Morgunblaðið - 16.05.1992, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 16.05.1992, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAI 1992 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAI 1992 25 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Arvakur h.f., Reykjavík Flaraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 110 kr. eintakið. Atvinnuástandið Nú þegar kjarasamningar hafa verið samþykktir í flestum félögum launþega er næsta verkefni aðila vinnu- markaðar og ríkisstjórnar að snúa sér að eflingu atvinnulífs í landinu. í yfírlýsingu, sem ríkisstjórnin gaf í tengslum við gerð kjarasamninga var fyrir- heit um samstarf við samtök verkalýðs og vinnuveitenda í því skyni. Ekki veitir af. At- vinnuástandið er alvarlegt, svo ekki sé meira sagt. í aprílmánuði voru um 3.700 manns atvinnulausir. Þeim hafði_ íjöigað um 2.000 á einu ári. í apríl á síðasta ári voru um 1.750 manns atvinnulausir. í janúar sl. voru 1.200 manns atvinnulausir á höfuðborgar- svæðinu. Yfirleitt dregur úr atvinnuleysi, þegar líður á vet- urinn. Að þessu sinni hefur þróunin orðið þveröfug. At- vinnulausum á höfuðborgar- svæðinu fjölgaði um 700 á þremur mánuðum. Á tólf mán- aða tímabili hefur atvinnulaus- um á höfuðborgarsvæðinu ijölgað um 160%. Sumarið er framundan. Á fjórða þúsund ungmenni hafa skráð nöfn sín hjá þeim vinnu- miðlunum, sem starfandi eru og hafa það verkefni að útvega ungu fólki sumarvinnu. Tekjur af sumarvinnu eru í mjög mörgum tilvikum alger for- senda fyrir framhaldsnámi ungs fólks. Þegar svo mikil deyfð er yfir atvinnulífi sem nú er veruleg hætta á ferðum, að ekki takist að útvega þessu unga fólki vinnu og þá er ástæða til að hafa verulegar áhyggjur af skólagöngu fjöl- margra námsmanna næsta vet- ur. Atvinnuleysi er alvarlegt þjóðfélagsvandamál, sem við höfum lítið kynnzt á undan- förnum áratugum. Sumir telja, að „hæfilegt“ atvinnuleysi sé æskilegt. Þeir hinir sömu hafa væntanlega ekki kynnzt því af eigin raun eða telja sig ekki munu kynnast því. Áhrif at- vinnuleysis geta m.a. orðið þau, að fólk gefst upp við að leita að vinnu. Svo neikvæð áhrif hefur það á sálarlíf þess að koma aftur og aftur að lokuð- um dyrum, dag eftir dag, viku eftir viku, mánuð eftir mánuð. Sennilega er atvinnuleysi meira hér en fram kemur í þessum tölum. Líklega er töluvert af fólki, sem hefur ekki látið skrá sig atvinnulaust, þótt það vanti vinnu. Ástæður fyrir því geta verið margvíslegar og persónu- legar. Á viðreisnarárunum fyrri kom til verulegs atvinnuleysis um skeið vegna kreppuástands í atvinnulífi og efnahagsmál- um. Þá var gripið til víðtækra aðgerða til þess að skapa at- vinnu. Ekki er endilega víst, að sömu aðferðir eigi við nú og þá. En það er t.d. alveg augljóst, að verulega meiri vaxtalækkun en nú hefur verið ákveðin er forsenda fyrir því, að atvinnulífið taki fjörkipp. Bandaríkjamenn hafa átt við að stríða samdrátt í efnahags- og atvinnulífi á undanförnum árum. Þeir hafa markvisst unn- ið að því að lækka vexti á síð- ustu misserum til þess að hleypa nýjum krafti í atvinnu- lífið. Hvarvetna í hinum iðn- vædda heimi er litið svo á, að vaxtalækkun sé fnimforsenda þess, að atvinnulífið taki við sér. Við gjörbreyttar aðstæður og í nýju efnahagsumhverfi er ekki hægt að lækka vexti með einu pennastriki. Enn sem fyrr eru minni lántökur opinberra aðila eitt helzta skilyrði fyrir því, að vextir lækki enn frekar en orðið er. Boltinn er því í fangi ríkisstjórnarinnar að þessu