Morgunblaðið - 16.05.1992, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAI 1992
27
Efnahagur góður hjá
Hvammstangahreppi
Gatnaframkvæmdir í forgang á komandi sumri
Hvammstanga.
FJÁRHAGSÁÆTLUN Hvammstangahrepps fyrir árið 1992 gerir
ráð fyrir heildartekjum sveitarfélagsins að fjárhæð 71,2 millj. kr.
Framkvæmdir sveitarfélagsins verða helstar að ljúka lagningu
slitlags á götur í byggðinni, framkvæmdir við leikskóla og gerð
aðalskipulags, sem er endurskoðun á eldra skipulagi. Sveitarfélag-
ið rekur vatnsveitu, hitaveitu og höfn auk grunnskóla leikskóla,
sundlaugar, áhaldahúss og margvíslegra samstarfsverkefna með
öðrum sveitarfélögum í héraðinu.
Fjárhagsáætlun Hvamms- mest til leikskólabyggingar 7,3
tangahrepps fyrir árið 1992 er
birt íbúum Hvammstangahrepps
og öðrum áhugasömum í hand-
hægu broti. Tekjur eru reiknaðar
helstar: Útsvar 37,2 milljónir, að-
stöðugjald 12,9 milljónir, fasteign-
askattur 10,9 milljónir, aðrar tekj-
ur 11,1 milljón.
Stærstu liðir til útgjalda: Til
yfirstjórnar 10,6 milljónir, félags-
þjónustuna 6,7 milljónir, fræðslu-
mál 11 milljónir, æskulýðs- og
íþróttamál 5,8 milljónir. Gjaldfærð
fjárfesting er mest til gatnamála
20,1 milljón og skipulagsmála 3,3
milljónir. Eignfærð fjárfesting er
milljónir og til grunnskólans 2
milljónir.
Afkoma sveitarfélagsins er góð
og aðeins fara 4,3 milljónir í liðinn
„greiðslubyrði lána“, sem er staða
eftir afborganir og vexti lána, að
frádregnum greiðslum af lang-
tímakröfum sveitarfélagsins.
Velta Hitaveitu Hvammstanga
er reiknuð 19,1 milljón og er ætlað
að skila til sveitarfélagsins 4,9
milljónum. Skipt var um áramót
um söluaðferð og tekin upp mæla-
sala í stað hemla. Olli þessi breyt-
ing nokkurri óánægju hjá íbúum
staðarins og var m.a. haldinn
borgarafundur, að tilhlutan verka-
lýðsfélagsins, um málið. Reikning-
ar sumra notenda höfðu hækkað
um allt að helming, en með bætt-
um stillingum í hitakerfi húsa hef-
ur fólk náð fram verulegum sparn-
aði í vatnsnotkun. Fram kom hjá
oddvita sveitarfélagsins, að ef
tekjur veitunnar yrðu hærri en
reiknað væri með, myndu neytend-
ur fá bætur í einhverju formi.
Á liðnu sumri var rekinn vinnu-
skóli, sem var endurbætt ungling-
astarf sem sveitarfélagið hefur
starfrækt um árabil. Vinnuskólinn
sá á markvissari hátt um ýmis
umhverfismál staðarins, m.a. um
opin svæði á staðnum. Er mál
manna að þetta starf hafi skilað
sér vel í bættri umgengni og er
þessum þætti ætluð tæp hálf millj-
ón á komandi sumri.
Sveitarstjóri Hvammstanga-
hrepps er Bjarni Þór Einarsson.
- Karl.
Það hrikti í sperr-
um og húsið skalf
Gardi.
Morgunblaðið/Arnór
Samkomuhúsiö var troöfullt
og augljóst að gestir nutu
þess sem í boði var. Á inn-
felldu myndinni má sjá hvar
Birta Rós Arnórsdóttir þakk-
ar Sigrúnu Hjálmtýsdóttur
fyrir sönginn.
M-hátíð sett í Garðinum:
Höfn Hornafirði:
Myndlista-
sýning í
Pakkhúsinu
Pjetur Stefánsson myndlista-
maður, opnar sýningu á teikn-
ingum í Pakkhúsinu, á Höfn í
Homarfirði, laugardaginn 16.
maí. Flestar myndirnar em frá
áranum 1989 til 1992 og unnar
í Reykjavík, Róm og París.
Pjetur útskrifaðist úr grafík-
deild Myndlista og handíðaskólans
árið 1982 og stundaði þar áfram
nám í eitt ár og auk þess eitt ár
í Nýlistadeild. Hann hefur dvalið
og starfað í Kaupmannahöfn,
Amsterdam og við Snæfellsnes
Mob Shop, Kjarvalsstofu í París
og Cité des arts í París, Rómar-
íbúð, London og Madrid.
