru til móttöku sjúklinga.
Með því er algerlega skilið á milli
skrifstofuhúsnæðis lækna og hjúkr-
unarfólks og móttöku. Við teljum
að með þessu móti sé hægt að veita
þeim sem leita til okkar betri þjón-
ustu,“ segir Þórann.
Bókanír í hálendisferðir 30%
Kostnaður við nýja áfangann er
27-28 milljónir króna. Húsnæðið
er með þessum áfanga fullfrágeng-
ið, en nokkuð skortir á tækjakost-
inn. Þórann Ólafsdóttir segir að
mikill fengur sé í gjöfum eins og
þeirri sem Lions-, Kiwanis- og Sorp-
timistaklúbbar og Kvenfélagið Selt-
jörn á Seltjarnarnesi gáfu Heilsu-
gæslustöðinni, en þessir aðilar gáfu
stöðinni sjónvarps- og myndbands-
tæki.
Þá vildi Þórunn geta þess fram-
taks sem Sverrir Sigurðsson hefur
staðið fyrir, en hann hefur lánað
listaverk úr einkasafni sínu til
stöðvarinnar.
Frá vígslu nýs húsnæðis Heilsugæslustöðvarinnar á Seltjarnarnesi.
ÞJÓÐMINJASAFN
ÍSLANDS^
færri en á sama tíma í fyrra
UM 30% færri erlendir ferðamenn hafa bókað ferðir inn á hálendið
í sumar miðað við sama tíma í fyrra, að sögn Halldórs Bjarnasonar
framkvæmdastjóra Safariferða hf., nýrrar ferðaskrifstofu, sem sér
um ferðir innanlands. Sagði hann að íslenskar ferðaskrifstofur, sem
bjóða tjaldferðir innanlands, stæðu höllum fæti gagnvart erlendum
ferðaskrifstofum, sem geta boðið hálendisferðir á mun lægra verði,
vegna lægri launakostnaðar. Munar þar um 15.000 krónum fyrir
níu daga ferð.
National Museum of lceland
Á síðasta ári gaf Tryggvi Ólafs-
son listmálari Þjóðminjasafnsins
hönnun á veggspjaldi. Við verkið
notaði hann myndefni úr safninu
og ber það greinileg einkenni
listamannsins. Veggspjaldið er
til sölu í safnbúðinni.
Þjóðminjasafnið:
Safariferðir hf., á rætur að rekja
til Ferðaskrifstofu Ulfars Jakob-
sen, sem Ferðaskrifstofan Úrval
keypti og nú síðastliðin þijú ár sem
sérstök deild innan Úerðaskrifstof-
unnar Úrvals-Útsýnar. „Vegna
aukinnar starfsemi hjá Úrvali-
Útsýn var stofnað sjálfstætt hluta-
félag um reksturinn hinn 1. apríl,
með áherslu á hálendisferðir,“
Opið hús á sunnudag
| TILEFNI Alþjóða safnadagsins verður opið hús hjá Þjóðminjasafni
íslands sunnudaginn 17. maí frá kl. 11-16. Allar vinnustofur safns-
ins og Örnefnastofnunar verða opnar, einnig flestar geymslur með
þeim þúsundum safngripa sem ekki komast fyrir í sýningarsölum.
Kostur gefst einnig á að skoða þá hluta hússins sem helst liggja
undir skemmdum.
Læknaminjasafn í Nesstofu verð-
ur opið frá kl. 13-16 en Sjóminja-
safnið í Hafnarfírði og bátageymsl-
an í Vesturvör í Kópavogi frá kl.
14-18.
Þótt sunnudagur sé verða allir
starfsmenn á sínum vinnustað og
veita upplýsingar um verksvið sitt
og afrakstur á næstliðnum árum.
Tekin verða fram sýnishorn að-
fanga sem borist hafa á allra síð-
ustu áram. Sýning verður á bókum
sem unnar hafa verið af starfs-
mönnum safnsins eða í tengslum
við það. Skýrsla um byggðasöfn og
safnvísa á öllu landinu mun liggja
frammi. Ýmis línurit skýra útþenslu
þjóðminjavörslunnar frá upphafi
1863. Skyggnusýningar um fom-
Leitað að konu
sem ók á telpu
Slysarannsóknadeild lögregl-
unnar í Reykjavík lýsir óskar
eftir að ná tali af konu sem ók
á 12 ára telpu við Vesturbæjar-
skóla þann 1. maí síðastliðinn.
Konan ræddi við telpuna á staðn-
um, skrifaði hjá sér nafn hennar
en fór svo á brott enda var talið í
fyrstu að hún hefði ekki meiðst illa.
Seinna kom í ljós að hún var illa
marin og beinbrotin og því óskar
lögreglan eftir að ná tali af konunni.