leyti. Pepingaaustur úr ríkissjóði dugar ekki til þess að örva at- vinnulífið. Þar verða til að koma margvíslegar aðgerðir á mörgum sviðum. En það skipt- ir verulegu máli, að fulltrúar ríkisstjórnar og aðila vinnu- markaðar hefjist þegar handa til þess að finna skynsamlegar og raunsæjar leiðir í þessum efnum. Atvinnuleysi hefur verið mikið böl í ríkjum Vestur-Evr- ópu og Norður-Ameríku á und- anförnum árum og raunar síð- asta áratug. Atvinnuleysi hefur ekki sízt verið áberandi hjá æskufólki, sem hefur átt afar erfitt með að finna Vinnu. Af- leiðingarnar geta í mörgum til- vikum verið hroðalegar. At- vinnuleysi leiðir til sinnuleysis og vonleysis, sem aftur leiðir til þess að fólk leitar í áfengi og önnur fíkniefni. Afleiðingar aukinnar fíkniefnaneyzlu blasa við okkur nær daglega í hörmu- legum slysum og sorglegum atburðum, þar sem fíkniefni hafa komið við sögu. Við verð- um að snúast til varnar gegn slíku þjóðfélagsástandi. Markús Örn Antonsson borgarstjóri: Ráðstefnumiðstöð í Reykjavík undirbúin FERÐAÞJÓNUSTA er sú atvinnugi-ein sem Reykjavíkurborg hyggst leggja sérstaka áherslu á á næstunni. Stofnuð hefur verið Ráðstefnuskrif- stofa íslands og sérstök nefnd ríkis og borgar hefur undirbúið markaðs- könnun með uppbyggingu ráðstefnumiðstöðvar í Reykjavík í huga. Þetta kom meðal annars fram í ræðu Markúsar Arnar Antonssonar borgar- stjóra á aðalfundi Stjórnunarfélags íslands um Nýsköpun í atvinnurekstri. í máli borgarstjóra kom fram að Hitaveita Reykjavíkur hefur nýlega gerst aðili að Virkir-Orkint, sem sér- hæfir sig í sölu á íslenskri þekkingu á sviði jarðhitarannsókna og virkjana og að unnið væri að markaðsátaki í Kamsjatka, Litháen og Slóvakíu. Eru viðræður hafnar um hugsanlegt sam- starf Virkis-Orkint og Reykjavíkur- borgar um það mál. Þá hefur verið leitað til borgaryfii-valda um þróunar- verkefni á sviði sjávarútvegs en talið er að möguleikar séu á útflutningi á tækniþekkingu á því sviði. Atvinnumálanefnd hafi á undan- förnum árum lagt áherslu á stuðning við atvinnustarfsemi í hátæknigrein- um, ýmist á eigin vegum eða í sam- starfi við Háskóla íslands. Meðal ann- ars með byggingu Tæknigarðs og nú nýlega um stofnun Tækniþróunar hf. í samstarfi við Landsbanka íslands um þá starfsemi sem þar fer fram. Borgin hafi að auki átt þátt í Uftækni- húsi við Iðntæknistofnun íslands á Keldnaholti og byggingu rannsóknar- húss í þágu fiskeldis á Keldum. Hvað varðaði tilraun til að skapa ný atvinnutækifæri sagði Markús ferðaþjónustu efst á baugi. „Sérstök nefnd með aðild samgönguráðuneytis- ins, fjármálaráðuneytis og Reykjavík- urborgar hefur undirbúið markaðs- könnun vegna athugana, sem verið er að gera á því að koma á fót ráð- stefnumiðstöð í borginni. Þrjú alþjóð- leg ráðgjafafyrirtæki hafa gert tilboð í gerð þessarar markaðskönnunar og varð Horwath Consulting í Bretlandi fyrir valinu," sagði Markús. „Miðað er að því að niðurstöður markaðskönn- unar geti nýst þeim aðilum, sem þeg- ar starfa að ráðstefnuhaldi í borginni auk þess að vera undirstaða frekari athugana á möguleikum og hag- kvæmni uppbyggingar nýrrar ráð- stefnumiðstöðvar í Reykjavík." Borgarstjóri vék að framkvæmdum í miðborginni og sagði að ráðgert væri að búa gömlu höfnina þannig úr garði að flest skemmtiferðarskip gætu lagst þar að bryggju. „Undan- farin 10 ár hefur fjöldi ferðamanna með skemmtiferðaskipum til íslands staðið í stað,“ sagði Markús. „Talið er að hinn alþjóðlegi markaður á þessu sviði muni vaxa um 