Morgunblaðið - 16.05.1992, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAÍ 1992
Utandagskrárumræða um vanda sauðfjárbænda:
8.200 tonna greiðslu-
mark kjöts á næsta ári
VANDI sauðfjárbænda og adlögun að búvörusamningi var til
umræðu utandagskrár í gær, að beiðni Egils Jónssonar (S-AI).
Halldór Blöndal landbúnaðarráðherra sagði að eins og nú horfði,
mætti reikna með því að greiðslumark kindakiöts yrði ekki vfir
8.200 tonnum.
Að beiðni Egils Jónssonar var
vandi sauðfjárbænda og aðlögun
að búvörusamningi rædd utan
dagskrár í gær. Egil beilti m.a. á
hinn geigvænlega „flata niður-
skurð“ sem stefndi í 17-20%. Þessi
ótíðindi yllu ugg meðal þess fólks
sem hefði framfæri sitt af land-
búnaði. Við síðustu Alþingiskosn-
ingar hefði mátt heyra skýrar yfir-
lýsingar um að ekki mætti koma
til flatrar niðurfærslu á fram-
eiðslurétti. Egill Jónsson gagn-
■ýndi „þau þröngu viðhorf til land-
DÚnaðarins“ sem gætt hefðu og
^ætti enn og ætti búvörusamning-
arinn sinn þátt í því. Það yrði að
/firfara þennan samning og
freista þess að lagfæra þá ann-
narka sem á honum væru. Sturla
Böðvarsson (S-Vl) benti á að það
/æru ekki bara bændur sem
finndu fyrir flatri skerðingu heldur
MMAGI
einnig þeir sem störfuðu í úr-
vinnslugreinum. Á Snæfellsnesi
og í Dölum gæti niðurskurðurinn
orðið allt að 25% samkvæmt upp-
lýsingum frá búðaðarsamböndum
þessara svæða.
Halldór Blöndal landbúnaðar-
ráðherra ítrekaði þau áform ríkis-
stjórnarinnar að beita sér fyrir
kaupum á fullvirðisrétti af þeim
bændum sem ætluðu sér að hætta
búskap. Það kom einnig fram í
ræðu landbúnaðarráðherra að enn
væri neysla á kindakjöti á innan-
landsmarkaði að dragast saman.
Eins og nú horfði mætti reikna
með því að greiðslumark næsta
árs yrði ekki yfir 8.200 tonnum.
Það þýddi 300 tonna samdrátt
milli ára. Eða 400 tonna sam-
drátt, ef þau 100 tonn sem Fram-
leiðnisjóður hefði borið kostnað af
vegna hinnar sérstöku sauðfjár-
byggða væru tekin með í reikning-
inn.
Bændasamtökin hlytu að velta
því fyrir sér hvernig á því stæði
að neysla hefði dregist svo mjög
saman. Það hlyti að kalla á það
að einnig í þessari framleiðslu yrði
reynt í meira mæli en verið hefði
að koma til móts við markaðinn.
Ráðherra taldi opinbera forsjá
ekki vænlega til að greiða fyrir
nýjum atvinnutækifærum í sveit-
um. Loðdýraræktin hefði verið
hörmuleg saga og áminning. Á
hinn bóginn hefði grettistökum
verið lyft í ferðaþjónustu bænda.
480 milljónir vantar í At-
\dimuleysistryggmgarsj óð
„ÞAÐ vantar 480 milljónir króna í Atvinnuleysistryggingarsjóð,“
segir Svavar Gestsson (Ab-Rv). Davíð Oddsson segir það hafa
verið fullljóst að ríkistjórnin yrði að flylja frumvarp til fjárauk-
alaga vegna yfirlýsingar í tengslum við gerð kjarasamninga.