Ieifagröft, húsaviðgerðir, matar-
gerð og forvörslu verða kl. 13 og
kl. 15. Einnig verða myndbanda-
sýningar um ýmsa starfsemi á veg-
um safnsins. Almenn leiðsögn um
safnið verður kl. 12 og kl. 14. Veit-
ingar verða fáanlegar í forsal safns-
ins.
sagði Halldór. „Á hverju sumri eru
farnar um 60 ferðir yfir sumar-
mánuðina, júní, júlí og ágúst. Vetr-
armánuðirnir era óplægður akur
enn sem komið er, en við stefnum
að ævintýraferðum, sem farnar
verða í maí og september til að
byrja með.“
Halldór sagði, að horfurnar fyrir
sumarið væru þokkalegar. Verkföll
í Þýskalandi hefðu haft áhrif á
bókanir og væra þær um 30% færri
miðað við fyrri ár enn sem komið
er. „Þeim hefur fjölgað undanfarna
daga þannig að verkfallsóttinn
virðist eitthvað vera að hverfa,"
sagði Halldór. „Við eram komin
með töluvert af bókunum, en þær
hafa verið tregari en undanfarin
ár. Við erum í harðri samkeppni
við erlendar ferðaskrifstofur sem
eru með ferðir hér innanlands á
allt öðram forsendum miðað við
þær sem íslenskar ferðaskrifstofur
geta boðið upp á. Þeir taka með
sér erlenda starfskrafta, á litlum
sem engum launum og eru þar af
leiðandi samkeppnisfærari erlendis.
Munar þar allt að 15.000 krónum
fyrir 12 daga ferð, sem þeir geta
selt ódýrari.
Bryggja féll af bílpalli
GÖMLU flotbryggju Akraborgarinnar sem tekin hefur verið úr notkun
er ætlað nýtt hlutverk vestur við ísafjarðardjúp þar sem hún verður
notuð sem viðlega fyrir Djúpbátinn. Þegar verið var að undirbúa flutn-
ing henanr vestur í fyrradag vildi það til að hún féll af pílpalli og
skall niður á Grófarbryggju. Stórvirkir kranar komu bryggjunni hins
vegar á réttan kjöl fljótlega.
Morgunblaðið/Sverrir
Halldór Bjarnason, framkvæmdastjóri Safariferða hf.
Þessi sjóræningjastarfsemi er
okkar aðal vandamál. Þetta er fólk,
sem ég veit ekki til að hafi hér
atvinnuleyfi, því ef svo væri þyrfti
að greiða þeim þau lágmarkslaun
sem í gildi eru á íslandi. Þetta er
vaxandi vandamál. íslenskar ferða-
skrifstofur, sem bjóða tjaldferðir
eru í raun í landhelgisstríði við er-
lenda aðila sem notfæra sér slapp-
leika íslenskra stjórnvalda, sem
ekki hafa stöðvað þessa þróun."
íslandsdeild Amnesty:
Jóhanna K. Eyjólfsdótt-
ir endurkjörin formaður
Á AÐALFUNDI íslandsdeildar Amnesty International, sem var hald-
inn laugardaginn 2. maí, var kosin ný stjórn samtakanna. Helgi E.
Helgason fréttamaður, sem hefur sinnt störfum gjaldkera undanfarin
sex ár, gaf ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu. Jóhanna
K. Eyjólfsdóttir var endurkjörinn formaður en aðrir sem skipa nýja
stjórn eru Steingrímur Gautur Kristjánsson borgardómari, Sif Aðils
safnvörður, Robert Magnus stærðfræðingur, Ingibjörg Kolbeins nemi,
Sigurður A. Magnússon rithöfundur og Stanislas Bohic landslagsarki-
tekt.
Á fundinum var einnig kynnt út-
víkkun á starfssviði alheimssamtak-
anna eins og samþykkt var á síðasta
heimsþingi þeirra í Yokohama í Jap-
an sl. haust. Með þeim breytingum
sem nú hafa verið gerðar á starfs-
sviði Amnesty International geta
samtökin brugðist við fleiri tegund-
um mannréttindabrota en áður.
Annars vegar er um að ræða ofbeld-
isverk, gíslatökur og önnur mann-
réttindabrot framin af„samtökun án
ríkisvalds" (Non-Governmental Ent-
ities) s.s. Skínandi stíg (Sendero
Luminoso) í Perú og Tamílsku tígr-
unum (LTTE) á Sri Lanka. Mann-
réttindabrot slíkra hópa eru nú for-
dæmd af Amnesty International og
fara samtökin fram á að þau virði
alþjóðalög á þessu sviði. Hins vegar
er um að ræða mál fólks sem fang-
elsað er vegna samkynhneigðar.
Slikir einstaklingar geta nú hlotið
stöðu samviskufanga.
(Fréttatilkynning)
Samkór Selfoss:
Vortónleikar
V ORTÓNLEIKAR Samkórsins
verða í Selfosskirkju sunnudag-
inn 17. maí nk. kl. 14.00
Kórinn flytur efniskrá eftir inn-
lenda og erlenda höfunda ásamt
nýjum einsöngvara. Stjórnandi
kórsins er Jón Kristinn Cortes og
undirleikari Þórlaug Bjarnadóttir.
Öllum eldri borgurum er boðið á
tónleikana og allir aðrir eru að sjálf-
sögðu velkomnir.
íFréttJit.ilkvnninor^