10% á ári til árs- ins 2000 og muni þá vera orðinn á milli 30 til 40 milljónir farþega. Það er því tímabær spurning, hvern skerf við ætlum okkur af þessari grein ferðaþjónustunnar og hvemig við Morgnnblaðið/Sverrir Arbæjarsafn fær styrk Reykjavíkurfélagið afhenti Árbæjarsafni í gær 200 þúsund króna styrk til að rita sögu félagsins og til útgáfu á afmælisriti Árbæjarsafns í haust. Á myndinni sést Ólafur Þorsteinsson formaður Reykjavíkurfé- lagsins afhenda Margréti Hallgrímsdóttur borgarminjaverði fundar- gerðir félagsins frá upphafi og ávísun á styrkinn. Setning reglugerðar um lyfjakostnað tefst ÓVÍST er hvenær ný reglugerð um lyfjakostnað verður sett, en nú er beðið eftir að ÁSÍ, BSRB og KÍ tilnefni fulltrúa í nefnd, sem ætlað er að fara yfir hugmyndir um breytta skipan mála. Fyrirhug- að er að breyta núverandi fyrirkomuiagi þannig, að í stað þess að sjúklingar greiði fastagjald verði tekið upp hlutfallsgreiðslu- kerfi með greiðsluhámarki. Nefnd á vegum heilbrigðisráð- herra skilaði áliti sínu í lok apríl og var niðurstaða hennar sú, að leggja til að tekið yrði upp hlutfalls- greiðslukerfi, sem fælist í því, að sjúklingar greiddu ákveðinn hluta af verði lyfsins, í stað fastagjalds eins og nú er. Þó yrði haft tiltekið greiðsluhámark. Miðlunartillögu ríkissáttasemjara til aðila vinnu- markaðarins í lok síðasta mánaðar fylgdi svo yfirlýsing frá rlkisstjórn- inni, þar sem tekið var fram, að ráðherra myndi hafa samstarf við Alþýðusambandið, Bandalag starfs- manna ríkis og bæja og Kennara- sambandið fyrir setningu reglugerð- ar, sem fæli í sér þessa breytingu. Einar Magnússon, lyfjafræðingur í heilbrigðisráðuneytinu, sagði að samstarfið við stéttarfélögin hefðu beðið þess, að þau tækju afstöðu til miðlunartillögunnar. „Ráðherra hefur óskað eftir því við ASÍ, BSRB og KÍ, að þessi samtök tilnefni full- trúa í nefnd, sem fari yfir hugmynd- ir manna um breytt fyrirkomulag á greiðslu lyfjakostnaðar,“ sagði Ein- ar. „Þetta er töluvert flókið mál og óvíst hvenær niðurstaða fæst. I fyrstu var stefnt að því að reglu- gerðin tæki gildi 1. maí, svo var miðað við 1. júní, en ég á von á að lengri tími líði.“ náum honurn." Taldi borgarstjóri að svaranna væri að leita með aðild Reykjavíkurhafnar að samtökunum Cruise Europa sem hún er aðili að. í ljósi ríkjandi atvinnuástands hefur borgarráð samþykkt að unnið verði áfram að hugmyndum um stofnun þróunarfyrirtækis að erlendri fyrir- mynd til stuðnings atvinnulífinu í borginni. Erlend þróunarfélög hafi þróað markviss vinnubrögð og þangað geta fyrirtæki leitað með upplýsingar sem hugsa sér til hreyfings. Mörg þessara félaga hafa hundruð sér- hæfðra starfsmanna í sinni þjónustu. „Það er því á brattann að sækja í þessum efnum og við drögumst hratt aftur úr, ef við ætlum að leiða þessa þróun hjá okkur,“ sagði Markús. „Þess vegna þarf að glæða skilning þjóðar- innar allrar á því hlutverki, sem Reykjavík og nágrenni þarf að gegna í því að skapa sem flestum góð skil- yrði til búsetu hérlendis í nútíð og framtíð." Morgunblaðið/Þorkell Starfsemi hefst í Geysishúsi Starfsemi í húsakynnum Reykjavíkurborgar í Geysishúsi hófst með formlegum hætti á föstudaginn. Ólafur Jensson, forstöðumaður hússins, sagði að Ferðabær ýrði með starfsemi sína í þeim hluta sem sneri að Aðal- stræti. Þar fyrir innan væru Árbæjarsafn og Borgarskipulag með sýninguna Áðalstræti, saga byggðar. Upp í Vesturgötu 1 væru svo Kjarvalsstaðir með sýningu á listaverkum í eigu Reykjavíkurborgar. Fáir