Svavar Gestsson (Ab-Rv) til Sigbjörns Gunnarssonar for-
kvaddi sér hljóðs síðasta fimmtu- manns heilbrigðis- og trygginga-
dag þegar greidd voru atkvæði um
frumvarp frá heilbrigðis- og trygg-
ingarnefnd um Atvinnuleysis-
tryggingarsjóð. Nefndin flytur
þetta mál.að beiðni heilbrigðis- og
tryggingaráðherra vegna yfirlýs-
ingar ríkisstjórnarinnar í tengslum
við gerð kjarsamninga. Svavar
greindi frá því að borist hefðu
nýjar upplýsingar um stöðu sjóðs-
ins sem kæmu fram í minnisblaði
nefndar. Á þessu blaði kæmi m.a.
fram að áætluð framlög úr ríki-
sjóði árið 1992 þyrftu að hækka
úr 1.280 milljónum króna í 1.759
milljónir króna. Væri þá gert ráð
fyrir því að 150 milljóna króna
sparnaður sá sem hefði átt að
nást fram með breytingu á lögum
um Atvinnuleysistryggingarsjóð
myndi ekki ganga eftir. Hækkunin
myndi því geta numið um 480
Bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness:
Þingmenn gagnrýna þátttöku ríkisins
ÁKVÖRÐUN menntamálaráð-
herra um samstarf við bókaút-
gáfuna Vöku-Helgafell um bók-
menntaverðlaun kennd við Hall-
dór Laxness, var gagnrýnd af
stjórnarandstöðuþingmönnum í
fyrradag.
I fyrirspurnartíma spurði Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir (K/R)
hvaða reglur giltu um samstarf
ríkisins og Vöku-Helgafells vegna
STUTTAR
ÞINGFRÉTTIR
Lög frá Alþingi
Á 145. fundi Alþingis síðasta
fimmtudag var samþykkt sem lög
frá Alþingi frumvarp til laga um
Söfnunarsjóð lífeyrisréttinda. Á
146. fundi í gær var samþykkt sem
lög frumvarp um Lánasjóð ís-
lenskra námsmanna og einnig
frumvarp um breytingu á almenn-
um hegningarlögum, þ.e. þeim
lagabálki sem varðar kynferðisbrot.
þessara verðlauna. Hún sagði að
tímabært hefði verið að efna til
verðlauna til heiðurs Halldóri Lax-
ness en gagnrýndi hvemig að því
væri staðið. Um væri að ræða
handritasamkeppni eins útgáfufyr-
irtækis, styrkta af ríkinu. Slík sam-
keppni væri til þess fallin að laða
til sín efnilegustu byijendur á bók-
menntasviðinu og þar með væri
ríkið að skekkja samkeppnisstöðu
bókaútgáfufyrirtækja.
Ólafur G. Einarsson mennta-
málaráðherra sagði að ekki hefði
verið gengið endanlega frá reglum
um samkeppnina en menntamála-
ráðherra myndi skipa fulltrúa í
dómnefnd og leggja til hluta af
verðlaunafé í fyrsta skiptið. Síðan
væri ásetlað að verðlaunasjóðurinn
stæði undir sér með ágóða af sölu
verðlaunabókarinnar árið áður.
Hann sagði að sér kæmi gagnrýn-
istónn Ingibjargar á óvart og sagði
að fordæmi væru fyrir því að ríkið
ætti samstarf við eitt bókaforlag
um verðlaun sem þessi, til dæmis
stílverðlaun Máls og menningar
sem kennd eru við Þórberg Þórðar-
son.
Ólafur Ragnar Grímsson
(Ab/Rn) tók undir með Ingibjörgu
Sólrúnu um að yfirgnæfandi líkur
væru á að þátttaka ríkisins í verð-
launasjóðnum skekkti samkeppnis-
stöðu bókaútgáfa. Hann sagði að
verðlaun Máls og menningar væru
allt annars eðlis en fyrirhuguð
verðlaun kennd við Halldór Lax-
ness. Um væri að ræða verðlaun
fyrir bækur sem þegar hefðu kom-
ið út, og þau væru ekki bundin við
útgáfubækur einnar bókaútgáfu.
Davíð Oddsson forsætisráð-
herra sagðist geta tekið undir þau
almennu sjó'narmið sem komið
hefðu fram um þátttöku ríkisins í
slíkum verðlaunum. Hins vegar
væri réttlætanlegt að ríkið tæki
þátt í þessum verðlaunum vegna
þess að um væri að ræða samstarf
við Helgafeil sem hefði lengi skeið
veitt bókaútgáfu á landinu alls
kyns stuðning.
milljónum króna.
