Morgunblaðið - 16.05.1992, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAI 1992
23
Elísabet Bretadrottning
Breta-
drottning
er oflaunuð
BRESKUR almenningur er þeirrar
skoðunar að konungsfjölskyldan
breska sé oflaunuð og ekki í jarð-
sambandi, samkvæmt skoðana-
könnun sem BBC stóð fyrir. Það sem
einkum veldur óvinsældum
konungsfjölskyldunnar er lögskiln-
aður Onnu prinsessu og skilnaður
Andrews hertoga af Jórvík og Söruh
Ferguson frá borði og sæng. Flestir
voru þeirrar skoðunar að of margir
úr fjölskyldunni fái greiðslur úr rík-
issjóði og að Elísabet Bretadrottning
fái of háar greiðslur.
Munntóbak
bannað í EB
EVRÓPURÁÐIÐ hefur bannað sölu
á munntóbaki frá og með júlí í Evr-
ópubandalagslöndunum. 10% allra
Svía nota munntóbak og gæti tillag-
an því sett skrekk í margan Svíann
og hugsanlega aukið andstöðu al-
mennings við inngöngu í EB.
Fylgishrun
flokks Kohls
KRISTILEGIR '
demókratar, flokk-
ur Helmuts Kohls,
kanslara Þýska-
lands, biði afhroðs
í kosningum ef
þær yrðu haldnar
núna, samkvæmt
skoðanakönnun
Vestur-þýska út-
varpsins, WDR.
36% aðspurðra
kysi flokk Kohls, sem er 8% fylgis-
tap frá því í þingkosningunum 1990.
Repúblikanar, flokkur hægri öfga-
manna, kæmust samkvæmt þessu
inn á þing í fyrsta sinn.
Lifðu af 175
daga á reki
TVEIR sjómenn frá Suður-Kyrra-
hafsríkinu Kiribati fundust á lífi á
Vestur-Samóaeyjum eftir að hafa
verið á reki í árabát í 175 daga.
Bát mannanna hvolfdi í hvirfilbyl
og utanborðsvélin hvarf við það í
hafið. Þeim tókst að koma bátnum
á réttan kjöl og rak þá um 900
mílur á haf út frá heimaey þeirra
Nikunau áður en þeir náðu landi á
eynni Upolu. Mennirnir nærðust á
fegnvatni og fiskum sem þeir veiddu
með spjóti. Þetta er lengsti tími sem
menn hafa verið á reki á hafi úti
án þess að týna lífinu.
Óttast flótta-
mannastraum
CHRISTINA Rogestam, yfírmaður
útlendingaeftirlitsins í Svíþjóð,
sagði á fímmtudag að stjórnvöld
yrðu að endurmeta afstöðu sína til
flóttamanna sem streymdu til lands-
ins ef önnur Evrópuríki lokuðu land-
amærum sínum fyrir fólki sem flýr
átökin í Júgóslavíu. 25.000 manns
hafa flúið til Svíþjóðar frá Króatíu
og Bosníu-Herzegóvínu og 1.000
manns bætast við í hverri viku.
Stærsta fasteignafyrirtæki í heimi á gjaldþrotsbrúninni:
Olympia and York fer fram
á greiðslustöðvun í Kanada
Heildarskuldir fyrirtækisins eru um 1.100 milljarðar ÍSK
Toronto. Reuter.
OLYMPIA and York, stærsta
fasteignafyrirtæki í heimi, fór
fram á greiðslustöðvun í gær
hvað varðar 28 dótturfyrirtæki
þess í Kanada. Talið er líklegt
að í kjölfar þessa muni fyrirtæk-
ið einnig neyðast til að fara fram
á greiðslustöðvun í Banda-
ríkjunum og Bretlandi. Lánar-
drottnar breska dótturfyrirtæk-
isins sögðust hins vegar ekki
ætla að neyða það út í greiðslu-
stöðvun á þessu stigi. Málið hef-
ur valdið óróa og verðlækkun á
hlutafjármörkuðum enda eru
þær skuldir fyrirtækisins í
meira en 100 bönkum víða um
heim, sem reynt hefur verið að
skuldbreyta síðustu þrjá
mánuði, rúmir 12 milljarðar
dollara, um 700 milljarðar ÍSK.