notfærðu sér greiðslukortaþjón- ustu olíufélaganna Margir óskuðu eftir staðgreiðsluafslætti LÍTILL hluti viðskiptavina olíufélaganna notfærði sér í gær greiðslu- kortaþjónustu þeirra, eða um 5-10% þeirra, að sögn starfsmanna bens- ínstöðva, sem Morgunblaðið talaði við. Starfsmennirnir sögðu að mjög algengt væri að þeir viðskiptavinir, sem staðgreiddu, færu fram á að fá afslátt. Talsmenn Félags íslenskra bifreiðaeigenda og Neytendasam- takanna telja eðlilegt, að slíkur afsláttur verði veittur. Forstjóri Skelj- ungs bendir á, að verðið núna sé miðað við staðgreiðslu. Þá séu 70% af bensínverðinu álögur hins opinbera og olíufélögin geti ekki veitt afslátt af því. Hins vegar verði kannað hvernig þessum málum verði háttað í framtíðinni. Ný lög um Lánasjóð íslenskra námsmanna: Frumvarpið var samþykkt með 30 atkvæðum gegn 24 FRUMVARPIÐ um Lánasjóð íslenskra námsmanna var samþykkt sem lög frá Alþingi í gær með 30 atkvæðum stjórnarliða gegn 24 atkvæð- um stjórnarandstæðinga. Þrjár breytingartillögur sljórnarandstöðu, sem fluttar voru við frumvarpið áður en atkvæðagreiðsla fór fram, voru felldar. Umræðan um lánasjóðsfrumvarpið á Alþingi tók í heild 42 klukkústundir en auk þess var það rætt í nokkurn tíma undir dag- skrárliðnum „Gæsla þingskapa." Margir þingmenn kvöddu sér hljóðs til að gera grein fyrir atkvæð- um sínum við afgreiðslu frumvarps- ins í gær. Flestir töluðu um að með gildistöku laganna myndi ekki leng- ur ríkja jafnrétti til náms án tillits til efnahags. Talað var um að sér- staklega væri með samþykkt frum- varpsins vegið að efnaminna fólki á landsbyggðinni. Stjórnarflokkarnir voru gagn- rýndir og þá einkum Alþýðuflokkur- inn. Sögðu þingmenn stjórnarand- stöðunnar að hann gæti ekki lengur með réttu kallast jafnaðarmanna- flokkur íslands. Svavar Gestsson, sagði að gerð hefði verið sérstök samþykkt í þing- flokki Alþýðubandalagsins í gær um að flokksmenn myndu beita sér fyr- ir því að málið yrði tekið upp aftur á sumarþinginu. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sagði að samkvæmt stefnu ríkisstjórnar- innar væri í vetur búið að brjóta niður velferðarkerfið sem byggt hefði verið á mörgum áratugum og samþykkt lánasjóðsfrumvarpsins innsiglaði endanlega þá stefnu. Páll Pétursson, sagði að verið væri að setja vond og óréttlát lög sem myndu verða öllum til óþæginda og allt of mörgum til tjóns. Hann gagnrýndi stjórnarliða sem gert höfðu athugasemdir við frumvarpið en jafnframt greitt því atkvæði. Össur Skarphéðinsson, sem sat hjá við atkvæðagreiðslu um 6. grein frumvarpsins við 2. umræðu, sagði að sú vinna sem fram hefði farið af hálfu þingsins á frumvarpinu hefði leitt til fjölmargra breytinga sem allar hefðu verið til verulegra bóta frá upphaflegri gerð frum- varpsins og því greiddi hann at- kvæði með því. Hann sagðist hins vegar áskilja sér allan rétt til að eiga þátt í breyt- ingum á því ákvæði í framtíðinni ef í ljós kæmi að það hindraði fólk í námi. Þijár breytingartillögur við frum- varpið frá Valgerði Sverrisdóttur, Hjörleifi Guttormssyni og Kristínu Ástgeirsdóttur voru fluttar áður en atkvæðagreiðsla um það fór fram. Við 16. grein var flutt fram breyt- ingartillaga sem gerði ráð fyrir að námsmaður þyrfti að óska sérstak- lega eftir því að félagsgjald til náms- mannahreyfingar yrði ekki dregið frá námsláni en frumvarpið gerir ráð fyrir að ósk námsmanns þurfi að koma til ef draga eigi þessi gjöld frá lánunum. Tillagan var felld með 30 atkvæð- um