Pétur hefur átt verk á samsýn-
ingum og auk þess haldið einka-
sýningar allt frá árinu 1976. Með-
al annars á Kjarvalsstöðum, í Ás-
mundasal, Listmunahúsinu, Djúp-
inu og á Akureyri og í Vestmanna-
eyjum. Auk þess hefur hann gefið
út fjórar breiðskífur. Frá árinu
1987 hefur hann starfað í hluta-
starfí hjá Sjónvarpinu sem tölvu-
grafíker.
Kór Landsbanka íslands.
KÓR Landsbanka íslands undir
stjórn Friðriks S. Kristinssonar
heldur sína fyrstu opinberu vor-
tónleika i Langholtskirkju
sunnudaginn 17. maí nk. kl.
ÞAÐ VAR hátíðarstemmning í samkomuhúsinu sl. fimmtudagskvöld.
Á þriðja hundrað manns komu á setningu M-hátíðar þar sem fjölmarg-
ir listamenn léku og sungu. Hæst bar þegar Sigrún Hjálmtýsdóttir sté
á fjalirnar við undirleik Jónasar Ingimundarsonar. Sigrún lék á als
oddi og heillaði Garðmenn við kröftugan undirleik Jónasar og segja
má að það hafi hrikt í sperrum og húsið hafi nötrað, fyrst við háa
tóna Diddúar en síðan við hrifningu áhorfenda.
*
Fyrstu tónleikar kórs LI
15.00.
Öllum er frjáls ókeypis aðgang-
ur. Á efnisskrá eru innlend og er-
lend lög, aðallega þó innlend.
Hulda Hjálmarsdóttir, formaður
M-nefndar í Garðinum, stýrði sam-
komunni en það var oddvitinn, Finn-
bogi Björnsson, sem setti hátíðina.
Fjölmargir listamenn komu fram,
einkum af yngri kynslóðinni. Bjöllu-
kór spilaði, lúðrasveit sem stofnuð í
haust lék í upphafi hátíðar, félagar
úr Litla leikfélaginu sýndu hluta úr
leikriti og þannig mætti lengi telja.
Ólafur G. Einarsson menntamála-
ráðherra hafði boðað komu sína en
umræðan um námslánin kom í veg
fyrir það. í hans stað ávarpaði Er-
lendur Einarsson fulltrúi í mennta-
málaráðuneytinu samkomuna.
Samkomunni lauk með því að
heiðurskonan Sigrún Oddsdóttir
flutti brag með aðstoð kirkjukórsins
og samsöng hátíðargesta. í lok hátíð-
ar var boðið upp á kaffi sem kven-
félagskonur stóðu að með reisn.
Annars er það að frétta úr menn-
ingargeiranum að Tónlistarskólan-
um var slitið sl. þriðjudag með fjöl-
mennum lokatónleikum. Þá sýnir
Litla leikfélagið leikritið „Helgin
framundan" um þessar mundir við
góða aðsókn og loks má nefna að
um helgina var haldið mjög fjöl-
mennt ball þar sem síungir heima-
menn spiluðu við góðan orðstír. Ung
söngkona, Birta Rós Arnórsdóttir,
kom fram með þeim félögum og
þrátt fyrir náin tengsl við undirrit-
aðan verður að segjast að stúlkan
stóð sig frábærlega.
Arnór
Athygli vakin á störfum safna:
Víða opið hús á Alþjóðadegi safna
ALÞJÓÐADAGUR safna er mánudaginn 18. maí nk. Stofnað var til
dagsins árið 1977 að fmmkvæði Alþjóðaráðs safna, ICOM, og hefur
hann siðan verið haldinn ár hvert til að vekja athygli á hlutverki
safna í þjóðfélaginu. í tilefni dagsins verða nokkur söfn meðal ann-
ars með opið hús þar sem gestum gefst kostur á að skyggnast að
tjaldabaki og fylgjast með margvíslegum störfum safnanna. Nokkur
þeirra fara hér á eftir:
Pjetur Stefánsson myndlistamað-
Á höfuðborgarsvæðinu:
Árbæjarsafn:
Sunnudaginn 17. maí verður far-
in vettvangsferð um Elliðaárdal og
hefst hún við Árbæinn kl. 13.30.
Komið verður við í Minjasafni Raf-
magnsveitu Reykjavíkur og farið
upp dalinn. Skoðuð verða áhuga-
verð náttúrufyrirbrigði. Áætlaður
tími er tvær klukkustundir.