Stjórnvöld í Bretlandi og
Kanada og frammámenn í bank-
akerfinu fylgjast grannt með
framvindunni en óttast er, að
útlánageta margra banka muni
skerðast stórlega verði O&Y
gjaldþrota. Þá er jafnvel talin
hætta á vaxtahækkun í Kanada
í kjölfarið.
O&Y, sem er í eigu þriggja
Kanadamanna og gyðinga, Reich-
mann-bræðranna, breyttist á fjór-
um áratugum úr litiu fjölskyldufyr-
irtæki í stærsta fasteignafyrirtæki
í heimi og setja byggingarnar, sem
fyrirtækið hefur reist, mikinn svip
á stórborgir eins og New York,
Toronto og London. Virtist allt
breytast í gull, sem þeir bræður
komu nálægt, en efnahagssam-
dráttur síðustu ára og almennt
hrun á fasteignamarkaðinum var
þó meira en þeir fengu ráðið við.
Að margra áliti veldur þó einna
mestu um erfiðleika fyrirtækisins
Canary Wharf í London, stærsta
skrifstofubygging í Bretlandi, 59
hæða há, en hún mun fullbúin
kosta O&Y um 420 milljarða ÍSK.
Byggingin er mikilvægasti þáttur-
inn í áætlun bresku stjórnarinnar
um endurlífgun Docklands-svæðis-
ins í London. Enn hefur ekki te-
kist að leigja út nema 60% af
Canary Wharf og hefur ríkisstjórn-
in gefið í skyn að hugsanlega verði
einhver starfsemi ráðuneyta flutt
í Canary Wharf til að auka aðdrátt-
arafl hverfisins.
Greiðslustöðvunin tekur til 28
dótturfyrirtækja O&Y í Kanada og
sjálft móðurfyrirtækið og fjögur
kanadísku dótturfyrirtækjanna
hafa einnig farið fram á greiðslu-
stöðvun í Bandaríkjunum. Var
ákvörðunin um það tekin þegar
O&Y gat ekki staðið við greiðslu
á 830 milljónum ÍSK. Heildar-
skuldir fyrirtækisins .munu vera
18,5 miiljarðar dala, um 1.100
milljarðar ÍSK.
Hagfræðingar austan hafs og
vestan segjast óttast, að erfiðleikar
O&Y og hugsanlegt gjaldþrot muni
skerða útlánagetu margra banka
á sama tíma og lánsfé er af skorn-
um skammti og hafa alvarlegar
afleiðingar fyrir einstaka banka.
HELSTU STORFRAMKVÆMDIR ÖLYMPIA & YORK
Kanadíska risafyrirtækið, Olympia & York, stærsta byggingafyrirtæki heims, hefur leitað á náðir
skiptaráðanda eftir að tilraun til að fá 15 stærstu lánadrottnanna í bankaheiminum til að
skuldbreyta 12 milljörðum dollara af alls 18,5 milljarða dollara skuld fór út um þúfur
South Hope Street
Los Angeles I Broad Street
New York
Water street New York
Maiden lane New York
ITT byggingin
Park Avenue
New York
Broad Street
New York
Scotia Plaza
Toronto
FALLEGAR
L í N U R
Civic hefur verið endurhannaður með
nýjar kröfur samtímans í huga. Nútímabílar
þurfa að vera kraftmiklir og þægilegir, en
jafnframt taka tillit til umhverfisins.
Efnin sem notuð eru í Civic eru 80%
s endurvinnanleg sem hefur mikið að segja
jS þegar horft er til framtíðarinnar. VTEC er
nýjung í Civic sem opnar ventlana í
hlutfalli við snúningshraða vélarinnar.
Þessi tækni dregur mjög úr mengun og
eyðslu en eykur kraft vélarinnar.
Civic er húinn skemmtilegum innrétt-
ingum. Hver hlutur er á hinum eina rétta
stað. Sætin eru mjúk og þægileg.
Civic fellur undir reglugerð um virðis-
aukaskatt og fæst því einnig án vsk.
Til sýnis núna að Vatnagörðum 24,
mánudaga til föstudaga kl. 9:00 - 18:00 og
laugardaga kl. 11:00- 15:00.
Nánari upplýsingar í síma 68 99 00
Verð frá: 969.000,- stgr.
Verð frá: 778.313,- stgr. án VSK
Greiðslukjör við allra hæfi.
0]