gegn 24. Við 19. grein var gerð tillaga um breytingu í þá veru að fyrir lok þessa árs yrðu lögin endurskoðuð í sam- ráði við samtök námsmanna og ný lög um LIN yrðu lögð fyrir næsta þing. Tillagan var felld með 30 at- kvæðum gegn 24. Þá var gerð tillaga um breytingu á 6. grein frumvarpsins á þá leið að næsta haust skyldu veitt lán er næmu a.m.k. 2/3 hlutum áætlaðra námslána á haustmisseri en fram hefði komið að enn væri óráðstafað heimildum í Ijárlögum að upphæð 800 milljónum króna. Tillagan var felld með 28 atkvæð- urn gegn 25. Ingi Björn Albertsson greiddi tillögunni atkvæði sitt og Ossur Skarphéðinsson sat hjá. Morgunbiaðið hafði í gær sam- band við nokkrar bensínstöðvar Esso, Olís og Skeljungs. Starfsmenn þeirra voru sammála um, að greiðslu- kortaviðskiptin færu rólega af stað. Hins vegar töldu þeir líklegt, að ýmisleg smávara, önnur en bensín og olíur, freistaði viðskiptavina meira, þegar greitt væri með korti. Á einni stöðinni hafði korthafi til dæmis ákveðið að kaupa sér hljóm- tæki í bílinn. Starfsmennirnir sögðu viðskiptavinina hafa af því nokkrar áhyggjur, að bensínverð hækkaði vegna greiðslukortanna og mjög margir hefðu farið fram á stað- greiðsluafslátt. Einn viðskiptavina Olís hafði til dæmis haft á orði, að hann ætlaði að beita sér fyrir stofn- un samtaka, sém tryggðu, að fólk fengi afslátt þegar staðgreitt væri. Á einni stöðinni taldi starfsmaður, að kortaviðskiptin gætu leitt til þess, að minna yrði um smáskammtakaup í lok mánaðar. „Það er oft mikið að gera hjá okkur í lok mánaðar, en lítil sala, því þá er fólk að kaupa svo lítið af bensíni í einu. Þetta gæti breytt því,“ sagði hann. Stefán O. Magnússon hjá Félagi íslenskra bifreiðaeigenda sagði, að hann teldi út af fyrir sig ágætt, að fólk ætti kost á þessum greiðslu- máta, en þó með þeim fyrirvara, að bensín hækkaði ekki í kjölfarið. „Ef verðið hækkar, er eðlilegt að þeir sem staðgreiða fái afslátt,“ sagði Stefán. „Kostnaður vegna þessara viðskipta má ekki leggjast á þá, sem ekki vilja notfæra sér þessa þjón- ustu.“ María E. Ingvarsdóttir, varafor- maður Neytendasamtakanna, kvaðst telja eðlilegt og sjálfsagt að olíufé- lögin byðu greiðslukortaþjónustu. „Það er hins vegar nauðsynlegt að BSRB mótmælir nýj- um lögum um LIN STJÓRN BSRB kveðst harma þá aðför að námsfólki sem felst í samþykkt lagafrumvarpsins um Lánasjóð íslenskra námsmanna. Stjórnin segir það leggjast lítið fyrir ráðherra sem á sínum tíma hafi fengið óverðtryggð námslán og borgi nú smáaura í afborganir, að hafa forgöngu um að velta fortíðarvanda sjóðsins af fullum þunga yfir á það fólk sem stundi nám í dag. Þetta kemur fram í fréttatil- kynningu sem stjórn félagsins sendi frá sér í gær. „Stjórn BSRB vekur athygli á óhóflegri greiðslubyrði námsfólks samkvæmt hinum nýsamþykktu lög- um. Ungu fólki með ineðaltekjur er gert afar erfitt fyrir hvað varðar fjár- hagslegar skuldbindingar meðan á endurgreiðslu námslána stendur, og lendir því fyrirsjáanlega í miklum vandræðum á húsnæðismarkaðinum að loknu námi,“ segir í tilkynning- unni. Þá mótmælir stjórn BSRB því að vextir séu settir á námslán og segir það lýsa furðulegri skammsýni ráða- manna að líta fram hjá þeirri stað- reynd að sú menntun sem námsfólk afli sér komi öllu þjóðfélaginu til góða. Námsmenn á þingpöllum lesa upp úr ritgerð Jóns Sigurðssonar Um skólamál á íslandi. Atkvæðagreiðsla á Alþiiigi trufluð FJÖLDI námsmanna fylgdist með afgreiðslu nýrra laga um Lánasjóð íslenskra námsmanna