Svavar Gestsson fór þess á leit
að málinu yrði aftur vísað til
nefndarinnar svo hægt væri að
skoða það í ljósi þessara upplýs-
inga. Svavar og fleiri stjórnarand-
stæðingar spurðu stjórnarliðið eft-
ir frumvarpi til fjáraukalaga til
að mæta þessum útgjöldum. Dav-
íð Oddsson forsætisráðherra
sagði að það hefði verið ljóst að
vegna yfirlýsingar ríkisstjórnar-
innar í tengslum við gerð kjara-
samninga yrði að flytja frumvarp
til fjáraukalaga. Svavar Gestsson
treysti ríkisstjórninni mátulega
eða alls ekki til að flytja þetta
nauðsynlega frumvarp nægilega
snemma til þess að sjóðurinn gæti
mætt útgjöldum og ef ríkisstjórnin
„hefði ekki rænu“ til að koma
frumvarpinu saman yrði Alþingi
að hjálpa henni til þess.
Vegna tilmæla Svavars Gests-
sonar var frumvarpinu vísað til
heilbrigðis- og trygginganefndar
með 36 samhljóða atkvæðum.
Alþingi kemur sam-
an á ný þann 17. ágúst
REGLULEGT Alþingi 1992,
116. löggjafarþing, skal koma
saman mánudaginn 17. ágúst.
Sama dag lýkur 115. löggjafar-
þingi. I fyrrinótt var útbýtt til
þingmanna frumvarpi frá for-
sætisráðherra um samkomu-
dag reglulegs Alþingis.
Frumvarpið um samkomudag
Alþingis er flutt í samræmi við
samkomulag þingflokka um þing-
meðferð mála er tengjast samn-
ingum um Evrópskt efnahags-
svæði. Með þessari bráðabirgða-
breytingu á samkomudegi þjóð-
þingsins er stefnt að því að lengja
starfstíma Alþingis haustið 1992.
En reglulegur samkomudagur
Alþingis er 1. október að öðru
jöfnu.
Samkomulag þingflokkanna
gerði upphaflega ráð fyrir að
Alþingi kæmi saman 10. ágúst
til að fjalla um samninginn um
Evrópskt efnahagssvæði og mál
honum tengd en þessi vikufrestun
mun hafa verði gerð vegna til-
mæla stjórnarandstöðunnar. Enn
mun vera að því stefnt að yfir-
standandi þing geri hlé á sínum
störfum næstkomandi þriðjudag,
19. maí.“
SVFÍ hefur átak í
slysavömum til sveita
SLYSAVARNAFÉLAG íslands
er að hefja aukið átak í slysa-
vörnum til sveita. Tilgangurinn
er að vinna að aukinni notkun
öryggishlífa á drifsköft dráttar-
véla og hvetja til slysavama í
Iandbúnaði.
Á árunum 1970-1990 voru til-
kynnt 49 banaslys í landbúnaði og
má rekja í það minnsta helming
þeirra til dráttarvéla og drifbúnaðar
þeirra. í könnum sem SVFÍ gerði
í apríl sl. þar sem farið var á 50
bændabýli bæði á Austur- og Suð-
urlandi kom í Ijós að á yfir 40%
drifskafta vantaði hlífar eða þær
eru mjög lélegar.
Framkvæmd átaksins byggist á
að senda tvo menn akandi umhverf-
is landið á hvert sveitabýli. Þeir
hafa meðferðis drifskaftahlífar,
bjóða bændum þær til kaups og
aðstoð við að setja þær á. Einnig
hafa þeir meðferðis verkfæri og
varahluti til lagfæringar á drif-
sköftum en það er ekki síður mikil-
vægt að hafa þau í góðu ástandi.
Ráðgjöf í slysavömum verður að
sjálfsögðu boðin.
Átakið er kostnaðarsamt og
verður ekki framkvæmt nema að
Forráðamenn Glóbusar og Slysavarnafélagsins fyrir framan sérútbúnu bifreiðina sem Globus hefur
styrkt átakið með.
'A'i n
Travstur búnoður /
til komi stuðningur við það. Glóbus
hf. hefur sýnt átaki þessu mikinn
áhuga og styrkir það, meðal annars
leggur fyrirtækið til sérútbúna bif-
reið til að nota við átakið. SVFÍ
hefur óskað eftir styrk frá ýmsum
aðilum, sem tengjast landbúnaði og
vonar að þeir bregðist vel við. Haf-
ist verður handa í annarri viku maí
og byijað á Austurlandi. Það er von
þeirra sem standa að átakinu að
bændur taki vel á móti slysavarna-
mönnunum, noti tækifærið og setji
hlífar á drifsköftin.
(Fréttatilkynning)