Mánudaginn 18. maí verður opið
hús kl. 10-12 og 13-16. Verk-
stæði safnsins og skrifstofur verða
opin, en nú stendur sem hæst sýn-
ingagerð og undirbúningur fyrir
sumaropnun safnsins.
Náttúrufræðistofnun:
Sýningarsalir Náttúrufræði-
stofnunar við Hlemmtorg verða
opnir sunnudaginn 17. og mánu-
daginn 18. maí kl. 13.30-16. Leið-
Tónleikar í Laugarnesskóla
ÁRLEGIR vortónleikar Lúðra-
sveitar Laugarnesskóla verða
haldnir í skólanum sunnudaginn
17. maí kl. 14.30. Stjórnandi
kórsins er Stefán Stephensen.
Kaffisala verður eftir tónleikana
til styrktar lúðrasveitinni.
sögumaður verður Kristbjörn Egils-
son. Náttúrufræðistofnun sinnir
rannsóknum og fræðslu um náttúru
íslands, dýrafræði, grasafræði og
jarðfræði.
Nesstofa, Selljarnarnesi:
Opið hús sunnudaginn 17. maí
kl. 13—16. í Nesstofu er verið að
koma upp læknaminjasafni og verð-
ur það opnað á næstunni. Á sunnu-
daginn gefst gestum kostur á að
skoða geymslur safnsins og fylgjast
með sýningu verða til. Gripir safns-
ins eru orðnir á fimmta þúsund,
þeir elstu frá tíma Bjarna Pálsson-
ar, sem var landlæknir á seinni
hluta 18. aldar og bjó í Nesi.
Sjóminjasafn Islands:
Sjóminjasafn íslands, Vestur-
götu 8 í Hafnarfirði, verður með
opið hús_ sunnudaginn 17. maí kl.
14-18. Á sama tíma verður báta-
skýli Sjóminjasafnsins og Þjóðminj-
asafns að Vesturvör 14, Kópavogi,
opið almenningi. I Sjóminjasafni er
um þessar mundir verið að setja
upp sumarsýningu sem gestum
gefst kostur á að sjá, ásamt vegg-
spjaldasýningu með kynningu á
starfsemi safnsins. Einnig verða
geymslur safnsins opnar.
Þjóðminjasafn Islands við Suður-
götu:
Opið hús verður í öllum deildum
Þjóðminjasafns sunnudaginn 17.
maí kl. 11-16. Starfsemi safnsins
er eflaust umfangsmeiri en marga
grunar. Þar fara auk rannsókna á
ýmsum sviðum fram forvarsla og
viðgerðir á forngripum úr fornleifa-
rannsóknum, skráning á gömlum
ljósmyndum, söfnun heimilda um
lifnaðarhætti á landinu fyrr á tím-
um og einnig hefur safnið umsjón
með endurbyggingu gamalla húsa
í landinu, svo eitthvað sé talið.
Utan höfuðborgarsvæðisins:
Öll söfnin á Austurlandi verða
opið hús sunnudaginn
með
17.
hús
maí. Þau eru eftirfarandi:
Minjasafnið á Burstafelli:
Opið kl. 14-18. Verið er að lag-
færa safngripi og setja safnhúsið í
stand fyrir sumarið.
Minjasafn Austurlands á Egils-
stöðum:
Opið kl. 14-17. Þar er nú unnið
við að hreinsa, skrá og merkja safn-
gripi. Gestum gefst kostur á að
skoða nýju safnabygginguna, sem
nú er fokheld.
Tækniminjasafn Austurlands á
Seyðisfirði:
Opið kl. 16-19. Safnið er á undir-
búningsstigi og verða geymslur í
framtíðarhúsnæði safnsins opnar.
Sjóminjasafn Austurlands á Eski-
firði:
Opið kl. 13-17. Safnvörður verð-
ur í Gömlu búð, en einnig verður
hægt að skoða Randulfssjóhúsið og
báta úti við.
Byggðasafnið á Höfn í Horna-
Firði:
Opið kl. 14-18. Safnvörður verð-
ur að störfum. Myndlistarsýning
verður í pakkhúsi sem safnið eign-
aðist nýlega og hægt að skoða
geymslur þar.
(Fréttatilkymiing)
Hveraportið - Tívolí
SOLUMARKAÐURINN í Hvera-
gerði sem nefndur er Hveraport-
ið opnar aftur sunnudaginn 17.
maí nk. Hveraportið er opið alla
sunnudaga kl. 13-20 og er á
góðum stað í Tívolíhúsinu.
Þar er nóg húsrými og góð að-
staða til að selja allt mögulegt,
notað og nýtt, á góðu verði. Hvera-
portið var mjög vinsælt allt síðasta
sumar.
(l’r fréttíltilkynninfru.)