á Alþingi í gær. Hópur þeirra truflaði atkvæðagreiðslu um málið með því að lesa einum rómi tilvitnun í ritgerð Jóns Sigurðssonar forseta um skóla- mál og varð á ineðan hlé á þing- haldi. Að trufluninni lokinni ávarpaði Salóme Þorkelsdóttir, forseti Al- þingis, námsmennina. Hún sagði gestum ávallt velkomið að fylgjast með störfum þingsins en til þess væri ætlast að ekki hlytist truflun af nærveru þeirra. Morgunblaðinu er kunnugt um að fimin óeinkennisklæddir lög- reglumenn hafi verið í Alþingis- húsinu þegar frumvarpið var af- greitt, þingvörðum til aðstoðar. Einnig var lögreglubíil til taks við húsið. Áður en afgreiðsla frum- varpsins fór fram afmáði lögreglan áletrun sem tvær ungar konur höfðu skrifað á gangstétt Austur- vallar, við styttu Jóns Sigurðsson- ar. ■ bjóða upp á staðgreiðsluafslátt, enda vilja olíufélögin sjálf varla að allir greiði með korti,“ sagði hún. „Mér finnst hins vegar afar slæmt að frumvarp til laga um greiðslukorta- viðskipti skuli ekki hafa náð fram að ganga á þessu þingi, því þá væri ljóst hveijir eiga að bera kostnaðinn af viðskiptunum. Olíufélögin þurfa að huga að öllum hliðum þessa máls og helst strax, en ekki síðar.“ Kristinn Björnsson, forstjóri Skelj- ungs, segir að verð á bensíni nú sé miðað við staðgreiðslu. „Það á apnað við um olíufélögin en til dæmis versl- anir, því við getum ekki veitt afslátt af 70% verðsins, sem eru álögur hins opinbera. Við hljótum hins vegar að kanna möguleika á því, að bjóða upp á mismunandi verð eftir greiðslu- máta. Ég bendi til dæmis á, að er- lendis notar fólk debet-kort, þar sem upphæðin dregst hverju sinni beint af ávísanareikningi. Bankarnir hér á landi hafa ekki tekið upp slíka þjón- ustu, en ef svo verður, þá gætu de- bet-korthafar greitt lægra verð en kredit-korthafar, enda eru þeir í raun að staðgreiða vöruna." Námsdvöl fyrir Litháa hér á landi BÚNAÐARFÉLAG íslands hefur í samvinnu við Bændaskólann á Hvanneyri og í samráði við Land- búnaðarráðuneytið boðið fimm ungmennum frá Litháen, einni stúlku og fjórum piltum, til námsdvalar á íslenskum bænda- býlum og munu þau dveljast hér næstu þrjá mánuði. Nemarnir eru á aldrinum 18 til 30 ára. Þau eru úr þeim fjölmenna hópi fólks í Litháen sem hefur hug að hefja sjálfstæðan fjölskyldubú- skap á rústum samyrkjubúanna. Stjórnvöldum þar í landi hafa borist um 120 þúsund umsóknir um jarð- næði fyrir sjálfstæðan búrekstur. Þau munu aðallega leggja stund á verknám í landbúnaði og verður reynt að skipuleggja það með svip- uðu sniði og almennt verknám bænd- askólanema. Stefnt er að því að þau kynnist öllum aimennum vinnu- brögðum sem fylgja fjölskyldu- búrekstri, sem spannar allt frá dý- raumhirðu til bókhalds. Búnaðarfélagið hefur á undan- ( förnum inánuðuni átt viðræður við stjórnvöld í Litháen um möguleika á þróunarsamvinnu sín á milli í land- búnaði. Ákveðið var að hefja hann á námsdvöl nokkurra ungmenna hér á landi. Þetta er fyrsta samstarfs- verkefni á milli landanna sem hrint hefur verið i framkvæmd frá því Litháar lýstu yfir sjálfstæði landsins. Á hinum Norðurlöndunum hefur ver- ið hrundið af stað fjölda samstarfs- verkefna af svipuðum toga og er mikill áhugi á aukinni samvinnu Norðurlandanna og Eystrasaltsríkj- anna sem kunnugt er hjá Norður- landaráði. Þá hefur Bændasamtökunum bor- ist beiðini frá „Agrointerseivice" í Rússlandi um að 10 rússneskir nem- ar yrðu styrktir til námsdvalar hér ... á landi. .

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.